Morgunblaðið - 11.12.1979, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 1979
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 1979
25
Gauti hetja KÁ
KA-MENN geta þakkað Magnúsi
Gauta Gautasyni öðrum fremur
sigur sinn gegn Þrótti, 19—18 á
föstudaginn. Magnús varði eins
og berserkur þó einkum og sér í
lagi þegar mest reið á. Staðan í
hálfieik var 11 — 7 Þrótti í vil.
Þróttarar höfðu ávallt frum-
kvæðið til að byrja með í fyrri
hálfleik en KA-menn hleyptu
þeim aldrei langt framfyrir. En
um miðjan hálfleikinn hljóp allt í
baklás hjá KA og Þróttarar sigu
framúr, og var staðan í hálfleik
eins og áður sagði 11—7 fyrir
Þrótt. KA-menn komu fílefldir til
seinni hálfleiks og byrjuðu strax
að saxa á forskot Þróttara. Með
Þorleif Ananíasson í fararbroddi
náðu KA-menn að jafna 16—16
þegar 6 mínútur voru til leiksloka
og allt var á suðupunkti. Síðustu
mínútur leiksins voru æsispenn-
andi og allt virtist geta gerst
báðum liðum í hag. En þá tók
Magnús Gauti markvörður KA til
sinna ráða og gerði sér lítið fyrir
og varði tvö vítaskot frá Þróttur-
um, en KA-menn komust í 19—17,
en Ólafur H. Jónsson átti svo
síðasta orðið í leiknum og úrslitin
urðu 19—18 fyrir KA. í heild var
leikurinn ágætlega leikinn, og
voru varnirnar mjög góðar en
sóknarleikurinn ekki sem bestur.
Sanngjörnustu úrslit hefðu verið
jafntefli. Lið KA átti afleitan
fyrri hálfleik og voru mjög bit-
lausir, en í seinni hálfleik náðu
þeir sér á strik og voru þá sem allt
annað lið. Hjá þeim var Magnús
Gauti Magnússon bestur en einnig
átti Þorleifur Ananíasson góðan
leik í seinni hálfleik.
MÖRK KA: Þorleifur Ananíasson
8, (4 víti), Alfreð Gíslason 6,
Guðbjörn Gíslason 2, Jóhann Ein-
arsson 2 og Gunnar Gíslason 1.
Lið Þróttar spilar feikilega
sterkan varnarleik og gafst hann
mjög vel í fyrri hálfleik, en sóknin
var ekki að sama skapi eins sterk.
Hjá þeim var enginn öðrum
fremri, nema þá helst Sigurður
Ragnarsson markvörður.
MÖRK Þróttar: Sigurður Sveins-
son 8 (3 víti), Einar Sveinsson 4,
Gísli Óskarsson 2, Magnús Mar-
geirsson 2, Ólafur H. Jónsson og
Páll Ólafsson 1 hvor.
Agætir dómarar leiksins voru
Guðmundur Kolbeinsson og Rögn-
valdur Erlingsson.
Armann lagði Fylki
ÁRMANN batt enda a sigur-
göngu Fylkis í 2. deild Islands-
mótsins í handknattleik um helg-
ina, er liðið sigraði með 24
mörkum gegn 18. Staðan í hálf-
leik var 11 — 10 fyrir Fylki. Kom
sigur Ármanns nokkuð á óvart,
þar sem Fylkismenn hafa verið
mjög sterkir það sem af er vetri
og virst liða líklegast til að keppa
um efsta sæti 2. deildar. Ármenn-
ingar áttu sigurinn sannarlega
skilinn, iið þeirra hefur verið í
mikilli sókn eftir að hafa gert
jafntefli við UMFA í fyrsta leik
sinum í haust.
Ármenningar voru lengst af yfir
í fyrri hálfleik. í fáein skipti náði
liðið tveggja marka forystu, en
Fylkir minnkaði jafnan muninn.
Síðla í fyrri hálfleik tókst Fylki
loks að jafna og var staðan þá
7—7. Fylkir komst síðan einu
marki yfir og hélt þeim feng til
leikhlés.
