Morgunblaðið - 24.08.1991, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. ÁGÚST 1991
15
Riðuniðurskurður
stefna eða stefnuleysi
eftír Aðalstein Árna
Baldursson
í Morgunblaðinu 28. maí síðastl-
iðinn birtist stutt grein eftir bónda
einn úr Vaðbrekku í Jökuldal er
nefnist Sigurður Aðalsteinsson.
Ekki veit ég hvort maðurinn hefur
þjáðst af sólsting eftir allan þann
hita sem verið hefur í vor, þegar
hann skrifaði þessa grein,'en hitt
veit ég að í henni eru mörg alvar-
leg ósannindi borin upp á fjáreig-
endur á Húsavík sem ég verð að
svara. Og vil ég byija á að lýsa
furðu minni á því að menn skuli
ryðjast fram á ritvöllinn með
slíkum hætti án þess að þekkja eða
vita neitt um riðumál á Húsavík.
Og verð ég að vísa því til föðurhús-
anna som stendur í lok greinarinn-
ar, en þar skorar bóndinn í Jökuld-
al á mig að kynna mér betur það
sem þegar hefur verið reynt í sam-
bandi við útrýmingu á riðuveiki á
landinu, því að þeim hlutum skoð-
uðum telur hann að ég muni standa
í báða fætur og vita betur um
hvað sauðfjárveikivarnir á íslandi
snúast. Tilvitnun lýkur. Ég spyr:
Hvemig getur bóndi austan úr
Jökuldal leyft sér að vera með
slíkar fullyrðingar? Af hveiju
kynnti hann sér ekki stöðu riðu-
mála á Húsavík áður en hann skrif-
aði þessa vanhugsuðu og villandi
grein í Morgunblaðið? Og annað
get ég sagt þessum unga ritglaða
bónda úr Jökuldal, að allt frá því
að ég útskrifaðist sem búfræðingur
frá Hvanneyri fyrir 11 árum hef
ég fýlgst mjög grannt með þeim
aðgerðum sem gerðar hafa verið
í sambandi við útrýmingu á riðu-
veiki í landinu og því tel ég mig
geta staðið í báða fætur hvað þau
mál varðar, en hræddur er ég um
að Vaðbrekkubóndi skríði á fjórurn
fótum um Jökuldalinn vegna fá-
fræði um riðumál á Húsavík.
í greininni kemur fram að Vað-
brekkubóndinn telur mig hafa bor-
ið mig mjög illa vegna umræðu
um niðurskurð á öllu sauðfé í fjár-
borg Húsavíkurkaupstaðar. Við
þessi ummæli vil ég gera nokkrar
athugasemdir. í fyrsta lagi er mjög
villandi að tala um íjárborg því
margir hafa gefið sig á tal við mig
eftir að grein Sigurðar birtist í
Morgunblaðinu og spurt mig að
því hvort fjáreigendur á Húsavík
séu með allt sitt fé á sama stað.
Þessum misskilningi vil ég eyða
með því að fræða bæði Vaðbrekku-
bóndann sem og aðra um það að
á Húsavík eru margar smáhjarðir
og er algeng stærð á hjörð um 10
kindur og hefur samgangur á milli
hjarða verið mjög lítill síðastliðin
ár. Og dæmi eru um að 3 til 5
kílómetrar séu á milli fjárhúsa.
Einnig höfum við haft stóran og
mikinn afrétt þannig að mjög lítill
samgangur hefur verið á milli
hjarða í afréttinum, en aðrir hafa
haft sitt fé í lokuðum hólfum allt
sumarið. I öðru lagi hvað varðar
þetta stutta viðtal sem fréttamaður
Stöðvar 2 tók við mig, en þar sagði
ég að það væri skoðun mín að ef
upp kæmi riða hjá bónda eða
frístundabónda ættu sömu reglur
að gilda hvað varðar niðurskurð.
