Íslenzk tunga - 01.01.1963, Síða 17
OLFUS
15
íslendingasöguin1',25 Skal nú vikið nánara að skýringu Brynjúlfs
frá Minna-Núpi. Hún er, ásamt athugasemdum Bjarnar M. Olsens,
rækilegasta tilraun, sem enn hefir verið gerð, til að skýra nafnið
Ö//«s.26
Sagt er frá því í Landnámabók, að Alfur hinn egðski, sem stökk
fyrir Haraldi konungi til Islands af Ögðum, hafi komið skipi sínu
í ós þann, er við hann sé kenndur og heiti Álfsós. Hyggur Brynjúlfur,
að þar sé átt við Ölfusárós og nafnið Olfus sé einmitt < Álffsjós.
Hann telur, að Álfsós sé hið upphaflega nafn á vatnsfalli því, sem nú
heitir Sog og Olfusá, og hið forna nafn á Þingvallavatni, Ölfusvatn,
sé af því dregið, < *Alfsóssvatn. Sem sveitarnafn hyggur hann Ölfus
þannig til orðið, að sveitin hafi verið kennd „við ósinn, sem rann
með henni endilangri“27 og nefnd *Álfsóss-sveit, -hérað, -hreppr eða
þvílíku nafni, sem síðar hafi verið stytt, af því að „hver maður vissi
hvað um var talað. Menn nenntu þá ekki heldur að hafa orðið lengra
en þurfa þótti, nefndu svo sveitina blátt áfram „Ölfus“, og varð það
að vana. En um leið fundu menn til þess, að viðfeldnast var, að hafa
það nafn hvorugkyns, og gerðu menn það ósj álfrátt“.2 8 Nafnið Álfs-
ós hefir m. ö. o. aðeins breytzt sem liður í samsettu orði, annars
ekki. Þess vegna verður að gera ráð fyrir því, að sveitarnafnið hafi
upphaflega verið lengra en það er nú. Þetta virðist nokkuð langsótt.
En Brynjúlfur varð að gera ráð fyrir þessu til að skýra það, að nafn-
ið Alfsós er varðveitt í Landnámabók ásamt nöfnunum Ölfusá og
Olfusvatn, en Ölfus kemur ekki fyrir þar nema í þessum samsetning-
um.
Brynjúlfur reynir að gera sér grein fyrir því, hvernig Álfsóss gat
breytzt í Ölfus og rekur það mál. Hann segir þó, að hann vilji ekki
25 „Ölfus = Álfós?“ 166.
26 Sama rit, 164—172; Björn Magnússon Ólsen, „Athugagrein við ritgjörð
Brynjólfs Jónssonar ‘Ölfus = Álfós’", Tímarit Hins íslenzka bókmenntafjelags,
XVI (1895), 173—175. Sbr. enn fremur Brynjúlfur Jónsson, ,,‘Bær Þórodds
goða’“, Árbók Hins íslenzka fornleijafjelags, 1895, 28—29; sami, „Rannsókn í
Árnesþingi sumarið 1904“, Árbók Hins íslenzka fornleifafélags, 1905, 2 og 37.
27 „Ölfus = Álfós?“ 170.
28 Sama rit, 171.