Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1982, Qupperneq 23
DAGBLAÐIÐ & VISIR. MANUDAGUR 24. MAI1982.
31
Njarðvík:
Sjálfstæðisflokk-
urinn endurheimti
meirihluta
„Þetta má fyrst og fremst þakka
duglegu og baráttuglööu fólki sem
vann vel og skipulega fyrir kosning-
amar, auk þess sem Sjálfstæöisflokk-
urinn hefur nú verulegan meöbyr í
þjóöfélaginu,” sagöi Áki Gránz,
málarameistari og efsti maöur á lista
D-listans í N jarövík.
Þar endurheimti Sjálfstæöisflokkur-
inn nú meirihluta sinn, fékk 497 at-
kvæði og fjóra menn kjörna. A-listi
fékk 210 atkvæði og tvo menn og B-
listi 179 og einn mann. 96 atkvæöi féllu
til G-listans og 88 til H-lista, framboöa
óháðra, en hvorugur þeirra kom aö
fulltrúa. A kjörskrá í Njarðvík voru
1259 og atkvæöi greiddu 1070, eöa rúm-
lega85%.
„Eg held aö þetta nýja framboö hafi
fyrst og fremst sótt fylgi til okkar, svo
raunverulegurbyr okkar var enn meiri
en atkvæðamagnið sýnir. Er ekki ólík-
legt aö sá hópur muni ganga til
liðs við Sjálfstæöisflokkinn að þessu
loknu,” sagöi Áki.
I bæjarstjóm Njarðvíkur sitja næsta
kjörtímabil: Ragnar H. Halldórsson
(A), Eðvald Bóason (A), Olafurl.
Hannesson (B), Aki Granz (D), Júlíus
Rafnsson (D), Halldór Guömundsson
(D)oglngólfurBárðarson(D). -JB
Djúpivogur:
Óhlutbundin
kosning
Á Djúpavogi var kosningin óhlut-
bundin. Eftirtaldir aöilar vom kjörn-
ir í hreppsnefnd.
Oli Björgvinsson fékk 49 atkvæði,
Ragnar Þorgilsson 42 atkvæöi, Már
Karlsson 38 atkvæði, Karl Jónsson
fékk einnig 38 atkvæöi og Reynir Gunn-
arsson fékk 37 atkvæði. GSG
Hrísey:
Óhlutbundin
kosning
Kosningin í Hrísey var óhlutbundin.
Flest atkvæöi til hreppsnefndar fékk
Ámi Kristinsson, 53. Öm Kjartansson
fékk 41 atkvæði, Björgvin Pálsson 36
atkvæöi, Siguröur Jóhannsson 34 at-
kvæöi og Ásgeir Halldórsson fékk 33
atkvæöi. GSG
Eyrarbakki:
Áhugamenn með
hreinan meirihluta
Á Eyrarbakka vom þrír listar í
kjöri. Urslit urðu þau aö Framsóknar-
flokkurinn fékk 46 atkvæði og 1 mann
kjörinn. Sjálfstæðisflokkurinn fékk 91
atkvæöi og 2 menn kjörna. I-listi
áhugamanna um sveitarstjórnarmál
fékk 148 atkvæöi og 4 menn k jöma.
I hreppsnefnd Eyrarbakkahrepps
sitja því næsta kjörtímabil: Af I-lista,
Magnús Karel Hannesson, Valdimar
Sigurjónsson, Guðmundur Einarsson
og Jón A. Sigurðsson. Af lista Sjálf-
stæöisflokks vom kjörin, Höröur
Stefánsson og Guörún Thorarensen.
Tómas Rasmus náöi kjöri af lista
Framsóknarflokk s.
I síöusta kosningum kom einungis
fram einn ónefndur listi og var hann
þvísjálfkjörinn. GSG
Skagaströnd:
Óbreytt hlutföll
Skipting hreppsnefndarfulltrúa á
Skagaströnd er óbreytt. örlítil
hreyfing varð þó á atkvæðum. Sjálf-
stæöisflokkur og Alþýðubandalag unnu
á en Alþýðuflokkur og Framsóknar-
flokkur töpuðu. Alþýðuflokkur fékk 49
atkvæði og einn fulltrúa, Framsóknar-
flokkur fékk 62 atkvæði og einn full-
trúa, Sjálfstæðisflokkur fékk 127
atkvæði og tvo fulltrúa og Álþýöu-
bandalag fékk 88 atkvæði og einn full-
trúa.
I hreppsnefnd Höföahrepps vom
kjömir: Elín Njálsdóttir (A), Magnús
B. Jónsson (B), Adolf J. Berndsen (D),
Gylfi Sigurðsson (D) og Guömundur
H.Sigurösson (G). -KMU.
Blönduós:
Vinstri menn
héldu velli
Engin breyting varö á hlutföllum á
Blönduósi. H-listi vinstri manna hélt
þar meirihlutanum, fékk 304 atkvæöi
og þrjá menn kjöma en D-listi sjálf-
stæðismanna fékk 224 atkvæði og tvo
menn. Atkvæðahlutfalliö er mjög
svipaö og í kosningum 1978. Þó dró
heldur í sundur með listunum.
