Morgunblaðið - 08.06.1985, Blaðsíða 2
M<JRGDNBLAÐIÐ,LÁUGARDAGUR8?J[ÚNf 198&
15. Landsþing sjálfstæðiskvenna:
Nútímakonan —
heima og heiman
íslfírði, 7. júní. J
FIMMTÁNDA landsþing sjálfstæðiskvenna var sett á sal Menntaskólans á
ísafirði í kvöld. Um áttatíu fulltrúar af öllu landinu sitja þingið, sem er hið
fyrsta, sem haldið er utan Faxaflóasvæðisins. í kvöld setti Halldóra Rafnar,
formaður landssambandsins, þingið og flutti skýrslu stjórnar. Kjörnefnd var
kjörin, reikningar lagðir fram og aðildarfélög fluttu skýrslur sínar.
Á morgun, laugardag, sem er umræður um aðalmál þingsins
aðaldagur þingsins, hefst dagskrá-
in klukkan níu með aðalmáli
þingsins, „Nútímakonan heima og
heiman". Frummælendur eru
Ragnheiður Ólafsdóttir, Esther
Guðmundsdóttir, Oddrún Krist-
jánsdóttir og Geirþrúður Charles-
dóttir. Yfir hádegisverði flytur
Þorsteinn Pálsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, ávarp.Eftir
verður stjórnmálaályktun til um-
ræðu og afgreiðslu. Síðast á
dagskránni er stjórnarkjör en
heyrst hefur að Halldóra Rafnar
gefi ekki kost á sér til endurkjörs.
Eftir morgunbæn í ísafjarðar-
kirkju á sunnudagsmorguninn
verður farjð með Fagranesi um
ísafjarðardjúp.
— Úlfar.
Svíi forstjóri í
N orðurlandahúsinu
Á FUNDI stjórnar Norðurlandahúss-
ins í Færeyjum sem lauk í Stokk-
hólmi fyrir skömmu var valinn nýr
forstjóri hússins í stað Hjartar Páls-
sonar sem lét af störfum nýlega.
Sænski þingmaðurinn Karin Flod-
ström var valin úr hópi 33 umsækj-
enda. Að sögn Birgis Thorlacius full-
trúa íslands í stjórninni var hún ein-
róma í vali sínu. Karin hefur setið í
10 ár á þingi fyrir sósíaldemókrata og
hefði átt öruggt þingsæti í komandi
kosningum. Hún hefur ákveðið að
láta af þingmennsku og flytjast til
Færeyja þar sem hún tekur við starfi
1. október nk.
Sem kunnugt er tók Hjörtur
Pálsson við starfi forstjóra hússins
í október síðastliðnum en sagði
skyndilega upp starfi sínu í vetur
vegna ágreinings við starfslið og
stjórnarmenn. Við uppsögnina skil-
aði hann inn greinargerð, þar sem
kemur fram að hann taldi starfs-
aðstöðu sína óviðunandi. Kennir
Hjörtur fyrrverandi forstjóra
hússins og formanni og varafor-
manni stjórnarinnar um. Á fundi
stjórnar Norðurlandahússins 3. og
4. maí sl. var samin greinargerð um
skýrslu Hjartar. 1 þeirri greinar-
gerð sem nú er til umsagnar hjá
ráðherranefnd Norðurlandaráðs
vísar stjórnin því algjörlega á bug
að hún eða starfslið hússins hafi á
nokkurn hátt lagt stein í götu
Hjartar. Birgir kvaðst í samtali við
blaðamann í gærkvöldi sammála
þessari greinargerð. „Hjörtur taldi
að hann hefði ekki þá starfsaðstöðu
sem hann hefði vænst, og sagði
starfinu lausu. Það er náttúrulega
hans mál,“ sagði Birgir.
Fóstrur á þingpöllum
Morgunblaöid/Þorkell
Fóstrur fjölmenntu á þingpalla í gær, er málefni er þær snerta voru þar til umfjöllunar. Þá höfðu börnin, sem i
fylgd þeirra voru og gaman af að sjá mennina, sem setja landsmönnum lög. Frá þessu er sagt á þingsíðu
Morgunblaðsins í dag á bls. 32.
