Morgunblaðið - 24.08.1991, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 1991
Áskorun á stjórnarformann og framkvæmdastjóra Landsvirkjunar:
Ahættan er of mikil
Beðið um svör við málefnalegum spurningum
eftir Svavar Gestsson
Nú mun unnið að því að fá er-
lenda aðila til að fjármagna byggingu
álbræðslu á íslandi. Augljóst er að
þúsundir manna byggja miklar vonir
á því að þetta fyrirtæki verði reist,
það muni skapa atvinnu og auka
hagvöxt. Hvort tveggja sé mikilvægt
þegar við stöndum að öðru leyti
frammi fyrir því að minna verður
veitt að næsta ári en á þessu. Þess
vegna er eðlilegt að menn taki því
fagnandi að ný atvinnutækifæri verði
til. Það er ekki hægt að gagnrýna.
Hins vegar er álversframkvæmdin
svo stór í iðjuveri og orkuveri að
nauðsynlegt er að staldra við og
kanna málin nákvæmlega áður en
lagt er af stað.
Það er þrennt sem getur valdið
því að fyrirtæki auki hagvöxt á ís-
landi til langframa:
1. Orkusalan, enda skili orkuverð
tilkostnaði við þær virkjanir sem
byggja þarf til þess að iðjuverið geti
starfað.
2. Skattar til íslenska ríkisins og
til sveitarfélaganna.
3. Vinnulaun þess fólks sem starfar
við álverið enda fái þetta fólk ekki
vinnu annars staðar og eigi þá, ef
það fær vinnu, kost á lægri launum
en álverið borgar.
Tveir síðastnefndu þættimir eru
ekki eins stórir í þjóðarbúskapnum í
heild og sá fyrsti. Komið hefur fram
hins vegar að skattgreiðslur verða
talsverðar og að vinnulaunin verða
einnig talsverð, um þetta munar. En
hvað þá um orkuverðið sem er lang-
veigamesti þáttur málsins? Skilar
álverið kostnaðarverði fyrir rafork-
una? Er ekki hægt að selja raforkuna
á hærra verði í önnur verkefni?
Af hverju skyldi verð hækka
núna loksins?
Förum aðeins yfir orkuverðið.
Það liggur fyrir að byggt er á
spám. Spámar skila þeim niðurstöð-
um að álverð muni fara hækkandi á
komandi árum. En hvernig má það
vera þegar álverð hefur farið Iækk-
andi á undanförnum áratugum að
það taki allt í einu upp á því að
hækka á næstu áratugum?
Tölur liðinna áratuga eru þessar:
1. Meðalverð á áli 1960-1969 var
1.822 dollarar fyrir tonnið.
2. Meðalverð á áli næsta áratug á
eftir var 1.818,4 dollarar fyrir tonnið.
3. Meðalverðið á síðasta áratug var
aftur á móti 1.648,6 dollarar fyrir
hvert tonn af áli.
Á síðasta ári var verðið nærri 200
dollurum lægra á tonnið en næstu
tvo áratugi á undan.
En hverju er svo spáð?
Því er spáð að verðið á áli fari
hækkandi á næstu ámm og áratug-
um: það verði yfir 1.700 dollarar á
þessum áratug, fari svo yfir 1.900
dollara og verði síðan um 1.900 doll-
arar á tonnið það sem eftir er. Það
er með öðrum orðum gert ráð fyrir
stórfelldri hækkun á álverði á þeim
áratugum sem samningurinn nær til.
Ég held að allir sanngjamir menn
hljóti að setja spurningarmerki við
þessar spár í ljósi reynslu undanfar-
inna áratuga.
Hvaða rök eru fyrir því að álverð-
ið verði næstu áratugi 13% hærra
en það var á síðasta áratug? Engin
slík rök hafa heyrst.
Blanda skapar þegar
veruleg vermæti
Þá er sagt að í kostnaðarútreikn-
ingum Landsvirkjunar sé Blöndu
sleppt af því að hún skili engu fyrir
þjóðina hvort eð er.
En nú liggur einnig fyrir að
Blönduorkan selst og að við höfum
fyrir hana markað þó í takmörkuðu
sé strax í dag:
1. Stjóm Landsvirkjunar hefur
ákveðið að selja álverinu í Straum-
svík orku frá Blönduvirkjun, að vísu
aðeins 170 gígavattstundir fyrir 9
mills kílóvattstundina — það eru pen-
ingar líka.
2. Og í annan stað liggur fyrir að
efna þarf til viðgerða á rafölunr
Búrfellsvirkjunar sem kosta munu
um milljarð króna að meðtöldum
orkukostnaði meðan á viðgerð stend-
ur — og þar kemur Blanda líka að
fullum notum.
