Morgunblaðið - 08.06.1985, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 1985
13
„Brekkuhlaup ’85“
Akureyri, 5. júní.
SL. SUNNUDAG efndi verslunin Garðshorn á Akur-
eyri til mikillar uppákomu fyrir börn á Akureyri f
formi „víðavangshiaups“ fyrir 14 ára og yngri. Alls
tóku 464 börn þátt í hlaupinu og að loknu erfiðinu var
öllum boðið upp á gosdrykki frá Sana og sælgæti frá
Lindu. Auk þess fengu sigurvegarar boð um flugferð
yfir Akureyri og bikara til eignar. Mikil skemmtun
varð af þessari uppákomu, þrátt fyrir heldur leiðinlegt
veður. 1 flokki 8 ára og yngri urðu sigurvegarar Svava
Magnúsdóttir og Elfar Oskarsson. í flokki 9—11 ára
Guðrún Sigurbjörnsdóttir og Ómar Knútsson og í
flokki 12—14 ára urðu sigurvegarar Svavar Guð-
mundsson og Birna Björnsdóttir.
Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar „Brekku-
hlaup ’85“ fór fram.
G.Berg
Morgunblaðið/Júlfus
Á þessu líkani af Öskjuhlíðinni sést hvernig nýju tankarnir 6 mynda hring
sem veitingastaðurinn situr ofan á. Ætlunin er að ganga frá umhverfi
tankanna með e.k. stöllum sem sjást á myndinni.
Suðrænn garður og
veitingastaður sem
snýst í Öskjuhlíð
Á ÖSKJUHLÍÐINNI í Reykjavík eru 10 tankar sem geyma heitt vatn til
dreifingar á veitusvæði Hitaveitu Reykjavíkur. 8 elstu tankarnir eru nú
orðnir svo gamlir að þeir halda ekki vatni, og hrinda af sér málningu. Á
næstunni verður tekin ákvörðun um það hvenær allir tankarnir í Öskju-
hlíðinni verða rifnir, og í þeirra stað reistir 6 nýir tankar. Hitaveitan
hefur auk þess á prjónunum að reisa veitingastað ofan á tönkunum.
Rýminu milli tankanna verður lokað á alla vegu með trefjagleri og mun
hitaútstreymi frá þeim rækta þar upp suðrænan aldingarð.
Að sögn Jóhannesar Zeöga, for-
stjóra Hitaveitu Reykjavíkur, er
hugmyndin að veitingastaðnum
nokkuð gömul, hana setti Sigurður
Guðmundsson arkitekt fram fyrr
á öldinni. Þegar byrjað var að
leggja drög að nýbyggingu í
Öskjuhlíðinni öðlaðist hugmyndin
nýtt líf. Ingimundur Sveinsson
arkitekt hefur nú gert teikningar
af útliti staðarins og fragangi ald-
ingarðsins. Gestir munu ganga
inn í garðinn, sem verður um 600
fm að flatarmáli, og taka lyftu
upp í veitingastaðinn. Hugmyndin
er að láta gólf matsalarins snúast
þannig að gestir njóti útsýnis yfir
allan fjallahringinn í kringum
Stór-Reykjavík.
Þó þessi nýstárlega hugmynd sé
komin á teikniborðið liggur ekki
fyrir hvenaer hún verður fram-
kvæmd. Ekki er líklegt að hita-
veitan reisi sjálf og reki veit-
ingastaðinn. „Það eru líklega
margir aðilar sem hefðu áhuga á
að reka mastölustað á þessum
stað," sagði Ingimundur Sveinss-
on. Ætti engan að undra það, því
Það er víst að þetta yrði eini
matsölustaðurinn í heiminum þar
sem gestirnir snúast í hringi ofan
á 24 milljónum lítra af heitu
vatni.
ÞversniA af tönkunum, garðinum milli þeirra og hjálminum yfir garðinum
sem vcitingastaðurinn verður í.
SOL og FJOR
KLUBBURINN
Austurstræti 17,
símar 26611 — 23510
Megum viö bjóöa
þér það bezta á
Ítalíu — Spáni og Portúgal
Feröaskrifstofan
UTSÝIM
STÓRKOSTLEGT TÆKIFÆRI FYRIR t>IG
I 6 manna hópi býðst þér 3000 kr. kynningar-
afsiáttur fyrir feróafélagana og frítt fyrír
þig í 2 vikur í sól og sumaryl!
Gildir aóeins næstu daga fyrir nýjar pantanir á
fáum óseldum sætum til Ítalíu,
Spánar og Portúgal.
Þú finnur ánægjuna í Fríklúbbsferö meö Útsýn