Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1982, Page 18
18
DAGBLAÐIÐ & VISIR. MANUDAGUR 24. MAl 1982.
neyða okkur í
þingkosningar
„Viö erum mjög kátar meö okkar
hlut,” sagöi Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, nýkjörinn borgarfulltrúi, en hún
skipaöi 2. sæti lista Kvennaframboös.
„Þetta er svipað og viö reiknuöum
meö. En borgarstjórn er ekki nema lít-
ill hluti af þessu. Við erum komnar af
staö meö geysilega öfluga hreyfingu,
eins og sást á skemmtun okkar í Laug-
ardalshöll og eins og sést á kosningun-
um. Þetta er ekki hreyfing sem snýst
aöeins um þessar kosningar. Það er
r.iiklu meira sem hangir á spýtunni.
Þaó skiptir ekki miklu máli aö hafa
einn eöa tvo fulltrúa í borgarstjórn.
Aöalatriöiö er aö hafa virka hreyfingu
utan borgarstjórnar.
Viö ætlum aö vera mjög virkar í
minnihlutanum í borgarstjórninni.
Okkar málflutningur mun beinast aö
þeim málum sem viö erum með á
stefnuskrá. Við munum fyrst og fremst
vinnaaðþeim.”
— Hvaö um framboð til Alþingis?
„Viö höfum haft framboð í þing-
kosningum svona í flimtingum. En
meö svona framkomu í kosningabar-
áttunni neyða flokkarnir okkur sjálf-
sagt út í þingkosningar. Þaö er a.m.k.
ljóst aö eftir aö hafa kynnzt svona
framkomu flokkanna gagnvart okkur
get ég ekki ímyndað mér aö nokkur
okkar geti hugsaö sér aö kjósa þá.
Flokkarnir sýndu okkur velvild fyrst
en þegar þeir sáu aö viö vorum ógn viö
þá sneru þeir blaöinu viö og sýndu okk-
ur allt annaö andlit. Þeir settu
kosningavélar sínar í gang og reyndu
aö hræöa fólk til fylgis viö sig.
Mér finnst málflutningur þeirra
gegn okkur alls ekki hafa verið mál-
efnalegur. Þeir sögöu aö viö heföum
enga stefnu, byggöu á gömlum for-
dómum gagnvart konum, að þær vissu
ekki í hvom fótinn þær ættu aö stíga.
Ég er alveg viss um aö fylgi viö okk-
ar málstað er miklu meira en kosning-
arnar núna segja. Hræöslubandalag
flokkanna fór í gang á síðustu dögum
fyrir kosningar og ég gæti trúaö aö það
hafi haft áhrif. Auðvitaö höföum við
ekkert aö gera í þessar flokksmaskín-
ur. En ég er sannfærö um aö fylgi okk-
ar er mjög traust,” sagði Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir.
-KMU.
Mikill fögnuður varð i herbúðum Sjálfstæðismanna þegar fyrstu tölur úr Reykjavík komu i útvarpi og
sjónvarpi. Friðrik Sophusson varaformaður Sjálfstæðisflokksins og Markús Örn Antonsson borgarfulltrúi
fagnaihópiflokksmanna. (DV-myndEinarÓiason).
Megum vel við una
miðað við aðra
— segir Kristján Benediktsson, ef sti maður á lista
Framsóknar í Reykjavík
„Þaö er tiltölulega gott hljóöið í mér, iö hefur um allt land má Framsóknar- vegna held ég aö fólk hafi fremur valið
því miðaö viö þá hægri sveiflu sem orö- flokkurinn vel viö una. Við bættum til einn flokk við stjórn, en fjóra saman
Ekki persónulegláfall
einn eöa neinn
fyrir
— segir Sigurður E.
Guðmundsson,
borgarfulltrúi
Alþýðuflokksins
„Viö erum auövitaö mjög vonsviknir
yfir þessum úrslitum sem upp koma
um allt land og þetta kom okkur ger-
samlega á óvart, þrátt fyrir aö
skoðanakönnun DV hafi skotiö okkur
skelk í bringu til að byrja meö,” sagöi
Sigurður E. Guömundsson, eini borg-
arfulltrúinn sem náöi kjöri fyrir
Alþýöuflokkinn í Reykjavík.
„Mér finnst þessi úrslit mjög óverö-
skulduö og óvæginn dómur yfir starfi
borgarfulltrúanna okkar síöasta kjör-
tímabil, því ég tel aö þau hafi staðið sig
mjög vel. Og ég stend enn á því fastar
en fótunum aö meirihlutasamstarf
vinstri flokkanna hafi lánazt vel. Sjálf-
stæðisflokkurinn fær þetta mikla fylgi
þrátt fyrir störf sín í minnihluta síðast-
liöin f jögur ár, en ekki vegna þeirra.”
