Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1982, Blaðsíða 35
DAGBLAÐIÐ & VISIR. MANUDAGUR 24. MAl 1982.
43
Sandkorn Sandkorn Sandkorn
Islenzkt
fótboltamót
í útlöndum
Landflótti islendinga til
binna Noröurlandanna
reynist mörgum flóttamönn-
unum þungur róöur, þegar á
hólminn kemur. Sérstaklega
togar fósturjörðin sjálf í
hjartataugarnar og margt
héðan þykir næstum ómiss-
andi, þegar allt kemur til alls,
og þótt fólk hafi i rauninni
fláiö „ástandið”. tslendingar
í útlöndum eru því þekktir
fyrir að reyna að lifa sínu
hálfbölvaða, íslenzka lífi, þðtt
famir séu yfir á aðra kletta.
Þannig verða meðal annars
til ails konar Isiendingamót.
Eitt þeirra er Klakmótið, sem
íslendingar búsettir í Dan-
mörku og Svíþjóð halda
áriega. Það er knattspyrnu-
mót með þátttöku hvorki
færri né fleiri en 11 liða! Er
keppt í riðlum og síðan til
úrslita með pompi og pragt.
Síðasta Klakmóti lauk 8.
maí. Ekki veit ég hvaða lið
sigraði þá en árið áður sigr-
aði Kaupmannahöfn.
Mótinu núna var slitið i
Jónshúsi með snæðingi og
síðan opnu húsi með diskóteki
íkjailaranum!
Liðin í Klakmótinu voru
auðkennd þannig: Kaup-
mannahöfn, Kagsákollegíet,
Helsingor, Lundur, Odense,
Horsens, Árhus, Sonderborg,
Uppsalir, Gautaborg, Malmö.
Þetta sýnir, að það era
fleiri en þessir 10 nafntoguðu
fótboltamenn i frægum liðum
sem við islendingar teflum
fram á erlendri grund!
Forseti í
borg Davíðs
Þá er búið að hafa gaman
af kosningunum. Flestir una
við sitt, hvort sem þeir hafa
unnið eða tapað. Skýringar
eru til á öllu, sem gerðist, ef
ekki samanburöur við síðustu
kosningar þá við einhverjar
aðrar kosningar, enda er búið
að kjósa nokkuð oft á öldinni.
Fáir áttuðu sig fyrirfram á
sveiflunni tll Sjáifstæðls-
flokksins þótt spádómar
gengju í þá veru. En nú geta
sjálfstæðismenn tekið fram
kústana og látið hendur
standa fram úr ermum, að
minnsta kosti nokkuð viða og
sérstaklega í höfuðborginni
og nágrenni.
Borgarstjóraefni Sjálf-
AKtarts farsota...
stæðisflokksins, Davíð Odds-
son, hefur þegar iýst þeirri
ósk að aukafundur borgar-
stjóraar á fimmtudaginn
verði skilafundur „vinstri
flokkanna” og upphafsf undur
að endurheimtum völdum
og AMmrt verOur fbrsati i borg
OmvtOi.
sjálfstæðismanna. Þá verður
Davíö formlega kosinn borg-
arstjóri og Albert Guðmunds-
son kosinn forseti í borg
Daviðs.
Er L_.._________
„vinstrs
flokkur„?
Það vakti verulega athygli
í öUu málæðínu fyrir borgar-
stjóraarkosningaraar, að
framsóknarmenn í framboði
ýmist létu því ómótmælt eða
tóku það sér beinlínis í munn
að Framsóknarflokkurinn
hefðl verið og væri einn af
„vinstri flokkunum”.
Hingað til hafa stórskota-
liðar flokksins helzt vUjað
kaUa hann miðflokk þótt
slagsiða hafi komið á af og
tU, þá sitt á hvað til beggja
borða. Nú er Framsóknar-
flokkurinn sem sagt ábyggi-
lega tU vinstri — það sem
hann er.
Eina verkfalls
brotið á kontórn
um
Félög í Sambandi bygg-
'ingamanna hófu skæruverk-
föU með eins dags vinnu-
stöðvun í síðustu viku. Þau
haida áfram nú í vikunni
með tvisvar sinnum eins
dags stöðvun.
Eins og alvöru verkfaUs-
mönnum þykir rétt og
nauðsynlegt, var gerð út
svoköUuð verkfaUsvakt hjá
Trésmiðafélagi Reykjavikur.
Fundust fljótlega tveir smið-
ir með hamra í höndum sem
höfðu ekkl haft tima Ul þess
að lesa fréttir eða hlusta á
fréttir af verkfaUinu. Lögöu
þeir hljóðir niður hamra
sina.
Þá var haldið á kontór
félagsins tii skrafs og ráða-
gerða um frekari verkfaUs-
vaktavinnu. Reyndust þá
tveir menn þar að mæUnga-
störfum sem áreiðanlega
höfðu haft pata af verkfaU-
inu.
Þannig var eina alvarlega
verkfaUsbrotið i verkfaUi
trésmiða i Reykjavik framið
á þeirra eigin kontór.
