Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1982, Blaðsíða 37
DAGBLAÐIÐ & VISIR. MÁNUDAGUR 24. MAI1982.
45
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Með „drottningum og kóngum" á Broadway
Það hefur varla farið fram hjá
neinum að nýlega var íslenzk
stúlka, Gunnhildur Þórarinsdótt-
ir, kosin ungfrú Hollywood í
Broadway við Álfabakka í Breið-
holti í Reykjavík.
Við sama tilefni var valin sólar-
stúlka tJrvals, en sú ferðaskrif-
stofa stendur að þessari ágætu
keppni ásamt Sam-útgáfunni og
veitingahúsinu Hollywood. Þarna
voru því samankomnir ferðaskrif-
stofukóngar, útgáfukóngar, veit-
ingakóngar ásamt hellingi af alls
kyns drottningum. Og allir borð-
uðu svo „Fillet a la queen”. Var
svo einhver að tala um skort á
heldra fólki á Islandi?
Hvað um þaö, myndimar sem
hér fylgja voru teknar á þessu
annars ágæta kvöldi af Einari Ola-
syni, ljósmyndara DV.
-JB
Remhikossar gongu 6 vfxl og allir kysstu alla. Hir óskar fyrrverandi Hollywooddrottnlngln, Valgerður, sólarstúlku
Úrvals, Höllu Bryndísl, tillukku.
„SKÁL
-klúbburinn "
Hvað er Skál-klúbburinn? Hvað í
ósköpunum gera menn í svoleiðis fé-
lagsskap? Þessar spurningar leituðu
óneitanlega á okkur hér í sviðsljósinu,
þegar við fyrir tilviljun komumst að
því að til væri féiag með þessu nafni
hér á landi. Fyrsta hugsunin er aug-
ljós, hana þarf ekkert að útskýra
nánar. En við nánari athugun kom í
ljós að tilgangur samtakanna er alls
ekki sá aö fá átyllu til að lyfta glasi i
góðra vina hópi, heldur miklu merki-
legri og meiri.
Skál-klúbburinn er alþjóðleg samtök
fólks sem starfar að eða tengist ferða-
málum að einhverju leyti. Klúbburinn
var stofnaður í París árið 1932, en hér á
landi hefur hann starfað um tuttugu
ár. Eru meölimir hér nú orðnir um 60,
en alls er talið að félagar í heiminum
nálgist að vera um 26 þúsund talsins.
I lögum um félagsskapinn segir aö
tilgangur hans skuli vera 1. Að stuðla
„Þaö er hvorgl kdtmð eins rækl-
lega og é SoyðisfírOi," sagöi
Jónas Hallgrlmsson um gagnrýni
þé ar fram hefur kom/ð é tolleftir-
lit viö Smyríl.
— Hvað ernú það?
að traustri vináttu og góðum tengslum
þess fólks sem starfar að ferðaiðnaði,
og 2. Að beita sér í gegnum starfið fyrir
auknum skilningi og vilvilja milli allra
manna.
En nafnið, hvaðan skyldi það vera
komið. Reyndar er alþjóðlega heitið
tekið úr sænsku og skrifað „Skál”.
Stofnendurnir, sem komu frá París
eins og fyrr er sagt, höfðu farið í boðs-
ferð til Norðurlandanna. Þar tóku
frændur okkar að sjálfsögöu á móti
þeim með tilheyrandi rausn og síknt og
heilagt glumdi í eyrum þeirra orðið
„skál”. Þeim var síðan tjáð aö þessari
kveöju fylgdu allar hinar beztu óskir
um ókomna daga og fannst því kjörið
að taka nafnið upp þegar klúbburinn
varstofnaður.
Starfsemin hér á landi er töluverð.
Mánaðarlega hittast félagar til hádeg-
isverðarfundar hér í Reykjavík og er
þá fenginn ræðumaður tÚ að f jalla um
ákveðið málefni tengt ferðaiðnaði og
siðan eru umræður á eftir. Þar fyrir
utan er farnar fræðslu- og kynningar-
ferðir innanlands og utan, og reynt að
stuðla að sem beztum samskiptum fé-
laganna.
Þarna mætast hörðustu keppinaut-
ar, jafnt sem nánir samstarfsmenn og
mottó númer eitt er að ræða ekki „bis-
ness” á fundunum.
Þegar við mættum til fundar í Þing-
holti eitt hádegi ekki alls fyrir löngu
voru tæplega þrjátíu félagsmenn og
gestir þar til staðar. Ræöumaöur var
Jónas Hallgrímsson, bæjarstjóri á
Seyðisfirði og talaði hann skörulega
um málefni Smyrils og flutninga á
ferðamönnum hingað til lands. A eftir
urðu hressilegar umræður, enda skipt-
ar skoðanir um ágæti þess að ferjan
skuli losa á Seyöisfirði, og um gagn eöa
ógagn af þeim erlendu ferðamönnum
semmeðskipinukoma. -JB
„Masklna þess opinbora malar hmgt, nama þagar skattar eru annars
vegar, "sagðl Örfygur Hélfdénarson sam stóO upp é fundinum og hvatti
SeyðfírOinga til aO bföa nú akki andalaust eftir hinu opinbera meö aö-
gerOir til náttúruvemdar, hetdur drffa iþaim sjátfir. FyrirmiOri myndmá
oinnig greina formann fálagsins Ólaf Steinar Valdimarsson, deildar-
stjára i samgönguráðuneytinu og þær SigriOi Einarsdóttur og Lillian
Simpson sem báOar eru i stjórn. ....
DV-myndir Fnöþjáfur
Blóm t barminn
Með sveíttB „skelle" set dómnefndln og taldl atkvmðin i meðan gestir skemmtu
sir.
Úr hésætinu steig fram Sam-kóngurinn Þórarinn Jón Megnússon og bauð gesti vel-
komne.
Oleðln rítt að byrja, enda nóttin ung. Úrslltin kunn og þeim fagnað með kempavins-
skálaf Gunnhildlog ÓlaflLaufdal Hollywoodkóngi. DV-myndir E.Ó.