Morgunblaðið - 04.01.1997, Qupperneq 16
16 LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 1997
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Flóð í Bandaríkjunum og
miklir kuldar í Evrópu
London, San Francisco. Reuter, The Daily Telegraph.
VETRARHÖRKURNAR í Evrópu hafa valdið miklum samgöngutruflunum
og áratugir eru síðan svo margir, um 160 manns, hafa látist þar af völd-
um kulda á jafn skömmum tíma. Búist er við að ástandið versni enn þar
sem ekkert bendir til þess að breyting verði á veðrinu næstu daga. 12.000
ferðamenn komust hvergi í Róndalnum í Frakklandi í gær vegna þess að
allt að tíu sentimetra íslag á járnbrautarteinum stöðvaði lestimar. Vestan-
hafs hafa einnig verið hamfarir, talið er að 14 manns hafi farist af völd-
um vatnavaxta og aurskriðna í vesturhluta Bandaríkjanna síðustu daga.
Kalt er á austurströnd landsins.
í Lyon í suðausturhluta Frakk-
lands fengu þreyttir ferðamenn húsa-
skjól á járnbrautarstöðvum, í skólum,
herbækistöðvum og íþróttasölum.
Margir kvörtuðu undan því að ráða-
menn járnbrautanna hefðu ekki veitt
farþegunum nægilegar upplýsingar
um aðstæður og gerðu lítið til að
aðstoða þá.
Aðfaranótt föstudags sátu um
5.000 manns fastir í bílum sínum á
vegum í Róndalnum og fólk var hvatt
til að leggja ekki í nein ferðalög.
Stærstu flugvellir í landinu eru opnir
en víða hefur minni völlum verið lok-
að. Tveir skíðamenn fórust í Ölpun-
um, annar þeirra af völdum snjóflóðs.
Meira en 50 manns, aðallega fá-
tæklingar og utangarðsmenn, hafa
dáið vegna kuldanna í Rúmeníu og
eru líkhús orðin yfirfull, sums staðar
neita starfsmenn kirkjugarða að
jarða látna vegna þess að jörðin er
gaddfreðin. í Póllandi hafa 40 manns
látist, margir þeirra aldrað fólk en
einnig hafa margir ofdrykkjumenn
sofnað á víðavangi og dáið úr kulda.
í Bonn í Þýskalandi sögðust grafarar
verða að nota þrýstiloftsbora til að
brjótast í gegnum 50 sentimetra
þykkt, frosið moldartag. Starfsbræð-
ur þeirra í Leipzig notuðu gamlar
aðferðir, þeir létu glóandi kol liggja
■ á jörðinni í sex til átta stundir til
að þíða moldina. 35 hafa týnt lífi í
Þýskalandi vegna kuldanna.
Vetrardekk og súkkulaði
Snjókoman var fjögurra ára dreng
til bjargar í ítölsku borginni Pioltello,
Reuter
MIKLAR vegaskemmdir hafa
orðið í vesturhéruðum Banda-
ríkjanna vegna flóðanna, rúm-
lega 30 metra langur kafli á
gatnamótum hrundi niður í gjá
í úthverfinu Shorline í Seattle.
Carter leysi
gíslamálið
Lima. Reuter.
HAROLD Forsyth, stjórnar-
andstöðuþingmaður í Perú,
hvatti stjóm landsins í gær
til að biðja Jimmy Carter,
fyrrverandi forseta Banda-
ríkjanna, til að hafa milli-
göngu um samningaviðræður
við skæruliða sem halda 74
mönnum í gíslingu í bústað
japanska sendiherrans í Lima.
Alberto Fujimori forseti
tjáði sig ekki um tillöguna í
gær. Talið er að skæruliðarnir
geti fallist á milligöngu Cart-
ers þar sem hann hefur barist
fyrir því að réttað verði á ný
í máli bandarískrar konu, sem
var dæmd fyrir aðild að hreyf-
ingu skæruliðanna.
Skauta-
hlaup Borg-
anna ellefu
FROSTHÖRKURN AR að und-
anförnu valda því að síki hefur
lagt í Hollandi. í gær hófst 200
km langt skautahlaup, hið 15.