Herbert Guðmundsson
Kvikmyndir Kvikmyndir
Slagsmálahundarnir Jack WUson (William Smith), Paul Beddoe (Clint
Eastwood) ogkántrýsöngkonanLynne Halsey-Taylor (Sondra Locke).
Austurbæjarbio:Með hnuum og hnefum
Nánast endurtekn-
ing á fyrri mynd
Herti: Með hnúum og hnefum (Any Which Way
You Can).
Loikstjóri: Buddy Van Hom.
Handrit: Stanford Sherman.
Kvikmyndun: David Worth.
Aöalhlutverk: Clint Eastwood, Sondra Locke,
Jack Wilson, Ruth Gordon, William Smrth og
Harry Guuardino.
Sýningarstaður: Austurbœjarbíó.
Það er orðið mjög algengt í amer-
íska kvikmyndaiðnaðinum, að þegar
ein mynd gengur vel er sjálfsagt að
gera framhaldsmynd. Hafa þær
stundum heppnazt betur og má þar
nefna sem dæmi French Connection
n og Godfather II, sem að minum
dómi voru betur heppnaðar en fyrri
myndimar, en oftast er það nú svo að
þær hafa misheppnazt, hefur efnið
ekki þolað útþynninguna. Ein slik er
„Með hnúum og hnefum”. 1 raun er
ekki um framhald að ræða heldur er
hér um hreina endurtekningu á fyrri
myndinni sem hét ,,Any Wich \íáy
ButLoose”. 'j,''
Myndin segir okkur frá bifvéla-
virkjanum Philo Beddoe (Clint
Eastwood) sem fyrir utan að gera
við bíla er meistari i ólöglegu boxi,
þar sem barizt er með hanzkalaus-
um hnefum. Koma einnig við sögu
vinir hans tveir Orville (Geoffrey
Lewis) og apinn Clyde sem stundum
sýnir anzi mannlega takta, vinkonan
Lynne Halsey Taylor (Sondra
Locke) sem endaði fyrri myndina
með því að fara burt frá hetjunni
okkar en er nú mætt aftur full iðrun-
ar.
Myndin byrjar á slagsmálasenu
sem Beddoe ákveður að verði hans
síöasta en tilboð upp á 25.000 dóllara
freistar hans og á hann að slást gegn
alræmdum fanti, Jack Wilson
(William Smith). En atburðarásin
hagar því þannig til að þeir kynnast
og verður vel til vina og ákveður
Beddoe aö hætta við slagsmálin en
glæpaklikan sem kom slagsmálun-
um á sættir sig ekki við það og rænir
Lynne og ætla að halda henni sem
gisl til að fá Beddoe til að slást, sem
tekst, en þó með öðrum hætti en
ætlaðvar.
Eins og óður sagði býður mynþin
nær upp á eintómar endurtekningar
frá myndinni, sömu persónur eru
þama mættar, mótorhjólaklíkan
Svörtu ekkjumar eru komnar aftur
með mjög svo mislukkaðan húmor.
Móðir Beddoe er leikin af Ruth
Gordon og eí hún alveg óþolandi,
yfirleikur hræðilega, en það eru
vinalegar persónur einnig í mynd-
inni og má þar nefna Geoffrey Lewis
í hlutverki hins trygga vinar, Orville,
og ekki má gleyma apanum Clyde
sem hlýtur að htda eitthvað af mann-
legum tilf inningum svo eðlilega gerir
hann hluti sem maður hefði haldið
að dýr gætu ekki. Clint Eastwood er
og leikur alltaf Clint Eastwood. Þótt
hann reyni eins og hann getur að
skipta um ímynd, verður hann alltaf
töffari sem öllum þykir vænt um.
En ekki bjarga leikararnir mynd-
inni. Hún er alltof löng og sem dæmi
má nefna að áhorfendur voru risnir
úr sætum og farnir til dyra löngu
áður en sýningin var búin og á ég
mjög bágt með að skilja hvernig
þessari mynd tókst að vera ein bezt
sótta myndin í Bandarík junum á síð-
astaári.
Hllmar Karlsson.
Kvikmyndir Kvikmyndir
HREINLÆTISTÆKI
Sænsk gæðavara á góðu vcrði.
10 litir — scndum um land allt.
Grciðsluskilmálar
_____20% út — eftirst. alltaðflmén._
°P'° tdaS3 iQ
181,9 ÉarmaByggingavönrHf.
Reykjavíkurveg 64. Hafnarfírði, simi53140.
ElektroSjHelios
Sœnsk úrvalsvara
Lúxus heimilistœki
ó hogstœðu verði!
Elektro Helios-kœlir og frystir
FK 320
299 lítra kælir 37 lítra frystir mál:
59.5 x 60 x 155 cm.
Elektro Helios
uppþvottavél
Lítil og meðfærileg.
Tekur borðbúnað fyrir 4
Mál 47 x 46 x 53 cm.
Elektro Helios kœlir og frystir FF 355
Glæsilegur skápur 190 lítra kælir, 136 lítra
frystir. Mál 59,5 x 60 x 175 cm.
Glœsilegir litir hagstœð
k\ör, staðgr. afsl.
EF
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
BERGSTAÐAST RÆTI 10A - SlMI 16995