Morgunblaðið - 04.01.1997, Qupperneq 22
MORGUNBLAÐIÐ
22 LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 1997
RIÐUR og kyrrð ríkti
í húsakynnum jóga-
stöðvarinnar Heims-
ljóss þegar undirritaður
steig þar sín fyrstu spor í átt
til bættra lífshátta, undir for-
merkjum og leiðsögn jóga-
heimspekinnar. Kristbjörg
Kristmundsdóttir jógakenn-
ari hafði boðist til að styðja
hann fyrstu skrefin og henni
til aðstoðar var Guðni Franz-
son klarínettuleikari. Sjálf-
sagt er vart hægt að hugsa
sér betra veganesti enda
virðast seiðandi tónarnir úr
blásturshljóðfærum tónlist-
armannsins hverfast um lífs-
speki lærimeistarans og
óhjákvæmilega kemst maður
í upphafið sálarástand af
slíkum samhljómi.
„Guðni kom inn í þetta
samstarf eins og engill af
himni ofan,“ segir Kristbjörg
aðspurð um hvernig samstarf þeirra, sem nú
hefur skilað sér á geisladiski, er tilkomið.
Guðni kveðst hins vegar ekki stunda jóga
sjálfur enn sem komið er, en hann er „alltaf
á leiðinm að fara að byrja“ eins og svo marg-
ir aðrir.
„Guðni er fæddur jogi, hann bara veit það
ekki sjálfur," segir Kristbjörg. „Sem tónlist-
armaður er hann í þessu flæði, sem er sam-
bærilegt við jóga,“ segir hún ennfremur og
Guðni tekur undir það sjónarmið að tónlist
sé á vissan hátt miMl hugleiðsla. „Ég las um
jóga sem unglingur, sérstaklega um það er
lítur að önduninni og lærði æfingar sem ég
nota enn þegar ég spila," segir hann.
SamspH líkamsþjálfunar
gg einbeitingar
Kristbjörg kennir svokallað Kripalu jóga,
sem byggist á samspili líkamsþjálfunar og
hugleiðslu og einbeitingar.
„Þetta snýst um það að af-
tengja sig frá öllum ytri áreit-
um sem fylgja hinu daglega
amstri. Losa um mótstöðu,
sem líkami og hugur mynda
gagnvart því sem óþægilegt
er. í lífinu,“ segir hún til út-
skýringar. „Fyrir mér er
þetta leiðin til að lifa af í
brjáluðum heimi,“ bætir hún
við brosandi.
„Hægt er að stunda
jóga með mörgum
mismunandi aðferð-
um, og valið stendur
um hvernig menn vilja
nálgast viskuna og
kjamann í sjálfum sér
og finna út hvað hent-
ar hverjum og einum.
Hægt er að gera það í
gegnum líkamann,
með því að stunda
teygjur og æfingar, en
sumum hentar betur að gera það í
gegnum hugann. Aðrir geta nálgast
þetta á trúarlegum forsendum eða í
gegnum athafnir og störf. Ég kenni
fólki að nálgast þennan kjama í gegn-
um líkamann fyrst og fremst, en þó
með andlegu ívafi, það er að segja að
draga athyglina inná við, frá skilning-
arvitunum. En þetta skýrist allt þeg-
ar við byrjum."
Um inntak þeirrar lífsspeki sem
jóga byggist á segir Kristbjörg meðal
annars: ,AHt h'f á jörðinni er í raun
eitt, þó við upplifum okkur aðgreind
hvert frá öðra, því við höfum sameig-
inlegan kjama eða uppsprettu innra
með okkur. Við höfum einnig skap-
andi áhrif hvert á annað og á okkur
sjálf. Því úr uppsprettunni flæðir
hinn lífgefandi kraftur í gegnum okk-
ur og myndar allar þær fjölbreyttu
Lífsspeki jóga
byggist á andlegri
og líkamlegri þjálf-
un með það mark-
mið að styrkja hug-
ann og losa sjálfíð
úr fjötrum efnis-
heimsins. Sveinn
Guðjónsson fór í
tíma til Kristbjarg-
ar Kristmundsdótt-
ur og Guðni Franz-
son lék undir á klar-
ínettu og ástralskan
frumbygaahólk.
Hver er munurinn á sálkönnun og atferlisfræði?
GYLFI ÁSMUNDSSON SÁLFRÆDINGUR SVARAR SPURNINGUM LESENDA
Spurning: Hvað felst í sálkönn-
un og atferlisfræði, hver er mun-
urinn á þeim og hverjum koma
þessi fræði að gagni. Er hægt að
læra þessar greinar hérlendis?
Svar: Hér er spurt um tvær
meginstefnur í sálfræði og geð-
lækningum og í stuttu svari fæst
aðeins ófullkomin og yfirborðs-
leg mynd af þessum umfangs-
mildu fræðum.
Kenning Sigmundar Freuds
um sálkönnun byggist á athug-
unum hans á sjúklingum sínum,
þar sem afbrigðileg hegðun og
geðræn sjúkdómseinkenni eru
notuð til að varpa ljósi á almennt
heilbrigt sálarlíf, þróun þess og
persónuleika. Sálkönnun skoðar
manneskjuna sem heild, feril
hennar frá frambernsku og þau
gagnvirkandi öfl, sem eru að
verki í sálarlífinu. Margt er þar
óljóst og umdeilanlegt og margir
skoða þessar kenningar fyrst og
fremst sem kerfi af vinnutilgát-
um, líkan af persónuleikanum,
sem stöðugt er í endurskoðun.