Við þessum orðum mínum í frétta-
þætti Stöðvar 2 átti Vaðbrekku-
bóndi, sem telur sig vera venjuleg-
an bónda, ekki til orð. Þó ég tali
bara um jöfnuð, en engin forrétt-
indi til handa frístundabændum,
enda ekki ætlunin. Það er rétt hjá
bóndanum úr Jökuldal að í Þingeyj-
arsýslum hefur á undanförnum
áram farið fram stórfelldur niður-
skurður vegna riðuveiki. Ekki veit
ég hvað bóndinn úr Jökuldal veit
mikið um riðumál í Þingeyjarsýsl-
um en ég segi þetta vegna þess
að Húsavík er jú í S-Þingeyjar-
sýslu og í greininni kemur fram
að hann veit akkúrat ekki neitt
um riðumál á Húsavík. Niður-
skurður á fjárstofnum er alvöru-
mál þar sem skurðurinn er fram-
kvæmdur til að útrýma riðuveiki í
landinu, en menn hafa ekki verið
sammála um, hvaða stefna eigi að
gilda hvað varðar niðurskurð, því
aðallega hefur verið beitt tveim
aðgerðum til að útrýma riðuveiki,
annarsvegar eins og Vaðbrekku-
bóndinn getur um í greininni en
þar talar hann um að framkvæmd-
ur hafi verið allshetjar niðurskurð-
ur á ákveðnum svæðum t.d. á milli
Jökulsár á Dal og Lagarfljóts og
víðar. En hin meginreglan hefur
verið sú að ef upp hefur komið
riða á bæ hefur þeirri hjörð verið
lógað en öðrum ekki og má lengi
sjálfsagt deila um hvor aðferðin
er betri. Hér í Þingeyjarsýslum
hefur seinni aðferðinni verið beitt,
það er að segja að ef riða hefur
greinst í hjörð hefur þeirri hjörð
verið fargað en öðrum ekki. Og
Aðalsteinn Árni Baldursson
„Það er skoðun mín að
ef við hefðum fengið
frið við að reyna að ná
sáttum í þessu við-
kvæma máli, lægi fyrir
í dag lausn sem flestir
gætu verið sæmilega
sáttir við.“
hafa fjáreigendur á Húsavík og í
Þingeyjarsýslum virt þessa reglu.
Einnig vil ég geta þess að fjáreig-
endur á Húsavík hafa átt mjög
gott samstarf við héraðsdýralækni
um riðumál. Og síðastliðið haust
eftir að greindist riða hér hjá einum
fjáreiganda fórum við þess á leit
við héraðsdýralækni að tekin yrðu
sýni úr því fullorðna fé sem við
slátruðum það haust. Það var gert
og kom ekkert athugavert í ljós
þannig að við hljótum að telja okk-
ur vera með heilbrigt og hraust fé.
Þetta veit Vaðbrekkubóndinn ekk-
ert um, heldur heldur hann áfram
að sverta íjáreigendur á Húsavík
í greininni, því hann segir að vilji
okkar fjáreigenda á Húsavík sé að
móast við að viðhalda riðuveiki í
landinu, bændum og neytendum
til óþurftar. Þetta er mjög alvarleg
ásökun sem einungis illa innrættir
menn eða illa upplýstir láta sér um
munn fara, og hræddur er ég um
að ef menn hefðu leyft sér að segja
þetta á landnámsöld, þá hefði sá
hinn sami verið hýddur opinber-
lega, en ég fer ekki fram á að
bóndinn úr austri verði hýddur,
heldur held ég að hann ætti að sjá
sóma sinn í því að biðjast afsökun-
ar á þeim ummælum sem hann
lætur sér um munn fara í
títtnefndri grein.
í lokin vil ég segja þetta: Allt
frá í haust höfum við fulltrúar fjár-
eigenda á Húsavík átt í viðræðum
við fulltrúa frá sauðfjárveikivöm-
um um lausn riðumála á Húsavík.
Það er skoðun mín að ef við hefð-
um fengið frið við að reyna að ná
sáttum í þessu viðkvæma máli,
lægi fýrir í dag lausn sem flestir
gætu verið sæmilega sáttir við.
En það sem gert hefur málið mjög
erfitt eru þau bréf sem nokkrir
bændur hafa sent bæði sauðfjár-
veikivörnum og bæjarstjórn
Húsavíkur og undir þessi bréf hafa
oft og tíðum skrifað menn sem
hafa verið áminntir af fulltrúum
sauðíjárveikivarna fyrir það hvern-
ig þeir hafa staðið að riðumálum
í sinni sveit. Einnig hafa sjálfskip-
aðir snillingar í riðumálum gert
málið erfiðara. En ég vil þakka
þeim fjölmörgu bændum sem hafa
haft samband við okkur og lýst
stuðningi við okkar málstað. Einn-
ig bæjarstjórn Húsavíkur fyrir
hennar hlut í þessu máli.
Höfundur er búfræðingur og
formaður Fjáreigendafélags
Húsavíkur.
Áður Nú
Burknar 44«r- 299,-
Kaktusar, margar teg. 4^937. 129.-
Þykkblöðungar, margar teg. 2797- 199,-
Fikus Benjamini ca. 60sm. 499 .
Madagaskarpálmar ji#__ 339,.
Flöskuliljur 499..
blómoueil
Opið alla daga frá kl. 9-22. Sími 689070