Morgunblaðið - 04.01.1997, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 1997 15
UR VERINU
Vinnslustöðin heiðrar stofnendurna
Vestmannaeyjum. Morgunblaðið.
Sljórnendur Vinnslustöðvarinnar
í Vestmannaeyjum ákváðu að
heiðra núlifandi stofnendur fyrir-
tækisins, í tilefni af 50 ára af-
mæli Vinnslustöðvarinnar í árs-
lok, fyrir brautryðjendastarf
þeirra. Að sögn Sighvatar Bjarna-
sonar, framkvæmdastjóra, eru
átta af stofnendum fyrirtækisins
á Iffi og var þeim boðið á skrif-
stofu fyrirtækisins í tilefni af af-
mælinu. Fjórir þeirra gátu mætt
en aðrir áttu ekki heimangengt
sökum heilsubrests eða af öðrum
ástæðum. Þeim fjórum sem mættu
var afhent að gjöf frá fyrirtækinu
mynd af Vinnslustöðinni, með
áletruðum skildi, og klukka. Þeim
hinum sem ekki gátu verið við-
staddir voru síðan sendar gjafir
sínar.
Sighvatur Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri, og Börkur Gríms-
son, fjármálastjóri, tóku á móti
brautryðjendunum, þökkuðu
þeim þeirra störf og afhentu gjaf-
irnar.
ERLENT
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
FRÁ vinstri: Börkur Grímsson, fjármálastjóri, Jóhann Á. Krist-
jánsson, Hlöðver Johnsen, Knud Andersen, Haraldur Hannesson
og Sighvatur Bjarnason, framkvæmdastjóri.
Skipum fækkar á
Flæmingj agrunni
FORMAÐUR LIU telur að reglu-
gerð stjómvalda um úthlutun veiði-
heimilda til íslenskra skipa á Flæm-
ingjagrunni hafi verið nauðsynleg í
samstarfí Islendinga við aðrar þjóð-
ir um veiðistjórnun á alþjóða haf-
svæðum. Búast má við að framsal
veiðiheimilda á Flæmingjagrunni
verði nokkuð á árinu þar sem leyfi-
legur afli á þessu ári er þrefalt minni
en afli á síðasta ári.
Búast við að skipum
fækki verulega
Heildarkvóti íslenskra skipa á
Flæmingjagrunni á þessu ári verður
6.800 lestir af rækju samkvæmt
nýrri reglugerð sem gefin var út
af sjávarútvegsráðuneytinu um ára-
mót. Það er meira en þrefalt minna
magn en fékkst á Flæmingjagrunni
á síðasta ári en þá var afli íslenskra
skipa þar rúm 20 þúsund tonn en
alls stunduðu 42 íslensk skip veið-
arnar á árinu. Þá voru í gildi al-
mennar takmarkanir á veiðunum,
byggðar á sóknarstýringu eða út-
haldsdögum. Á þessu ári má því
búast við að skipum fækki verulega
í samræmi við minnkandi afla. Árið
1995 veiddist 7.481 tonn af rækju
á Flæmingjagrunni, að verðmæti
um 1,2 milljarðar króna.
Kristján Ragnarsson, formaður
Landssambands íslenskra útgerðar-
manna, segir að sóknarstýringar-
kerfi það sem verið hafi í gildi á
Flæmingjagrunni á síðasta ári hafi
verið einsdæmi, þar sem stærð skips
skipti ekki máli, né hvort það dró
eitt eða tvö troll. „Okkur var ljóst
eftir NAFO fundinn í haust, þar sem
þetta kerfi var framlengt með 10%
fækkun á dögum hjá öðrum aðilum,
að við gætum ekki haldið veiðum
þar áfram með þeim hætti sem við
höfum gert og yrðum að sætta okk-
ur við sambærilega tonnatölu og við
höfðum veitt með hliðsjón af því
hvernig hinir takmörkuðust af dög-
um,“ segir Kristján.
Verðum að hlíta ákvörðun
ríkisstjórnarinnar
Kristján segir að þó ákvörðun rík-
isstjórnarinnar um 6.800 tonna
heildarkvóta íslenskra skipa á
Flæmingjagrunni valdi mikilli
skerðingu hafi LÍÚ stutt hana. „Ef
við ætlum að taka þátt í alþjóðasam-
starfi um stjórnun veiða utan lög-
sögu verðum við að hlíta þessari
ákvörðum þótt við séum óánægðir.
Ef rækjustofninn á Flæmingja-
grunni er sterkari en margir vilja
halda, þá kemur það okkur til góða
í framtíðinni með meiri afla,“ segir
Kristján.
Kristján segir ljóst að heimildir
verði að einhveiju leyti framseldar
þar sem ekki sé hægt að senda 42
skip til að veiða 6.800 tonn. „í sum-
um tilfellum er þarna um að ræða
útgerðir sem eru með fleiri en eitt
skip á þessum veiðum og þannig
geta þær hagrætt með því að láta
þann besta veiða sinn kvóta á sem
hagkvæmastan hátt,“ segir Krist-
ján.
