Lesbók Morgunblaðsins - 10.02.1952, Page 16
60
LESBÓK MORGtJNBLAÐSINS
W»»" ....
r W < J,
<vhi r<-t
ӣl
t
V*~* <-***.
P
I
XOU; j
j ?7iþ* *r^tt 4- * i
K%*'^íV^m^. . mrpc+p**#' j
m* 0*-&. KvíJk íý^ ^tolA "
?££}** for&- • %$**■*■ /H
ffT"
öc n ”
•y (Vv /ÍL’_
-^3
^ “V^-
- ?lr.~(z~
/«C i-U/' V* At .
j>-J9- 4tC ( ~fj
jytís jl^ «"*>*"’£** ^
' íA ^l*»-»\ C*cl <*.3wi" Ím6^
3 v1 J / , /> j
^•^5-ó-v v-vp <t‘V<r ^N*«v
'í'- A <H\Q
M
<55**
v»vJ^**~S* srjN’'
^ u5
i*v
*\o >;
r>
/*>o
V
ÚR ÁRNASAFNI — Rithönd Árna Mag'nússonar. Árni Magnússon hefur fátt
látið eftir sig af ritum, en víða eru smágreinar og athuganir eftir hann, og
er það allt með afbrigðum skýrt; því má örugglega treysta að hann fer aldrei
með fleipur. Til er eftir hann löng eiginhandargrein (AM 436, 4to), l»ar sem
hann skýrir frá annálabók, sem hann reif í sundur eftir vandlega athugun af
því að hún reyndist ónýt með öllu, klykkir síðan út með þessum orðum: „Svo
gengur það til í heiminum að sumir hjálpa erroribus (þ. e. villum) á gang,
og aðrir leitast síðan við að útryðja aftur þeim sömu erroribus. Hafa svo hvorir-
tveggja nokkuð að iðja.“
nr. 1/30 m/m þýðir að þar eru 30 m
í grammi, eða 30.000 m í kg.
Þetta metrakerfi er það bezta og
fullkomnasta, sem nú er notað. —
Þjóðverjar urðu fyrstir til að nota
það fyrir allt band, einnig silki-
þráð, og hefur það gefizt mjög vel.
En svo er enska lengdarnúmer-
ingin á ensku ullar- og baðmullar-
bandi. Þar er gert ráð fyrir því að
baðmullarhespan sé 1% yards að
ummáli, með 7 skreppum sem hver
er 80 vafningar, svo að í hverri
hespu eru 840 yards eða um 768 m,
og vegur hún 1 lbs. (453,6 gr). Eftir
þessu kerfi er allt baðmullarband
númerað. En um ullarnúmeringu
er það að segja, að þar er hespan
1 m, skreppur 7, hver með 80 vafn-
ingum. Eru því 560 yards í hespu
(um 512 m) og vegur hún 1 lbs.
Svo er til enn eitt kerfi fyrir lín
og hamp.
Þyngdareiningin segir hve marg-
ar þyngdareiningar fara í ákveðna
lengdareiningu. Hér er það lengdin,
sem er óbreytileg. Því fleiri þyngd-
areiningar sem fara í ákveðna
lengdareiningu, því grófara band.
Þetta er því alveg öfugt við hitt
kerfið. Þyngdareiningin er 0.05 gr
(1 denier) og lengdareiningin 450
m, þ.e.a.s. þetta kerfi segir okkur
hvað 450 m bands vega marga
,,denier“, eða hvað 9000 m vega
mörg gröm.
íW 1
Guðjón Þorbergsson
frá Stóru Völlum á Landi var krafta-
jötunn mikill og varð aldrei aflfátt.
Hann giftist 1897 Sigríði Sæmundsdótt-
ir frá Fossi á Rangárvöllum. Voru
foreldrar hennar Sæmundur Ólafsson
frá Húsagarði á Landi og Þórunn Haf-
liðadóttir, ættuð úr Hvolhreppi. Sæ-
mundur var lipurmenni mesta, góður
smali og smíðaði vel spæni. Þórunn
var dugnaðarforkur fyrir sér og orð-
hákur talsverður. Var það Filippus í
Klofa, sem benti Guðjóni á systur sína
í Selsundi. Fór Guðjón nú bónorðsför-
ina og talaði fyrst við Sigríði. Þannig
stóð á, að hún var vistuð hjá Ólafi
(bónda þar) næsta ár, en Guðjón þurfti
á henni að halda um vorið, því að
faðir hans ætlaði að hætta búskap. Tal-
aði Guðjón næst við Ólaf, sem var
tregur að sleppa vinnukonunni þá um
vorið. „Ef ég fæ hana ekki í vor, þá
vil ég ekkert með hana hafa“, sagði
Guðjón. Svo fór að Ólafur gaf hana
eftir og giftu þau sig um vorið. Sig-
ríður kvaðst hafa farið með Guðjóni
austur að Fossi og sýnt hann móður
sinni. „Á ég að taka þig og flengja
þig?“ varð Þórunni að orði er hún
sá Guðjón í fyrsta sinn (ísl. sagnaþ.
og þjóðs.)
Pétur Skytta
var einn Hamborgari, og var hirð-
stjóri og búandi hér á landi. Hann
átti Ástríði Sigmundsdóttur, sú eð var
systir Jóns Sigmundssonar, sá er var
afi herra Guðbrands biskups yfir Hóla-
stifti. Pétur átti tvo sonu, Hannes og
Melkior og tvær dætur, Marínu og
Guðrúnu. Þessi Pétur var veginn af
sínum sjálfs tveimur þénurum, sem þar
til voru keyptir af nokkrum hérlands-
mönnum fyrir einhvers haturs sakir,
nær hann gekk úr baði um veturinn á
föstu. En hans tveir synir drógu til
Hamborgar og tóku mestallan ríkdóm
með sér, einkum kvenlegt skart upp
á 12 jómfrúr, en þær systur báðar,
Marín og Guðrún, urðu hér eftir, og
þessi Marín var mín langamma. En
af þessum áður sögðu Péturssonum
er sögð stór ætt lil Hamborgar sé
afkomin. (Jón Indíafari).