Morgunblaðið - 28.10.1994, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 1994 39
Morgunblaðið/Sverrir
KARL Eiríksson afhendir Huldu Valtýsdóttur, formanni Skóg-
ræktarfélags íslands, og Brynjólfi Jónssyni, framkvæmdastjóra
félagsins, 500.000 kr. í landgræðsluskógaverkefnið.
Tvær milljónir
til skógræktar
Landgræðsluskógaverkefnið sem
hófst árið 1990 er eitt umfangs-
mesta skógræktarátak sem hrund-
ið hefur verið í framkvæmd hér á
landi, se_gir í frétt frá Skógræktar-
félagi Islands. Verkefnið hefur
notið stuðnings og fjárframlags
fjölda aðila, einstaklinga og fyrir-
tækja frá upphafi.
Á dögunum afhenti umboðs-
maður Becks-bjórs á íslandi, Karl
Eiríksson, forstjóri fyrirtækisins
Bræðranna Ormsson, framlag
þýsku styrktaraðilanna, 500.000
kr., í fjórða sinn og er því styrkur-
inn alls orðinn tvær milljónir. Fénu
er varið til gróðursetningar í af-
markaðan hluta af landgræðslu-
skógasvæðinu í Ölfusvatnslandi í
Grafningi þar sem er fyrirhugað
útivistarsvæði á vegum Reykjavík-
urborgar.
Fyrirlestur um
Evrópu nútímans
og framtíð
PRÓFESSOR Göran Therborn
heldur í dag, föstudag, fyrirlestur
undir yfirskriftinni: Evrópa sam-
tímans og framtíðarhorfur. Evr-
ópsk samfélög 1942-2000. Fyrir-
lesturinn verður haldinn í stofu 101
í Odda kl. 16 og er öllum opinn.
Dr. Göran Therborn er einn
þekktasti félagsfræðingur Norður-
landa um þessar mundir, segir í
fréttatilkynningu. Hann er nú pró-
fessor í félagsfræði við Háskólann
í Gautaborg í Svíþjóð en hefur
starfað víða á alþjóðlegum vett-
vangi. Hann var prófessor í Hol-
landi um árabil og hefur starfað
sem gestaprófessor í fjölmörgum
löndum innan og utan Evrópu.
Therborn hefur setið í stjórn nor-
rænna og fjölþjóðlegra vísinda-
nefnda. Hann lét nýverið af for-
mennsku í samtökum félagsfræð-
inga á Norðurlöndum og var á
sama tíma kosinn í stjórn alþjóða-
samtaka félagsfræðinga.
Therborn er afkastamikill fræði-
maður og hefur skrifað fjölda bóka
og vísindagreina. Rannsóknir hans
spanna yfir fjölmörg svið innan
félagsvísinda og snerta hagfræði
og stjórnmálafræði auk félags-
fræði.
Fyrirlesturinn byggir á nýrri bók
Görans Therborns um efnahags-
legar og félagslegar breytingar í
Evrópu. Bókin er afar yfirgrips-
mikil og höfundurinn skoðar Evr-
ópu í öðru ljósi en almennt tíðk-
ast. Til dæmis sér hann sterkari
hliðstæður milli sósíalískra og kap-
ítalískra ríkja í Evrópu en margir
fræðimenn. Hann fjallar m.a. um
nútímann sem hugtak, helstu ein-
kenni og sögulegar forsendur.
Fyrirlestur Görans Therboms er
sá fyrsti af mánaðarlegum fyrir-
lestrum sem Félag íslenskra fé-
lagsvísindamanna ásamt nemend-
um við félagsvísindadeild Háskóla
íslands munu standa fyrir í vetur.
Maraþon
körfubolti
NEMENDUR í Fjölbrautarskól-
anum Ármúla í Reykjavlk hófu
að leika maraþon körfuknattleik
kl. 12 á hádegi í gær og er ætlun-
in að spila stanslaust í sólar-
hring. Þijátíu nemendur taka
þátt í uppátækinu og skipa þeir
sex fimm manna lið sem eru
blönduð piltum og stúlkum. Þar
sem skólinn á ekkíert íþróttahús
er leikið utandyra í porti skól-
ans. Nemendur eru með þessu
að safna í ferðasjóð útskriftar-
nemenda.
Morgunblaðið/Þorkell
FRÉTTIR
Handverk
og iðn-
mennt í
Geysishúsi
SJÖ félög og stofnanir iðnaðar-
manna, sem eiga stórafmæli á
þessu ári, halda sameiginlega sögu-
sýningu og starfskynningu í tilefni
þessara tímamóta í Geysishúsi á
horni Aðalstrætis og Vesturgötu.
Trésmiðafélag Reykjavíkur er 95
ára, Iðnskólinn 90 ára, Félag ís-
lenskra gullsmiða 70 ára, Meistara-
félag hárskera 70 ára, Iðnnema-
samband íslands 50 ára, Meistara-
félag húsasmiða 40 ára og Félag
íslenskra línumanna 20 ára.
Þetta er í fyrsta sinn sem slík
sýning er haldin hér á landi en á
sýningunni eru m.a. ljósmyndir og
skjöl úr sögu sýningaraðila, marg-
víslegir smíðagripir, skartgripir,
verkfæri, sveinsstykki og listaverk,
gömul rakarastofa, gullsmíðaverk-
stæði -og trésmíðaverkstæði hafa
verið sett upp, gamlir húshlutar og
margt fleira.