Snorri Snorrason, útgerðarmaður
á Dalvík og formaður Félags úthafs-
útgerða, segist ekki vita á þessari
stundu hvaða verkefni bíða þeirra
skipa sem ekki hafi veiðiheimildir
innan íslensku lögsögunnar þegar
þau klári veiðiheimildir sínar á
Fiæmingjagrunni. „Það er erfitt að
segja til um hvað verður. Fyrir
tveimur árum var kvóti aukinn um
20 þúsund tonn, tveimur mánuðum
eftir að nýtt kvótaár hófst. Það er
því aldrei að vita nema þessi kvóti
verði aukinn. Af tvennu illu tel ég
að við hefðum verið betur settir í
sömu sporum og önnur ríki sem eru
við veiðar á Flæmingjagrunni, í
sóknarstýringarkerfi."
Kallar á meira kvótabrask
Guðbjörg ÍS veiddi á síðasta ári
um 1.650 tonn af rækju á Flæm-
ingjagrunni og gerir Þorleifur Páls-
son, framkvæmdastjóri Hrannar
hf., ráð fyrir að skipið fái úthlutað
um 350 tonnum á þessu ári. Hann
telur að þetta fyrirkomulag kalli á
ennþá meira kvótabrask. „í stað
þess að búa til enn meiri verslunar-
vöru hefði verið hægt að leyfa skip-
unum að veiða ákveðinn hámarks-
afla og loka síðan svæðinu þegar
honum er náð, líkt og gert var á
Reykjaneshrygg í vor,“ segir Þor-
leifur.
Saltað í 151 þúsund
tunnur af sfld
SÍLDARSÖLTUN hefur gengið
mjög vel það sem af er yfirstand-
andi vertíð og er þegar búið að
salta í um 151 þúsund tunnur
af síld sem er um 10 þúsund
tunnum meiri söltun en á allri
vertíðinni í fyrra. Gera má ráð
fyrir enn meiri aukningu frá
síðustu vertíð því enn á eftir að
framleiða í um 14 þúsund tunnur
upp í þegar gerða samninga,
aðallega síldarflök. Gunnar Jó-
akimsson, formaður Síldarút-
vegsnefndar, segir að þegar
búið verði að framleiða upp í
gerða samninga muni flestir
framleiðendur Hklega snúa sér
að loðnu. Frekari samningar um
útflutning og sölu verði því ekki
hugleiddir nema að því tiiskildu
að framleiðendur fáist.
Þegar hafa veiðst um 71 þús-
und tonn af síld á vertíðinni og
því eru um 40 þúsund tonn af
síldarkvótanum óveidd. Veiðar
og söltun hefjast að nýju nú fljót-
lega eftir áramótin.
Metsöltun á Neskaupstað
Síldarsöltuninni lauk þann 20.
desember sl. en veiði var sérstak-
lega góð í október og í fyrri hluta
nóvember. Minna var hinsvegar
saltað á síðustu vikum ársins þar
sem tíðarfar var rysjótt og síldin
stóð djúpt og nótaveiðar gengu
erfiðlega. Síld var söltuð á 13
söltunarstöðvum á 10 söltunar-
Reuter
Síldarsöltunin það sem af er vertíðarinnar
i - w f Tunnur
Vopnafjörður 7.613
Seyðisfjörður 16.848
Neskaupstaður 47.209
(Eskífjörður 22.269
Reyðarfjörður 1.557
Stöðvartjörður 80!
Djúpivogur 9.304
Hornafjörður 36.758
Vestmannaeyjar 7.390
Akranes 2.1831
SAMTALS 151.211
BORIS Jeltsín Rússlandsforseta er afhent leikfang sem hann
keypti í verslun í Moskvu á gamlársdag og er það ætlað barna-
barni forsetans. Að baki forsetanum er borgarstjóri Moskvu,
Júrí Lúzhkov.
Fundur Helmuts Kohls og Jeltsíns
Traustið nýtt til að
ræða deiluna um
stækkun NATO
Bonn. Reuter.
HELMUT Kohl, kanslari Þýska-
lands, heldur til Moskvu í dag, laug-
ardag, til fundar við Borís Jeltsín
Rússlandsforseta. Tilgangur kansl-
arans með ferðinni er fyrst og fremst
sá að freista þess að fá Rússa til
að sætta sig við stækkun Atlants-
hafsbandalagsins (NATO) til austurs
en persónuleg tengsl þessara tveggja
ráðamanna eru mjög náin. Til marks
um það er haft að Kohi hitti Jeltsín
í septembermánuði skömmu áður en
sá síðarnefndi gekkst undir mikla
hjartaaðgerð og nú verður kanslar-
inn fyrstur vestrænna ráðamanna
til að hitta Rússlandsforseti eftir að
hann sneri aftur til starfa.