Fróðlegt væri að reikna áldæmið
upp á nýtt með því einu að reikna
Blönduorkuna á 9 mills. Hér verður
fullyrt: Þar með væri orkudæmið til
álversins rekið með tapi.
En hví ekki að selja orkuna
utan með streng?
En höfum við þá ekkert með ork-
una að gera annað en að selja hana
álverksmiðjum?
Nú eru hraðvaxandi líkur á því
að unnt sé að flytja raforku út með
streng og selja hana þannig beint á
neytendamarkað. Það liggur fyrir að
flutningskostnaður er verulegur en
orkutapið á leiðinni er ekki lengur
alvarlegt vandamál. En það liggur
líka fyrir að neytendamarkaður í
Evrópu er tilbúinn til þess að greiða
miklu hærra verð fyrir þessa orku
en áður. Hér verður því slegið föstu
eftír Sigvrð Pálsson
Nú er búið að taka ákvörðun um
veiðar á íslandsmiðum næsta físk-
veiðiár. Þetta var allt ósköp erfítt
og hinir bestu menn komu í sjónvarp-
ið, önduðu þungt og sögðust ekki
gera það með neinni ánægju að sam-
þykkja svona nokkuð. Það yrði þó
að hugsa fram í tímann og fara
gætilega, samviskunnar vegna væri
nú ekki annað hægt. Sjávarútvegs-
ráðherrann áleit að ef það kæmi í
ljós að of varlega hefði verið farið
myndum við bara veiða fiskinn
seinna og þá yrði hann stærri.
Hvaða vísbendingu skyldi hann
hafa _um það og hvar hefur það tek-
ist? Ég man vel eftir dæminu frá
Kanada um árið. Hér á landi höfðu
verið fluttar ábyrgar loftræður um
þessa vitru og langsýnu menn í
Kanada. Þeir veiddu mjög hóflega,
voru að byggja upp þorskstofninn
sinn. Seinna myndu þeir uppskera
eins og þeir sáðu til og veiða vænan
físk. Það yrði mikið af honum. Þetta
gekk nú ekki beinlínis eftir. Kanada-
menn sörguðu upp með illu nálægt
helmingi þess sem þeir áætluðu árið
1987 muni ég rétt og sá fiskur var
ekki vænn. Hann var smár.
Af hveiju var nú þetta? Ég veit
ekki hvaða skýringu menn gáfu sjálf-
um sér og öðrum þar vestra en við
að unnt verði að losna við orkuna
frá virkjunum sem eiga að vinna
orku fyrir álverið á miklu hærra verði
nettó (að frádregnum flutnings-
kostnaði) en fæst fyrir orkuna til
álveranna. Landsvirkjunarstjórn
fjallar nú um sölu á raforku til út-
landa með streng. Nauðsynlegt er
að þær umræður fari allar fram fyr-
ir opnum tjöldum þannig að almenn-
ingur í landinu geti metið sjálfur
hvaða kostir eru í boði og — sem er
ekki síður mikilvægt — geti metið
hvaða kostum er í raun verið að
hafna með því að selja orkuna til
álfyrirtækjanna með þeim hætti sem
gert er ráð fyrir.
Rafmagnið hækkar í verði
til almennings
Loks er því haldið fram af forráða-
mönnum Landsvirkjunar og iðnaðar-
ráðherra að unnt verði að veija al-
menning fyrir hækkunum á raforku-
verði í landinu hvað sem gerist
með álverið.
Það er ekki rétt.
I fyrsta lagi hlýtur raforkuverðið
að verða hærra en ella yrði vegna
byggingar nýju álveranna. Það segir
sig sjálft, en það hefur aldrei verði
reiknað út hvaða hagvexti lægra
raforkuverð til heimila og fyrirtækja
myndi skila sérstaklega.
í öðru lagi liggur það fyrir að
Landsvirkjun ætlar sér að hækka
raforkuna frá virkjunum sínum í
rauntölum um 5% nú í haust — þar
með er auðvitað verið að búa í hag-
inn til þess að fela — eða hvað? —
kostnaðinn við þessar virkjanir.
Rök — en hver eru gagnrökin?
Ég hef í þessari samantekt leitt
fengum að heyra í umræðuþætti í
sjónvarpinu hér að þama hefði kom-
ið hafís. Þetta þótti nú sumum leik-
mönnum heldur svona óklárt en ef
fískfræðingi dugði þetta gat almenn-
ingur ekki farið fram á meira. Ég
hélt satt að segja að hafísinn gæti
nú varla ráðið þessu, hann hafí sést
þama fyrr.