Freud gekk út frá þeirri frum-
forsendu að sálarlífið væri orka,
sem upphaflega væri rannin frá
hinni lífeðlisfræðilegu orku, sem
væri síumbreytanleg og tæki á
sig hinar ýmsu myndir í skynj-
un, hugsun, tilfinningalífi og at-
ferli. Uppspretta orkunnar væri
í frumstæðum hvötum, sem leit-
uðu útrásar og fullnægingar, en
sú útrás mótaðist af kröfum um-
hverfisins. Kröfur frum-
hvatanna um tafarlausa fullnæg-
ingu og kröfur umhverfisins um
hömlur og aðlögun að raunveru-
leikanum sköpuðu togstreitu,
sem annars vegar leiddu til að-
lögunar og þroska, en gætu hins
vegar leitt til geðrænna sjúk-
dómseinkenna. Eftir því sem
áhrif raunveruleikans verða
meira ráðandi verða hinar frum-
stæðu hvatir meira dulvitaðar,
en hið meðvitaða sálarlíf sækir
eftir sem áður orku sína þangað.
Allt atferli á sér orsakir og oft
liggja þær í dulvitundinni; ekk-
ert verður fyrir tilviljun. Mark-
mið sálkönnunar er að leita
þessara orsaka hjá einstaklingn-
um og gera honum þær meðvit-
aðar, þannig að hann fái innsæi í
samhengið í sálarlífi sínu. í
þessu felst lækning sálkönnun-
ar.
Atferlisfræði er runnin undan
Sálarlíf
og atferli
rifjum tilraunasálfræðinna. Hún
kom fram sem andsvar við þeim
aðferðum við rannsóknir og
meðferð, sem algengar vora á
þeim tíma, m.a. sálkönnun.
Þessar aðferðir voru að miklu
leyti huglægar og erfitt að prófa
þær á þann hátt sem vísindin
gera kröfur um.
Megininntak atferlisfræðinnar
er að atferli mótist fyrir áhrif
frá umhverfinu við skilyrðingu
viðbragða. Tilraunir rússneska
lífeðlisfræðingsins Pavlovs
sýndu hvemig viðbrögð við nýj-
um áreitum verða til á grund-
velli hinna gömlu. Tiltekin áreiti
kalla fram tiltekin lífeðlisfræði-
leg viðbrögð. Með því að para
þessi áreiti við önnur hlutlaus
áreiti kalla þau einnig fram
sömu viðbrögð. Þetta nefnist
skilyrðing. Samkvæmt kenning-
um atferlisfræðinga byggist allt
atferli mannsins upp stig af stigi
á þennan hátt. Öll dýr laga sig
að kringumstæðum eftir lögmál-
um um umbun og refsingu. Það
einkennir sérstaklega manninn,
að atferli hans mótast með námi
og reynslu.
Menn gerðu sér snemma
grein fyrir því, að ef viðbrögð
mannsins almennt lærast og
mótast fyrir lögmál skilyrðing-
ar, hlytu óheppileg viðbrögð og
atferli, sem flokkast undir geð-
ræn sjúkdómseinkenni einnig
oft að vera af sömu rótum rann-
in. Því var farið að gera árang-
ursríkar tilraunir með svonefnd-
ar atferlislækningar. Þeim er
beitt með góðum árangri við
fælni og geðræn streitueinkenni,
og á síðustu árum hafa einnig
verið gerðar vænlegar tilraunir
með stjómun ósjálfráðrar lík-
amsstarfsemi, svo sem blóð-
þrýstings og hjartsláttar. Helsta
gagnrýni á þetta meðferðarform
hefur komið frá sálkönnuðum,
sem telja að hér sé aðeins verið
að lækna einkennið. Því megi
gera ráð fyrir að þau sálrænu
vandamál sem liggja til grund-
vallar leiti út í nýjum einkenn-
um.
Munurinn á þessum tveimur
kenningum og aðferðum þeirra
til lækninga felst að veralegu
leyti í því að atferlislækningar
fást fyrst og fremst við að af-
marka atferli meðan sálkönnun
miðar að gagngeram breyting-
um á persónuleika.
Hvorki atferlisfræði né sál-
könnun er hægt að læra til
starfsréttinda hér á landi. At-
ferlisfræði er verulegur hluti af
almennu sálfræðinámi, en ekki
er enn hægt að ljúka fullgildu
prófi til starfsréttinda í sálfræði
við Háskóla íslands. Sálkönnun
sem meðferðarform er mjög sér-
hæft og langt nám, sem sumir
sálfræðingar og geðlæknar legg-
ja fyrir sig sem viðbótarnám. I
því felst m.a. að þeir gangi sjálf-
ir í gegnum sálkönnunarmeð-
ferð, sem tekur nokkur ár með
þéttum viðtalstímum hjá sál-
könnuði. Hægt er að stunda
námið til réttinda við stofnanir
erlendis, sem sérhæfa sig á
þessu sviði.
•Lesendur Morgunblaðsins geta spurl
sálfræðinginn um það sem þeim liggur
Á hjnrta. Tekið er á móti spumingum á
virkum dögum milli klukkan 10 og 17 í
sínm 569 1100 og bréfum eða símbréf-
um merkt: Vikulok, Fax 5691222.