Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1982, Blaðsíða 17
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. MÁNUDAGUR 24. MAl 1982.
17
jr Lesendur Lesendur Lesendur
„I minni gómiu og góðu sveit var ein samkoma árviss (svo sem raunar i öðr-
um sveitum), en það var hundahreinsunin. 1 minni sveit var samkoma þessi
stíð nefnd hundaþingið,” segir í bréfi „gamals sveitamanns,” sem komið
hefur auga á spaugilega samlíkingu.
HVAD ER ÞAÐ í
FRÉTTUM SEM
MINNIR A
HUNDAMNG?
Gamall sveitamaöur í Rangárvalla-
sýslu skrifar:
I fásinni sveitanna á árum áður
tíðkaðist mjög, einkum þó meðal barna
og unglinga, að láta geta gátur eins og
það var nefnt. Nú er þessi gamla og
saklausa skemmtun að mestu aflögð
og er það illa farið. Nú langar mig — þó
í litlu sé — að leggja eina gátu fyrir
lesendur DV, en óhjákvæmilega verð
ég að hafa formála nokkum fyrir
gátunni.
I minni gömlu og góðu sveit var ein
samkoma árviss (svo sem raunar í
öðrum sveitum), en það var hunda-
hreinsunin. I minni sveit var samkoma
þessi ætíð nefnd hundaþingið. Tiltek-
inn dag á ári hverju var hundaeig-
endum gert að iaœta á heimili þingfor-
seta, þ.e. hundahreinsunarmannsins,
með hunda sína. Til þessa þinghalds
fór ég með hvutta mína — hvern fram
af öðrum — um rúmlega 30 ára skeið.
Þinghaldiö fór fram í rúmgóðri hrossa-
tröð skammt frá bæ þingforseta. Ekki
var langt liðið á þinghald þegar
hundarnir fóru að láta ófriðlega hvar
af gerðist ærinn hávaði, og gat þá
orðið erfitt um vik með samræður hjá
hundaeigendum. Þó komst nokkum
veginn til skila helftin af tali þeirra
sem raddsterkir voru og í þeim hópi
var þingforseti. t'eiryaddveiku reyndu
eftir mætti aö láta til sin heyrast, hvaö
þó gerði litla stoð og voru sumir þeirra
eins og raddrifnir hanar á haug að
loknu þinghaldi.
Menn reyndu eftir bestu getu að
þagga niður í hundum sinum og sögðu:
„Skammast ’ín helvítið þitt,” eða
„svei ’ér bölvuð, afmánin ’ðín”, en
forseti sagði aðeins: „Hvaða læti eru
þetta, greyin mín,” enda bölvaði hann
sjaldan. Og raunar var þar ekki um
bölv að ræða; þetta voru vita kraftlaus
gælunöfn á andskota og helvíti. Oftar
en ekki ruku hundar saman og uröu
eigendur að skilja þá í sundur. Sumir
settu ófriðarseggina upp í stall traöar-
innar, en aðrir skorðuöu hunda sína
milli fóta sér og eftir það urðu þessir
herskáu hundar að gera sér að góðu að
gelta, urra og ýlfra með hausinn fram
úr klofi eigandans eða uppi í stalli. (Til
að útiloka hugsanlegan misskilning skal
það tekið fram, að stallur í hrossahúsi
þjónar sama tilgangi og jata í fjárhúsi.
Orðið jata þekkist einnig í annarri
merkingu, en það er önnur saga).
Yfirleitt tóku hundarnir illa við
meöalinu og sumir slaglokuðu
kjaftinum og varð þá að opna hann
með valdi með þar til sérhönnuöu
ginkefli og miöinum síðan hellt ofaní
þá. Þegar inntakan fór að verka á
hundana rann af þeim mesti víga-
móðurinn. Þeir gjóuðu glymunum
skömmustuiega hver tU annars,
læddust lúpulegir með veggjum eða
lögðust niður. Þegar ailt var full-
komnaö var hundunum hleypt út, en
hundaeigendur gengu heim til bæjar
þingforseta þar sem borð svignuðu
undan kaff i og ríkulega útilátnu með-
læti.
Hér lýkur formála, og nú kemur
gátan: Hvað er það í fréttum fjöl-
miðla á undanfömum vikum sem æ
ofani æ hefur minnt mig á sam-
komurnar í hrossatröðinni forðum?
Gettunú!
Hljómsveitin Þeyr í
nasistagervi
—apað eftir háttalagi mordingja, segir
furðu lostinn lesandi
Hope Knútsson iðjuþjálfi skrifar:
Föstudaginn 14. þ.m. varð mér geng-
ið inn í stofu, þegar verið var að sjón-
varpa þættinum Skonrokki, og varð ég
furðulostin.
Hljómsveitin Þeyr kom þar fram
íklædd nasistabúningum og var allt
kapp lagt á að apa eftir háttalagi
þeirra morðingja, eins og um hvert
annað skemmtiatriði væri aö ræða.
Spígsporaö var i gæsagangi fram og
aftur með forsetasetrið Bessastaði í
bakgrunni. Auk þess var þama aftöku-
atriði, með meiru, svona rétt til þess aö
auka afþreyingargildi þessarar
„skemmtunar.”
Mér finnst það vera mikið ábyrgðar-
ieysi aö stuðla að því aö gera nasism-
ann „sniöugan” — hvemig sem farið
er að því. Það er ekkert „smart” að
íklæðast gervi fjöldamorðingja, eða
koma þeirri hugsun að hjá þeim
aldurshópi, sem er of ungur til þess aö
vita betur.
ÞETTA
KÁPUR
f,ssaS'Wáf5''’**55'
sumartízkunDL
Laugavegi 54 Reykjavík — sími 11232
Hafnargötu 16 Keflavfk — sími 92-3222