Lesbók Morgunblaðsins - 10.02.1952, Page 15
r LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
59
Fínapunavél
Til eru margar gerðir fínspuna-
véla og margs konar spunaaðferðir,
sem of flókið er að telja hér.
Skoðanir ullarfræðinga eru mjög
skiptar um það, hver spunavélin
sé bezt og mun ég ekki fara út í
það hér. Kambgarnsfínspuni er svo
gjörólíkur þeim venjulega spuna,
sem við þekkjum hér á landi, að sá
sem eigi hefur séð hann, getur
varla ímyndað sér hve vandasöm
spunaaðferðin er í raun og veru.
Nú mun ég reyna að lýsa stutt-
lega hvernig fínspunavélin teygir
og fullspinnur hinn fína kamb-
garnsþráð, sem notaður er í föt, er
milljónir manna klæðast í innst
sem yzt. Margs konar spunavélar
eru til, en þó mun engin geta
spunnið jafn fínan og sléttan þráð
sem „Selfactor“-spunavélin. Þó er
hún nú að missa þann heiðurssess,
sem hún hefur skipað í nær 200
ár, -vegna þess að nýrri og full-
komnari spunakerfi hafa komið
fr^m á seinustu árum, og ber þar
fyrst og fremst að nefna hring-
spunavélina.
Ef við hugsum okkur að bandið
eigi að spinnast í „Selfactor“, er
það fyrst sett á þar til gerðan stól
á bakhlið spunavélarinnar. Fer það
síðan í gegn um margteygju-sívaln-
inga, 5 að tölu, sem haía mismun-
andi snúningshraða og teygja
bandið og slétta, og gefa því jafn-
framt ákveðinn snúð. — Þá taka
spunasnældurnar við, en þær eru
um 600 á kambgarnsspunavélum,
og snúast hratt og allar á sama veg.
Þegar fínbandið er svo fullspunnið,
fer það til næstu deildar, en það
er spólunardeild eða tvinningar-
deild. Og þar með er kominn hinn
fullunni kambgarnsþráður, hár-
fínn, sléttur, mjúkur og sterkur.
HVAÐ ÞÝÐA NÚMER
Á BANDI?
Hér á landi eru nú allmörg fyrir-
tæki, sem á einhvern hátt vinna
úr bandi. Smávejrzlanir og heild-
salar selja band, svo að það eru æði
margir, sem fara höndum um það.
Það er því nauðsynlegt að þessir
menn skilji og geri sér grein fyrir
því eftir hvaða reglum band er
númerað.
Garnnúmer — er íagmenn kalla
svo — geíur upplýsingar um gróf-
leika bandsins. En hvað þýðir þá
númer eða grófleiki bands, sem er
1/8 m/gr, 1/30 m/m eða 1/46 eng.?
Eða hver vegna er band nr. 1/30
m/m grófara en band nr. 1/30 eng.?
Til þess að geta svarað þessum
spurningum verður viðkomandi ,að
þekkja undirstöðuatriðin í númer-
ingu og hin ýmsu atriði, er hún
byggist á.
Ef allt band væri númerað eftir
sömu reglum, væri þetta allt mikið
auðveldara, en svo er því miður
ekki, því að til eru margs konar
númerkerfi, þrátt fyrir ítrekaðar
tilraunir stærstu iðnþjóða heimsins
að koma sér saman um eitt alls-
herjar kerfi.
Á fundi stórþjóðanna, sem hald-
inn var í sambandi við heimssýn-
inguna í Vínarborg 1873, var reynt
að komast að samkomulagi um eitt
alheimskerfi fyrir merkingar á
bandi, en árangur varð ekki mikill,
Þó var þar samþykkt hið svokall-
aða Metrekt-kerfi (System).
Eftir því sem ullarverksmiðjum
fjölgaði og meira var framleitt af
bandi, varð þetta enn brýnna úr-
lausnarefni. Á fundi, sem haldinn
var í Brussel 1874 urðu menn sam-
mála um merkingu á silkiþræði,
að 500 metrar skyldi vega Vz desi-
gram. Árið 1900 var enn haldinn
fundur í París og var þessu þá
breytt þannig, að 450 m af silki-
þræði skyldi vega y2dg og var það
kallað „Denier“. Oft hafa verið
haldnir fundir síðan, en oftast hef-
ur strandað á Englendingum, sem
vilja ha'lda fast við sitt gamla mál,
yards og lbs.
Númering fer nú ýmist eftir því
hvað ákveðin þráðarlengd vegur,
eða öfugt, og er því hægt að skipta
númerakerfum í tvo flokka, lengd-
arnúmeringu og þyngdarnúmer-
ingu.
Hin fyrri segir oss hve margar
lengdareiningar fari í ákveðna
þyngdareiningu, en það þýðir, að
eftir því sem þráðurinn er fínni
því fleiri lengdareiningar fara í
þyngdareiningu, og því hærra
bandnúmer. Þetta er hið svokallaða
Metrekt-kerfi og sýnir hve margir
metrar fara í 1 gr. T. d. kambgarn