Lesbók Morgunblaðsins - 16.01.1977, Page 15
Myndskreyting: Elías Sigurðsson
HpjóðsaganH
Sagan af Listalín og Trimbiltrút
Það var einu sinni kóngur
og drottning og áttu sér eina
dóttir sem hét Listalin. Þegar
hún vóx upp lét kóngur smíða
henni dýrðlegan kastala og
settist hún þar I með sínum
þjónustumeyjum; en sú sem
henni var handgengnust hét
Lin og lét hún hana vera hjá
sér nætur og daga. En þegar
kóngsdóttir var orðinn
fulltíða strengdi hún þess
heit að eiga engvan nema
þann sem kæmi sér til að
hlæja, og heimsóktu hana því
margir kóngssynir í þeim til-
gangi að koma henni til að
hlæja, og tókst engum það.
Skammt frá borginni bjó einn
fátækur bóndi og átti son er
Trimbiltrútur hét og fóstur-
son er Trút hét. Þeir fóru til
kastala kóngsdóttir og báðu
hana um næturgisting hvað
hún gjörði og voru þeir látnir
sofa fyrir utan dyr á svefnher-
bergi hennar. Þá heyrðu þeir
um nóttina að kóngsdóttir
kallaði upp og sagði: „Lin,
Lin!" Þá svaraði hin: „Ó, mín
kæra Listalin!" Þá sagði
kóngsdóttir: „Ljáðu mér
munnlaug til að sylla I." Að
litlum tíma liðnum heyra þeir
að kóngsdóttir segir: „Lin!
Lin!" „Ó, mín kæra Listalin!"
„Hvað kemur til þess að mér
finnst að eitthvað bögglast
undir mér svo ég get ekki
sofið?" Fer þá Lin að leita þar
til hún segir: „Ekki skal mig
kyn kyn! Það er þá dúnfjöð-
ur." Enn að stundu liðinni
heyra þeir að sagt er: „Lin!
Lin!" „Ó, mín kæra Listalin!"
„Hvað kemur til þess að það
er svo bjart að ég get ekki
sofið?" Lin fór svo að aðgæta
hvað það gæti verið er legði
svo mikla birtu af og segir:
„Ekki skal mig kyn kyn! Litla
táin á þér stendur út undan
fötunum." Að nokkrum tíma
liðnum heyra þær að sagt er
með dimmri röddu: „Trút!
Trút!" „Ó, minn kæri
Trimbiltrút!" „Ljáðu mér
hrútshorn að míga i." Og enn
að æðitíma liðnum heyra þær
aftur sagt: „Trút! Trút!" „Ó,
minn kæri Trimbiltrút!"
„Hvað kemur til þess að ég
get ekki sofið? Það bögglast
eitthvað undir mér." Trút fer
að aðgæta og segir: „Ekki
skal mig kyn kyn! Það er það
sem þér ber við." Þá gátu þar
naumast stillt sig um að fara
ekki að hlæja. Leið nú enn
nokkur timi þangað til þær
heyra sagt: „Trút! Trút!" „Ó,
minn kæri Trimbiltrút!"
„Hvað kemur til þess að það
er svo bjart að ég get ekki
sofið?" Segir þá Trútur:
„Ekki skal mig kyn kyn!
Tunglið skin rétt í rassinn á
þér." Hlógu þær þá svo mikið
að þeir heyrðu. Sögðu þeir
kóngsdóttir um morguninn
að þeir væru búnir að vinna
til þeirra þegar þeir hefðu
getað komið þeim til að hlæja
og gat hún ei móti borið.
Siðan lét kóngsdóttir setja þá
til mennta og þegar þeir voru
útlærðir átti kóngsdóttir
Trimbiltrút, en Lin Trút. Og
var Trimbiltrútur kóngur eftir
föður hennar, en Trútur ráð-
gjafi. Unntist það svo vel og
lengi.
(J.Á.)
fr
hugslcoti
^Foody
cAllen v
HWÞ SEGJA W-&AFSTAE>A STJARA/ANM E/fW^ ... ME£> Ai/K/P
ZTJÖR/VUR/JAR UAi r MJÖ& HA6STÆPFJH/Hp/6. jl LrfsT H'aR. ... á-
N 'ASTAu'F M/TT-? / T/LAÐ KOMAST íKV///Z/ l//0*fr *
FAGFA 06 H'A i/AWA KOA/U...
r-,5
MÍPL F/V/JST
MOZAKT v£KA flLVEö
/F-ÐISLE6UÍ? !
TÓNLI6T HANS ER
LIKA SVO j
SEIOANP’I. A
Kl//KMVNP/f?, Ípf/ÓTF
H? 06 TÓNUST $