Morgunblaðið - 04.01.1997, Síða 14
14 LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 1997
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Dökkt út-
lithjá
Fokker
Amsterdam. Reuter.
ÚTLITIÐ er dökkt í byijun nýs
árs hjá hollenzku Fokker flugvéla-
verksmiðjunum, því að Samsung
fyrirtækið í Suður-Kóreu hefur
hætt fyrir fullt og allt við tilraunir
tii að bjarga verksmiðjunum.
Hollenzka efnahagsráðuneytið
hefur staðfest að því hafí borizt
símbréf frá ríkisstjórn Suður-
Kóreu, þar sem sá möguleiki sé
útilokaður að Samsung Aerospace
og fleiri aðilar bjóði í Fokker.
Hollenzkir fjölmiðlar herma að
verkefnasamtök Samsung, Dae-
woo, Hyundai og kóreska flugfé-
lagsins hafi komizt að þeirri niður-
stöðu að vandi Fokkers sé of mikill.
Rússneskt tilboð?
Rússneski flugvélaframleiðand-
inn Yakovlev er því eina fyrirtæk-
ið, sem vitað er til að hafi enn
áhuga á að bjarga Fokker, þótt
Hollendingar efist um að hann
hafi fjárhagslegt bolmagn til þess.
Annað rússneskt flugiðnaðar-
fyrirtæki Tupolev dró sig í hlé í
ágúst.
Fyrir jól sagði yfírhönnuður
Yakovlevs, Alexander Dondukov,
að hugmyndin um að kaupa Fokk-
er væri liður í áætlun fyrirtækisins
um að tryggja sér 25-30% hlut-
deild á rússneskum flugiðnaðar-
markaði fyrir árið 2000.
Dondukov áætlaði að kostnaður-
inn gæti orðið 200-270 milljónir
dollara og sagði að Yakovlev hefði
beðið ríkisstjórn Rússlands um
fjárhagslegan stuðning.
HLUTABREFAMARKAÐIR A ARINU 1996
Hlutabréfaverð á markaði í London, stærsta hlutabréfamarkaði í Evrópu,
náði nýju meti á gamlársdag. Miklar hækkanir urðu á mörgum
hlutabréfamörkuðum heimsins á árinu 1996, eins og sjá má hér að neðan.
REUTERS/Morgunblaðið
Lífleg viðskipti með hlutabréf á fyrsta viðskiptadegi ársins
Hlutabréfavísitalan
hækkaði um 1,19%
LÍFLEG hlutabréfaviðskipti voru á
verðbréfamarkaði í gær og hækkaði
gengi á hlutabréfum í mörgum félög-
um talsvert frá upphafi til loka við-
skipta í gærdag. Þannig hækkaði
gengi hlutabréfa í öllum þremur
stærstu hlutafélögunum á Verð-
bréfaþingi, Eimskipafélagi íslands,
Flugleiðum og íslandsbanka og leiddi
þetta til samsvarandi hækkunar á
hlutabréfavísitölunni. Hún hækkaði
úr 2.215,6 stigum í 2.241,96 stig í
lok dagsins eða um 1,19%, sem er
óvenjulega mikil hækkun á einum
degi. Til samanburðar lækkaði vísi-
talan lítið eitt í desembermánuði, en
í lok nóvember var hlutabréfavísital-
an 2.218,43 stig.
Viðskipti með hlutabréf á Verð-
bréfaþingi og á Opna tilboðsmark-
aðnum námu samtals rúmum 14,4
milljörðum króna að nafnvirði og
tæpum 55 milljónum króna að mark-
aðsverði í gær. Þetta eru óvenjulega
mikil viðskipti á fyrsta viðskiptadegi
ársins, því oftast hafa viðskipti á
þessum tíma verið róleg í kjölfar
mikilla viðskipta fyrir áramót vegna
þess skattaafsláttar sem kaup á
hlutabréfum veita.
íslandsbanki
hækkaði um 5%
Verðbréfamiðlurum bar ekki alveg
saman um ástæður þessara miklu
viðskipta. Bæði töldu menn að skýr-
ingin væri mikil almenn eftirspum
eftir hlutabréfum, en einnig var nefnt
að hlutabréfasjóðirnir hefðu verið
tryggja sér hlutabréf vegna mikillar
áramótasölu á hlutabréfum í þeim.
