Morgunblaðið - 16.03.1984, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. MARZ 1984
27
Afmæliskveðja:
Hermína Sigurgeirs-
dóttir Kristjánsson
Aldur er afstætt hugtak. Það
sannast á Hermínu frænku.
Hvernig hún hefur haldið sér jafn
unglegri og raun ber vitni er
sjálfsagt hennar leyndarmál en
ætli léttlyndið, hláturmildin og
músikkin hafi 'ékki haft sitt að
segja. Svo er hún organisatör par
exellence svo langlífið er sjálfsagt
útspekúlerað. Hún hefur sko syst-
em á hlutunum. Tími til að vinna,
tími til að tala, tími til að hvílast.
Þess vegna er hún líka svoddan
afburðakennari að hún getur stát-
að af því að eiga í nemendahóp
sínum einleiksbrillianta og
stórpíanókennara sem hún hefur
kennt fyrstu gripin á nótnaborð-
inu. En vel á minnst, eru þetta allt
konur? Það er rannsóknarefni út-
af fyrir sig en var svo ekkert lak-
ara þegar ungur frændi var boð-
inn í súkkulaðiveislur á vorhátíð-
um músikdætranna.
Hvaðan kemur svo þessi kona
sem var að velja flygla í Hamborg
fyrir íslenska píanóvirtúósa með-
an Arthur Rubinstein var í sömu
verksmiðju í sömu borg sömu er-
inda fyrir séníin í ísrael?
Hún var fjögurra ára reidd í
kassa yfir Vallafjall og Vaðlaheiði
austan úr Bárðardal til Akureyrar
þar sem hún ólst upp í stórum
bræðrahópi sem ekki náði að
spilla henni með ofdekri, uppvart-
aði kónginn er hann kom í visit
1926, spilaði sig svo út í heim þar
sem hún músiseraði í konsverva-
torium og í einkatímum, settist að
í Þýskalandi fyrir stríðið þar sem
Björn eldri var grosser og Björn
junior og Leifur stigu fyrstu spor-
in, kom síðan heim og fór að
kenna heima og í Tónlistarskólan-
um þar sem hún er ennþá ómiss-
andi en gerðist með tímanum
ættmóðir Sigurgeirsleggs Stóru-
vallakynsins og fylgist með vel-
ferð og vanda frændfólksins.
Eitt finnst mér þó ekki vansa-
laust, frænka mín, að þú skulir
aldrei hafa farið Sprengisand á
heimsflakki þínu en í sumar skal
Afmælisfundur
Sóknar í Keflavík
Sjálfstæðiskvennafélagið Sókn í
Keflavík var 35 ára 10. desember á
síðastliðnu ári. Sóknarkonur
minntust þess með afmælisfundi
19. febrúar sl. í veitingahúsinu
Glóðinni, þar sem tvær félagskon-
ur, Kristín Gestsdóttir og Guð-
finna Valgeirsdóttir, tóku á móti
gestum með glæsibrag.
Boðsgestir voru alþingismenn-
irnir Matthías Á. Mathiesen og
frú, Ólafur G. Einarsson og frú,
frú Salome Þorkelsdóttir, frú
Halldóra J. Rafnar, formaður
Landssambands sjálfstæðis-
kvenna, frú Vigdís Jakobsdóttir,
fyrsti formaður Sóknar, og Páll
Áxelsson, formaður fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna í Keflavík og
frú. Dr. Gunnar G. Schram gat
ekki mætt og eiga Sóknarkonur
eftir þá ánægju að fá hann á fund
seinna í vetur.
Fundurinn hófst á því að frú
Kristrún Helgadóttir, formaður
félagsins, fagnaði gestum og fé-
lagskonum. Kristrún flutti síðan
ávarp og kom víða við. Þá kynnti
hún veislustjóra, frú Jóhönnu
Pálsdóttur. Jóhanna ávarpaði
veislugesti og las upp kvæðið
„Keflavík" eftir Kristin Reyr. Frú
Sesselja Magnúsdóttir flutti er-
indi, þar sem hún skýrði frá stofn-
un og starfsemi félagsins. Næst
léku saman á selló og píanó Edda
Rós Karlsdóttir og Una Steins-
dóttir, báðar nemendur í Tónlist-
arskóla. Frú • Guðrún Gísladóttir
fór með ljóð, „Vikivaka" eftir Guð-
mund Kamban. Seinna á fundin-
um minntist Guðrún félagsstarfs-
ins í léttum dúr. Var þar með
dagskrá lokið og orðið laust. Til
máls tóku: Matthías Á. Mathiesen,
viðskiptaráðherra, Halldóra J.
Rafnar, Helga M. Guðmundsdótt-
ir, Páll Axelsson, Vigdís Jakobs-
dóttir, Salome Þorkelsdóttir og
Ellert Eiríksson, sveitarstjóri í
Garði, sem sagði m.a. að afmæl-
isgjöf hans til Sóknar væri ræðu-
námskeið ef félagið hefði áhuga.
Að lokum tók formaður, Kristrún
Helgadóttir, til máls, þakkaði Jó-
hönnu ágæta veislustjórn, Ellert
Eiríkssyni hans góða boð og öllum
viðstöddum fyrir komuna.
Og nú er komið að upphafi þess-
arar greinar. Stofnfundur Sóknar
var haldinn í Sjálfstæðishúsinu í
Keflavík þann 10. desember 1948. f
fyrstu stjórn félagsins voru:
Formaður Vigdís Jakobsdóttir,
meðstjórnendur Jóna Einarsdótt-
ir, Sesselja Magnúsdóttir, Elín
Ólafsdóttir og Anna Olgeirsdóttir.
