Morgunblaðið - 24.08.1991, Síða 48
Flugleiðir hf.:
Gengi á hlutabréfum
lækkar vegna aukins
Tramboðs bréfanna
GENGI á hlutabréfum í Flugleiðum hf. hefur nú verið lækkað lítil-
lega hjá þremur verðbréfafyrirtækjum vegna aukins framboðs bréf-
anna að undanförnu. Hjá Verðbréfamarkaði Islandsbanka og Kaup-
þingi hefur kaupgengi lækkað úr 2,45 í 2,40 og hjá Landsbréfum
lækkaði gengið úr 2,42 í 2,40 í gær. Vegna hins aukna framboðs
hafa Landsbréf hf. og Verðbréfamarkaður íslandsbanka hf. hætt
kaupum á bréfum þegar um háar fjárhæðir er að ræða. Þess í stað
bjóðast þau til að taka slík bréf i umboðssölu.
„Það virðist vera nokkurt fram-
boð af Flugleiðabréfum en við höf-
um ekki miklar áhyggjur af því nú.
Til þess að bregðast við því þá höf-
um við fært verðið niður um 2%
og stærri fjárhæðir eru eingöngu
■igjt'ptar í umboðssölu," sagði Svan-
liyörn Thoroddsen, deildarstjóri hjá
Verðbréfamarkaði íslandsbanka, í
samtali við Morgunblaðið.
Fjárfestingarfélagið hefur ekki
Hraðfrystihús
Stokkseyrar:
Rættum
^samein-
inguáný
Selfossi.
VIÐRÆÐUR um sameiningu
Hraðfrystihúss Stokkseyrar,
Meitilsins og Glettings i Þor-
lákshöfn verða hafnar að nýju
eftir að hafa legið niðri um
skeið. Þetta kom fram á fram-
haldsaðalfundi Hraðfrysti-
húss Stokkseyrar í gær.
Á fundinum voru reikningar
Hraðfrystihússins samþykktir
og formaður stjórnar, Sigfús
Jónsson, skýrði frá stöðunni í
sameiningarviðræðunum. Hann
sagði að vilji hefði komið fram
hjá Meitlinum um að taka upp
viðræður aftur og þvf yrðu
möguleikar sameiningar kann-
aðir frekar en áhugi á samein-
ingu hefur verið fyrir hendi hjá
Glettingi og Hraðfrystihúsi
Stokkseyrar. Stjórn Hraðfrysti-
hússins hefur, auk sameiningar,
heimild til að leita annarra leiða
til að bæta stöðu fyrirtækisins.
Sig. Jóns.
breytt gengi hlutabréfa í Flugleið-
um en kaupgengi var skráð þar
2,41 í gær. Að sögn Agnars Jóns
Ágústssonar hjá Fjárfestingarfé-
laginu er ekki útilokað að gengi
hlutabréfanna verði lækkað á
mánudag. Hann sagði ennfremur
að nú væri til skoðunar að hætta
kaupum á hlutabréfum í Flugleiðum
og fleiri hlutafélögum og taka slík
bréf einungis í umboðssölu.
„Hækkanir á hlutabréfum eru
farnar að stýrast af afkomu félag-
anna, en hingað til hefur hluta-
bréfamarkaðurinn verið þannig, að
verðið hefur hækkað nokkuð óháð
afkomu þeirra vegna þess að hluta-
bréf hafa verið vanmetin í verði á
síðustu árum,“ sagði Agnar.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Forsetinn í opinberri heimsókn til Skagafjarðar
Opinber heimsókn forseta íslands, Vigdísar Finnbogadóttur, til Skagafjarðar hófst í gær. Á Alexanders-
flugvelli á Sauðárkróki var forsetanum vel fagnað. Skátar stóðu heiðurvörð með íslenska fánann, en forset-
inn er verndari skátahreyfingarinnar á íslandi.
Sjá frásögn á bls. 19.
Fjölmennur útifundur í Vilníus:
Fólkið hrópaði nafn Islands
og þakkaði fyrir stuðninginn
- segir Lára Margrét Ragnarsdóttir, sem ávarpaði fundinn - Aðsetur KGB
og kommúnistaflokksins rudd og síðasta Lenín-styttan felld
„FÓLKIÐ hrópaði „ísland, ís-
land“ og „við þökkum“ hvað eftir
annað. Blómin sem það hlóð í fang
okkar íslendinganna sýndu það
þakklæti og fögnuð sem hér
ríkir,“ segir Lára Margrét Ragn-
arsdóttir alþingismaður sem tal-
aði á fjölmennum útifundi í Lithá-
en í gær. Eftir að Landsbergis
forseti og biskup landsins höfðu
ávarpað mannfjöldann sem safn-
ast hafði saman við þinghúsið í
Vilníus var Lára Margrét beðin
að segja frá afstöðu Islendinga
til sjálfstæðisyfirlýsinga Eystra-
saltsríkjanna. Aðkoma í sjón-
varpsstöðinni í Vilníus var að
sögn Láru hræðileg, sýru og olíu
hafði verið hellt á tæki og víða
kveikt í. Aðsetur KGB og komm-
únistaflokksins hafa verið rudd
og síðasta styttan af Lenín felld
í höfuðborg Litháens.
Þingmenn frá nokkrum Vestur-
ísland og Eystrasaltsríkin:
yfirlýsing um stjórnmála-
samband undinituð á morgun
STOFNAÐ verður formlega til stjórnmálasambands íslands og
Eystrasaltsríkjanna þriggja á morgun, sunnudag. Þá koma til
landsins utanríkisráðherrar Eistlands, Lettlands og Litháens.