í röðinni, sem kennt er við
Borgirnar ellefu og eru 11 ár
síðan það var síðast haldið.
Búist var við um 20.000 þátt-
takendum og allt að milljón
áhorfendum.
Á myndinni sjást nokkrir
skautahlauparar í smábænum
Hindelopen í gær.
nálægt Mílanó. Hann féll út um
glugga á sjöttu hæð en lenti í nær
40 sentimetra þykkum snjó sem fall-
ið hefur undánfarna daga og slapp
nær ómeiddur.
Þýska fyrirtækið Continental hef-
ur bætt við vöktum til að fullnægja
spurn eftir vetrardekkjum sem er
50% meiri en á sama tíma í fyrra.
Bílstjóri, sem var á ferð í Belgíu
með fullan vöruflutningabíl af súkk-
ulaði, reyndi að þíða eldsneytistank-
inn með logsuðutæki en þá kviknaði
í tankinum. Varð niðurstaðan
stærsta súkkulaðifondue í manna
minnum, að sögn lögreglu.
Stórijón vegna flóða
vestanhafs
Hávaðarok og mikil úrkoma vegna
heits rakalofts, sem sem berst frá
Kyrrahafinu og þéttist yfir landi,
hafa síðustu daga valdið vatnavöxt-
um, aurskriðum og rafmagnsleysi í
mörgum sambandsríkjum í vestur-
hluta Bandaríkjanna, einkum í Kali-
fomíu, Idaho, Nevada, Oregon og
Washington. Talið er að 14 manns
hafi farist af völdum náttúruhamfar-
anna. Mikið eignatjón hefur orðið,
einkum í Norður-Kaliforníu, vegna
flóðanna, lýst hefur verið yfír neyða-
rástandi þar og í nokkrum héruðum
hinna ríkjanna.
Áin Truckee í Nevada olli mestu
flóðum sem orðið hafa í Reno í 40
ár. Loka varð sumum spilavítum, sem
borgin er fræg fyrir, en annars stað-
ar héldu menn ótrauðir áfram að
freista gæfunnar eftir að búið var
að treysta vamirnar
með sandpokum.
Tjónið vegna flóðanna
í Nevada er hið mesta
sem um getur í sögu
ríkisins, að sögn ríkis-
stjórans, Bob Millers.
Mörg þúsund
manns í bæjaþyrpingu
við ána Feather í
norðurhluta Kaliforn-
íu, um 80 km norð-
austan við borgina
Sacramento, voru
flutt í neyðarskýli.
Um 2.300 ferðalang-
ar, starfsmenn þjóð-
garða og fjölskyldur
þeirra eru innlyksa í
Yosemite-garðinum í
Kaliforníu vegna
flóða í ánni Merced
sem hafa lokað öllum
þjóðvegum inn í Yos-
emite-dalinn.
Reuter
Réttarhöld vegna fjöldamorðanna í Rúanda
Fyrstu dauðadóm-
arnir kveðnir upp
icríili. Rpnfpr. ^
Innilegar þakkir sendi ég öllum þeim, sem voru
með mér og glöddu mig með gjöfum, skáldskap
og fleiru á afmælisdaginn minn.
Eg óska ykkur gleðilegs nýs árs meÖ þökk fyrir
allí gamalt og gott.
Iðunn E.S. Geirdal
frá Grímsey.
Kigali. Reuter.
DOMSTÓLL í Rúanda dæmdi í gær
tvo Hútúa til dauða fyrir aðild að
fjöldamorðum og glæpum gegn
mannkyninu vegna drápa á 800.000
Rúandabúum í óöldinni sem ríkti í
landinu árið 1994. Þetta eru fyrstu
dauðadómarnir sem kveðnir eru upp
vegna fjöldamorðanna.
Ríkisútvarpið í Kigali sagði að
sakborningarnir fengju 15 daga til
að áfrýja dómunum. Réttarhöldin
yfir mönnunum stóðu í fjórar klukku-
stundir 27. desember og þeir höfðu
enga veijendur. Mennirnir héldu
fram sakleysi sínu.
Þetta eru fyrstu réttarhöldin
vegna fjöldamorðanna samkvæmt
lögum sem þing Rúanda samþykkti
á nýliðnu ári. Um 90.000 Rúanda-
búar eru í fangelsum landsins og
sakaðir um að hafa tekið þátt í dráp-
um Hútúa á 800.000 Tútsum og
hófsömum Hútúum.