Þetta leiðir hugann að því hvemig
almenningur er fóðraður á upplýs-
ingum um fjöreggið sitt. Það er orð-
ið árvisst að nýliðun í þorskstofninum
er skoðuð og almenningur fær frétt-
ir af ástandinu. Mér er í minni að
hér um haustið, það hefur verið ’88
eða ’89 að fískifræðingur kom í sjón-
varpið oftar en einu sinni til að segja
frá ástandinu. Nýliðun var mjög lítil
og til samanburðar var sýnd nýliðun
frá ’76. Það var nú heldur blóm-
legra. Þetta var látið duga og svo
áttum við að halda að mikil nýliðun
’76 hefði gefíð góðan veiðistofn. Ég
skildi manninn svo þó hann segði
ekkert um það. A.m.k. væri ekki að
vænta mikillar veiði úr árgangi sem
væri eins lélegur og nýliðunin á þvl
ári sem hefði verið rannsakað, benti
til. Nú er frá því að segja að árgang-
urinn frá ’76 varð ekki að góðum
veiðistofni heldur skilaði þessi fískur
sér slælega í veiði. Ætli menn hafí
kannski ekki beðið nógu lengi eða
kom hafís?
Hefði þetta gerst í heiðatjöm býst
Svavar Gestsson
„Fróðlegt væri að
reikna áldæmið upp á
nýtt með því einu að
reikna Blönduorkuna á
9 mills. Hér verður full-
yrt: Þar með væri orku-
dæmið til álversins rek-
ið með tapi.“
rök að því að
1) álverð muni að öllum líkindum
fara lækkandi á komandi áratugum
eins og það hefur farið lækkandi á
undanfömum áratugum;
2) það er fráleitt að reikna Blöndu
á núlli inn í orkudæmið eins og gert
er;
3) ekki verður unnt að veija al-
menning fyrir hærrá raforkuverði
með þeim aðferðum sem Landsvirkj-
un virðist ætla að hafa;
4) það er unnt að selja raforku á
neytendamarkað erlendis á betra
verði en því sem gert er ráð fyrir í
nýjum álsamningunum.
ég við að mörgum hefði þótt þetta
eðlilega, ætið hafí ekki verið nóg
handa öllum þessum fiskum. Okkur
er sífellt ætlað að skilja að þetta sé
allt öðm vísi í hafinu, enda er það
svo stórt og svo er það líka salt.
Maður hugsar og gruflar. Hvemig
er þetta? Hafí nú fískur of lítið að
éta hér og vaxi ekki, getur hann þá
bara farið eitthvað annað til að éta?
Veit kannski einhver um stað þar
sem töluvert er að éta en ekki fískur
til að nýta sér það? Hvemig ætli
þetta sé?
Maður skilur fátt og því færra sem
fleira tínist til af upplýsingum og
rökum. Hvemig getur það líka gerst
að fréttamenn segi okkur frá því
árlega í útvarpinu að það hafí komið
í ljós í rannsóknarleiðangri að þó
fundist hafí fá seiði hafí þau verið
stór og falleg. Það getur varla verið
tilviljun að svona er talað. Þykir físki-
fræðingum það kannski skrýtið að
fískur vaxi betur þegar færri em um
ætið? Mig er farið að gmna það enda
trúi ég að svona tal hjá fréttamönn-
um spretti af tali fiskifræðinga. Því
er það að þegar ráðamenn þurfa að
taka stórar ákvarðanir um fiskveiðar
mega þeir varla byggja þær á „ráð-
leggingum sérfræðinga" nema að
takmörkuðu leyti. Talsmátinn og
fræðslan er tæplega svo miklu vand:
aðri þegar talað er til þeirra. Hér er
um fjöregg okkar að ræða og þó að
5) ekki sé um jákvæð hagvaxtar-
áhrif að ræða af fyrirtækinu því að
tap á orkusölunni étur upp ávinning-
inn af sköttum og starfslaunum í
álverinu.
Því þá ekki
sjálfstætt fyrirtæki?
En þrátt fyrir þetta virðist þið
ætla að keyra þennar. samning í
gegn og þá spyr ég: Af hveiju emð
þið ekki tilbúnir til að fallast á þá
hugmynd Finnboga Jónssonar að hér
verði um að ræða sjálfstætt orkufyr-
irtæki? Þar með sæist í raun hvað
orkan kostar og þar með væri al-
menningur á íslandi varinn fyrir því
að tapinu af þessu fyrirtæki mætti
velta yfír á neytendur — og þá sæist
líka gróðinn betur, ef það er gróði
af fyrirtækinu sem ég leyfi mér að
draga í efa.