Steypt undan erni
á KvígindisfirÖi
MIKLAR líkur benda til að steypt
hafi verið undan arnarhjónum, sem í
vor gerðu sér hreiður yst í Kvígind-
isfirði í Austur-Barðastrandarsýslu,
Almenn reiði í garð HP á aóalfundi Hafskips:
Grein og myndbirting
algjör smekkleysa
— segir Rögnvaldur Bergsveinsson skipstjóri á Selánni
GÍFURLEG reiði hluthafa og starfsmanna Hafskips hf. í garð Helgarpóstsins
kom fram á aðalfundi félagsins sem haldinn var á Hótel Sögu í gær. Reiðin
er sprottin vegna greinar sem birtist í Helgarpóstinum í fyrradag, undir
fyrirsögninni „Er Hafskip að sökkva?“ og er greinin sögð vera ítarleg úttekt
á málefnum fyrirtækisins á forsíðu. Þar er jafnframt stór klippimynd á
forsíðu af Selá, einu skipa Hafskips, sökkvandi.
Á fundinum kom einnig fram að
mikillar reiði gætir í röðum far-
manna Hafskips, og þá einkum í
hópi áhafnar Selár, „hins sökkv-
andi skips". Rögnvaldur Berg-
sveinsson, skipstjóri Selár, var
staddur á aðalfundinum og sagði
hann í samtali við blaðamann
Morgunblaðsins um þessa grein
Helgarpóstsins: „Mér finnst þetta
alveg forkastanlegt. Greinin er ein
smekkleysa frá upphafi til enda,
en sérstaklega finnst mér að
myndbirtingin, eða myndfölsunin
á forsíðu blaðsins, sé fyrir neðan
allar hellur. Þeir hafa ekki einu
sinni fyrir að má nafnið á skipinu
út. Það nær ekki nokkurri átt að
haga sér svona í blaðamennsku."
Rögnvaldur sagði að hann gæti
vart ímyndað sér meiri smekk-
leysu en að sýna sökkvandi skip —
skip sem væri fullmannað og stöð-
ugt í ferðum. Hann sagði að vissu-
lega væru sjómenn hjátrúarfullir,
og því færi svona lagað ugglaust
frekar fyrir brjóstið á þeim, en
öðrum. Engu að síður væri þetta
ófyrirgefanleg smekkleysa, sem
taka bæri hart á. Hann sagði að
reiðin í garð Helgarpóstsins fyrir
ósmekklegheitin takmarkaðist
engan veginn við áhöfn Selár, þótt
reiðin væri örgust þeirra á meðai.
Allir, sem hann hefði rætt þessi
má við, væru steini lostnir yfir að
siíkt gæti gerst í íslenskri
fjölmiðlun.
Á aðalfundinum greindi Ragnar
Kjartansson, stjórnarformaður
Hafskips, frá því að félagið myndi
stefna ritstjóra Helgarpóstsins,
Halldóri Halldórssyni, og Jim
Smart, ljósmyndara, fyrir
atvinnuróg og meiðyrði.
Sjá greinagerð Hafskips um
þetta mál á bls. 20.
að sögn Stefáns Skarphéðinssonar
sýslumanns á Patreksfirði.
Hann fékk um það tilkynningu í
gær frá Reyni Bergsveinssyni,
refaskyttu í Gufudalssveit, að lík-
ur bentu til að egg eða nýfiðraðir
ungar hefðu horfið úr hreiðri.
Reynir varð fyrir því er hann var
þar á ferð að örn steypti sér yfir
hann og lét ófriðlega. íslenski haf-
örninn er stór fugl, vænghaf hans
er hálfur þriðji metri og vængirn-
ir breiðir, svo augljóslega hefur
Reyni orðið bilt við. Við athugun
hans kom í ljós að hreiðrið var
autt.
Stefán Skarphéðinsson sagði að
verið væri að kanna mannaferðir
á þessum slóðum að undanförnu,
því afar líklegt væri að varpið
hefði verið vísvitandi eyðilagt.
„Við höfum af veikum mætti reynt
að halda uppi eftirliti hér með
fálkavarpi og þá hafa þeir menn
jafnframt fylgst með örnum,"
sagði sýslumaður. „Ég tel afar
brýnt að hér verði eftirlitsmenn
til að fylgjast betur með þessu,
hvort sem þeir yrðu kostaðir af
áhugamannafélögum eða opinberu
fé.“
Ævar Petersen dýrafræðingur
sagði í samtali við blm. Morgun-
blaðsins í gærkvöld að hegðun
arnarins, sem steypti sér yfir
Reyni Bergsveinsson, benti ein-
dregið til að þarna hefði verið
verpt, hvor sem í hreiðrinu hefðu
verið egg eða nýskriðnir ungar.