Þá var einnig nefnt að verðbréfafyr-
irtækin sjálf væru að tryggja sér
hlutabréf og búa sig þannig undir
væntanlega eftirspurn frá hluta-
bréfasjóðunum. Loks nefndu menn
að almennrar bjartsýni gætti um
efnahagshorfur og afkomu á árinu
sem í hönd fer.
Gengi á hlutabréfum í íslands-
banka hækkaði um 5% í viðskiptum
gærdagsins og gengi á hlutabréfum
í Eimskipafélagi íslands hækkaði um
2%.
Verslunarráð íslands
Sölu á eignarhlut
í Sementsverk-
smiðjunni fagnað
VERSLUNARRÁÐ Íslands hefur
sent viðskiptaráðherra bréf þar sem
fagnað er þeirri ákvörðun Alþingis
að veita ráðherra heimild til að selja
Ijórðung af eignarhluta ríkisins í Se-
mentsverksmiðjunni á Akranesi. Jafn-
framt er ráðherra hvattur til þess að
gefa eindregna yfírlýsingu um að all-
ur eignarhlutur ríkisins í verksmiðj-
unni verði seldur á næsta ári.
í bréfinu til Finns Ingólfssonar,
viðskiptaráðherra, segir að þátttaka
hins opinbera í rekstri verksmiðja á
borð við Sementsverksmiðjuna séu
leifar gamals tíma sem afnema eigi
hið fyrsta. Með yfirlýsingu um sölu
alls eignarhluta ríkisins sé tekinn af
allur vafi um fyrirætlanir ríkisins í
þessum efnum, en ætla megi að vaf-
inn geri þann fjórðungs eignarhluta
sem í boði sé minna fýsilegan fyrir
fjárfesta og gæti hann því selst fyrir
lægra verð en ella. Þó svo verðlagn-
ing sé ekki aðalatriði við einkavæð-
ingu sé engin ástæða til þess að sölu-
aðferð ríkisins valdi beinlínis lægra
verði en mögulegt hafi verið að fá.
Kann að brjóta EES-samning
Loks segir í bréfinu til ráðherra:
„Vegna ummæla á Alþingi þess efn-
is að einkavæðing hefði í för með
sér að gerðar yrðu arðsemiskröfur
til verksmiðjunnar er rétt að benda
á, að séu ekki gerðar eðlilegar arðse-
miskröfur til verksmiðjunnar, þó hún
sé í ríkiseigu, er verið að veita henni
forskot á keppinauta. Slíkt kann
hæglega að bijóta í bága við 61. gr.
EES-samningsins um ríkisstyrki."
Stofnun Soros ákærð
fyrir skattsvik
Zagreb. Reuter.
KRÓATAR hafa ákært þijá háttsetta
starfsmenn króatískrar deildar al-
þjóðlegrar góðgerðarstofnunar
bandaríska auðkýfingsins Georgs
Soros fyrir íjármálamisferli og skatt-
svik.
Ákæran kemur í kjölfar herferðar
gegn Soros, sem Franjo Tudjman
forseti hleypti af stokkunum á árs-
fundi stjórnarflokksins HDZ í nóv-
ember þegar hann stimplaði Soros
óvin ríkisins.
Króatískir lögreglumenn gerðu
áhlaup á aðalstöðvar Soros-stofnun-
arinnar „Open Society" í Zagreb fyr-
ir jólin og kváðust hafa fundið sann-
anir um ólögleg viðskipti stofnunar-
innar á undanfömum tólf mánuðum.
Að sögn ríkisfréttastofunnar
HINA hefur saksóknarinn í Zagreb
ákært framkvæmdastjóra Open Soc-
iety, Karmen Basic, samstarfsmann
hans, Srdjan Dvornik, og Ivanka
Marton bókhaldara.
Saksóknarinn heldur því fram að
starfsmenn Soros hafi fengið tvöföld
laun síðan í desember fyrir ári -
venjuleg laun í króatískri mynt og
önnur í bandarískum dollurum, sem
hafi ekki verið gefin upp til skatts.
Ógreiddir skattar nema 2.7 millj-
ónum kúna eða 490.000 dollurum
samkvæmt ákærunni.
