Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1982, Qupperneq 20
20
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. MANUDAGUR 24. MAI1982.
Norskur stórmeistarí í nánd
■ ■
— Leif ur Ogaard hætti atvinnumennsku og árangurinn lét ekki á sér standa
Norðmenn hafa aldrei átt
stórmeistara í skák. Skákáhuga-
menn þar í landi hafa mátt gera sér
aö góöu aö fylgjast meö skáksnilling-
um á bæjunum í kring. Svíarnir Stolz
og Stahlberg voru frægastir skák-
manna á Norðurlöndum hér áöur
fyrr. Ulf Andersson er eini stórmeist-
ari Svía nú en þeir binda miklar von-
ir viö unga og upprennandi menn —
þar er Lars Karlsson fremstur í
flokki. Danir eiga Bent Larsen, Friö-
rik og Guðmund þarf ekki aö minna á
og nýlega tvöfaldaöist stórmeist-
aratala Finna, er Rantanen gekk til
liðs viö Westerinen. Þá eru Stór-
meistarar Noröurlanda upptaldir —
enginn Norðmaöur.
Almennur skákáhugi er einnig
mjög lítill í Noregi og reyndar
annars staöar á Norðurlöndum einn-
ig. Þar eru Islendingar nokkuö sér á
báti. Skákmenn sem sækja okkur
heim veröa ávallt jafnundrandi á
hinum mikla fjölda áhorfenda sem
fylgist með sýningartöflunum.
Stundum gleyma þeir sér og nota
oröið „áhorfandi” í eintölu, sem al-
gengast mun vera í Skandinavíu og
þar eru sýningartöfl sjaldséö. Og ef
minnzt er á skipulagningu skák-
móta: Ef boriö er saman viö Noröur-
löndin mætti sæma Islendinga
f jórföldum riddarakrossi í þeim efn-
um.
Frá því er þó ein undantekning og
hún er í Noregi. Arnold Eikrem heitir
sá maður, ákaflega vel liöinn og
óþreytandi viö aö skipuleggja og
halda alþjóöleg skákmót á norskri
grund. Þar er samanburður viö Is-
lendinga og aörar Noröurlandaþjóöir
Norðmönnum hagstæöur. Meira aö
segja afar hagstæður. Þeir eru ófáir
titilhafamir sem Eikrem hefur
„framleitt” á þessum mótum sínum.
Reyndar er því svo fariö að þar eru
Svíar í miklum meirihluta, sumum
Norömönnum til mikillar hrellingar.
Obreyttir Svíar eiga það til að læöast
-yfir landamærin og snúa til baka al-
þjóðlegir meistarar, þökk sé
Eikrem. En nú er ávöxturinn af
starfi Eikrems farinn aö koma í ljós
heima fyrir. Á allra síöustu árum
hefur skákin í Noregi tekiö stórt
stökk fram á viö. Og nú er allt útlit
fyrir að draumurinn um norskan
stórmeistara fari aö rætast. Leif
Ogaard náöi tvisvar í röö árangri
stórmeistara, á Eikrem- mótum í
Gausdal og skortir nú aðeins einn
áfanga í viöbót. Næsta mót í Gausdal
er fyrirhugað í ágúst og nú bíöa
Norðmenn spenntir.
Leif ögaard er Islendingum aö
góðu kunnur. Hann hefur teflt tvisv-
ar á Reykjavíkurskákmóti 1974 og
1978. Á mótinu 1974 varð hann alþjóð-
legur meistari og eftir það sneri
hann sér fyrir alvöru aö skáklistinni
sem stundum er nefnt aö gerast at-
vinnumaöur í skák. A næstu árum
tefldi hann mikið en eitthvaö lét
árangurinn á sér standa. Fyrir u.þ.b.
einu og hálfu ári fannst ögaard nóg
komið og sneri baki við skákatvinnu-
mennskunni og fékk sér fasta vinnu.
Síöan hefur hann teflt á tveimur
skákmótum og náð stórmeistara-
árangri í bæöi skiptin. Þetta er eins
og í ævintýri.
Mótiö í Gausdal í apríl var vel skip-
aö, af 28 þátttakendum voru 6 stór-
meistarar og 15 alþjóðlegir meistar-
ar. ögaard varö einn efstur meö 7 v.
af 9, sama vinningshlutfall og hann
fékk í Gausdal í fyrra, er hann náði
fyrri áfanga aö stórmeistaratitlin-
um. Bandarikjamaöurinn De-
Firmian varð annar meö 61/2 v., en í
3.-7. sæti komu Guðmundur Sigur-
jónsson, Griinfeld, Mortensen,
Schiissler, Stean og Wedberg. Ur-
slitaskák Stean og ögaard var æsi-
spennandi. Á endanum vann ögaard
og 1. sætiö og stórmeistaraárangur í
höfn.
