Lesbók Morgunblaðsins - 10.02.1952, Síða 8
r LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
f 52 »
Stærsti loftsteinninn
Kringlott vatn, tilsýndar eins og tungl í fyllingu
NYRZT í Quebec-fylki í Kanada
er hérað, sem nefnist Ungava. —
Nafnið hafa Eskimóar gefið og
þýðir það „langt í burtu“. Og að
minnsta kosti er það langt í burtu
frá allri menningu. Þetta er flatt
land og gróðurlítið og þar er engin
mannabyggð, nema hvað Eskimóar
eru þar á stangli. Hérað þetta er
að austanverðu við Hudsonflóa og
gengur allbreiður skagi úr því langt
til norðurs á móts við Baffinsland.
Vetur eru þarna langir, en sumur
stutt, ekki nema svo sem sjö vikur.
Seint í júnímánuði 1943 flaug
veðurathugana flugvél yfir norð-
an verðan skagann og sá flugmað-
urinn þar vatn, sem honum þótti
afar einkennilegt, því að það var
kringlótt eins og tungl í fyllingu.
Mörg vötn voru þarna önnur en
þau voru öll ólík þessu, afiöng og
, vogskorin.
Fimm árum seinna var kanadiska
flugliðið að gera landkort úr lofti
á þessum slóðum, en það er gert
með því að taka ljósmyndir úr loft-
inu. Þessar myndir voru ekki aó-
gengilegar fyr en 1950, en þá sást
á þeim þetta einkennilega vatn.
Kom mönnum þá til hugar að
þanra mundi vera gamall eldgígur,
og ef svo væri, þá mundi sennilegt
að þarna fyndist demantar. Aðrir
\ héldu því fram, að þetta mundi
' vera far eftir ís síðan á ísöld. Enn
aðrir töldu að þarna mundi loft-
\ steinn hafa fallið til jarðar og
^ myndað heljargíg.
^ í sumar sem leið var svo gerður
^ út leiðangur þangað til þess að
| rannsaka þetta, og stóðu fyrir þeim
\ leiðangri „National Geographic
\ Socity“ í Bandaríkjunum og „Roy-
\ al Ontario Museum“ í Kanada.
^ Fóru leiðangursmenn í ílugvél
þangað norður frá þorpinu Rober-
val, skógarhöggsbæ, sem er nyrzt
við jámbrautina um Quebec-fylki.
Flugvélin var af „Catalina“-gerð,
sem Kanadamenn kalla Canso. Var
hún valin með hliðsjón af því hve
mikinn farangur þeir félagar
þurftu að hafa með sér. Eftir tæp-
lega 10 stunda flug lentu þeir á
vatni nokkru skamt frá þessu ein-
kennilega vatni og kölluðu það
„Museum Lake“ til heiðurs við þær
stofnanir, er gerðu út leiðangur-
inn. Þarna völdu þeir sér tjald-
stað. Mátti þaðan sjá að hár hrygg-
ur hafði hlaðist upp umhverfis hið
einkennilega vatn og var eins og
eldgígur tilsýndar. Voru brúnir
hans sums staðar 500 feta háar. En
þegar þeir voru að skoða þetta
hverfjall, kom fljótt í ljós, að hér
hafði ekki orðið eldgos, eða að
minsta kosti hafði það gos þá ver-
ið ólíkt öðrum eldgosum að því
leyti, að því hafði ekki fylgt nein
aska. Fellið var hlaðið upp úr
brotnu stórgrýti, sem afar örðugt
var að komast yfir.
Þegar upp á barminn kom, féllu
þeir í stafi yfir þeirri. fegurð er
þar blasti við þeim. Þeir sáu ofan
í hringmyndaða skál og á botni
hennar kringlótt vatn, svo fagur-
blátt, að þeir höfðu aldrei augum
litið annað eins. En allt um kring
voru endalausar sléttur, eins langt
og auga eygði.
Stutt sýndist niður að vatninu,