Enn var jafnt framan af síðari
hálfleik, en engu var líkara en
Fylkir væri að kveðja þegar liðið
breytti stöðunni úr 12—12 í 14—12
og var þar á ferðinni Gunnar
Baldursson með falleg mörk. Það
sem gerðist næst var hins vegar
Ármann — Fylkir
það, að Fylkismenn fóru að leika
eins og krakkar og mörkin hlóðust
upp. Kom svo mikið fát á leik-
menn Fylkis, að það virtist vera
þeim sérstakt kappsmál að ljúka
hverri sóknarlotu á minna en
augnabliki eftir að þær hófust.
Gott hefði verið að skora 2—3
mörk í hverri sókn, helst fleiri. En
það gekk ekki upp og Ármenning-
ar kafsigldu Árbæingana.
Ármannsliðið var sterk heild að
þessu sinni. Fylkismenn lögðu allt
kapp á að gæta markamaskínunn-
ar Friðriks Jóhannessonar. Það
leiddi hins vegar aðeins til þess, að
það losnaði um aðra, t.d. réðu
Fylkismenn lítið við Þráin Ás-
mundsson, sem átti stórgóðan
leik. En besti maður Ármanns var
án efa markvörðurinn, Heimir
Gunnarsson, hann varði þokka-
lega í fyrri hálfleik, en lokaði
síðan markinu gersamlega í þeim
síðari. Varði hann þá með miklum
tilþrifum, meira að segja með því
að skalla frá þrumuskot úr hraða-
upphlaupi! Fylkismenn skutu
hann líka í stuð með sannkölluð-
um mýgrút ótímabærra skota,
maður beið bara eftir því að
markverðir Fylkis lyftu sér upp og
létu langskot ríða af yfir þveran
völlinn.
Sigurður Símonarson barðist að
venju vel og stóð fyrir sínu hjá
Fylki. Ragnar Hermannsson átti
ágætan leik í fyrri hálfleik, en
lakari í þeim síðari, en að öðru
leyti ríkti meðalmennskan eins og
drepsótt í liði Fylkis.
MÖRK Ármanns: Þráinn Ás-
mundsson 7, Björn Jóhannesson 5
(2 víti), Smári Jósafatsson 4,
Friðrik Jóhannesson 3, Kristinn
Ingólfsson 2, Haukur Haraldsson,
Einar Eiríksson og Bragi Sigurðs-
son eitt hver.
MÖRK Fylkis: Ásmundur Krist-
insson 7 (5 víti), Ragnar Her-
mannsson 4, Gunnar Baldursson
4, Sigurður Símonarson, Einar
Ágústsson og Hafliði Kristinsson
eitt mark hver.
Leikinn dæmdu þeir Karl Jó-
hannsson og Ingvar Viktorsson og
var dómgæsla þeirra framúrskar-
andi. — KK-
• Erlendur Hermannsson fer inn úr hægra horninu en Hellgren markvörður ver
skot hans. Erlendur var afar óheppinn með skot sin í leiknum á sunnudag.
LJósm. Mbl. RAX.
• Víkingurinn Sigurður Gunnarsson vígalegur á svipinn reynir markskot á móti Heim. Sigurður skoraði
fimm mörk í leiknum. Ljófim. mm. rax.
Evrópudraumur Víkinga úti
SVÍUM TÓKST að slá Viking út úr Evrópukeppninni í handknattleik
annað árið i röð. Sænska liðið Heim fór með sigur af hólmi i siðari leik
sínum við Viking 22—19 í Laugardalshöl) á sunnudagskvöld. Fyrri
leik liðanna lauk líka með öruggum sigri Svia 23—19 þannig að Heim
hafði sjö mörk i plús þegar upp var staðið eftir viðureignina. í
fyrravetur voru það Sviar sem kærðu Vikinga fyrir óspektir og fengu
því framgengt að liðið var dæmt frá keppni eftir að hafa sigrað Ystad
tvivegis. Víkingar sitja því svo sannarlega eftir með sárt ennið eftir
þessi samskipti sin við Svia.