Víst þykir að stækkun NATO til
austurs verði efst á verkefnaskrá
leiðtoganna. Ríki Vesturlanda hafa
lýst yfir vilja til að ganga frá sérstök-
um öryggissáttmála við Rússa í
þeirri von að slá á óánægju þeirra
vegna stækkunar bandalagsins sem
verður að veruleika á fímmtíu ára
afmæli þess árið 1999.
„Vegna þess trausts sem Þjóðveij-
ar njóta í Moskvu hafa þeir ákveðnu
hlutverki að gegna í þessu viðfangi
- að höfðu samráði við aðrar þjóðir
bandalagsins," sagði Heinz Timmer-
mann, sérfræðingur við Þýsku rann-
sóknarstofnunina vegna Austur-
Evrópu. Fleiri vestræn ríki hafa
áhuga á að leggja áherslu á traust
samskipti við ráðamenn í Kreml.
Jacques Chirac Frakklandsforseti er
væntanlegur til Moskvu í næsta
mánuði til að hitta Jeltsín og búist
er við Bill Clinton Bandaríkjaforseta
í marsmánuði.
Samband á grundvelli vináttu
Þjóðveijar hafa öðrum þjóðum
fremur í vestri veitt Rússum lán á
þeim miklu erfiðleikatímum sem rið-
ið hafa yfir frá því veldi kommún-
ismans hrundi til grunna austur
þar. Á hinn bóginn er það sérstaka
samband sem einkennir samskipti
ríkjanna að stærstum hluta tilkomið
sökum þeirrar vináttu sem tekist
hefur með þeim Kohl og Jeltsín en
þeir hafa m.a. brugðið sér saman í
gufubað og farið saman út á bát á
Baikal-vatni.
Rússar hafa margoft lýst yfír því
að þeir geti ekki fellt sig við stækk-
un NATO til austurs en gert er ráð
fyrir að á leiðtogafundi bandalagsins
um mitt þetta ár verði Ungveijum,
Pólveijum og Tékkum formlega boð-
in aðild að bandalaginu. I fyrra
mánuði vakti mikla athygli er Igor
Rodíonov, varnarmálaráðherra
Rússlands, hafnaði á fundi í Brussel
hugmyndum um að Rússar og
bandalagsríkin skiptust á hermála-
fulltrúum og lýsti yfír því að fyrir-
huguð stækkun bandalagsins stefndi
gerðum afvopnunarsáttmálum í tví-
sýnu.
Eystrasaltsríkin útilokuð?
Þýskir sérfræðingar telja hins
vegar að Rússar hafi þegar sætt sig
við fyrstu lotu stækkunarinnar og
að sú harka sem einkenni málflutn-
ing þeirra sé tilkomin sökum þess
að þeir geri sér vonir um að ná fram
síðar tilslökunum af hálfu Vestur-
landa. „Ef til vill vonast þeir til þess
að tryggja sér raunverulegt neitun-
arvaid hvað frekari stækkun varðar
t.a.m. til norðurs í átt að Eystrasalts-
ríkjunum eða til suðausturs," sagði
þýskur sérfræðingur á þessu sviði
sem krafðist nafnleyndar. Heinz
Timmermann sagðist telja hugsan-
legt að NATO-ríkin féllust loks á
að Eystrasaltsríkin gætu ekki fengið
aðild um fyrirsjáanlega framtíð.
„Hvorki Rússar né NATO vilja að
samskiptin taki að versna."
Timmermann bætti við að Kohl
kanslari myndi væntanlega leita eftir
tryggingum fyrir því að stefna stjórn-
valda væri samræmd og stöðugleiki
ríkti í Rússlandi en misvísandi yfírlýs-
ingar ráðamanna á borð við Rodíonov
vamarmálaráðherra, Jevgení Prím-
akov utanríkisráðherra og ívan
Rybkín, forseta Öryggisráðsins,
hefðu vakið undran á Vesturlöndum.
Auk öryggismálanna kunna leið-
togarnir að taka til umræðu mál sem
varpað hefur nokkrum skugga á
samskipti ríkjanna á undanförnum
árum;þann fjölda ómetanlegra lista-
verka sem Rauði herinn flutti sem
herfang frá Þýskalandi til Rússlands
í lok síðari heimsstyijaldarinnar.
stöðum á árinu, alls í 151.211
tunnur og þar af voru saltaðar
111.258 tunnur af síld öðrum en
flökum en í 39.953 tunnur af flök-
Leikfuni 1 Grafarvogi
Pallar • Vaxtamótun
• Fitubrennsla • Þrekhringur
Þriðjud. Fimmtud. Laugard.
Kl. 5 bvri. = Kl. 9.30 bvri.
Kl. 6 framh. = Kl. 10.30 framh.
Kl. 7 framh. = Kl. 11.30 bvri.
Kl. 8 byrj. = Kl. 12.30 framh.
Jýtt
hefst priðjudaginn
7. jan.í Fjölnishúsinu
8 vikur
Kr. 5.400
Skráning í simum 587 7575 (Ásta) og 566 8488 (Lilja)