Morgunblaðið - 04.01.1997, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 1997 3 7 :
Guðmundur
Kristján Sigur-
geirsson, fyrrverandi
bóndi í Klauf í Eyja-
fjarðarsveit, fæddist
á Arnstapa í Ljósa-
vatnsskarði 30. apríl
1918. Hann lést á
Fjórðungssjúkrahús-
inu á Akureyri 28.
desember siðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru Sigurgeir Bjarni
Jóhannsson, f. 20.
október 1891 í Landa-
mótsseli, d. 8. júlí
1970, og Anna Guð-
rún Guðmundsdóttir, f. 22. ág-
úst 1897 á Kúfustöðum í Svart-
árdal, d. 17. desember 1989.
Systkini Guðmundar eru: Jó-
hann Kristinn, f. 1919, Halldór,
f. 1924, d. 1968, Sigrún, f. 1926,
Sigurveig Brynhildur, f. 1930,
Guðríður Kristjana, f. 1933,
Erna, f. 1934.
Eftirlifandi eiginkona Guð-
mundar er Ingibjörg Jóhanns-
dóttir frá Litladal í Tungusveit
Elsku afi
Þá ert þú loksins laus við þraut-
irnar og hefur öðlast frið. Við systk-
inin viljum minnast þín með fáum
orðum og þakklæti fyrir allt. Við
höfum notið þeirra forréttinda að
búa með afa og ömmu á uppvaxtar-
árum okkar, ólíkt flestum af okkar
kynslóð og þau hafa verið okkur
eins og aðrir foreldrar. Afi sá til
dæmis um það að hjálpa okkur að
losna við lausar tennur og þótti
okkur aldeilis merkilegt að það
gæti gengið svona sársaukalaust
fyrir sig eins og aðgerðin var skelfi-
leg frá okkar sjónarhóli. Appelsínur
voru ekki ætar nema þegar afi flysj-
aði þær. Þá skriðum við upp í sjón-
varpssófann við hliðina á honum,
hann náði í vasahnífinn og skar í
börkinn eftir kúnstarinnar reglum
svo að við gætum tekið hann utan
af. Svo hölluðum við okkur upp að
afa og borðuðum appelsínuna með
bestu lyst yfir sjónvarpsfréttunum.
Einnig var mjög vinsælt að fá afa
til að sveifla okkur. Þá stóðum við
á fótum hans og héldum í hendurn-
ar og hann sveiflaði okkur upp og
niður þangað til við fengum í mag-
ann af hlátri.
Afi vildi alltaf allt fyrir okkur
gera þó að við höfum örugglega
ekki alltaf verið svo þægileg við-
fangs og hann fylgdist vel með því
sem við tókum okkur fyrir hendur
allt fram á síðasta dag. Hann gladd-
ist fyrir okkar hönd þegar vel gekk,
hvort sem það var í íþróttum, námi
eða hverju sem var og sömuleiðis
huggaði hann ef ekki gekk allt sem
skyldi. Honum var mikils virði að
við kæmum vel fram við menn og
málleysingja og þroskuðumst sem
manneskjur. Því reyndi hann að
rækta með okkur það sem hann
taldi nauðsynlegt að við byggjum
yfir. Eitt af því var skógræktar-
áhuginn. Afí gerði sér far um að
taka okkur með sér þegar eitthvað
þurfti að gera í skógarreitnum,
kenna okkur réttu vinnubrögðin og
vekja með okkur áhuga og virðingu
fyrir tijánum og öðrum gróðri. í
skógarreitinn hér heima plantaði
hann þremur öspum, einni fyrir
hvert okkar, sem við höfum fylgst
með vaxa og dafna, rétt eins og
með okkur hefur vaxið og dafnað
sú þekking og speki sem afi kenndi
okkur.
í minningunni skipa veikindi
hans óneitanlega stóran sess enda
þurfti hann að kljást við þau síð-
ustu tíu árin eða svo. Aldrei gafst
hann upp þrátt fyrir ýmiss konar
áföll aftur og aftur. Afi unni hvers
kyns söng og skemmtunum og var
fastagestur á öllum menningarvið-
burðum hér í sveit og sá enga
ástæðu til þess að láta veikindin
aftra sér frá því. Honum fannst
sjálfsagt að fylgjast með sveitung-
í Lýtingsstaða-
hreppi. Börn
þeirra eru: 1) Geir,
f. 1942, kvæntur
Heiðbjörtu Eiríks-
dóttur og eiga þau
þijú börn. 2)
Hólmfríður Guð-
rún, f. 1946, gift
Jóni Eggertssyni
og eiga þau þijá
syni. 3) Hjalti, f.