Laugardalshöllin var troðfull af áhorfendum á sunnudagskvöldið
og haía þeir flestir átt von á því að nú yrði tekið rækilega í lurginn á
sænsku ieikmönnunum og þeim sýnt hvar Davíð keypti ölið. Þeir voru
lika yel með á nótunum áhorfendurnir á pöllunum fyrstu 10 minútur
leiksins þvi að þá virtist allt benda til þess að Heim fengi þann skell
sem þeir þurftu. Lið Víkings byrjaði leikinn af krafti, lék vel og náði
fljótt þriggja marka forskoti. En þá ætluðu leikmenn sér um of og
einbeitni og yfirvegun í leiknum fór út i veður og vind. Leikmenn
Víkings þoldu ekki pressuna og sænska liðið gekk á lagið og náði
smátt og smátt að ná yfirhöndinni i leiknum og var sigur þess aldrei í
hættu.
Víkingur — Heim
19—22
Góð byrjun
hjá Víking:
Það var kraftur í leik Víkinga í
byrjun leiks. Boltinn gekk vel og
sendingar voru fastar og grip
leikmanna góð. Sigurður Gunn-
arsson gaf félögum sínum tóninn
með fallegu marki strax á 3.
mínútu leiksins og þegar átta
mínútur voru liðnar af leiknum
var staðan orðin 4—1. Á þessum
tima hafði Erlendur þó verið afar
óheppinn að nýta ekki tvö dauða-
færi sem hann fékk í horninu, sem
er frekar ólíkt honum. Á 11.
mínútu er staðan 5—2, og þá fór
Víkinga að skorta einbeitni í leik
sínum, sóknarlotur þeirra voru
alis ekki nægilega langar. Ótíma-
bær skot fóru að sjá dagsins ljós,
og Svíar ná að jafna leikinn á 15.
mínútu 6-6. Síðan var jafnt á
öllum tölum þar til flautað var til
hálfleiks þá var staðan 11—11.
Víkingar fóru afar illa að ráði
sínu í fyrri hálfleik. Þá misnotuðu
þeir ekki færri en sex dauðafæri
og að auki eitt vítakast. Sænski
markvörðurinn Hellgren átti alls-
kostar við þá. Þeir höfðu ekki lært
af reynslunni, en Hellgren hafði
ieikið þá grátt í Svíþjóð. Leikmenn
sem komnir voru einír í dauðafæri
úr hraðupphlaupum, hornum eða
línu skutu of fljótt. Víkingar
skoruðu ekkert mark úr hornum í
fyrri hálfleik, en það er ein þeirra
sterkasta hlið. Ög ekkert mark
kom úr hraðaupphíaupi.
Leikur Víkings riðlast
Greinilegt var í byrjun síðari
háifleiks að nokkuð var af Víking-
um dregið. Enda hafði verið mikill
hraði í leiknum allan fyrri hálf-
leikinn. Svíar ná yfirhöndinni
þegar á 1. mínútu síðari hálfieiks-
ins og ná tökum á leiknum.
Víkingum tókst að misr.ota níu
sóknarlotur í röð án þess að skora
mark. Svíar breyta stöðunni í
15—11, og það er ekki fyrr en á 38.
mínútu að Sigurði Gunnarssyni
tekst að skora 12. mark Víkings.
Þá taka Víkingar við sér og á 43.
mínútu leiksins er aðeins eins
marks munur á liðunum 16—15.
Og allt gat gerst.
Blaðran springur
Víkingar fá dæmt vítakast, en
Hellgren ver, og ekki nóg með það
Víkingar fá boltann en dauðafæri
af línunni er líka varið. Svíar
bruna upp og skora. Nú sprakk
blaðran hjá Víkingi.
Leikur þeirra varð afar kraftlít-
iil og alla ógnun vantaði í spil
leiksins. Breiddin var ekki nýtt.
Mörk komu hvorki af línu eða úr
hornum. Svíar taka leikinn algjör-
lega í sínar hendur og á 48. mínútu
hafa þeir náð fimm marka for-
skoti 20—15 og gert út um leikinn.