Hreppsnefndarfulltrúar veröa nú:
Siguröur Eymundsson (D), Sigurlaug
Friðriksdóttir (D), Hilmar Kristjáns-
son (H), Sturla Þórðarson (H) og
Sigmar Jónsson (H). -KMU.
Garður:
Nýrmeírihluti
sjálfstæðismanna
ogfrjálslyndra
I Geröahreppi vom tveir listar í
kjöri. H-listi Sjálfstæöismanna og
frjálslyndra kjósenda utan flokka og I-
listi óháöra borgara. Meirihlutinn var
í höndum I-listans, en hann féll í kosn-
ingum.
Atkvæði féllu þannig að H-listi fékk
285 atkvæði og 3 menn kjöma. I-listinn
fékk 263 atkvæði og 2 menn kjöma.
Af lista sjálfstæðismanna og frjáls-
lyndra náöu kjöri, FinnbogiBjömsson,
Siguröur Ingvarsson og Ingimundur Þ.
Guönason. Af lista óháöra vorukosnir.
Eiríkur Sigurösson og Viggó
Benediktsson. GSG
Bfldudalur:
Áframhaldandi
meirihluti óháðra
Tveir listar vom í boöi í Bíldudal. K-
listi óháöra kjósenda fékk 114 atkvæði
og 3 menn kjöma. D-listi Sjalfstæðis-
flokks fékk 88 atkvæöi og 2 fulltrúa í
hreppsnefnd. Oháðir kjósendur höföu
fjóra menn í hreppsnefnd og listi
lýöræöissinna einn mann. Sjálfstæðis-
menn buöu ekki fram sérstaklega í síö-
ustu kosningum.
I hreppsnefnd vom kjörnir af lista
óháöra, Magnús Björnsson, Jakob
Kristinsson og Halldór Jónsson. Af
lista Sjálfstæðismanna náðu kjörí
Guömundur Sævar Guðjónsson og
BjarneyGísladóttir. GSG
Hveragerði:
Sjálfstæðismenn
með meirihluta
Hreppsnefndarmönnum íHverageröi
var fjölgað úr fimm í sjö. Urslit kosn-
inganna urðu þau aö Framsóknar-
flokkur fékk 184 atkvæöi og 2 menn
kjöma. Sjálfstæöisflokkur fékk 339
atkvæði og 4 menn kjörna. Alþýðu-
bandalagið fékk 108 atkvæöi og 1 full-
trúa í hreppsnefnd. Eina breytingin nú
var sú aö Sjálfstæöisflokkur bætti við
sig tveimur mönnum og náöi hreinum
meirihluta.
I hreppsnefnd voru kjörin af D-lista,
Hafsteinn Krístinsson, Alda Andrés-
dóttir, Viktor Sigurbjörnsson og Bjami
Kristinsson. Siguröur Jakobsson og
Lovísa Guömundsdóttir voru kjörin af
lista Framsóknarflokks og Auöur
Guðbrandsdóttir af lista Alþýöubanda-
lags. -GSG
Þórshöfn:
Framfarasinnar
misstu
meirihlutann
A Þórshöfn vom að þessu sinni þrír
listar í boöi. Urslit kosninganna urðu
þau aö H-listi óháðra kjósenda fékk 94
atkvæði og 2 menn kjöma. I-listi sam-
taka óháöra kjósenda fékk 48 atkvæði
og 1 mann kjörinn. J-listi framfara-
sinnaöra kjósenda fékk 105 atkvæði. H-
listinn hafði tvo fulltrúa og framfara-
sinnaráttuþrjá.
I hreppsnefnd Þórshafnar vom því
kjörnir, Jósep Leósson og Jónas S.
Jóhannsson af H-lista, Jóhann A.
Jónsson og Þorkell Guöfinnsson af
lista framfarasinna og Kristján
Karisson af I-lista. -GSG.
Hvolsvöllur:
H-listinn með
meirihluta
Aö þessu sinni vom í framboði tveir
listar á Hvolsvelli en 1978 fór þar fram
óhlutbundin kosning.
Urslit kosninganna urðu þau aö H-
listi áhugamanna um málefni Hvols-
hrepps hlaut 213 atkvæði og 3 menn
kjöma. I-listi sjálfstæöismanna og
annarra frjálslyndra fékk 166 atkvæði
og 2 menn kjörna.
Af H-lista taka sæti í hreppsnefnd
Hvolshrepps Böövar Bragason,
Markús Runólfsson og Sveinn Sigurös-
son. Af I-lista voru kjörin Aöalbjörn
Kjartansson og Ingibjörg
Þorgilsdóttir. -GSG.
Stöðvarfjörður:
Óhlutbundin
kosning
Kosningin á Stöðvarfirði var óhlut-
bundin. I hreppsnefnd voru kjörin,
Hafþór Guömundsson sem fékk 106
atkvæði, Bryndís Þóroddsdóttir f ékk 69
atkvæði, Ingibjörg Björgvinsdóttir 61
atkvæöi, Bjarm Gíslason 60 atkvæöi og
Björn Kristjánsson fékk 57 atkvæði.
