Lesbók Morgunblaðsins - 16.01.1977, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 16.01.1977, Blaðsíða 15
Myndskreyting: Elías Sigurðsson HpjóðsaganH Sagan af Listalín og Trimbiltrút Það var einu sinni kóngur og drottning og áttu sér eina dóttir sem hét Listalin. Þegar hún vóx upp lét kóngur smíða henni dýrðlegan kastala og settist hún þar I með sínum þjónustumeyjum; en sú sem henni var handgengnust hét Lin og lét hún hana vera hjá sér nætur og daga. En þegar kóngsdóttir var orðinn fulltíða strengdi hún þess heit að eiga engvan nema þann sem kæmi sér til að hlæja, og heimsóktu hana því margir kóngssynir í þeim til- gangi að koma henni til að hlæja, og tókst engum það. Skammt frá borginni bjó einn fátækur bóndi og átti son er Trimbiltrútur hét og fóstur- son er Trút hét. Þeir fóru til kastala kóngsdóttir og báðu hana um næturgisting hvað hún gjörði og voru þeir látnir sofa fyrir utan dyr á svefnher- bergi hennar. Þá heyrðu þeir um nóttina að kóngsdóttir kallaði upp og sagði: „Lin, Lin!" Þá svaraði hin: „Ó, mín kæra Listalin!" Þá sagði kóngsdóttir: „Ljáðu mér munnlaug til að sylla I." Að litlum tíma liðnum heyra þeir að kóngsdóttir segir: „Lin! Lin!" „Ó, mín kæra Listalin!" „Hvað kemur til þess að mér finnst að eitthvað bögglast undir mér svo ég get ekki sofið?" Fer þá Lin að leita þar til hún segir: „Ekki skal mig kyn kyn! Það er þá dúnfjöð- ur." Enn að stundu liðinni heyra þeir að sagt er: „Lin! Lin!" „Ó, mín kæra Listalin!" „Hvað kemur til þess að það er svo bjart að ég get ekki sofið?" Lin fór svo að aðgæta hvað það gæti verið er legði svo mikla birtu af og segir: „Ekki skal mig kyn kyn! Litla táin á þér stendur út undan fötunum." Að nokkrum tíma liðnum heyra þær að sagt er með dimmri röddu: „Trút! Trút!" „Ó, minn kæri Trimbiltrút!" „Ljáðu mér hrútshorn að míga i." Og enn að æðitíma liðnum heyra þær aftur sagt: „Trút! Trút!" „Ó, minn kæri Trimbiltrút!" „Hvað kemur til þess að ég get ekki sofið? Það bögglast eitthvað undir mér." Trút fer að aðgæta og segir: „Ekki skal mig kyn kyn! Það er það sem þér ber við." Þá gátu þar naumast stillt sig um að fara ekki að hlæja. Leið nú enn nokkur timi þangað til þær heyra sagt: „Trút! Trút!" „Ó, minn kæri Trimbiltrút!" „Hvað kemur til þess að það er svo bjart að ég get ekki sofið?" Segir þá Trútur: „Ekki skal mig kyn kyn! Tunglið skin rétt í rassinn á þér." Hlógu þær þá svo mikið að þeir heyrðu. Sögðu þeir kóngsdóttir um morguninn að þeir væru búnir að vinna til þeirra þegar þeir hefðu getað komið þeim til að hlæja og gat hún ei móti borið. Siðan lét kóngsdóttir setja þá til mennta og þegar þeir voru útlærðir átti kóngsdóttir Trimbiltrút, en Lin Trút. Og var Trimbiltrútur kóngur eftir föður hennar, en Trútur ráð- gjafi. Unntist það svo vel og lengi. (J.Á.) fr hugslcoti ^Foody cAllen v HWÞ SEGJA W-&AFSTAE>A STJARA/ANM E/fW^ ... ME£> Ai/K/P ZTJÖR/VUR/JAR UAi r MJÖ& HA6STÆPFJH/Hp/6. jl LrfsT H'aR. ... á- N 'ASTAu'F M/TT-? / T/LAÐ KOMAST íKV///Z/ l//0*fr * FAGFA 06 H'A i/AWA KOA/U... r-,5 MÍPL F/V/JST MOZAKT v£KA flLVEö /F-ÐISLE6UÍ? ! TÓNLI6T HANS ER LIKA SVO j SEIOANP’I. A Kl//KMVNP/f?, Ípf/ÓTF H? 06 TÓNUST $

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.