Morgunblaðið - 11.12.1979, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 1979
Nýi Colt-híllinn frá Mishubishi. Hægt er að fá hann bæði 2ja og 4ra dyra.
Coltinn athygl-
isverður smábíll
Á þessari mynd sést glöKKÍCKa að þrátt fyrir smæðina er gott pláss
fyrir farþegana.
COLT-smábíllinn frá japönsku
bilaverksmiðjunum Mitsubishi
hefur á undanförnum mánuð-
um vakið verðskuldaða athygli
víða um heim og hefur hann
fengið mjög góða dóma hjá
erlendum bílablöðum. P. Stef-
ánsson h.f., umboðsmaður Misu-
bishi á íslandi, hefur nú hafið
innflutning á honum og eru
fyrstu bílarnir þegar komnir á
götur hér.
Sigfús Sigfússon, forstjóri P.
Stefánsson h.f., sagði í samtali
við Mbl. að með mjög hagstæð-
um samningum við verksmiðj-
una hefði þeim tekist að ná
verðinu mjög niður og kostar
Coltinn ekki nema um og yfir 4
milljónir króna samkvæmt
* gengisskráningu í október.
I byrjun verður aðeins fluttur
inn bíllinn með svokallaðri 1200
vél, en frá verksmiðju er enn-
fremur hægt að fá hann með
svokallaðri 1400 vél, en að mati
bílasérfræðinga erlendis er 1200
vélin meir en nægilega sterk til
þess að knýja Coltinn áfram,
jafnframt því sem hún er talin
verulega eyðslugrennri en stærri
vélin.
Colt-bíllinn er búinn fram-
hjóladrifi sem óneitanlega er
mikill kostur hér á landi. Hann
kemur „standard" frá verksmiðj-
unni með fjögurra gíra kassa,
auk þess sem hann er búinn
nokkurs konar háú drifi, eða
„overdrive". Þá er hægt að fá
hærra drifhlutfall ef ekið er á
góðum vegum á meiri hraða, en
það getur sparað töluvert
benzín. Misubishi-verksmiðjurn-
ar eru þær fyrstu sem búa
smábíla þessum útbúnaði.
Þrátt fyrir smæðina er Colt-
inn gerður fyrir fimm farþega
með ökumanni og er plássið sem
aftursætisfarþegum er ætlað al-
veg viðunandi, en mjög oft vill
við brenna í smábílunum að
pláss fyrir farþega í aftursæti er
nánast ekki neitt.
Samkvæmt mælingum er-
lendra blaða á Colt-bílinn ekki
að eyða nema á bilinu 6—7
lítrum á stöðugri keyrslu, sé ekið
á 100 kílómetra hraða á klukku-
stund, en hann er búinn 40 lítra
benzíntanki. Tankurinn ætti því
að duga til um 550—650 kíló-
metra aksturs.
Nýi Aro 100-jeppinn er nokkru minni en 244-bíllinn, en hann er einnig fáanlegur sem pallbíll
Aro 100 — ný
gerð Aro-jeppa
ARO-umboðið á íslandi er um
þessar mundir að hefja inn-
flutning á nýrri gerð Aro-
jeppanna, Aro 100, og er hann
nokkru minni en Aro-jeppinn,
sem kom fyrst og hefur verið
notaður hér á annað ár.
Bíllinn er byggður á grind og
er vélin 54 hestöfl staðsett að
framan, fjögurra strokka bens-
ínvél, vatnskæld, 1289 kúbik.
Bíllinn hefur óháða fjöðrun með
gormum, skálabremsur, gír-
sþiptingu í gólfi og kemur hann
á 14“ hjólbörðum. Vegur hann
milli 1000 og 1100 kg og ber
kringum 500 kg. Gert er ráð
fyrir að bíllinn komi fyrst
hingað til lands um eða eftir
áramótin, og að hann kosti
kringum 5 milljónir króna.
Þá er það nýmæli við stærri
Aro-jeppana, 244-gerðina að
brátt eru þeir fáanlegir með
dísilvél og kosta þeir þá um 8
m.kr. Segja umboðsmenn það
mikinn kost að geta boðið bílinn
með dísilvél og telja hann verða
enn samkeppnisfærari við aðra
jeppa, sem boðnir hafa verið
hérlendis.