ögaard þótti tefla mjög yfirvegaö
og vel á mótinu, enda hefur hann
gefiö út þá yfiriýsingu aö nú tefli
hann einungis ánægjunnar vegna.
Skák hans viö Lars Karlsson er gott
dæmi um þennan hugsunarhátt.
Mjög vel tefld skák af hálfu ögaards
ánægjan hreinlega skín út úr hverj-
umleik.
Hvítt: Leif ögaard.
Svart: Lars Karlsson.
Nimzoindversk vörn.
I.d4 Rf6 2.c4 e6 3.Rc3 Bb4 4.e3 c5
5.Bd3 0-6 6.RÍ3 b6 7.04) Bb7
Algeng staða í þessu afbrigöi, sem
venjulega kemur þó upp eftir aöra
leikjaröð, þ.e. 4.-b6 5.Bb3 Bb7 6.Rf3
0-0 7.0-0 c5 o.s.frv. I bókum er leikja-
röð Karlssons talin ónákvæm vegna
7.d5!? eins og Geller lék gegnSmys-
lovl965.
Skák
Jón L Árnason
8.Ra4 cxd4 9.exd4 Be710-Hel d5?!
Traustara og öruggara er 10.-d6 og
svartur hefur frambærilega stöðu. I
gamla daga var peöameirihluti á
drottningarvæng talinn gulls ígildi.
11.c5 Re4 12.b4 Rd713.BÍ4 Hc814.Hcl
f6?!
Og nú er hugsanlega betra aö leika
14. -a6 og síöan 15.-b5.
15. Bb5! e516.c6! exf417.Db3!
Þrír góðir leikir í röö. Ljóst er aö
gegnumbrot svarts á miðborðinu
veikti aöeins stöðu hans.
17.-Rb818.cxb7 Hxcl 19.Hxcl Dd6
Kannski var Karlsson ánægöur
með stöðuna? Frelsingi hvíts á b7 er
tryggilega skoröaöur og svartur gæti
hafið gagnsókn með -g5-g4. En
ögaard hefur séö lengra.
20. Rc5! bxc5
Ef svartur þiggur ekki riddarann
og leikur t.d. 20.-Kh8, kemur 21.Ra6
og síðan 22.Hc8.
21. bxc5 De6 22.c6 Bd6 23.c7 Bxc7
24.Hxc7.
Svartur komst ekki hjá því aö gefa
manninn aftur. En nú hefur staðan
opnast hvítum í hag.
24.-g5 25.h3 h5 26.Bd3! g4 27.hxg4
hxg428.Re5!
Þetia var hugmyndin meö 26.
leiknum. Ef 28.-fxe5, þá 29.Bxe4.
28.-Rg5 29.Rg6g3
Eftir 29.-Hd8 er 30. Rf4 einfaldast.
Nú má hvítur að sjálfsögðu ekki taka
hrókinn vegna 30.-Del+ og mátar.
30.Dxd5! Dxd5 31.Re7+107 32.Rxd5
Og þar með er gagnsókn svarts
runnin út í sandinn. ögaard var í
tímahraki. Annars heföi Karlsson
gefizt upp.
32.-Ke6 33.Rxf4+ Kd6 34.Hc8 Hf7
35.Hxb8 Kc7 36.Hd8 gxf2+ 37.Kxf2
Kxb7 38.Hd6 Kc7 39.Ha6 Kd7 40.Ha5
Og svartur gafst upp.
LARGERMANN
OG JÁRNSMIÐI
vantar til starfa nú þegar, skilyrði að
lagermaður hafi þekkingu á járniðn.
Uppl. í síma 53822.
Tannlæknastofa
Hef opnað tannlæknastofu að Reykjavíkurvegi 60,
Hafnarfirði. Viðtalstímar í síma 52740 frá kl. 9—5.
HÖRÐUR V. SIGMARSS0N
TANNLÆKNIR
SAMMNNUTRYGGINGAR
Ármúla 3 - Reykjavík - Sími 38500
Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðir sem
skemmzt hafa í umferðaróhöppum:
Fíat 127
Isuzu
VW 1302
Escort
Mazda 323
Citroen
Mazda 929
Suzuki bifhjól
árg. 1974
árg. 1981
árg. 1971
árg. 1974
árg. 1981
árg. 1974
árg. 1977
árg. 1973
og nokkrar fleiri.
Bifreiðirnar verða til sýnis að Skemmu-
vegi 26, Kópavogi, mánudaginn 24/5 ’82
kl. 12-16.
Tilboðum skal skilað til Samvinnutrygg-
inga fyrir kl. 16 þriðjudaginn 25/5 ’82.
