Fréttablaðið - 03.08.2006, Síða 63
FIMMTUDAGUR 3. ágúst 2006
Dúettinn Sessý og Sjonni leikur á
Kaffi Akureyri í kvöld og ætlar
að trylla heimamenn og gesti
með sveiflukenndri tónlist. Sessý
og Sjonni hafa verið iðin við kol-
ann að undanförnu og ætla að
flengjast um Norðurlandið um
verslunarmannahelgina, leika á
skemmtihúsinu Kaffi Krók á
Sauðárkróki á laugardagskvöldið
og dúkka upp á stórhátíðinni
Einni með öllu. - khh
Stefnan tekin norður
SESSÝ OG SJONNI Dúkka upp á Einni með öllu.
Dálkahöfundur breska dagblaðs-
ins The Observer veltir upp
athyglisverðum spurningum um
eðli og þýðingu ævisagnaritunar í
samhengi við stjörnudýrkun
enska fótboltalandsliðsins í nýj-
asta pistli sínum um síðustu helgi.
Hunter Davies segir frá reynslu
sína af því að vera svokallaður
„höfundardraugur“ knattspyrnu-
kappans Waynes Rooney, en
pistlahöfundurinn var fenginn til
þess að skrifa ævisögu þess tví-
tuga pilts.
Davies lætur að því liggja að
frammistaða enska landsliðsins
hafi valdið því að forlögin hafi
hætt við útgáfu nokkurra fótbolt-
aævisagna eða sett þær í salt en
þó eru að koma út nokkuð sögu-
legar bókmenntir um Frank
Lampard, Rio Ferdinand og
Ashley Cole – auk sögu Rooneys
sem síst verður þrungin minni
dramatík en hinna kappanna og
talsvert nýjabrum því þetta er
víst fyrsta ævisaga hans. Að
kaupa fótboltahetju er næstum
jafn áhættusamt fyrir forleggj-
ara og framkvæmdastjóra, segir
Davies, því gæfan sé fallvölt í
fótboltanum. Hins vegar geti
söguhetjurnar haft gríðarleg
áhrif á sölu bókanna með því einu
að mæta og árita verkin eða sýna
sig í sjónvarpi og hann segist
þekkja til verka þar sem viðfang-
ið ver meiri tíma með áritunar-
pennann í höndunum heldur en í
hin eiginlegu skrif – hvort sem
þau eru með dyggri aðstoð eða
ekki.
Davies kveðst hafa verið eink-
ar heppinn með Rooney. Þeir
funduðu átta sinnum á fallegu
heimili fótboltastjörnunnar og
síðan var hún dugleg að hringja í
hann meðan á Þýskalandsævin-
týrinu stóð. Davies lætur þó ekk-
ert uppi með innihald þeirra sam-
tala nema að hann hafi þurft að
draga talsvert upp úr honum enda
sé Rooney maður boltans en ekki
orðsins.
- khh
Stjörnudýrkun og fallvölt stundarfrægð
ROONEY BARMAR SÉR Fótboltahetjan á ekki
sjö dagana sæla en ævisagan er á leiðinni.
NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
ÁGÚST
31 1 2 3 4 5 6
Fimmtudagur
■ ■ TÓNLEIKAR
17.00 Tríóið Flís treður upp
ásamt Bogomil Font á vegum
tónleikaraðar Smekkleysu og
tímaritsins Grapevine. Tónleikarnir
fara fram í nýjum húsakynnum
Smekkleysubúðarinnar á
Klapparstíg 27 kl. 17. Aðrir tón-
leikar verða á Café Amsterdam
kl. 21.30 og þá kemur hljómsveitin
Mammút einnig fram.
20.00 Tónlistarhópurinn Sjan áron
leikur í Fríkirkjunn í Reykjavík.
21.30 Kvintett Ragnheiðar
Gröndal leikur djassstandarda í
Deiglunni á Akureyri í tilefni af
Listasumri.
■ ■ LEIKLIST
20.30 Leikritið Aumingja litla
ljóðið, frumsýning á nýjum ein-
leik Kómedíuleikhússins. Sýnt á
Kirkjubóli í Önundarfirði.
■ ■ SKEMMTANIR
21.00 Breakbeat.is heldur klúbba-
kvöld á skemmtistaðnum Pravda.
Gestasnúður kvöldsins að þessu
sinni er Agnar Agnarson, einnig
þekktur sem Aggi Agzilla.
22.00 Hljómsveitin Bermuda verð-
ur með húkkaraball á Hressó.
■ ■ SÝNINGAR
14.00 Myndlistarmaðurinn Serge
Comte sýnir í galleríi 101 við
Hverfisgötu. Opnið til kl. 17.
15.00 Nú stendur yfir listasýning á
verkum eftir 12 nýútskrifaðra nema
Listaháskóla Íslands í Listasetrinu
á Hvolsvelli. Yfirskrift hennar er Án
titils Grúp Kynnir. Sýningin stendur
til 13. ágúst en verður lokuð um
verslunarmannahelgina.
Bavaria, hollenskur gæðabjór:
Kom best út
í blindprófun
Bavaria bjórinn kom best út í könnun sem hollenska
dagblaðið De Telegraaf gerði á dögunum.
10 vinsælar tegundir af bjór voru prófaðar með
blindprófi og fékk Bavaria bjórinn hæstu einkunn.
LÉTTÖL
Partí í poka!
Með sérhannaða vasa fyrir
GSM og MP3 spilara. Bæði
tækin geta tengst innbyggðum
hátölurum bakpokans.
Sértilboð fyrir Og1
viðskiptavini
7.900 kr.
Verð fyrir eigendur
Vodafone live! síma
9.900 kr.
Almennt verð
12.900 kr.
Nokia 6230i
Vodafone live!
Tilboðsverð: 24.900 kr.
Verð áður: 28.900 kr.
20% afsláttur
af öllum handfrjálsum búnaði
Vantar þig síma?
Hendur á stýri!
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI