24 stundir - 02.10.2008, Blaðsíða 27
Þegar fer að hlýna í Japan er
þessi núðluréttur bæði frískandi
hádegisverður og aðalréttur að
kvöldi til. Hann er nærandi en þó
léttur. Sósan er gerð úr einungis
þrenns konar hráefni og það er
sáraeinfalt að búa hana til. Þú get-
ur einnig keypt þér tilbúna ídýfu
þar sem japanskar matvörur fást
(athugið í Asian á Suðurlands-
braut). Sósurnar eða ídýfurnar
eru yfirleitt merktar sem sérstakar
sósur fyrir núðlur og tekið fram
að þær séu tilbúnar til notkunar.
Persónulega finnst mér heimalag-
aða sósan bæði ferskari og betri
þó að tilbúnu sósurnar séu líka
góðar.
Samkvæmt hefðinni eru núðl-
urnar settar í sérstaka núðlukörfu
(sem kölluð er „zaru“ og því er
þessi réttur oft kallaður „zaru
soba“ í Japan) eða á sérstakan
bakka sem er með innbyggðu
bambussigti til að sía burt allan
umframvökva. Hægt er að kaupa
slíkar körfur og bakka í
búðum sem selja japönsk
eldhúsáhöld þó að það
sé alls ekki nauðsyn-
legt. Passaðu bara að
núðlurnar séu vel
síaðar áður en þú
setur þær á diskana.
2 bollar dashi
½ bolli mirin
½ bolli saltskert soja-
sósa
350 g þurrkað soba (þunnar
bókhveitinúðlur)
½ bolli fínt rifnar kínahreðkur
(umframvökvi síaður frá)
2 msk. ristuð og möluð hvít
sesamfræ
nýrifið wasabi (eða úr túpu)
1 blaðlaukur, neðsti og efsti
hlutinn fjarlægðir og skorið í
þunnar sneiðar
20 cm ferningur af ristuðu nori
(sjávargrænmeti) skorinn í stuttar
og mjóar ræmur
Aðferð:
1. Settu dashi, mirin og soja-
sósu í miðlungsstóran pott og
stilltu á háan hita. Láttu suðuna
koma upp, slökktu undir og láttu
kólna að stofuhita. (Til að flýta
fyrir er hægt að láta sósuna í litla
skál og í ísbað í stærri skál).
Hrærðu reglulega í og helltu í só-
suskál. Berðu fram þegar sósan er
orðin hæfilega köld.
2. Þegar sósan er tilbúin er
vatn soðið í stórum potti. Núðl-
urnar settar út í og hrært í til að
þær festist síður saman. Eldaðu
soba- núðlurnar samkvæmt leið-
beiningum á umbúðunum. (Oft-
ast er hæfilegt að sjóða soba-
núðlur í 6-8 mínútur, en fylgstu
vel með þeim og athugaðu reglu-
lega). Helltu vatninu þegar núðl-
urnar eru rétt orðnar mátulega
mjúkar undir tönn. Skolaðu þær
síðan í sigti undir köldu vatni til
að ná burt allri sterkju.
3. Settu rifnar radísurnar á lít-
inn disk, ristuðu sesamfræin í
litla skál með lítilli skeið. Settu
ögn af wasabi (um tvær teskeiðar)
á annan lítinn disk ásamt blað-
lauknum. Berðu þetta síðan fram.
4. Settu soba-núðlurnar á fjóra
bakka með bambussigti (eða bara
fjóra salatdiska). Stráðu nori yfir
núðlurnar og berðu fram
ásamt fjórum litlum só-
suskálum eða bollum.
Láttu matargesti
síðan sjálfa fá sér
um það bil ½
bolla af ídýfunni
og krydda að eigin
smekk með kína-
hreðkum, rist-
uðum sesamfræjum,
wasabi og blaðlauk.
Uppskrift úr bókinni Japanskar konur grannar og hraustar
Kaldar soba-núðlur úr bókhveiti
Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur
dista@24stundir.is
„Mataræði, góð hreyfing og and-
leg vinna af einhverju tagi hefur
mikil áhrif á ónæmiskerfið og ég
hef kynnt mér fjölmargar rann-
sóknir sem sýna mikilvægi þess að
stunda virkar forvarnir gegn
streitu,“ segir Hallgrímur.