í New York sagði Aryeh Neier,
forseti Soros Foundations, í yfirlýs-
ingu að gildar átæður væru til að
ætla að viðskiptahættir og reiknings-
skilavenjur Open Society Institute í
Króatíu væru í samræmi við króatísk
lög og viðurkennda starfshætti króa-
tískra útibúa eriendra stofnana. Þess
sé því vænzt að króatískir dómstólar
sýni fram á sakleysi starfsmanna
stofnunarinnar.
Verðstríði franskra flug-
félaga virðist lokið í hili
Montpellier.Morgunblaðið.
VERÐSTRIÐI franskra flugfélaga
virðist lokið að sinni og hafa þau
hækkað fargjöld bæði innanlands og
til Karíbahafsins frá því sem var í
nóvember síðastliðnum. Ein skýring
þessara hækkana er 44% verðhækk-
un á þotueldsneyti á síðastliðnu ári
sem farin er að endurspeglast í far-
gjöldum nú. Eldsneytiskostnaður
samsvarar um 11% af rekstrarkostn-
aði flugfélaga og hefur þessi mikla
hækkun á eldsneytisverði þvingað
flugfélög víða um heim til að.hækka
fargjöld sín.
Meginástæða þessara hækkana
nú er hins vegar rakin til beiðni
franska flugfélagsins Air Liberté
þess efnis að félagið yrði tekið til
gjaldþrotaskipta í lok september síð-
astliðins. í kjölfarið var félagið keypt
af British Airways.
Air Liberté hóf verðstríðið með
því að lækka fargjöld sín verulega
og þar með þvingaði félagið keppi-
nauta sína til að bregðast við þessum
lækkunum, m.a. með lægri fargjöld-
um og fleiri auglýsingaherferðum.
Félagið náði hins vegar ekki að halda
þetta verðstríð út eins og fyrr segir
og nú hafa keppinautar þess dregið
verulega úr afsláttarkjörum sínum
auk þess sem þeir hafa neyðst til að
endurskipuleggja rekstur sinn.
Fyrstu hækkanimar áttu sér stað
í nóvember sl. er flest frönsk flugfé-
lög hækkuðu fargjöld sín um 2-3%.
Nú hafa þau hins vegar tilkynnt að
fargjöld muni hækka um u.þ.b. 2%
til viðbótar í janúar. Þá hefur flugfé-
lögum á hverri flugleið innan Frakk-
lands fækkað talsvert og hvergi er
að fínna fleiri en tvö flugfélög á
hverri leið, ef frá eru talin áætlunar-
flug milli Parísar og Nice, en fyrir
ári voru 3-4 flugfélög á hverri leið.
Visa Island fær nýja
IBM-stórtölvu
VISA ísland fær nú um áramót-
in afhentan nýjan móðurtölvu-
búnað frá Nýheija hf., IBM
Multiprise 2000, sem kom á
markað nú í haust. Þessi nýja
stórtölva er búin CMOS-3 ör-
gjörvum með mjög öflugum inn-
byggðum diskum.
Jafnframt tekur VISA ísland
í notkun IBM OS/390 stýrikerfi,
arftaka MVS stýrikerfisins, sem
m.a. er notað af Reiknistofu
bankanna og Skýrr hf.
Þar er um að ræða nýjustu
útgáfu af stórtölvustýrikerfi
sem býður upp á marga nýja
möguleika, m.a. á sviði viðskipta
og upplýsinga yfir Internet,
Lotus Notes o.fl., að því er segir
í frétt.
Myndin var tekin við undirrit-
un kaupsamningsins. Fremstir
silja þeir Einar S. Einarsson,
framkvæmdastjóri VISA ísland,
og Frosti Sigurjónsson, forstjóri
Nýheija hf. I aftari röð eru frá
vinstri: Leifur Steinn Elíasson,
aðst. framkvæmdastjóri VISA
ísland, Hjálmtýr Guðmundsson,
kerfisfræðingur Nýheija hf.,
Júlíus Óskarsson, forstöðumað-
ur tölvusviðs VISA ísland og
Emil Einarsson, framkvæmda-
sljóri IBM sölusviðs Nýheija hf.