„Fugl sem steypir sér niður að
manni, svo ekki eru nema fjórir
metrar á milli þeirra, er að reyna
að vernda egg sín eða unga,“ sagði
Ævar.
Hér á landi eru hafarnapör
35—40, flest á Vesturlandi. Haf-
örnum hefur fækkað verulega í
heiminum á þessari öld og verpa
þeir nú helst í Noregi, þar sem
talin eru vera um 300 pðr. Ævar
Petersen sagði ákaflega ólíklegt
að ungar hefðu verið teknir lifandi
úr hreiðrinu í því skyni að þjálfa
þá eins og fálka.
Lengi hefur verið grunnt á því
góða með örnum vestra og æðar-
bændum, því örninn á til að gera
usla í æðarvarpi — jafnvel að setj-
ast að í miðju æðarvarpi og verpa
þar sjálfur eftir að hafa etið sig
mettán af eggjum og fuglum.
Mæðgur handteknar fyrir
stórfelldan búðarþjófnað
ÞRJÁR konur, 65 ára gömul kona og dætur hennar tvær, 41 árs og 32 ára,
voru handteknar við stórmarkað Miklagarðs í fyrrakvöld grunaðar um
þjófnað úr versluninni. Við yfirheyrslur kom í Ijós, að þær höfðu stungið
á sig varningi fyrir samtals sjö þúsund krónur og í bfl þeirra fannst
varningur úr öðrum verslunum í Reykjavík fyrir um tíu þúsund krónur til
viðbótar. Dæturnar munu hafa stundað búðarþjófnað allt frá áramótum
en móðirin hafði nýlega gengið í lið með þeim, skv. upplýsingum Reykja-
víkurlögreglunnar. Munu þær hafa stolið margvíslegum varningi, mat-
vælum, fatnaði og fleiru. Af hálfu Miklagarðs verða mæðgurnar kærðar,
eins og aðrir búðarþjófar sem þar hafa náöst.
„Það var fyrir árvekni starfs-
fólks hér, sem upp um konurnar
komst,“ sagði Jón Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Miklagarðs, í
samtali við blm. Morgunblaðsins
í gær. „Við höfum útbúið versl-
unina fullkomnu myndavéla-
kerfi, sem gerir okkur kleift að
fylgjast meö fólki, teljum við
ástæðu til þess — án þess að við
séum með sérstaka vakt á öllum
okkar viðskiptavinum, sem flest-
ir eru vandað fólk. Ég vil hvetja
verslunareigendur til að taka
höndum saman til að berjast
gegn búðarþjófnaði, sem greini-
lega er allt of mikið um. Gegn
þessum ófögnuði þarf að skera
upp herör og það höfum við gert
hér í Miklagarði."
Mæðgurnar vöktu grunsemdir
þegar ein þeirra hafði komið tvo
daga í röð og skipt á varningi,
sem hún hafði „keypt“, og fengið
matvæli í staðinn. Var farið að
fylgjast með þeim og sást þá til
þeirra stinga vörum af ýmsu
tagi í vasa sína og á sig innan
klæða. Þegar þær voru gripnar
var ein til dæmis með þriggja
kílóa hangikjötslæri skorðað á
milli fóta sér. Þeim var svo
sleppt eftir yfirheyrslu og málið
sent Rannsóknarlögreglu ríkis-
Jón Sigurðsson sagði að tals-
vert virtist vera um það að búð-
arþjófar léku lausum hala i stór-
mörkuðum — og eins minni
verslunum — á höfuðborgar-
svæðinu. „Þetta er fólk á öllum
aldri og úr öllum þjóðfélags-
stéttum," sagði hann. „Fyrir
nokkrum mánuðum tókum við
eftir manni, sem var að stinga
sinnepsglasi í jakkavasa sinn.
Þetta var fullorðinn maður,
prúðbúinn og snyrtilegur — og á
fálkaorðuna heima hjá sér.“