Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1958, Blaðsíða 33
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
681
land, sem ekki er hæft til akur-
yrkju. Og þessi skógrækt er einnig
góð að öðru leyti, því að með þessu
er því varnað að hrjóstug lönd
blási upp. Nú eru jólatré ræktuð á
rúmlega 100.000 ekrum lands og
gefa góðan arð.
Þegar Theodore Roosevelt varð
forseti, hafði það verið venja um
allmörg ár að hafa úrvals fagurt
tré í „Hvítu höllinni“ á hverjum
jólum. Roosevelt ofbauð hve mikið
var höggvið af skógi á hverju ári
til þess eins að menn gæti haft tré
á heimilum sínum á jólunum. Hann
gat þó ekki bannað þann sið. En
hann gerði annað. Hann bannaði
algjörlega að jólatré væri í Hvíta
húsinu. Ekki dugði það bann þó
alveg, því að synir hans laumuðust
með jólatré upp í herbergið sitt, án
þess að hann vissi af.
Þá var nýlega komin á laggirnar
stofnun, sem heitir Skógvernd
Bandaríkjanna. Forstjóri hennar
var Gifford Pinchot. Hann fór á
fund forsetans og tjáði honum, að
það horfði sízt til landauðnar þótt
ung tré væri höggvin og höfð fyrir
jólatré. Það væri nauðsynlegt að
grisja skógana, þeir næði við það
betri þroska. Ef grisjunin væri
framkvæmd á réttan hátt, yrði
hún til þess að skógarnir yrðu
betri.
Þegar Roosevelt heyrði þetta,
afturkallaði hann bann sitt og síð-
an hefir jólatré verið á hverju ári
í Hvíta húsinu. Nú er farið að velja
sérstakt tré til þess, og var það
einkaréttur einhvers af Vestur-
ríkjunum að velja það og gefa. Um
langt skeið voru þar höfð „lifandi"
tré, það er tré sem voru tekin upp
með rótum og jarðvegi, og að lokn-
um jólum gróðursett aftur á ein-
hverjum stað. Nú er þetta jólatré
klofið í skíð að loknum hátíðum og
geymt til þess að brenna á arni
Hvíta hússins á næstu jólum.
Sums staðar er það siður, að
safna saman öllum jólatrjám eftir
nýárið og gera úr þeim mikið bál
á þrettándanum til heiðurs við
Austurvegsvitringana og Betle-
hemsstjörnurfa.
Jólatré eru af ýmsum tegundum:
rauðfuru, hvítfuru, blágreni, rauð-
greni, balsam-furu, Douglas-furu
o .s. frv. Skemmtilegar þykja
balsamfururnar, því að greinar
þeirra koma í kross með reglulegu
millibili, og eru því þessi tré talin
tákn krossins helga. Blágreni og
norsk fura eru og í miklum met-
um.
Þetta hafa skógræktarmenn í
huga og þeir velja sérstakan jarð-
veg fyrir hverja tegund. Þegar
kemur fram í ágúst, senda þeir
pöntunarlista til viðskiftamanna
sinna, svo að þeim gefist kostur á
því í tíma að velja þær tegundir er
þeir vilja helzt. Allt haustið eru
menn svo önnum kafnir við að
merkja þau tré, sem á að fella, en
skógarhöggið byrjar ekki fyr en
komið er fram á vetur. Fyrstu
trén, sem felld eru, eru geymd í
frystiklefum fram undir jól, svo að
engin hætta sé á því að þau láti
á sjá.
Margur mun geta tekið undir
með litlu stúlkunni að fegurstu
tré hér á jörðu sé jólatrén. Af
bernskuminningunum eru minn-
ingarnar um jólin óllum kærastar,
og það eru jólatrén sem hafa varp-
að töfraljóma sínum yfir þær.
BÆANÖFN
Hirðar galdra gcri
graðari jaðar bust
agsar urð úr beri
atkers riða gust.
Hér eru fjögur íslenzk bæarnöfn,
sitt í hverri línu, en rtöfunum brengl-
að. Nú er galdurinn að færa hvern
staf á sinn rétta stað og finna hver
bæanöfnin eru.
nafnagAta
1 hrygnu morguns
myntar gini
átti veraldir
á óklárendum,
fóstra ellinnar
fálka stóls tjalda
höfuðskjólsgestur
og Hrungnis verja.
Þetta er niðurlag á kvæði og í þess-
um línum hefir skáldið bundið nafn
sveitar sinnar, bæarnafnið og sitt eigið
nafn.