Ný (lísilvél
frá Ítalíu
FYRIRTÆKIÐ Barco, báta- og
vélasalan í Garðabæ, hefur haf-
ið innflutning á nýrri disilvéi
og er hún framleidd af Stabili-
menti Meccanici VM á Ítalíu.
Ásgeir Long, innflytjandi vél-
arinnar, segir að hún sé sérstæð
að því leyti, að verksmiðjunni
hafi tekist að gera hana jafn
létta eða léttari en samsvarandi
bensínvél (allt að 100 kílóum) og
gætt hana svipuðum eiginleikum
hvað varðar viðbragð og snún-
ingshraða. Hreyfillinn er 90
hestöfl við 4200 snúninga á
mínútu og vegur hann aðeins 202
kg. Vélin er búin afgastúrbínu af
Bflar
Umsjón: JÓHANNES
TÓMASSON OG SIG-
HVATUR BLÖNDAHL
þýskri gerð og „vacuum“-dælu
fyrir sjálfskiptingu og aflhemla.
Verksmiðjurnar hafa reynt vél
þessa í Rang Rover-bíl við ýmsar
aðstæður og sagði Ásgeir, að
vélin virtist skila nægu afli bæði
utan vegar og á hraðbrautum, en
hámarkshraðinn er 130 km klst.
Vélin verður í Alfa Romeo-bílum
af gerðinni „Alfetta-diesel" og í
bílablaðinu Gente Motori kemur
fram, að vélin hefur mikla yfir-
burði hvað snertir kraft miðað
við þyngd. Ásgeir sagði verð
vélarinnar vera kringum 2,4
milljónir og er um þessar mund-
ir alllangur afgreiðslufrestur frá
verksmiðjunum þar sem þær
anna ekki eftirspurn. Er ráðgert
að vél verði prófuð í Range
Rover-bíl hérlendis eftir áramót
og jafnvel í 6 cyl. Blazer-bíl, en
hún er sögð nógu kraftmikil
fyrir jeppa af þeirri gerð og
minni jeppa, en naumast hina
stærri.
Petrol King, nýr benzínsparari:
Sparar að minnsta
kosti 10% benzín
NÝTT tæki til benzínsparnaðar
er nú komið á markað hér á
landi, er það Petrol King
benzinspararinn svokallaði frá
Mazpassi á Ítalíu og er það
Sveinn Egilsson h.f. sem flytur
hann inn.
Petrol King er nokkurs konar
þrýstijafnari, en við venjulegar
akstursaðstæður valda þrýst-
ingsbreytingar frá benzíndælu
breytingum á benzínhæð í blönd-
ungi. Þetta veldur því að benzín-
blandan frá blöndungnum verð-
ur of sterk og hluti af benzíninu
fer í gegnum vélina og út um
pústkerfið óbrunnið og engum til
gagns.
Með því að setja Petrol King
benzínspararann milli benzín-
dælunnar og blöndungs er hægt
að komast hjá sveiflum og spara
þannig benzín. Benzínspararinn
gerir fleira en að spara benzín,
hann varnar því einnig að
óbrunnið benzín blandist smur-
olíu vélarinnar og valdi lækkuð-
um olíuþrýstingi sem getur haft
slæm áhrif á endingu vélarinnar.
Petrol King minnkar ennfremur
álag á blöndunginn og þar af
leiðir minna slit á honum.
Að sögn Úlfars Hinrikssonar
hjá Sveini Egilssyni er mjög
auðvelt að tengja Petrol King
benzínspararann í hvaða bílteg-
und sem er og tekur ekki meira
en u.þ.b. hálftíma að fram-
kvæma það.
Úlfar sagði að ítrekaðar til-
raunir í Bretlandi hefðu sýnt að
benzínsparnaður við notkun
Petrol King sé frá 10—33% eftir
aðstæðum og ökulagi. Þessi
reynsla valdi því að framleiðend-
urnir taki ábyrgð á því að
sparnaður verði að minnsta
kosti 10%, að öðrum kosti bjóða
þeir endurgreiðslu. — Petrol
King benzínspararinn kostar út
úr búð hér 18.440 krónur.
Úlfar sýnir hér hvar benzínspararanum hefur verið fyrir komið.
Ljósm. Mbl. Kristján.