Morgunblaðið - 04.01.1997, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 1997 25
Lesendur spyrja
Morgunblaðið/Kristinn
ÁSKELL Þórisson við hjólkoppana sem nú prýða bifreið hans.
Hjólkoppar 222%
dýrari í Reykjavík
FYRIR jólin kannaði Áskell Þórisson
verð á hjólkoppum á Volvo-bifreið
sína. Þeir kostuðu 4.603 krónur
stykkið. Ef Áskell hefði keypt eða
pantað fjóra hjólkoppa hefðu þeir
kostað 18.412 krónur. _
Skömmu síðar átti Áskell leið til
Kielar í Þýskalandi og fór þar í
Volvo-verslun. Þar keypti hann ij'óra
hjóikoppa af sömu gerð og hann
spurði um hjá umboðinu heima. Fyr-
ir fjögur stykki borgaði hann 132.32
þýsk mörk sem samsvarar um það
bil 5.715 krónum. Þegar Áskell kom
heim hafði hann aftur samband við
Brimborg sem er með Volvo-umboð-
ið til að fá verðið staðfest. Fékk
hann uppgefið sama verð og áður
18.412 krónur. Verðmunurinn er
12.697 krónur og hjólkopparnir því
rúmlega 222% dýrari hérlendis.
Áskell segist gjarnan vilja fá á því
útskýringar hveiju munurinn sæti.
Svar: „Innkaupsverðið hjá okkur
er 1.560 krónur á hvern hjólkopp
og það er hærra en útsöluverð á
hverjum hjólkoppi í Kiel. Útsöluverð-
ið er semsagt lægra en innkaupsverð-
ið okkar,“ segir Egill Jóhannsson
framkvæmdastjóri hjá Brimborg hf.
„Þetta skýrir verðmuninn að stór-
um hluta,“ segir Egill. Ofan á þetta
verð borgum við 20% vörugjald og
24,5% virðisaukaskatt. Við höfum
ekki náð sambandi við Volvo-verk-
smiðjumar í Svíþjóð til að fá á því
viðhlítandi skýringar hversvegna inn-
kaupsverðið til okkar er 23% hærra
en útsöluverðið í Kiel en skýringarn-
ar kunna að vera ótalmargar."
ÞAÐ var í nógu að snúast þegar litið var inn hjá Verðlistanum í gær
Útsölur að hefjast
Afsláttur
svipaður
og í fyrra
SUMAR verslanir eru þegar byijað-
ar með útsölur og þar hefur verið
mikið að gera.
Nokkrar verslanir við Laugaveg
ætla að hefja útsölu í dag, á löngum
laugardegi. Þeirra á meðal er Be-
netton við Laugaveg en þar á allt
að seljast og nýjar vörur eru seldar
með 20-50% afslætti. Við Skóla-
vörðustíg hefja einnig nokkrar
verslanir útsölur í dag.
Hjá Verðlistanum byijaði útsalan
síðastliðinn fimmtudag og að sögn
Halldóru Ágústsdóttur hefur verið
margt um manninn þar. Þar er
veittur 30% afsláttur af vetrarvöru
og 50% af eidri vöru.
Flestar útsölur hefjast í Kringl-
unni þann 9. janúar næstkomandi.
Þó eru sumar verslanir þegar bytj-
Morgunblaðið/Ásdís
JÓLAVARNINGUR var seld-
ur með 40-70% afslætti hjá
versluninni Byggt og búið í
Kringlunni en þar hófst útsal-
an í gær.
aðar með útsölu eins og Monsoon
og Byggt og búið.
Hagkaup fylgir dagsetningu
Kringlunnar með útsölu, sem þýðir
að 9. janúar hefst útsaia þar á bæ.
Að sögn Arnar Kjartanssonar hjá
Hagkaupi mega viðskiptavinir bú-
ast við allt að 70% afslætti að þessu
sinni.
Útsalan í sérvörudeild Bónuss í
Holtagörðum hefst þann 8. janúar
og þar geta viðskiptavinir keypt
vörur með 50-80% afslætti.
Þvottaefni fyrir upp-
þvottavélar eru hættuleg
ÞVOTTAEFNI fyrir uppþvottavélar
eru hættuleg efni og mun hættu-
legri en venjulegur uppþvottalögur.
Nýlega var gerð könnun á merking-
um þvottaefna fyrir uppþvottavélar
og kom í ljós að aðeins ijórar af
sextán tegundum sem skoðaðar
voru reyndust alltaf og alls staðar
rétt merktar. Könnunin var fram-
kvæmd af Hollustuvernd ríkisins
og heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga.