Síðustu 10 mínúturnar skora svo
Víkingar fjögur mörk á móti
tveimur mörkum Svíanna sem
greinilega fóru sér í engu óðslega.
Brást leik-
reynslan?
Það mátti heyra á áhorfendum
er þeir yfirgáfu húsið að þeir
höfðu orðið fyrir vonbrigðum með
leik Víkings. Hvað var það sem
brást? Lið Svía var gott og lék
léttan og hraðan handknattleik.
Þá er liðið með hreint út sagt
frábæran markvörð. Þetta fengu
Víkingar að reyna úti í Svíþjóð.
Þeir töldu engin vandkvæði á að
finna veikleika á markverðinum
en það brást illa, hann sá við þeim.
Þá er undirritaður þeirrar skoðun-
ar að of mikill hraði hafi verið í
ieik Víkings. Eftir góða byrjun
átti liðið að leika yfirvegað en ekki
láta teyma sig út í mikinn hraða
og missa við það tök á leiknum.
Víkingur býr yfir ieikreyndum
mönnum sem hefðu átt að geta
leikið rólega og haldið boltanum
lengur en gert var.
Lið Víkinga
Lið Víkings átti góðan leik í
fyrri hálfleik, og þá sérstaklega í
byrjun leiksins, en smátt og smátt
dró af þeim. Leikkerfi liðsins
virtust ekki ganga upp, og spilið
var of þröngt í síðari hálfleiknum.
Bestu menn Víkinga í þessum leik
voru þeir Páll Björgvinsson, Sig-
urður Gunnarsson og markverð-
irnir Jens Einarsson og Kristján
Sigmundsson. Varnarleikur
VSkings var ekki nægilega sterkur,
og meiri baráttu vantaði S liðið í
heildina.
Lið Heim
Sænska liðið Heim lék vel.
Mikiil hraði var í leik liðsins og
línuspil þess afar skemmtilegt.
Bestur liðsmanna var markvörð-
urinn Hellgren sem varði frábær-
lega vel. Lið Heim er nú S fjórða
sæti í 1. deildinni sær.sku. Það er
því leiðinlegt til þess að vita að
efsta liðið í 1. deildinni á íslandi
geti ekki sigrað það á heimavelli
með fullt hús af áhorfendum sér
til stuðnings.
MÖRK VÍKINGA: Sigurður
Gunnarsson 5, Páll Björgvinsson
4, Þorbergur Aðalsteinsson 4,
Steinar Birgisson 3, Ólafur Jóns-
son 2.
MÖRK HEIM: Roger Helgeson 5,
Hans Andreasson 4, Ingemar
Andersson 3, Thomas Agustsson
3, Rolf Brunström 2, Gunnar
Söderberg 2, Curt Magnusson 1,
Roman Marciniak 1, Jan Frankelt
1.
-þr.
”i
Hellgren varði 21 skot
BÓKHALD yfir gang leiks
Víkings og Heim ber ekki öllum
jafn vel söguna. enda áttu
Víkingar slæman dag og margir
leikmenn gerðu meiri og fleiri
mistök heldur en þeim er eðlilegt
í einum leik. Verst gekk þeim í
viðskiptum sínum gegn sænska
markverðinum. Klaes Hellgren.
en hann varði eigi færri en 21
skot i leiknum. flest þannig að
maður var gegn manni, Víking-
arnir komnir einir í gegn og í
dauðafæri. Eftir fyrri leik lið-
anna í Gautaborg, lýstu Vík-
ingarnir því yfir, að þeir væru
búnir að læra á kappann, auk
þess sem hann hefði átt slíkan
toppleik, að hann myndi aldrei
standa sig jafn vel tvisvar í röð.
Þetta reyndist fjarstæða. Vík-
ingarnir voru alls ekki búnir að
læra á Hellgren og hann átti
annan toppleik.
Til samanburðar má taka
frammistöðu markvarða Víkings.
Kristján stóð í markinu framan af
og varði aðeins þrjú skot... þar af
2 víti! Það var ekki fyrr en á 20.
mínútu leiksins, að markverðir
Víkings vörðu skot sem kom utan
af velli. Jens stóð sig síðan mjög
þokkalega og- varði samanlagt 8
skot. En betur má ef duga skal.