Varastjórn: Guðný Arnadóttir,
Vilborg Auðunsdóttir og Þórunn
Ólafsdóttir. Endurskoðendur:
Guðrún Einarsdóttir og Vilborg
Ámundadóttir. Núverandi stjórn
skipa: Formaður Kristrún Helga-
dóttir, ritari Ágústa Randrup,
gjaldkeri Guðrún Gísladóttir,
varaformaður Þorbjörg Guðna-
dóttir, meðstjórnandi María
Valdimarsdóttir, varastjórn Stella
Baldvinsdóttir og Helga M. Guð-
mundsdóttir. Endurskoðendur eru
Vilborg Ámundadóttir og Margrét
Friðriksdóttir.
Að endingu óska ég Sjálfstæð-
iskvennafélaginu Sókn blessunar
og að starf okkar verði til að efla
Sjálfstæðisflokkinn, með því mun
hag lands og þjóðar best borgið.
Guðrún Gísladóttir
Reyðarfjörður:
10—12 stiga
hiti undanfarið
Keyðarfjörður, 14. mars.
ÖSKIJDAGURINN var hátíðlega
haldinn á Reyðarfirði í góðu veðri.
Gengu krakkarnir um bæinn
grímuklæddir og fóru í heimsókn
til ýmissa fyrirtækja á staðnum.
Ekki er kötturinn sleginn úr
tunnunni hér eins og víða ann-
arstaðar, en kvenfélagið hélt
grímudansleik á milli 16.30 og
19.00 og kostaði 50 krónur inn á
skemmtunina og gilti hver miði
sem happdrættismiði. Voru
dregnir út 20 vinningar. Þetta
va- mjög skemmtilegt hjá
■ krökkunum og þarna mátti
þekkja ýmsar þekktar persónur,
eins og Línu langsokk og Eirík
Fjalar, annars voru gervin svo
mörg að of langt yrði upp að
telja.
Á sunnudag gerði hér smá
hríðarskvettu, sem stóð stutt,
annars hefur verið hér vorveður
og hitinn 10—12 stig að degin-
um. _ Gréta.
Utanríkisráðuneytið:
Ekki rætt um takmörkun á
ferðafrelsi Sovétmanna
úr því bætt eins og um var talað.
Lada-Blazerinn stendur ferðbúinn
nær þú vilt.
Gylfi frændi
EKKI hefur verið rætt í utanrík-
isráðuneytinu að takmarka ferða-
frelsi Sovétmanna hér á landi,
samkvæmt upplýsingum sem Mbl.
fékk hjá Ingva S. Ingvarssyni,
ráðuneytisstjóra.
Ingvi var spurður um hvort lík-
ur væru á setningu slíkra tak-
markana, en norska stjórnin
MAÐUR fótbrotnaði þegar hann
var að koma af skemmtun á Hótel
Sögu eftir dansleik aðfaranótt
sunnudagsins. Atvik eru nokkuð
hyggst leggja hömlur á ferðafrelsi
Sovétmanna í Noregi.
Ingvi sagði að í Sovétríkjunum
giltu reglur um takmarkanir á
ferðafrelsi sendiráðsstarfsmanna
og hefðu Bandaríkin tekið upp
takmarkanir á ferðafrelsi Sovét-
manna þar í landi á gagnkvæmn-
isgrundvelli.
óljós og biður lögreglan í Reykja-
vík þá sem sáu atvikið vinsamlega
að gefa sig fram.
Lýst eftir vitni að fótbroti
i SÚINASAL SUNNUDAGSKVÖLD
Matseðill:
Grisasteik Hollandaise
Fylltar pónnukökur Anneke Dekker
Við höldum glœsilega Hollandshátíð í túlípanaskreyttum
Súlnasalnum. Frá klukkan 19.00 leikur hollenskur
lírukassaleikari íyrir gesti, sem skoða sig og * '
sína í óíorbetranlegum spéspeglum á meðan
dreypt er á lystaukanum.
Kvöldverður heíst klukkan 20.00
Sjáið auglýsingu um fjölskyldufestival í Haskolabioi á
sunnudag kl. 14-16.30.
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
Fjölbreytt skemmtidagskrá:
• Ómar Ragnarsson skemmtir.
• Dansstúdíó Sóleyjar með glœsilegt dansatriðf.
• Viktor og Baldur, nýir skemmtikraítar með bráðfyndna
dagskrá.
• Samkvœmisleikir.
• Fjöldasöngur.
• Allir fá sumarbœkling með happdrœttisalmanaki.
• Kynningarkvikmynd sýnd 1 hliðarsölum.
• Ferðabingó þar sem spilað er um óvenju
glœsilega ferðavinninga í tileíni kvöldsins.
• Og síðast en ekki síst: Stórkostlegur
hollenskur trúður!
Kynnii: Magnús Axelsson
Stjómandl: Slguiður Haialdsson
Kvöldverður aðeins kr. 450.
Aðgangseyrir kr. 50 fyrir matargesti.
Þeir sem koma að loknum kvöldverði. ettir kl. 22.00, greiða kr 150.
Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar sér um snúninginn á góllinu.
Aðgöngumiðasala og borðapantanir eftir kl. 16.00 í dag og í síma 20221.