Fréttablaðið - 03.08.2006, Blaðsíða 12
12 3. ágúst 2006 FIMMTUDAGUR
NEKTARDANS Ásgeir Davíðsson,
eigandi nektardansstaðarins
Goldfinger, segir að nektardans-
meyjar frá sínum stað hafi verið
leigðar út til að dansa utan næt-
urklúbbsins.
„Þetta
hefur verið
gert og þá
hefur verið
borgað fyrir
þetta eins og
einkasýn-
ingu,“ segir
Ásgeir. „Þetta
hefur kostað
tíu til fimmt-
án þúsund og
þá koma dyraverðir með til að sjá
til þess að allt fari vel fram. Þetta
er ekki eins og einkadans, heldur
fer stelpan, skilur sig eftir hálfn-
akta á sviðinu og labbar svo út.
Svona hefur ekki verið gert nema
kannski tvisvar síðan á áramót-
um.“
Ásgeir segir engar reglur vera
til staðar yfir þetta og nektar-
dans eiga sér stað um allan bæ.
Nú til dags fari einkasýningar af
þessu tagi fram með milligöngu
einkamálasíðna á netinu.
Katrín Anna Guðmundsdóttir,
talskona Femínistafélagsins, seg-
ist hafa áhyggjur af vinnuaðstöðu
nektardansmeyjanna. „Stelpurnar
eru sendar út í auglýsingaskyni,
án þess að fá borgað fyrir. Það er
komið fram við þær eins og vöru,
en ekki vinnandi manneskjur sem
eiga að fá laun. Stóra vandamálið
er að þó að við séum með lögreglu-
samþykktir í kringum þessi mál
er ekkert aðhafst í þeim. Einka-
dans er ólöglegur bæði í Reykja-
vík og Kópavogi, en þó það sé vitað
að hann fari fram þá er ekkert
gert í því,“ segir Katrín. - sgj
Nektardans seldur með milligöngu einkamálasíðna:
Nektardans tíðkast
úti um allan bæ
KATRÍN ANNA GUÐ-
MUNDSDÓTTIR
ÁSGEIR DAVÍÐSSON Eigandi Goldfinger segir nektardansmeyjar fá greiddar um tíu til fimmt-
án þúsund krónur fyrir að fara í einkasamkvæmi og dansa.
LÍBANSKUR HUNDUR Það eru ekki bara
mennirnir sem þjást vegna átakanna í
Líbanon þessa dagana. Þessi hundur
leitaði eiganda sinna í rústum húsa í Srifa
í Líbanon þegar ljósmyndara bar þar að
garði fyrr í vikunni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SVÍÞJÓÐ Sífellt fleiri ungar sænsk-
ar konur eru lagðar inn á sjúkra-
hús með alvarlega áfengiseitrun.
Þetta kemur fram í nýrri sænskri
rannsókn sem fjallað var um á
fréttavef Svenska Dagbladet.
Drykkja Norðurlandabúa
hefur aukist mjög á undanförn-
um árum og eru nú þrisvar sinn-
um fleiri unglingsstúlkur lagðar
inn á sænsk sjúkrahús með
áfengiseitrun en var árið 1987.
Í Noregi hefur þessum sjúkling-
um einnig fjölgað mikið á síðasta
áratugnum, eða um 63 prósent
meðal kvenna á aldrinum 18 til 24
ára, kemur fram á fréttavef
norska blaðsins Aftenposten.
Ástæðurnar eru margþættar,
að sögn Mats Ramstedt við
Háskólann í Stokkhólmi sem
leiddi rannsóknina, en meðal ann-
ars hafa þær með slæma andlega
líðan stúlknanna að gera, því að
þær drekka til jafns við pilta og
þær byrja oft afar snemma að
drekka, stundum allt niður í tíu
eða ellefu ára.
Innlögnum eldri sænskra
kvenna vegna áfengiseitrunar
hefur einnig fjölgað og tvöfaldast
hjá aldurshópnum 50 til 74 ára.
Hið sama má segja um sænska
karla á aldrinum 50 til 87 ára, en á
síðustu 10 árunum má sjá 87 pró-
senta aukningu meðal norskra
karla sem eru eldri en fimmtugir.
Hins vegar hefur innlögnum
sænskra karla á aldrinum 20 til 49
ára fækkað frá árinu 1987. - smk
Drykkja ungra kvenna á Norðurlöndunum eykst til muna:
Fleiri konur fá áfengiseitrun
MEIRI DRYKKJA Sífellt fleiri ungar konur fá
áfengiseitrun. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL
LÖGREGLUMÁL Annar mannanna
sem rændu skrifstofur Bónus-
vídeós í Hafnarfirði rétt eftir
hádegi á mánudag er enn ófundinn.
Vegfarendur yfirbuguðu félaga
mannsins eftir að sá hafði stokkið
út um glugga af annarri hæð, með
hluta af ránsfengnum.
Lögreglan handtók manninn á
staðnum og hefur úrskurðað hann
í viku gæsluvarðhald. Hann hefur
ekki sýnt samstarfsvilja við yfir-
heyrslur og neitar að gefa upp
hver félagi hans er eða hvar hann
gæti verið niður kominn.
Málið er enn í rannsókn hjá
lögreglu. - mh
Ránið í Bónusvídeó:
Annar ræn-
ingja ófundinn
ÞJÓNUSTA ÁTVR hefur ákveðið að
Vínbúðin í Vestmannaeyjabæ fái að
standa opin til klukkan 16.00 föstu-
daginn fyrir verslunarmannahelgi.
Áður hefur verslunin verið lokuð
frá föstudegi til og með mánudegi
um verslunarmannahelgi.
Í auglýsingu ÁTVR um opnunar-
tímann stóð þó að þetta væri gert
samkvæmt ákvörðun bæjarstjórn-
ar. „Þetta er bara okkar afstaða, við
gerum engar athugasemdir við
þetta. Vonandi táknar þetta þjón-
ustu fyrir þjóðhátíðargesti,“ segir
Elliði Vignisson bæjarstjóri. - sgj
Þjóðhátíð í Eyjum:
Vínbúð verður
opin lengur
Vespualda Mun fleiri leita sér læknis-
hjálpar vegna geitungastungna í Noregi
í ár heldur en flest önnur ár og kenna
heilbrigðisyfirvöld óvenju heitu sumri
um. Biðja þau fólk um að fara varlega
þegar það snæðir utandyra, því geitung-
ar sækja gjarnan í mat og gosdrykki.
NOREGUR
- Bretland, Ástralía,
Nýja Sjáland, Mið-Austurlönd
og Suður-Afríka
Móðgun
- USA:
Tveir
- Frakkland:
Friður
- Þýskaland:
Sigur
70-90%
afsláttur af öllum útsöluvörum
Útsölulok
KRINGLUNNI
����������������������������������������� ������������
�������������
������������
�����������������������
���������������������������������������������������������������������
����
�����
�����
�
��� ��� ��
�������������� ���
��������������
�����