1947, kvæntist Sól-
veigu Sigtryggs-
dóttur sem lést
1982, þau eign-
uðust tvær dætur,
sambýliskona Hjalta er Guðný
Ósk Agnarsdóttir, hún á tvö
börn. 4) Leifur, f. 1952 kvæntur
Þórdísi Karlsdóttur, þau eiga
þijú börn. 5) Anna Sigríður, f.
1959, sambýlismaður hennar er
Haukur Geir Guðnason, þau
eiga einn son.
Guðmundur verður jarðsung-
inn frá Munkaþverárkirkju í
dag og hefst athöfnin klukkan
13.30.
um sínum og öðrum og hafði mjög
gaman af.
Afi var góður maður og við sökn-
um hans sárt. Við þökkum guði
fyrir að hafa fengið að hafa hann
hjá okkur um jólin. Mest er um
vert að hann er ekki þjáður lengur
og við vitum að honum líður vel
og hefur öðlast frið. Við geymum
hann í minningum okkar ásamt
öllu því góða sem hann ræktaði
með okkur.
Guð blessi þig, elsku afi.
Laufey, Karl og Ingibjörg
Leifsbörn.
Elsku afi í Klauf liefur nú fengið
hvíldina.
Við þurfum að hugsa langt aftur
til að muna hvernig afi var áður
en hann veiktist, en þegar við ger-
um þaðmunum við eftir ýmsu, eins
og til dæmis þegar við systurnar
komum í Klauf þegar við vorum
bara smástelpur og afi fór með
okkur út í skógarreit til að sýna
okkur hreiðrin. Hann lyfti okkur
upp svo við gætum skoðað betur,
en við urðum að vera fljótar svo
fuglinn yfrigæfi ekki hreiðrið sitt.
Eins vorum við æstar í að fara út
í fjjós og hjálpa afa við að gefa
kálfunum og leyfa þeim að sjúga
aðeins á okkur fíngurna. Við fórum
líka oft upp í gömlu Klauf og lékum
okkur í gamla Willysnum á meðan
afi hugaði að tijánum- sem hann
var búinn að gróðursetja þar upp
frá.
Svona getum við haldið áfram,
en elsku afi, þakka þér fyrir allt
og all.
Þínar sonardætur,
Heiður og Gígja.
Okkur systkinin langar að minn-
ast í fáeinum orðum föðurbróður
okkar Guðmundar Sigurgeirssonar
sem okkur var afar kær.
Foreldrar okkar, Halldór, sem
nú er látinn, og móðir okkar, Her-
dís, kynntust í Klauf á heimili Guð-
mundar og Ingibjargar þegar Her-
dís var þar kaupakona og hefur
síðan verið sérstakt samband milli
heimilanna auk frændskaparins.
Guðmundur kom okkur fyrir sjón-
ir sem ákaflega hjartahlýr maður,
var góðsemin uppmáluð og stutt í
húmorinn. Minningar um sumt fólk
hlýja manni. Þannig er því einmitt
háttað þegar við hugsum til hans
Guðmundar frænda okkar í Klauf.
Guðmundur og Ingibjörg komu
oft á heimili okkar sem áður hafði
verið æskuheimili hans að heim-
sækja aldraða móður, ömmu okkar,
en okkur fannst þau ekkert síður
vera að heimsækja okkur krakkana
því við fengum þá athygli sem við
sóttumst eftir frá þeim Ingibjörgu.
Það var okkur því alltaf gleðiefni
þegar við höfðum einhvern pata af
því, að von væri á þeim hjónum.
Hann hafði yndi af veiðiskap og
komu hann og tveir sveitungar hans
stundum í veiðiferðir og þá var dreg-
ið fyrir í Ljósavatni langt fram á
kvöld. Við krakkamir eltum og sofn-
uðum jafnan í bátnum þegar róið
var á milli víknanna. Þá var farið í
kaffí heim í Stapa, karlamir sögðu
sögur og við hlógum með þó við
vissum ekkert út af hveiju, það var
svo gaman þegar Guðmundur kom.
