Íslenzk tunga - 01.01.1963, Page 121
FRÁ ÞORMÓÐI, KAPPA HINS HELGA ÓLAFS KONUNGS 119
b) Gerð Helgisögunnar er upprunnin úr Fóstbræðra sögu, en af-
löguð af þeim sem setti saman Miðsöguna.17
Af Helgisögunni er að sjá að í Elztu sögu hafi verið atvik sem
minnti á síðara atriði Fóstbræðra sögu sem hér um ræðir. Vera má
að höfundi Fóstbræðra sögu sé upphaflega komin þaðan sjálf hug-
myndin, en hann hafi síðan gjört úr þessu nýtt atvik að fyrirmynd
Píslarsögunnar. — Samkvæmt hinum hefðbundnu skoðunum ætti
þetta atvik að hafa lifað í munnmælum með vísu Þormóðar; atvik
Elztu sögu gæti þá e. t. v. kallazt dauft bergmál sömu munnmæla,
vísan týnd og sögnin breytt. — Samkvæmt hefðbundnum skoðunum
ætti vísan alls ekki að geta verið eftir höfund Fóstbræðra sögu: hún
er að efni í algj öru ósamræmi við það sem áður segir í sögunni um
vopnabúnað Þormóðar og sár.18 Fræðimenn hafa gjarnan viljað
trúa því að söguhöfundar hefðu getað verið skeytingarlausir um
fullkomið samræmi texta síns og aðfenginnar vísu, en miklu síður
að þá hefði kunnað að henda það að yrkja vísu í sögu sína án þess
að gæta fulls samræmis við það sem á undan var ritað eða kom á
eftir. Út af ósamræmi einu í 22. þætti Ódysseifskviðu (og öðrum
áþekkum) hefur Jan de Vries minnt á orð Goethe við Eckermann:19
„Die Phantasie hat ihre eigenen Gesetze, denen der Verstand nicht
beikommen kann und soll.“
Torvelt getur verið að gjöra sér grein fyrir hugsunarhætti fornra
rithöfunda, hvað fyrir þeim hefur vakað og hvað þeir hafa talið mik-
ilvægt og hvað æskilegt eða þá leyfilegt. Sumum höfundum íslend-
inga sagna hefur að ófyrirsynju verið ruglað saman við ævisagna-
höfunda. Ætli það væri fjarri lagi að höfundur Fóstbræðra sögu
hefði um fram allt verið listamaður -— að frásagnarlistin hefði verið
17 En hún á samkvæmt niSurstöðu Sigurðar Nordals í bókinni um Ólafs sögu
helga að hafa haft að geyma texta Elztu sögti með íaukum úr Fóstbræðra sögu
og vera forrit Helgisögunnar annars vegar og Ólafs sögu Styrmis hins vegar —
og samkvæmt sömu kenningu er Ólafs saga Snorra ættuð frá Miðsögunni utn
Ólafs sögu Styrmis og gerð atviksins hjá Snorra því af sömu rót runnin og gerð
Helgisögunnar.
18 Sjá íslenzk fornrit VI, 267—268.
19 Heldenlied und Heldensage (Bem und Miinchen 1961), 11.