Nú kemur þú nýr inn í efsta sæti list-
ans hér í Reykjavík. Líturöu á þetta
sem persónulegt áfall?
„Nei, langt í frá. Mér finnst enginn
þurfa að taka þetta á sig persónulega,
því þessi útkoma er sú sama um allt
land.”
Kanntu einhverjar skýringar á
þessu fylgishruni?
„Þetta er ótvírætt liöur í þeirri þóun
sem staðið hefur síöan í haustkosning-
unum 1979. Þá datt flokkurinn niður í
mikla lægö sem hann hefur alls ekki
Sigurður E. Guðmundsson
náö sér upp úr ennþá. Ég fann inn á
þetta í kosningabaráttunni að áhuga-
leysi fólks var mikið og grunaði aö
svona gæti jafnvel fariö. Mér finnst
hins vegar athyglisvert aö Alþýöu-
flokkurinn kemur verst út, þar sem
kvennalistar koma fram. Til dæmis er
ég sannfæröur um að annar fulltrúi
kvennaframboösins hér í Reykjavík
kemur frá okkur — og hinn frá Alþýðu-
bandalaginu.”
Teluröu aö þetta muni kalla á ein-
hverja uppstokkun í forystuliði flokks-
ins?
„Nei, viö erum komnir yfir öll slík
bernskubrek. Nú liggur beint viö að
setjast niöur í sátt og samlyndi og
kryfja til mergjar hvaö þaö er sem
raunverulega vantar, endurskoöa
stefnuna og endurskipuleggja starf
flokksins í heild. En ég hef enga trú á
aö miklar breytingar veröi á forystu-
liöi Alþýöuflokksins neins staðar á
landinu. Viö erum langt frá því að gef-
ast upp og munum nú ganga enn
haröar fram í baráttunni,” sagöi Sig-
uröur.
-JB
dæmis viö okkur atkvæöum og einum
fulltrúa hér í Reykjavík og erum eini
flokkurinn úr fyrrverandi meirihluta
sem ekki fær alvarlegt áfall,” sagöi
Kristján Benediktsson, efsti maður á
lista Framsóknarflokksins í Reykja-
vík. B-listinn fékk sem kunnugt er tvo
fulltrúa inn núna, í staö eins áður.
Er einhver ein skýring umfram aöra
á því aö Framsóknarflokkurinn held-
ur, einn vinstri flokkanna, velli?
„Ég held aö fólk hafi einfaldlega
metið viö okkur ábyrg og traust störf
hér í borginni og okkar hlut í fyrra
samstarfi. Svo vorum viö með gott fólk
á lista, sem allt átti sinn þátt í aö
tryggja okkar stööu.”
En þessi hægri sveifla sem nú verö-
ur, á hpn sér einhverjar augljósar
skýringar?
„Það hefur nú löngum verið svo aö
þegar Sjálfstæðisflokkur er í stjórnar-
andstööu á alþingi, kemur hann vel út í
sveitarstjórnarkosningum, ekki sízt
í Reykjavík. Sjálfstæðismenn hafa oft
fengið meira atkvæöamagn hér heldur
ennúna.”
Áttiröu þá jafnvel von á þessum úr-
slitum?
„Ekki segi ég það nú, en þau koma
manni minna á óvart en ella. Það sem
ég er mest undrandi á er þetta mikla
hrun Alþýðuflokksins. Þá er ég sann-
færöur um aö framboö kvenna, til
dæmis hér í Reykjavík, átti stóran þátt
í velgengni Sjálfstæöisflokksins. Þaö
var yfirlýst af hálfu hans aö hann vildi
hreinan meirihluta, þeir voru ekki til
viðtals um samstarf viö aöra. Þess
eins og upp heföi komið með tilkomu
kvennaframboðs. ’ ’
En áttu von á aö þessi úrslit breyti
einhverju um stööu ríkisstjórnarinn-
ar?
„Nei, Framsóknarflokkurinn vinnur
á í þessum kosningum þrátt fyrir setu
sína í ríkisstjórn og Alþýðubandalagiö
hefur þegar lýst því yfir aö þessi úrslit
muni ekki breyta neinu um störf
hennar.”
Kristján Benediktsson
Kvennaframboðsfóik laust upp fagnaðarópi er fyrstu tölur sýndu að framboðið hefði borið árangur og
tværkonuraf listanum komnariborgarstjórn. (DV-myndEinar).
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, annar af
borgarfulltrúum Kvennaf ramboðsins:
Flokkarnir
DV-mynd: Einar Ólason.
Ingibjörg Sólrún Gisladóttir.