Fróðlegt er að líta á nýtingu
einstakra leikmanna. Sigurður
Gunnarsson var markhæstur í liði
Víkings með 5 mörk, en önnur
fimm skot rötuðu ekki í netið hjá
Sigurði, auk þess sem hann glataði
knettinum einu sinni. Skoðum nú
einstaka leikmenn og eru fram-
angreindir liðir í sömu röð. Stein-
ar Birgisson 3—4—3, Ólafur Jóns-
son 2—2—3, Páll Björgvinsson
4—5—1, Erlendur Hermannsson
0—5—1, Árni Indriðason 1—1—1,
Þorbergur Aðalsteinsson 4—3—1.
Víkingar skoruðu tvö mörk úr
hraðaupphlaupum, eitt úr hornun-
um, en þeir hafa löngum þótt
sérstaklega sterkir á þessum slóð-
um.
Víkingarnir skoruðu 9 mörk
utan af velli, ýmist með tilheyr-
andi uppstökkum eða þá hreinlega
úr kyrrstöðu. 3 mörk komu af línu,
3 eftir gegnumbrot og loks eitt úr
víti.
Brottrekstrar í leiknum voru á
þá leið, að Steinar Birgisson og
Thomas Augustsson viku af velli í
fjórar mínútur hvor, Jens Ein-
arsson, Rolf Brtinström og Hans
Andreason í tvær mínútur hver.
gg-
Sagt eftir leikinn
Ingemar Andersson
fyrirliði Heim:
— Við lékum nú öllu betur en
heima í Svíþjóð. Sérstaklega var
varnarleikurinn sterkari hjá okk-
ur. Við lærðum á leikkerfi Víkings
úti og gátum auðveldlega stöðvað
þau. Við áttum von á erfiðari leik
en raunin varð á. Víkingsliðið lék
óyfirvegað á köflum. Vonandi
lendum við ekki á móti liði frá
Austur-Evrópu í næstu umferð, þá
er draumurinn búinn.
Jón Erlendsson fqrmaður
tækninefndar HSÍ:
— Þetta var fjörugur og
skemmtilegur leikur á að horfa.
Betra liðið sigraði í leiknum. Það
sem varð Víkingum fyrst og
fremst að falli var of einhæfur
leikur. Hornin nýtast til dæmis
ekkert.
Eysteinn Helgason
formaður handknatt-
leiksdeildar Víkings:
— Þetta var betri leikur af
hálfu Svía en úti. Okkur vantaði
alla baráttu í leikinn. Og jafn-
framt einbeitingu í skotum. Betra
liðið sigraði í leiknum að mínu
mati.
Páll Björgvinsson
fyrirliði Víkings:
— Við lékum ekki eins vel nú og
úti í Svíþjóð. Við náðum ekki að
opna hjá þeim vörnina. Við sýnd-
um of mikið bráðlæti í leiknum.
Sérstaklega í skotum. Það eru
mikil vonbrigði að tapa leiknum.
Það var búið að keyra upp mikla
spennu á okkur fyrir leikinn, það
hefur haft sín áhrif.
Bodgan þjálfari
Víkinga:
— Við gerðum sömu vitleysurn-
ar hér eins og úti í Svíþjóð.
Dauðafæri bregðast, vitaköst o.fl.
Þegar allt gengur vel þá rúllar
spilið vel. En um leið og á móti
blæs og mótstaðan eykst þá koma
mistök. Vantar meiri hugsun í
leikinn af okkar hálfu. Þegar
staðan var orðin 5—1 fyrir okkur
átti að gera út um leikinn, skotið
var of fljótt, sóknirnar of stuttar.
Þá brugðust menn hrapallega þeg-
ar aðeins markvörðurinn var einn
eftir. Áhorfendur stóðu sig best.
— þr.
• Þorbjörn Guðmundsson reynir markskot á móti Brentwood.
Ljósm. Mbl. RAX.
