Morgunblaðið - 11.12.1979, Blaðsíða 41
félk í
fréttum
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 1979
41
Sihanouk biður um hjálp
+ FYRIR skömmu kom
Norodom Sihanouk prins
í Kampútseu til Parísar
frá Peking, en þar hefur
hann dvalið. Á De
Gaulle-flugvelli í París
þar sem flugvél hans
lenti, tóku stuðnings-
menn hans á móti hon-
um. Báru þeir spjöld
með stórum myndum af
prinsinum. Hann sagði
fréttamönnum við kom-
una, að París væri fyrsti
viðkomustaður hans á
ferð um Vesturlönd til
þess að leita stuðnings
við nýja frelsun hins
stríðsþjáða föðurlands.
Myndi hann skora á
bandamenn sína að veita
sér og fylgismönnum
sínum hernaðarlega að-
stoð til þess að friða
landið. Það væri um það
að ræða að hrekja hinn
víetnamska innrásarher
úr landinu. Prinsinn er
57 ára að aldri. Blaða-
fregnir herma, að prins-
inn hafi undanfarnar
vikur skrifað Pham Von
Dong forsætisráðherra
Víetnama og óskað eftir
samningaviðræðum.
Þeim bréfum hefur ekki
verið svarað í Hanoi.
Sadat reisir
fyrirmyndarbæ
+ SADAT forseti, sem mörgum
virðist vera einn óhræddasti þjóð-
höfðingi meðai vor í dag, mun í
marzmánuði næstkomandi fara til
Bandaríkjanna. — Þessi för er
m.a. til þess farin, að veita þar
viðtöku „Friðarverðlaunum" frá
samtökum þar vestra, að upphæð
200.000 dollarar. Og hvað ætlar
Sadat að gera við þessa peninga,
sem eru ef umreiknað er í ísl. kr.
hart nær 80 milljónir? Jú í landi
hans mun verðbólgan ekki hafa
heltekið þjóðarlíkamann og þjóð-
arsáiina. — Þessir peningar munu
eiga að nægja til þess að Sadat
geti reist heilan fyrirmyndarbæ
úti í sandauðn Sinaieyðimerkur-
innar! Þar sat herlið ísraelsmanna
í 12 ár, en hefur nú verið flutt á
brott, samkvæmt friðarsamning-
unum milli þeirra og Egypta.
Málverkasýning
8 málarar sýna
m.a. 3 verk eftir meistara Kjarval.
Nýja Galleríið, Laugavegi 12.
Opið daglega kl. 1—6.
Okeypis aðgangur.
Nýtt
Nýtt
frá Sviss, Þýzkalandi og Svíþjóö, pils og
blússur.
Glugginn Laugavegi 49.
Pampers
jól
FYRIR BARNIÐ ÞITT
ÞURR BOTN
ER BESTA JÓLAGJÖFIN
AUK ÞESS LÉTTA
PAMPERS JÓLA- |
ANNIRNAR.
GLEÐILEG JÓL
MEÐ PAMPERS.
““Sbmerióka;
TunguháM 11, R. Sfml 82700
K.I VSINf.ASIMINN KR:
22480
JBorotmblaíiib
Manhattan
Transfer-Live
19 þeirra beztu lög
á einni plötu
fyrir kr.
9.150
Manhattan Transfer I
- Heim í stofu
Þaö er samdóma álit allra, er sótt hafa
hljómleika Manhattan Transfer aö vandaöri og
betri skemmtun sé vart aö hafa.
Nú geturðu skapaö þessa mögnuöu
stemmningu heima í stofu hjá þér, því hún
hefur nú veriö fest á þlast og er fáanleg sem
hljómplatan Manhattan Trensfer Live.
Þaö er því ekki seinna vænna aö þú tryggir
þér og þínum Manhattan Transfer heim í stofu,
með því aö tryggja þér eintak hið snarast.
KARNABÆR
Laugavegi 66 — Glæsibæ — Austurstræti 22
Heildsöludreifing
fUlAorhf
timar 85742 — 85055