Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1982, Qupperneq 6
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. MANUDAGUR 24. MAl 1982.
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
-s
ff
Stýringin á kartöfíusölunni er röng,”
„Vegna sífelldra blaðaskrifa um
lélegar íslenzkar kartöflur á mark-
aönum get ég ekki lengur setiö hjá
og þagað,” sagði Sveinn Yngvason.
Hann kom við hér í ritstjóm DV með
kartöflupoka úr Þykkvabænum.
Kartöflur þær sem Sveinn kom
með hingað hafa verið átta mánuöi í
geymslu fyrir austan og er ekki að
sjá spíruvott á þeim. Staðfest getum
við áður en lengra er haldið aö kart-
öflurnar voru soðnar og borðaðar og
reyndust þær afbragösgóðar. Þetta
eru gullauga-kartöflur, mjölmiklar
og þéttar.
,,Að vísu er leið kartaflnanna frá
framleiðendum i Þykkvabænum á
borð neytenda nokkuð löng í gegnum
Grænmetisverzlun landbúnaðarins
og geymslu í verzlunum, en frá
framleiöendum koma þær svona.”
Sveinn Yngvason, sem tehir sér
máliö skylt vegna tengsla við fram-
leiðendur austur í Þykkvabæ, sagði
einnig aö honum heföi oft ofboðið
ranglæti yfirvalda í þessum málum,
telur hann m.a. að stýringin á kart-
öflusölunni sé röng.
„Matsmaður ríkisins er ábyrgur
fyrir talningu á kartöflubirgðum
framleiðenda og fara mælingar fram
eftir uppskeru á haustin,” sagði
Sveinn, ,,en greinileg brotalöm er i
talningunni. Yfirvökl hafa ekki
raunhæfar tölur. Eftir talningu á
haustin er sett upp tafla yfir birgðir
og ef rétt væri staðiö að málum ættu
allir kartöfluframleiðendur á land-
inu að vera samtímis búnir með
sínar birgðir. En svo er ekki, óveru-
leg hreyfing er á sölu kartaflna frá
Þykkvabæ fyrr en um áramót.
Stærstu kartöfluframleiðendur hér á
landi, þ.e. í Þykkvabænum, sitja ekki
við sama borð og aðrir. I dag eiga
þeir einir eftir birgðir eða eitthvert
umtalsvert magn. Telja þeir að þær
birgöir endist fram í júnímánuö. En
ráöamenn sögðu í marzlok aö aöeins
væri eftir á öllu landinu um 30% af
framleiðslu síöasta árs. I Þykkvabæ
var þá eftir um 60% af framleiðsl-
unni.Eg hef því þá skoðun að birgða-
tölur séu hreinar ágizkunartölur.”
Viltu úskýra nánar hvers vegna
framleiðendur í Þykkvabæ sitja ekki
viö sama borð og aðrir framleiðend-
ur kartaflna?
„Meðal annars vegna þess að
salan er dræm fram að áramótum.
Bændur í Þykkvabænum hafa að
vísu mjög góðar geymslur fyrir
framleiðsluna, betri geymslur en
flestir aörir, en á að hegna þeim fyrir
það? Geymslugjald kemur raunar
inn í söluverð, en þaö gjald kemur
ekki upp á móti áhættu og rýmun. Og
— segir Sveinn Yngvason m.a. í viðtalinu
* .
Bændur fyrir austan flokka kartöfl-
umar áður en þær eru sendar til
Reykjavíkur. Hér sjáum við fjóra
flokka. Þær minnstu lengst til hsgri
á myndinni eru reyndar ekki taldar
söluhsf ar af matsmönnum.
annaö, ég nefndi áðan að birgðatölur
væru ágizkunartölur. Ef framleið-
andi gefur upp hærri tölur en birgðir
hans eru raunverulega eru meiri lik-
ur á því að fyrr séu þær teknar af
honum af miðstýringarvaldinu. En
það er nauðsynlegt að hreyfing sé á
birgðunum, kartöflurnar geymast
■<--------------m.
Svona líta kartöflurnar út eftir upp-
töku, reyndar eftir geymslu i allan
vetur og áður en þær eru flokkaðar
austur í Þykkvabœ.
verr í yfirfuHum húsum. Það er ddd
fyrr en á vordögum sem fjirkippur
kemur í söluna fyrir austan.
Því má einnig bæta við að núna í
maímánuði hafa bændur varla
undan vegna söluþunga, á þeim tíma
sem þeir eru famir að huga að því að
koma útsæði niður.
Hefur vélvæðingin slæm áhrif á
kartöfluframleiðsluna?
„Það hefur oft komið frá yfirmats-
manni að vélvæðingin væri til
skaða,” svaraði Sveinn, en þessar
kartöflur sem ég er með hér, líta ekki
þannig út eöa hvað segja neytendur?
Ef hverfa ætti frá vélvæðingu í
kartöfluframleiðslu væri það ámóta
skynsamlegt og að allir sem stunda
sjávarútveg færu á handfæraveiðar.
