Fréttablaðið - 03.08.2006, Blaðsíða 62
3. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR42
17. ágúst - kl 20:00 - uppselt
18. ágúst - kl 20:00 - örfá sæti
24. ágúst - kl 20:00 - laus sæti
25. ágúst - kl 20:00 - laus sæti
70-90% afsláttur!
af allri útsöluvöru
Útsölulok
Kringlunni
Sýnt í Landnámssetri í Borgarnesi
Sýningar í ágúst og september
Föstudagur 4. ágúst kl. 20 örfá sæti laus
Laugardagur 5. ágúst kl. 20 uppselt
Sunnudagur 6. ágúst kl. 15 örfá sæti laus
Sunnudag 6. ágúst kl. 20 örfá sæti laus
Laugardagur 19. ágúst kl. 20
Sunnudagur 20. ágúst kl. 15
Sunnudagru 20. ágúst kl. 20
Föstudagur 25. ágúst kl. 20
Laugardagur 26. ágúst kl. 20 Uppselt
Föstudagur 1. sept. kl. 20
Laugardagur 2. sept kl. 20
Sunnudagur 3. sept kl. 20
LEIKHÚSTILBOÐ
Tvíréttaður matur og miði
Frá kr. 4000 - 4800
MIDAPANTANIR Í SÍMA 437 1600
PANTIÐ MIÐA TÍMANLEGA
Viðey
Uppgötvaðu
Spennandi sumardagskrá
Kaffisala kl. 13 – 17
Viðeyjarferjan siglir
reglulega alla daga
Saga
Náttúra
List
Nánari
upplýsingar
www.videy.com
533 5055
Hádegistónleikar Listvinafélags
Hallgrímskirkju, sem kenndir
eru við Alþjóðlegt orgelsumar,
halda áfram í dag en þá halda
hjónin Pamela De Sensi flautu-
leikari og Steingrímur Þórhalls-
son, organisti Neskirkju, tónleika
í kirkjunni.
Á efnisskránni eru tvö verk.
Fyrst leikur Steingrímur Kóral
nr. 3 í a-moll eftir César Frank,
einn þriggja kórala sem hann
skrifaði síðasta æviár sitt, árið
1890. Síðara verkið er „Sjö sálma-
lög“ fyrir þverflautu og undirleik
eftir franska 20. aldar tónskáldið
Jean Langlais.
Pamela fædd og uppalin á
Ítalíu og hefur tekið þátt í fjölda
tónleika bæði sem einleikari og
með kammertónlistarhópum, í
Kasakstan, Mexíkó og Íslandi og
víðar. Hún hefur komið fram á
fjölda tónlistarhátíða víða um
Ítalíu og frá árinu 1997 hefur hún
spilað með kvartettinum Horus
Ensemble og frá 1998 með tríóinu
Shéhérazade. Á Íslandi hefur hún
starfað sem tónlistarkennari við
Tónlistarskóla Árnesinga frá
2003.
Steingrímur Þórhallsson lauk
píanókennaranámi frá Tónlistar-
skólanum í Reykjavík árið 1998
og kantorsprófi frá Tónskóla
þjóðkirkjunnar. Haustið 1998 hóf
hann nám við Pontificio Instituto
di Musica Sacra í Róm, sem er
kirkjutónlistarstofnun Páfagarðs,
og lauk þaðan mastersprófi í org-
elleik sumarið 2001. Steingrímur
hefur komið fram víða sem ein-
leikari og sem meðleikari, meðal
annars í Skálholtsdómkirkju,
Kristskirkju, Neskirkju og Hall-
grímskirkju.
Auk þess að starfa sem organ-
isti Neskirkju er hann einnig
listrænn stjórnandi hátíðarinnar
„Tónað inn í aðventu“ og tónlistar-
hópsins Rinascente.
- khh
Sjö sálmalög og fleira
Þeim sem hyggja á skemmri
ferðir í nágrenni höfuðborgar-
svæðisins um verslunarmanna-
helgina er bent á að Hús skálds-
ins á Gljúfrasteini verður opið
gestum alla helgina milli kl. 9-17.
Mikil náttúrufegurð er í
nágrenni hússins þar sem kjörið
er að vappa um í veðurblíðu og
eins segir í tilkynningu frá safn-
inu að þar sé vel við hæfi að
staldra við á leið til Þingvalla.
Á sunnudaginn verða stofu-
tónleikar að vanda þar sem
Gunnhildur Einarsdóttir hörpu-
leikari og Kristjana Helgadóttir
flautuleikari koma fram og leika
verk eftir Bach og samtímatón-
skáldin Jean Francaix og Toru
Takemitsu. - khh
Opið á Gljúfrasteini
MÚSÍKALSKT PAR Orgelleikarinn Steingrímur Þórhallsson og Pamela De Sensi flautuleikari.
FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
KRISTJANA HELGADÓTTIR OG GUNNHILDUR
EINARSDÓTTIR Leika verk eftir J.S. Bach,
Jean Francaix og Toru Takemitsu.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
��������������
�������
����������
����
������������
����������
��� �