Þeir munu undirrita yfirlýsingu um stjórnmálasambandið ásamt
Jóni Baldvini Hannibalssyni utanríkisráðherra.
Jón Baldvin greindi frá því í
fyrradag að íslensk stjórnvöld við-
urkenndu sjálfstæði Lettlands og
^stlands á sama hátt og Litháens
og væru reiðubúin að koma á
stjórnmálasambandi við ríkin þijú
þegar þeim þætti henta. Utanríkis-
ráðherrar Eystrasaltslandanna
réðu ráðum sínum í fyrrakvöld og
gærmorgun og niðurstaðan varð
sú að þeir þiggja boð um að koma
til íslands og undirrita yfírlýsingu
afh sambandið. Ráðherrarnir
koma á morgun og ákveðið verður
í dag um fyrirkomulag fundar
þeirra með íslenskum ráðamönn-
um.
ísland verður fyrst Vesturlanda
til að stofna til stjórnmálasam-
bands við Eystrasaltslönd.
Kanadamenn, Belgar og Danir eru
samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins nærri því að gera hið
sama. Ráðamenn í fleiri löndum
hafa sagt ástæðu til að endur-
skoða afstöðu til Eystrasaltslanda
en gera að skilyrði samkomulag
þeirra við stjórnvöld í Moskvu.
Jón Baldvin Hannibalsson segir
að líta megi svo á að samningur
lýðveldisins Rússlands við Eistland
og Lettland frá því í vetur sé
grunnur að stjórnmálasambandi,
þótt ekki hafi unnist tími til að
koma honum gegnum þingið.
Samningurinn felur í sér gagn-
kvæma viðurkenningu á sjálfstæð-
isrétti landanna.
Utanríkisráðherra Lettlands
heldur á mánudaginn til Banda-
ríkjanna og hittir þar að máli for-
seta, utanríkisráðherra og for-
mann utanríkismálanefndar
þingsins. George Bush Banda-
ríkjaforseti hefur þegar sagt að
Bandaríkjamenn hljóti nú að taka
til endurmats málefni Eystrasalts-
ríkja.
Evrópulöndum og Bandaríkjunum
komu í höfuðstöðvar öryggislögregl-
unnar KGB í Vilníus í gær. Lára
Margrét Ragnarsdóttir, sem sótti
fundi þingmannanna ásamt Jóhann-
esi Geir Sigurgeirssyni, segir að ekki
hafi tekist að eyðileggja allt skjala-
safn öryggislögreglunnar og opin-
berri starfsemi hennar verði nú hætt
í landinu.
Hermenn yfirgáfu á fimmtudag
aðsetur blaða, útvarps og sjónvarps
í Vilníus. Þingmannahópurinn skoð-
aði sjónvarpsstöðina og var aðkoman
hræðileg að sögn Láru. „Samkvæmt
skipun frá Moskvu hafði allt verið
eyðilagt sem unnt var, sýru sprautað
á tæki og olíu hellt yfir þau. Víða
hafði verið kveikt í og aðkoman var
eins og á öskuhaug. Við vorum beð-
in að opna alls ekki lokaðar dyr þar
sem sprengjum gæti hafa verið kom-
ið fyrir við þær. í húsi útvarpsins
var aðkoman ömurleg líka, sýra og
olía á gólfum og hálfkláraður matur
hermanna sem farið höfðu í ofboði."
Lára Margrét segir að þrátt fyrir
þetta hafi mikil gleði ríkt í Litháen,
fáni landsins hefði blakt við útvarps-
turn og aðsetur fjölmiðla. „Við út-
varpsturninn lá geysistór kross og
eldur logaði í einum bálkastanna sem
kveikt var í til að minna á innlimun
landsins í Sovétríkin.
í lok ráðstefnu þingmanna í Lithá-
en var stofnaður hópur til að knýja
á um viðurkenningu sjálfstæðis Eyst-
rasaltslanda með sem flestum þjóð-
um.
Um 100 þúsund Litháar sóttu,
samkvæmt heimildum líeuter-frétta-
stofunnar, útifund við þinghúsið í
Vilníus í gær. Þar greindi Lára
Margrét frá ákvörðun íslenskra
stjórnvalda um að viðurkenna sjálf-
stæði landanna þriggja og stofna til
formlegs stjórnmálasambands við
þau. Fólk fagnaði ákaft og kveðst
Lára þakklát fyrir að hafa af tilviljun
fengið þetta hlutverk.
Útvegsbankahúsið:
Byssuskot
leyndust í
gömlu dóti
ÚTTEKTIN á Útvegsbanka-
húsinu við Austurstræti, sem
breyta á í Dómshús, leiddi í
Ijós fleira en byggingarfræði-
legt ástand hússins. Tveir
pakkar af gömlum skotum
voru meðal þess sem leyndist
i húsinu.
Ingimundur Magnússon hafði
yfirumsjón með úttektinni fyrir
hönd Fasteigna ríkisins. Hann
segist hafa fundið skotpakkana
í öðru gömlu dóti, svo sem af-
lögðum lyklum. Skotin voru
tvenns konar að gerð, þau stærri
8 til 10 millimetrar í þvermál.
Ingimundur segir að sér hafi
þegar orðið ljóst að þama var
um að ræða skot í byssur sem
ekki er leyfilegt að nota hér á
landi.
Ekki er vitað nákvæmlega
hvers vegna skotin voru þarna,
en kunnugir geta sér þess til að
þau hafí legið þar frá því á
stríðsárunum, þegar eftirlits-
menn bankans voru vopnaðir.