íslendingur var liðs-
maður heimsmeistarans
Nýlega lauk í Long Island í Banda-
ríkjunum svæöamóti, sem í sjálfu sér
er ekki markvert. Þaö telst hins vegar
til tiöinda, þegar sigurvegaramir vita
ekki af sigrinum fyrr en nokkru síðar.
Sveit undir forystu Johns Solodar,
eins af núverandi heimsmeisturum í
bridge, var jöfn annarri í efsta sæti en
stuttu eftir leikinn uppgötvuöu Solodar
og tveir félaga hans útreikningsvillu
sem hækkaði þá um eitt vinningsstig
og þar meö hreinan sigur.
Hinir þrír sveitarfélagar Solodars
höföu þá lagt af staö heimleiöis, án
þess aö hafa hugmynd um sigurinn.
Ekki ýkja merkilegt. Jú, því einn af
þremenningunum var íslendingur,
búsettur í Bandaríkjunum, Einar
Guöjohnsen.
Hér er spil frá svæðamótinu, sem
Solodar spilaöi.
Norður gefur/allir á hættu
Vestur Norður * K10874 ^ AKD5 0 _ * G1073 Austur
♦G52 * ÁD3
^ 742
°K972 £ 10863
* Á94 Sudur 652
A 96 ^ G109 0 ADG54 * KD8 Meö Solodar í suöur, gengu sagnir á
þessaleiö: Noröur Austur Suöur Vestur
1S pass 2T pass
2H pass 2G pass
3L pass 3G pass
pass pass
Þetta virðast nokkuö þétt þrjú grönd
— þrír laufslagir, f jórir hjartaslagir og
tveir á tígul — níu slagir. Og vömin
Einar Guðjohnsen
getur ekki fengiö nema fjóra slagi, tvo
á spaða, einn á tígul og einn á lauf.
En ekki er allt sem sýnist. Vestur
hitti á bezta útspilið, sem var hjarta.
Solodar drap í blindum og spilaði laufi
Tö Bridge
Stefán Guðjohnsen
á kónginn. Vestur gaf og nú spilaði
Solodar tígulgosa. Vestur gaf aftur og
það var allt sem Solodar þurfti. Nú
kom laufadrottning og a-v voru
vamarlausir.
Á hinu borðinu var lokasamningur-
inn einnig þrjú grönd og útspiliö var
það sama. Sagnhafi spilaði einnig
tígulgosa í þriöja slag, en nú drap
vestur. Hann skipti siöan í spaöagosa.
Ekki svo slæm vörn, ef austur á A-D-9 í
spaöa, en gagnslaus eins og spiliö var.
Haldi hann hins vegar áfram með
hjarta, þá tapast spiliö vegna sam-
gönguerfiðleika sagnhafa. Vestur gef-
ur þá laufið tvisvar og spilar þriðja
hjarta, þegar hann drepur á laufaás.
Frá Bridgesambandi
íslands
Dregið hefur verið í 1. umferö Bikar-
keppni BSI. Sú sveit sem talin er upp á
undan á heimaleik.
Jóhailní's Sigurösson Keflavík
—Aðalsteinn Jörgensen, Hafnarf.
Aðalsteinn Jónsson Eskifirði
—Araar Hínriksson ísafirðl
Asgeir Sigurbjörnss. Sigluf.
— Þórður Sigurðsson Seif ossi
Ester Jakobsdóttir R.vík
— Þráinn Finnbogason, R.vík
Hannes Gunnarsson R.vik
—Krlstján Kristjánss. Reyðarf.
Signrður B. Þorsteinss. R.vik
—Ármann J. Lárusson Kópav.
Viktor Björasson Akranesi
— Jón Stef ánsson Akureyri
RunóRur Pálsson Reykjavík
— Ferðaskrif stofa Akureyrar
Guðni Sigurbjörasson, R.vik
—Steinberg Rikarðss. R.vik
Sigmundur Stefánss. R.vik
— Berabarður Guðmundsson R.vik
Sveitir Karis Sigurhjartarsonar,
Kristjáns Blöndal, Leif österby, Jóns
Hjaltasonar, Sævars Þorbjömssonar
og Þórarins Sigþórssonar sitja hjá í 1.
umferö.
Bridgesambandiö hefur valið lið til
keppni á Evrópumót spilara yngri en
25 ára. Liðið skipa: Aðalsteinn Jörgen-
sen, Runólfur Pálsson, Siguröur Vil-
hjálmsson, Stefán Pálsson, Ægir
Magnússon og Guðmundur Sv. Her-
mannsson sem er jafnframt fyrirliöi.
Mótiö verður haldiö á Italíu í lok júlí.