Fátt um varnir
hjá Brentwood
Valur Brentwood
38 - 14
VALSMENN áttu ekki í umtals-
verðum erfiðleikum með að
tryggja sér endanlega farseðilinn
í næstu umferð Evrópukeppni
meistaraliða i handknattleik er
liðið mætti ensku meisturunum
Brentwood í Laugardalshöllinni
um helgina. Fyrri Icikinn vann
Valur 32—19, þannig að Vals-
menn hefðu nánast gctað leikið i
vinnugöliunum i siðari leiknum
og unnið samt, svo slakt er hið
enska lið. Þó að mann hafi
grunað ýmislegt í þeim efnum,
þurfti engu að síður að sjá til
Brentwood til að trúa sinum
eigin augum. En handknattleik-
ur á enn ekki upp á pallborðið
hjá fjöldanum i Englandi, en sú
milljónaþjóð ætti að geta náð
langt i handknattleik sem öðru
væri áhugi fyrir hendi á annað
borð.
Staðan í hálfleik í leik Vals og
Brentwood var 16—10 og var
leikur Vals þá lengst af í molum
bæði í sókn og vörn. Valsmenn
voru með ýmsar yfirlýsingar á
kreiki fyrir leikinn hvernig þeir
ætluðu að sigra með 20 marka
mun og fá á sig færri mörk en 10.
Það fyrra tókst þó ekki hafi litið
út fyrir það í fyrri hálfleik.
Valsmenn hófu leikinn með mikilli
flugeldasýningu og komust á
skömmum tíma í 4—0 Þeir ensku
svöruðu með tveimur mörkum í
röð, 4—2, og síðan hélt enska liðið
í við Val allt þar til að skammt var
til leiksloka, en þá sigu Valsmenn
rólega fram úr. Var afleitt að sjá
til Valsmanna lengst af fyrri
hálfleiks, en erfitt er að áfellast
þá fyrir slíkt í leik gegn lélegum
mótherja þar sem úrslit eru að-
eins formsatriði. Það hitti í mark
sem kynnir leiksins, Hermann
Gunnarsson, sagði um miðjan
hálfleikinn, „það má ekki milli sjá
hvort liðið er sterkara ..
En það má segja Valsmönnum
til hróss að þeir tóku sig á i síðari
hálfleik og æddu eins og snjóflóð
yfir þá ensku. Hvert markið rak
annað og hrundi enska liðið eins
og spilaborg. Oft og tíðum virtust
Valsmenn þó ætla sér að skora
2—3 mörk í hverri sókn og ef slíkt
væri einhvern tíma möguleiki, þá
var það þarna! í síðari hálfleik
skoruðu Valsmenn 22 mörk gegn
4.
Valsliðið var mjög jafnt í þess-
um leik og allir leikmenn liðsins
áttu sín góðu augnablik, enda
auðvelt að plata slíkt lið í sókn-
inni. Maður leiksins var þó öðrum
fremur Steindór Gunnarsson, en
það er ekki á hverjum degi sem
línumenn skora 9 inörk í Evrópu-
leik. Og Steindór hefði getað
skorað a.m.k. 12—15 mörk miðað
við færin, en hann var frekar
óheppinn í skotum sínum.
Enska liðið ætti í erfiðleikum
gegn 3. deildar liðum hérlendis og
enginn innfæddu leikmannanna
var sérstakur, allt meðalkarlar.
Og erfitt er að trúa að Júgóslavinn
Goran Gazivoda hafi í eina tíð
verið í landsliði Júgóslavíu. Þrír
eða fjórir ensku leikmannanna
voru snjallari handboltamenn en
hann.
Mörk Vals: Steindór Gunnars-
son 9 (1 víti), Stefán Halldórsson 6
(3 víti), Þorbjörn Guðmundsson og
Þorbjörn Jensson 5 hvor, Björn
Björnsson 4, Bjarni Guðmundsson
3, Gunnar Lúðvíksson og Jón
Karlsson 2 hvor, Hörður Hilm-
arsson og Stefán Gunnarsson eitt
hvor.
Goran Gazivoda var markhæst-
ur hjá Brentwood með 5 mörk, en
Beechener skoraði fjögur mörk.