Aðsókn að sýningunni hefur ver-
ið góð eða um 1.500 manns frá því
að hún var opnuð 13. október sl.
en hún verður opin til 27. nóvem-
ber nk. Sýningin er opin alla virka
daga frá kl. 9-18 og um helgar
frá kl. 11-16. Aðgangur er ókeyp-
is.
■ KRISTÍN Ástgeirsdóttir seg-
ir feministafréttir frá Banda-
rikjunum í laugardagskaffi
Kvennalistans 29. október. í sept-
ember sl. ferðaðist Kristín vítt og
breitt um Bandaríkin og mun í
kaffinu segja frá því sem er efst
á baugi í kvennapólitík þar vestra,
m.a. frá heilbrigðismálum kvenna.
Kaffið er á Laugavegi 17, 2.
hæð, og hefst kl. 11.
■ KYNJAKETTIR, Katta-
ræktarfélag íslands og Verslun-
in Dýraríkið halda sameiginlega
kynningu á verðlaunaköttum frá
nýliðinni sýningu Kynjakatta i
húsnæði Dýraríkis við Grensásveg
laugardaginn 29. október. Á sýn-
ingunni verður m.a. Kynjaköttur
íslands, Sunna af Kolgu, besti
köttur sýningarinnar. Kynjakettir
verða einnig með sýningu á starf-
semi sinni og fréttabréf sem félag-
ið gefur út um ketti. Sýningin er
öllum opin er kettirnir verða á
staðnum frá kl. 10 en henni lýkur
kl. 16.
■ RANNSÓKNA VÖRUSÝN-
ING Deiglunnar hf. er haldin
dagana 26.-28. október í sal
Kvennadeildar SVFÍ, Sigtúni 9.
Sýningin er opin frá kl. 10-19 alla
dagana. Til sýnis er glervara, plast-
vara, einnota plastvara, dauð-
hreinsunarpottar, skilvindur, vogir,
smásjár, súrefnismælar, filterar,
vökvaskammtarar o.fl. sem þarf á
rannsóknastofuna, til gæðaeftirlits,
fyrir skóla og vísindamenn.
Prófkjör
dagana 28. og 29. október 1994
Prófkjörið hefst í dag, föstudag.
Kjörstaður er í Valhöll, Háaleitisbraut 1,
og er kosið frá kl. 13 til 21.
Á morgun, laugardag, verður kosið á fimm
stöðum í sex kjörhverfum, frá kl. 10-19.
kjörhverfi
Vestur- og miöbæjarhverfi, Nes- og
Melahverfi og Austurbæjar- og
Norðurmýrarhverfi.
Öil byggöin vestan Snorrabrautar og
einnig vestan Rauöarárstígs að
Miklubraut.
Kjörstaður: Hótel Saga B-salur.
g| kjörhverfi
Hlíöa- og Holtahverfi,
Laugarneshverfi og Langholtshverfi.
Öll byggö er afmarkast af 1. kjörhverfi
í vestur og suöur. Öll byggö vestan
Kringlumýrarbrautar og norðan
Suðurlandsbrautar.
Kjörstaöur: Valhöll, Háaleitisbraut 1.
gjkjörhverfi
Háaleitisbraut og Smáíbúöa- og
Fossvogshverfi.
Hverfiö afmarkast af
Kringlumýrarbraut í vestur og
Suöurlandsbraut í norður.
Kjörstaður: Valhöll, Háaleitisbraut 1.
Qj kjörhverf i
Árbæjar- og Seláshverfi.
Kjörstaður: Hraunbær 102b.
gkjörhverfi
** Hóla- og Fellahverfi, Bakka- og
Stekkjahverfi, Skóga- og Seljahverfi.
Kjörstaður: Mjódd, Álfabakka 14a.
g| kjörhverf i
Grafarvogur.
Kjörstaður: Hverafold 1-3.
Hverjir mega kjósa:
Allir félagsbundnir sjálfstæöismenn í Reykjavík, sem þar eru búsettir og náð hafa
16 ára aldri prófkjörsdagana.
Þeir stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins, sem eiga munu kosningarétt í Reykjavík
við alþingiskosningarnar 8. apríl 1995 og undirritað hafa inntökubeiðni í sjálfstæðis-
félag í Reykjavík fyrir lok kjörfundar.
Hvernig á aö kjósa:
Kjósa skal 10 frambjóðendur. Skal það gert með því að setja tölustaf fyrir framan
nöfn frambjóöenda (þeirri röö, sem óskaö er aö skipi endanlegan framboöslista.
Þannig skal talan 1 sett fyrir framan nafn þess frambjóöanda, sem óskaö er eftir aö
skipi fyrsta sæti framboðslistans. Talan 2 fyrir framan nafn þess frambjóðanda, sem
óskað er að skipi annaö sæti framboðslistans. Talan 3 fyrir framan nafn þess, sem
óskað er að skipi þriðja sæti framboðslistans o.s.frv.
í hvaöa kjörhverfi skai kjósa:
Kjósa skal I því kjörhverfi, sem viðkomandi átti lögheimili þann 30. september
1994. Hafi kjósandi flutt I kjörhverfiö eftir þann tima, ber honum að staðfesta það
með afriti af staðfestri aðflutningstilkynningu.
L
Sfe
s