Ef þið emð ekki tilbúnir til að
gera þetta að sjálfstæðu fyrirtæki
þá bendir það því miður til þess að
þið hafíð óhreint mél í pokahominu
— eða að þið hafíð að minnsta kosti
gmnsemdir um það að þetta sé ekki
eins gróðavænlegt fyrirtæki og þið
viljið að öðm leyti vera láta.
Skorað á Jóhannes og
Halldór að svara
Mér er tjáð að Atlantsálfyrirtækin
hafí ráðið sér sérstakan áróðursfull-
trúa. Mér sýnist að hann hafí verið
iðinn við kolann að undanfömu. Er
ekki nauðsynlegt í nafni lýðræðis og
frelsis að það fari fram málefnaleg
umræða um þetta mál á jafnréttis-
gmndvelli? Til þess er þessi grein
skrifuð hvort sem forráðamenn
Landsvirkjunar em tilbúnir til að
svara henni eða ekki. Það kemur í
ljós. En hér með er skorað á form-
ann eða framkvæmdastjóra Lands-
virkjunar að svara þessari grein og
að hrekja röksemdir hennar.
Höfundur er þingmaður fyrir
Alþýðubandalagið íReykjavík og
fulltrúi í iðnaðarnefnd Alþingis.
þægilegt geti verið í þjóðfélagi verka-
skiptingar að ráða einn til að vita
þetta og annan til að vita hitt, þarf
fleira til. Þeir sem ákvarðanir taka
þurfa að vita býsna mikið sjálfír og
það er nú meira en gmnur hjá mér
að margur þingmaðurinn okkar hafi
ekki byggt það á mikilli eigin þekk-
ingu þegar síðast var ákveðið að
halda áfram núverandi fískveiði-
stefnu.
Nú hefur verið ákveðið að veiða
lítið, of lítið. Það getur ekki leitt
annað af sér en að seinna verði lagt
til að veiða minna. Mér sýndist að
sama dauða höndin sem lagðist yfír
veiðar í ám og vötnum sé lögst yfir
veiðamar í sjónum. Rökin em svo lík
fyrir öllu þessu. Fiskimið þola ekki
frekar en þurrlendið að of margir séu
um fæðuna. Þá vex engin skepna,
allt veður smátt og ræfílslegt. Þann-
ig er á gmnnslóð við Island og það
sama gildir víða á djúpmiðum.
Þegar fískur er smár og horaður
er bara hægt að draga einn lærdóm
af þvl. Fiskamir em of margir miðað
við fæðuframboðið. Hægt er að ráða
við fiskafjöldann en ekki er háegt að
stýra fæðuframboðinu. Þess vegna
er það röng veiðistjómun að friða
smáfísk eins og nú er gert. Hólfín
sem sífellt er verið að loka vegna
smáfísks í afla gefa lítið eða ekkert
af sér í stóram fiski síðar.
Ég verð sífellt meira var við skiln-
ing hins almenna manns á því hversu
vonlaus fískveiðistefnan okkar er.
Líkingin við heiðavötnin er of sláandi
til að henni verði afneitað lengi enn.
Það er því trú mín að vilji ráðamenn
halda tiltrú almennings megi sinna-
skiptin ekki dragast lengi.
Höfundur er málari í Reykjavík.
Eru mennimir eins
ábyrgir og þeir halda?
Andreas Trappe og stóðhesturinn Týr frá
Rappenhof, skærasta stjama heims-
meistaramótsins í Sviþjóð.
KYNBÓTAHROSS í FREMSTU RÖÐ
Á nýafstöðnu heimsmeistaramóti íslenskra hesta í Svíþjóð sló stóðhesturinn Týr í gegn
með eftirminnilegum hætti og vann til þriggja gullverðlauna: í flokki yngri stóðhesta, í
fjórgangi og í tölti. Týr er hreinræktaður og skyldleikaræktaður af Kolkuóssgrein
Svaðastaðastofnsins.
Á hrossaræktarbúinu á Árbakka í Landsveit eru ræktuð hross af sama stofni, og á
bænum eru til sölu folöld og tryppi náskyld hestinum.
S JÓN ER SÖGU RÍKARI, MUNIÐ SÖLUSÝNINGARNAR Á ÁRRAKKA ALLA LAUGAROAGA
Árbakki
hrossaræktarbú
851 Hella • Símar 98-75041/91-77556