Guðmundur var afar frændræk-
inn og umhugað um ættmenni sín
og kannski þykir okkur svona vænt
um hann þess vegna, það virtist
alltaf pláss fyrir mann í huga hans.
Við vitum að það var honum sér-
stakt gleðiefni þegar haldið var
ættarmót vorið 1991 og síðan aftur
síðastliðið haust. Þá mætti hann,
þó þrotinn væri að kröftum, heim
í Stapa til að fylgjast með og hitta
ættmenni sín. Það gladdi okkur öll
að hann skyldi geta verið með.
Kæra Ingibjörg og þið öll, við
sendum ykkur okkar dýpstu samúð-
arkveðjur. Við minnumst þessa
frænda okkar með hlýju og virð-
ingu.
Systkinin frá Arnstapa,
Halldórsbörn.
t
Elskulegur eiginmaður, faðir okkar, tengdafaðir, fósturfaðir og afi,
ÓLAFUR SKÚLASON,
Þórufelli 14,
Reykjavík,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 2. janúar.
Jarðarförin auglýst síðar.
Valborg GuSrún Eiríksdóttir,
Guðbjörg Ólafsdóttir,
Ingibjörg Laufey Ólafsdóttir, Guðmundur Lárus Guðmundsson,
Þór Guðmundsson, Ágústa Þyrí Andersen,
Karl Guðmundsson
og barnabörn.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
HENRY EDWARD CLEMENSEN
(Eddie),
1412 Randall Rd,
Independence,
MO 64055-1608,
U.S.A.,
andaðist á sjúkrahúsi 1. janúar 1997.
Jarðarförin fer fram í Lúthersku kirkj-
unni í Independence í dag, laugardaginn 4. janúar.
Guðriður Jóna Jónsdóttir Clemensen (Dúa)
frá Garðbæ á Akranesi,
Nfna Anna Anders, Ira Anders,
Jón Anders og Amy Anders.
GUÐMUNDUR
SIG URGEIRSSON
t
Eiginmaður minn,
MAGNÚS AÐALSTEINSSON,
fyrrv. lögregluþjónn,
lést á heimili sínu 2. janúar.
Hjördis Björnsdóttir
og börn hins látna.
t
STEFÁN HANNESSON,
Austurgötu 29B,
Hafnarfirði,
lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi 31. desember sl.
Aðstandendur.
t
Eiginkona mín,
HREFNA MAGNÚSDÓTTIR,
Bakkagerði 14,
lést 3. janúar 19^7.
Sigurður Gislason
og aðrir vandamenn.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma og langalangamma,
AÐALBJÖRG SKÚLADÓTTIR,
Karfavogi 42,
Reykjavík,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 2. janúar.
Fyrir hönd vandamanna,
Ingibjörg Gunnarsdóttir,
Einar Gunnarsson.
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
SVEINN A. SÆMUNDSSON
blikksmíðameistari,
Vogatungu 87,
Kópavogi,
lést á heimili sínu 2. janúar.
Alda Sveinsdóttir, Jón Ingi Ragnarsson,
Ólína M. Sveinsdóttir, Trausti Finnbogason,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn,
SIGURÐUR R. JÓHANNSSON
frá Höfðahúsi
í Vestmannaeyjum,
Hrefnugötu 3,
er látinn.
Kristín Pétursdóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn
og aðrir vandamenn.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ÁSLAUG SIGURÐARDÓTTIR,
hjúkrunarheimilinu Eir,
áður Bústaðavegi 109,
andaðist 26. desember 1996.
Að ósk hinnar látnu hefur útförin farið
fram í kyrrþey.
Pétur V. Maack, Margrét Halldórsdóttir,
Brynhildur M. Pétursdóttir, Ægir Pétursson,
Hilmar Pétursson, Málfrfður Lorange,
Gunnar Pétursson,
Þórir Maack Pétursson,
Bernharð M. Pétursson,
Mari'a Pétursdóttir, Kristinn Steingrímsson,
Elísabet Þ. Á. Maack Pétursdóttir, Halldór Ingólfsson,
barnabörn og barnabarnabörn.