„Streita er mikill skaðvaldur,“
segir hann. „Fyrir utan að valda
þunglyndi og kvíða, meltingar-
truflunum, svefnleysi og háum
blóðþrýstingi getur streita valdið
því að ákveðin líffærakerfi byrja að
sýna breytingar, nýrnahettur
stækka og framleiðsla nýrnahettu-
hormóna (streituhormóna) eykst
sem gerir það að verkum að fólk
fitnar mun auðveldar, sér í lagi ef
það er á lélegu mataræði. Eitlavefir
rýrna og ónæmiskerfið veiklast þar
með. Þegar svona er komið er þörf
á aðgerðum,“ segir Hallgrímur.
„Við læknar tökum við afleiðing-
um streitu og eigum þá að bjarga
skjólstæðingum okkar eftir að
skaðinn hefur orðið.“
Töfrasveppir!
„Forvarnir gegn streitu með
liðsauka bætiefna er góð nýjung,“
segir Hallgrímur og kynnir til sög-
unnar bætiefnið Wellmune WGP
sem unnið er úr sveppum. „Bæti-
efnið verður fáanlegt innan fárra
vikna og hefur samkvæmt nýjum
og vönduðum rannsóknum styrkt
ónæmiskerfið svo um munar.“
Hallgrímur segir frá einni rann-
sókninni þar sem streita og veik-
indi voru mæld í maraþonhlaup-
urum. „Maraþonhlauparar eru
útsettir fyrir streitu og fá gjarnan
sýkingar í efri öndunarfæri. Í einni
rannsókninni voru maraþon-
hlaupurum gefin 250 mg eða 500
mg af Wellmune og þá fékk einn
hópur lyfleysu áður en þeir fóru í
maraþonhlaup. Þeir sem fengu
Wellmune sýndu miklu minni
tíðni öndunarfærasjúkdóma og
einkenna streitu en þeir sem fengu
lyfleysuna.“ Hallgrímur segir
Wellmune vera fjölsykrungaefni
unnið úr sama svepp og æði var
fyrir á níunda áratugnum. „Þá var
fólk með sveppinn sjálfan að búa
til úr honum te. Nú er búið að
vinna úr honum þessi virku efni
sem hvetja ónæmiskerfið og vinna
þau í handhæg hylki.“ Aðspurður
hvort ofurmenn verði til með slíku
efni segir Hallgrímur svo ekki
vera. „Ekki bara með því að taka
inn bætiefni, frekar með því að lifa
réttilega samkvæmt ýmsum lög-
málum. Við erum svo miklu meira
en líkami, við erum sál og líkami
og til að ná árangri verður að fara
fram andleg vinna, gott mataræði
og reglubundin hreyfing.“
Wellmune er liðs-
auki Segir Hallgrímur
Magnússon um nýtt
streitubanabætiefni
Er „töfrasveppurinn“ kominn aftur?
Ónæmiskerfi
ofurmanns?
Hallgrímur Magnússon
læknir er þekktur fyrir
áhuga sinn á náttúru-
legum lækningaaðferð-
um. Hann ræðir um skað-
valdinn streitu og
undrabætiefnið Well-
mune sem er unnið úr
sveppum. Reyndar þeim
sama og æði myndaðist
fyrir á Íslandi fyrir all-
nokkrum árum.
Fá aukinn kraft Efnið
var reynt á maraþon-
hlaupurum og niðurstöð-
urnar voru skýrar.
24stundir FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 2008 27
Það er meira
í Mogganum
Í LAUSASÖLU 250 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700
í dag
Fimmtudagur 2. október 2008
Haraldur
Jónsson set-
ur upp Myrk-
urlampa,
Skynfæraleg
og Blind-
urnar.
»Meira í Morgunblaðinu
Eins
og í
blindni
Klístur setur strik í reikn-
ing handboltauppbyggingar.
»Meira í Morgunblaðinu
Íþróttir
Færeyska sveitin Týr
mun storma um landið.
» Meira í Morgunblaðinu
Með ásum
Sigtryggur Sigtryggsson
gerir upp sumarveðrið.
» Meira í Morgunblaðinu
Hvernig var það?
Af hverju versnar
lánshæfiseinkunn ríkis
og banka?
» Meira í Morgunblaðinu
Viðskipti