-GSG.
Þorlákshöfn:
Sjálfstæðisflokkur
bætti við sigmanni
Fjórir listar vom í kjöri i Öifus-
hreppi. Urslit kosninganna urðu þau aö
A-listi jafnaöarmanna og óháöra fékk
134 atkvæði og 1 mann kjörinn. Fram-
sóknarflokkur fékk 158 atkvæði og 2
menn kjörna. Sjáifstæöisflokkur fékk
147 atkvæöi og 2 menn kjörna. H-listi
óháöra kjósenda fékk 151 atkvæöi og’
2 hreppsnefndarmenn.
I hreppsnefnd Ölufshrepps vom
því kjörin Einar Sigurðsson og Kristín
Þórarinsdóttir af lista Sjálfstæöis-
flokks, Þorleifur Björgvinsson og Þor-
varður Vilhjálmsson frá Framsóknar-
flokki, Olafur T. Olafsson og Engilbert
Hannesson af H-lista óháöra og Ásberg
Lárentínusson af lista jafnaöarmanna.
Hreppsnefndarmönnum í ölfus-
hreppi var fjölgað úr fimm í sjö við
þessar kosningar. I kosningunum 1978
fengu sjálfstæöismenn 1 fulltrúa, H-
listi óháðra fékk þá 2, K-listi óháöra og
frjálslyndra haföi 1 mann og Þ-listi
vinstri manna 1 mann. -GSG.
Raufarhöfn:
Framsóknvanná
Urslit kosninganna á Raufarhöfn
uröu þau aö Framsóknarflokkur fékk
76 atkvæði og 2 menn kjörna. Sjálf-
stæðisflokkur fékk 56 atkvæði og 1
mann kjörinn. Alþýðubandalag fékk 47
atkvæði og 1 mann og I-listi óháðra
kjósenda fékk 54 atkvæöi og 1 mann i
hreppsnefnd. Framsóknarflokkurinn
tók því einn mann af Alþýðubanda-
laginu frá því í kosningunum 1978.
I hreppsnefnd á Raufarhöfn náöu
kjöri Þórarinn Stefánsson og Gunnar
Hiimarsson af lista Framsóknar-
flokks, Helgi Olafsson af lista Sjálf-
stæðisflokks, Þorsteinn Hallsson frá
Alþýðubandalagi og Kolbrún Stefáns-
dóttir var kjörin af lista óháöra kjós-
enda.
Eina breytingin á Raufarhöfn frá því
í kosningunum 1978 er sú aö Fram-
sóknarflokkur vinnur einn mann af
Alþýöubandalagi.
-GSG.
VíkíMýrdal:
Sjálfstæðisflokkur
taparmanni
Aö þessu sinni voru þrír listar í kjöri
í Vik í Mýrdal. B-listi Framsóknar-
flokks fékk 108 atkvæöi og 2 menn
kjörna, D-listi S jálfstæðisflokks f ékk 78
atkvæöi og 1 mann kjörinn og Z-listi
umbótasinna fékk 81 atkvæöi og 2
hreppsnefndarmenn.
Reynir Ragnarsson og Guðgeir
Sigurösson voru kjömir af lista Fram-
sóknarflokks. Af D-lista var kosinn
Finnur Bjarnason og Vigfús Þ.
Guðmundsson og Sigriöur Magnús-
dóttir af lista umbótasinna.
Hreppsnefndin í Vík var skipuö
tveimur fulltrúum Sjálfstæðisflokks og
þremur fulltrúum vinstri manna og
óháöra.
-GSG.
Egilsstaðir:
Sjálfstæðisflokkur
vann mann
Sjálfstæðismenn felldu Erling
Garöar Jónasson, sem nú var í fram-
boði á lista óháöra og alþýðuflokks-
manna, úr hreppsnefnd Egilsstaöa-
hrepps. Þaö eru helztu tíöindin úr
kosningunumá Egilsstööum.
Sjálfstæöisflokkurinn bætti viö sig
einum manni, fékk nú 157 atkvæði, sem
er meira en tvöföldun á fylgi frá þvi
síðast, og fékk nú tvo menn í hrepps-
nefnd. Framsóknarmenn stóöu í staö,
fengu nú 219 atkvæði og þrjá menn
kjörna. Alþýðubandalag fékk 171
atkvæði og tvo menn en I-listi óháöra
og alþýöuflokksmanna fékk 66 atkvæði
ogenganmann.
I hreppsnefnd náöu kjöri: Sveinn
Þórarinsson (B), Vigdís Sveinbjörns-
dóttir (B), Þórhallur Eyjóifsson (B),
RagnarO.Steinarsson (D), Helgi Hall-
dórsson (D), Bjöm Ágústsson (G) og
Þorsteinn Gunnarsson (G).
-KMU.
Póstsendum
Póstsendum
AC.MFESTINGA* stórkostleg
SB&gSSr %%usl0PPAR VERÐLÆKKUN
Vinnufatabúðin
- Sími 15425 — Hverf isgötu 26 - Simi 28550
SIÐASTA
ÚTSÖLUVIKA