Mannréttindahreyfingar hafa
fagnað því að sakborningarnir skuli
vera leiddir fyrir rétt en segja fram-
kvæmd réttarhaldanna ábótavant
vegna skorts á veijendum. Gerard
Gahima, aðstoðardómsmálaráðherra
Rúanda, vísaði þessari gagnrýni á
bug. „Samkvæmt Iögum landsins er
heimilt að sækja fólk til saka án
verjenda," sagði hann. „Haldi menn
að hægt sé að sniðganga dráp á
milljón manna vegna skorts á veij-
endum ættu þeir að íhuga málið bet-
ur. Þessir glæpir voru framdir um
hábjartan dag. Annaðhvort voru
sjónarvottar eða ekki. Þetta snýst
ekki um nein flókin lagaleg álita-
mál. Réttarhöldin snúast um stað-
reyndir."
Hreyfing flóttamanna úr röðum
Hútúa hafa lýst réttarhöldunum sem
„skrípaleik" og sagt að Hútúar, sem
hafa snúið aftur heim, hafi verið
handteknir vegna ásakana fólks sem
vilji komast yfir eigur þeirra.
Gildistöku
Kúbulaga
frestað
BILL Clinton
Bandaríkja-
forseti lýsti
yfir því í gær
að hann hefði
frestað um
sex mánuði
gildistöku
laga, sem
kveða á um
að Banda-
ríkjamenn geti stefnt útlend-
ingum snerti viðskipti þeirra á
Kúbu eignir, sem tilheyrðu
Bandaríkjamönnum áður en
þær voru þjóðnýttar eftir bylt-
inguna á Kúbu.
Clinton frestaði gildistöku
hinna umdeildu laga upphaf-
lega um sex mánuði 16. júlí
og varð að taka ákvörðun fyr-
ir 16. janúar um það hvort
lögin ættu að taka gildi eða
því yrði enn frestað. Clinton
sagðist hafa tekið þessa
ákvörðun til að halda þeim
„alþjóðlega þrýstingi, sem
skapast hefur til að efla lýð-
ræði á Kúbu“.
Herinn taki
svæði Tútsa
STJÓRNIN í Zaire fyrirskipaði
í gær hersveitum sínum að
hefja stórsókn í austurhluta
landsins og heimta svæðið úr
klóm uppreisnarmanna Tútsa.
Baráttuþrek hersins er sagt í
molum en yfirmönnum hersins
var heitið öllum þeim stuðn-
ingi, sem þeir töldu sig þurfa,
til sóknarinnar. Tapaði herinn
borginni Bunia í fyrradag
vegna skorts á hergögnum, en
herinn hefur safnað saman
miklum vopnum í stöðvum líf-
varðar Mobutu Sese Seko for-
seta í höfuðborginni, Kins-
hasa, og hafa þau ekki fengist
flutt á vígvöllinn. Takmark
uppreisnarmanna er að steypa
Seko af stóli.
Kveikt í húsi
Dutroux
HÚS í eigu
belgíska
barnaníð-
ingsins Marc
Dutroux í
Jumet, út-
borg Charl-
eroi, eyði-
lagðist í eldi
í gær. Full-
trúi slökkvil-
iðs sagði að
um íkveikju
hefði verið að ræða þar sem
enginn bjó í húsinu, sem var
úr tré og fuðra.ði upp á
skammri stundu. Á lóð húss-
ins, sem Belgar hafa nefnt
hryllingshúsið, fundust lík
tveggja fórnarlamba Dutroux
í september sl.
Þáðu fé af
Irönum
STÆRSTI stjómmálaflokkur
Bosníu, SDA, sem músliminn
Alija Izetbegovic fer fyrir, við-
urkenndi í gær að hafa þegið
um 35 milljón ísl. kr. framlag
írana síðasta haust. Neituðu
talsmenn flokksins því að féð
hefði runnið í kosningasjóð,
eins og fullyrt var í The Los
Angeles Times heldur hefði því
verið varið til mannúðarmála.
Marc
Dutroux
Bill Clinton