Morgunblaðið - 04.01.1997, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÖRNÓLFUR Þorleifsson umdæmisstjóri tekur við skírteini um-
dæmisstjóra úr hendi Jerrys Christianos, heimsforseta. Frá
vinstri: Anita Christiano, Jerry Christiano, Örnólfur Þorleifsson
og Brynja Einarsdóttir.
Nýr yfirmaður Kiwanis-
hreyfingarinnar
Kaupmátt-
ur jókst
um 2%
GREITT tímakaup ASÍ landverka-
fólks hækkaði að jafnaði um 4,5%
á milli annars ársfjórðungs 1995
og annars ársfjórðungs 1996 sam-
kvæmt niðustöðum mælinga kjara-
rannsóknarnefndar. Niðurstöðurn-
ar eru svipaðar fyrir Alþýðusam-
bandsfólk hvort sem það er á al-
mennum markaði, hjá ríki eða hjá
Reykjavíkurborg. Vísitala neyslu-
verðs hækkaði um 2,6% á sama
tímabili, þannig að kaupmáttur
greidds tímakaups hækkað um
u.þ.b. 2%.
Óverulegur munur er á hækkun-
um milli einstakra hópa. Afgreiðslu-
konur hækkuðu mest eða um 5,7%,
en skrifstofukarlar minnst eða um
3,1%.
Miklar breytingar standa nú yfir
hjá kjararannsóknarnefnd varðandi
gagnasöfnun og úrvinnslu upplýs-
inga um laun og vinnutíma. Þessar
breytingar má annars vegar rekja
til þarfa samningsaðila vinnumark-
aðarins um ítarlegri og öruggari
upplýsingar og hins vegar til vænt-
anlegra skuldbindinga íslendinga
vegna EES-samningsins um sam-
ræmdar launakannanir. Breyting-
arnar eru gerðar í samvinnu við
Hagstofuna og kjararannsóknar-
nefnd opinberra starfsmanna.
-----------» ♦ ♦----
Bætur hækka
BÆTUR almannatrygginga og
bætur vegna félagslegrar aðstoðar
hækka um 2% frá og með 1. janúar
með reglugerð sem heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra hefur gefið
út._
í fréttatilkynningu frá heilbrigð-
isráðuneytinu kemur fram að reglu-
gerðin sé sett í samræmi við ákvæði
fjárlaga.
Hækkaðar bætur voru ekki
greiddar út um mánaðamót en leið-
rétting mun koma fram hjá bóta-
þegum í síðasta lagi 1. febrúar.
NÝLEGA tók Örnólfur Grétar
Þorleifsson við embætti um-
dæmisstjóra Kiwanisumdæmis-
ins Island-Færeyjar af Stefáni
R. Jónssyni. Örnóifur er félagi í
Kiwanisklúbbnum Þyrli, Akra-
nesi.
Kiwanishreyfingin er þjón-
ustuhreyfing, meginmarkmið
hennar er að klúbbar starfi í
hverri heimabyggð og aðstoði við
lausn margvíslegra vandamála.
Aðaláhersla undanfarin átta ár
hefur verið starf í þágu barna.
Stærsta verkefni hér á landi hef-
ur verið K-dagurinn, en þann
dag safna Kiwanismenn fé til
styrktar geðsjúkum. Alheims-
hreyfingin í samvinnu við barna-
hjálp Sameinuðu þjóðanna vinn-
ur að umfangsmikilli söfnun
fram til næstu aldamóta til að
berjast gegn joðskorti sem þjak-
ar fólk í 108 þjóðlöndum heims-
ins. Ætlunin er að Kiwanisklúbb-
ar helgi þessa viku Kiwanis-
hreyfingunni og málefnum henn-
ar og hagj dagskrá funda með
tilliti til þess.
Laugardaginn 25. janúar verð-
ur haldin ráðstefna um Kiwanis-
mál í nýja Kiwanishúsi á Engja-
teig 11. Þangað eru allir Kiwan-
isfélagar hvattir til að mæta.
Blab allra landsmanna!
- kjarni málsins!
------!—
UTSALA
)
Glæsileg útsala
hófst í dag, laugardag
30 til 50% afsláttur
Opið frá kl. 10 til 18
BARNASTIGUR
BRUM’S 0-14 SÍÐAN 1955
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 8 SÍMI 552 1461
LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 1997 9
Laugavegi 70, sími 551-4515.
Útsala
útsala
TESS
i neö
neöst viö
Dunhaga,
sími 562 2230
Opið virka daga
kl.9-18.
laugardag
kl. 10-18.
°9
//
Kringlunni, sími 581 1717
( ^
Byrjum í dag með
glæsileg tilboð
(sum eru betri en á góðum útsölum)
Skokkur með/áföstum bol 4.200 nú 1.990
Þykkir rúllukragabolir 2.980 nú 1.500
Úlpa (sjá mynd) 11.400 nú 6.900
Flíspeysur 4.800 nú 2.900
Broderaðir bómullartreflar 1.980 nú 1.400
ÚTSALA - ÚTSALA
20-50% afs,áT
Opið laugardag kl. 10-18, sunnudag kl. 13-18 A
Allt á að seljast - verslunin hættir! I
benelíon
Laugavegi 97, sími 552 2555