Vélvæðingin stuðlar að því að
nægilegt magn sé til af þessari
vöru í landinu og þaö gerum viö ekki
með því að hverfa 40 ár aftur í
timann meö vinnubrögö. En ég vil
taka fram að vélvæðingin getur verið
til skaða ef henni er misbeitt. Fram-
leiðendur hafa almennt þá skoðun að
þegar kartöflum er margþvælt í
gegnum vélar til flokkunar geti
það verið til skaða. Það segir sig
sjálft að það rýrir geymsluþol kart-
aflnanna.”
Þá hafði Sveinn Yngvason ýmis-
legt að segja um flokkun kartafln-
anna. Benti hann m.a. á að minnsta
möskvastærð í flokkun þeirra væri 35
mm. En vegna aöstæöna hér á
landi, veðurfars og annarra
aðstæðna væri stór hluti framleiðsl-
unnar undir þeirri stærö. Að margra
mati væri litlar kartöflur, 33—35
mm, mjög bragðgóðar og eftir-
sóknarverð vara, m.a. á veitinga-
húsum. Því mætti ekki leggja það
undir dóm neytenda hvort þeir vilji
mismunandi stærðir af kartöflum?
En eins og flestum mun kunnugt
hafa Þykkvabæjarbændur hafið
framleiöslu á „Parísarkartöflum”
til að vinna úr smæstu kartöflunum.
Sveinn gat þess í upphafi viðtals
okkar að leið kartaflnanna á borð
neytandans væri löng. Fram-
leiðendur væru yfirleitt sakaöir um
lélega vöru, en frá þeim koma þær
eins og þær kartöflur sem sjást hér
á meðfylgjandi mynd og hafa verið
flokkaðar. Staðreynd er að kartöflur
eru kælivara, en í verzlunum eru þær
ekki geymdar í kæli. Ef kartöflur
eru geymdar í eldhúshita í 5—6 daga
verða þær fljótt útlitsljótar og linast,
helzt á að geyma þær í köldum
geymslum í heimahúsum eða innan
við 10 gr. hita. Grænmetisskúffur í
ísskápum eru mjög góðar geymslur
fyrir kartöflur. -ÞG.
„HOLLENZKAR KART-
ÖFLUR Á MARKAÐINN
EFTIR HVÍTASUNNU"
— segir Jóhann Jónasson forstjóri Grænmetisverzlunar landbúnaðarins
„Islenzkar kartöflubirgðir verða á
þrotum upp úr hvítasunnu og þá reikn-
um við með að set ja hollenzkar kartöfl-
ur á markaðinn,” svaraöi Jóhann
Jónasson forstjóri Grænmetisverzlun-
ar landbúnaðarins þegar blm. DV
hafði samband við hann i framhaldi af
viötalinu við Svein Yngvason. Okkur
lék einmitt forvitni á að vita hvenær
þeir hygðust setja erlendar kartöflur
á markaðinn með hliðsjón af því magni
sem enn er til i landinu.
„Við byggjum birgðatölur á mats-
manni og framleiðendum, þær tölur
eru stundum á reiki. Eitthvert magn er
enn eftir i landinu af uppskeru siöasta
árs, meginmagnið austur í Þykkvabæ,
en líka á örfáum stööum öðrum.”
Jóhann var einnig spurður um
möskvastærð sem notuð er við flokkun
erlendis væri reglan sú aö miða
minnstu stærð kartaflna við 35 mm
stærð. Einnig spuröum viö um
stýringuna á sölunni.
„A haustin er aðallega sótzt eftir
Bintje-kartöflum og af þeirri kartöflu-
tegund framleiða þeir lítið í Þykkva-
bænum. Þess vegna getur verið að
hlutföllin skekkist örlítið þeim í óhag.”
Jóhann Jónasson svaraði líka spum-
ingunni um geymslu kartaflna i
verzlunum, hvort henni væri ábóta-
vant.
„Við höfum reynt að haga dreifingu
okicar þannig að komið er í hverja
verzlun tvisvar í viku. Auðvitað er
betra að mikil hreyfing sé á kartöflu-
birgðum í verzlunum, þær vilja
skemmast viö langa geymslu. Því
leggjum við áherzlu á örari dreifingu. ”
-ÞG
Ofháttverðá
nýrri línuýsu
— ýsan verður að seljast á leyf ilegu
verði sama hvernig hún er veidd
Jóhannes Gunnarsson hringdi frá
Verðlagsstofnuninni:
Vegna greinar sem ég sá í DV um
fiskverð þá vil ég þar við bæta að
hámarksverö á nýrri ýsu er það eina
sem gildir, hvemig sem ýsan er
veidd, eða hvort hún er langt að sótt.
Fisksalar hafa ekki leyfi til þess að
leggja 10% ofan á hið leyfilega verð.
Verðlagsstofnun hefur ákveðið að
senda kærur til Rannsóknarlögreglu
ríkisins á hendur þeim verzlunum
sem selja nýja ýsu á hærra verði en
heimilt er. Leyfilegt hámarksverð er
krónur 13,15 fyrir kílóið á slægöri og
hausaðri ýsu, 24,10 kílóverð á flökum
án þunnilda og nætursöltuð ýsuflök
kosta 25 krónur hvert kíló.
-RR