Að sögn Bryndísar Skúladóttur
efnaverkfræðings á eiturefnasviði
hjá Hollustuvernd ríkisins eru flest
þessara efna sterkt basísk og því
ætandi eða ertandi fyrir húð og
mjög hættuleg ef þau komast í
munn eða meltingarveg. „Það er
því mikilvægt að merkingar séu
réttar og á íslensku."
Ætandi og ertandi efni
í þvottaefnunum
Hún segir að langflest þvottaefni
fyrir uppþvottavélar innihaldi það
mikið magn af ætandi og ertandi
efnum að varan er merkingarskyld
samkvæmt íslenskum reglum og
eiga merkingar að vera á íslensku,
með viðeigandi varnaðarorðum,
varnaðarmerkjum og notkunarleið-
beiningum. Varnaðarmerkin eru
svört á appelsínugulum grunni. Til-
gangurinn er að vekja athygli á
hættu við ranga notkun efnanna
og forða slysum. „Þetta er sérstak-
lega brýnt þegar um er að ræða
efni sem eru notuð í heimahúsum.
Þó að sá sem kaupir inn fyrir heimil-
ið geti lesið erlendar leiðbeiningar
þá eru oft fleiri á heimilinu sem
umgangast þessi efni og þurfa að
geta fylgt þeim.“
Þvottaefnin eru ýmist merkt sem
ertandi eða ætandi og Bryndís seg-
ir að efni flokkist sem ætandi ef
þau sundra eða tæra lifandi vef.
Ertandi efni skaða aðeins ystu lög
húðarinnar og geta valdið roða og
kláða. Þau má þekkja á varnaðar-
merkjunum og þeim varnaðar- og
liættusetningum sem fylgja.
Geymist þar sem börn
ná ekki til
Bryndís segir að börn undir sex
ára verði helst fyrir siysum vegna
hættulegra efna. Hún telur aldrei
of oft brýnt fyrir fólki að geyma
hættuleg efni á ör-
uggum stað þar
sem börn ná ekki
til. „Þau má ekki
geyma í ruslaskáp
eða uppi á eldhús-
borði. Það er einnig
varhugavert að
setja hættuleg efni
í aðrar umbúðir en
þær eru seldar í
vegna hættu á að
varan sé tekin í
misgripum fyrir
annað. Það getur til dæmis verið
hættulegt að hella þvottaefni í fal-
lega krús með skeið og stilla upp
á borð. Þess eru dæmi að gestkom-
andi í húsi hafi þannig tekið þvotta-
efni í misgripum fyrir salt og notað
til matargerðar."
Sumar umbúðir
óheppilegar
„Umbúðir þvottaefna eru mis-
góðar en það eru ýmist pappakass-
ar eða plastbrúsar. „Plastbrúsarnir
hafa þann kost að þeir eru með
öryggisloki. Pappakassarnir eru
óheppilegri því það er ekki mögu-
legt að loka þeim þegar þeir hafa
einu sinni verið opnaðir. Auk þess
þola þeir illa bleytu og hnjask.“
Bryndís segir að kannanir erlendis
hafi sýnt að fækkun verður á slys-
um af völdum hættulegra efna þeg-
ar öruggar umbúðir eru teknar í
notkun. Það er því full ástæða telur
hún til að hvetja fólk til að velja
vöru af þessu tagi í öruggum um-
búðum. Hún segir ennfremur að
ráðgert sé að banna fljótlega aðrar
umbúðir en þær sem eru með ör-
yggislokum fyrir ætandi efni.
Gefa vatn og leita læknis
- En hvernig á fólk að bregðast
við ef efnið berst í augu eða munn?
„Fyrstu viðbrögð skipta miklu.
Það er mikilvægt að leiðbeiningar
á umbúðum séu aðgengilegar. Ef
slys verður er rétt að hafa samband
við lækni eða Eitrunarupplýsinga-
stöðina sem er tii húsa á Sjúkra-
húsi Reykjavíkur. Ef efni berst í
augu á að skola strax með miklu
vatni. Við inntöku á ekki að fram-
kalla uppköst heldur gefa vatn að
drekka og leita strax læknisaðstoð-
ar. Ástæðan fyrir því að ekki á að
framkalla uppköst er sú að slímhúð
vélindans er viðkvæm fyrir ætandi
efnum. Við uppköst koma efnin
aftur í gegnum vélinda og valda
enn meiri skaða. Einnig er hætta á
að efnin berist í lungu.“
Að lokum tekur Biyndís fram að
rekist neytendur á vörur af þessu
tagi sem eru með varnaðarmerking-
um á útlensku en ekki á íslensku
sé æskilegt að þeir hafi samband
við heilbrigðiseftirlit síns sveitarfé-
lags.