Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1982, Page 4
4
DAGBLAÐIÐ & VISIR. MANUDAGUR 24. MAl 1982.
Sjálfstæðisf lokkurinn vann mann á Akureyri en...
Valgerður Bjamadóttir, efsti maöurá lista Kvennaframboðsins á Akureyri, lengst til vinstri. SigfríÖur Þor-
steinsdóttir, sem vari ööru sœti, situr á milli Guörúnar Hallgrímsdóttur og Láru Erlingsen. (DV-mynd GS).
Kvennaframboðið
er í oddaaðstöðu
„Þaö er greinilegt að fulltrúar
Kvennaframboösins eru í oddaað-
stöðu,” sagði Gísli Jónsson, efsti
maöur á lista Sjálfstæðisflokksins á
Akureyri.
„Við endurheimtum fylgið frá 1974
og meira en það og náðum því mark-
miði aö hnekk ja vinstri meirihlutanum
sem verið hefur hér í átta ár,” sagði
Gísli.
Kvennaframboðiö á Akureyri er sig-
urvegari kosninganna þar, fékk tvo
menn kjörna af ellefu í bæjarstjórn.
Sjálfstæðisflokkur vann einn mann og
er nú meö fjóra. Alþýðubandalag og
Alþýðuflokkur töpuöu hvort sínum
manni.
Alþýðuflokkur fékk nú 643 atkvæði
og einn kjörinn, fékk 1.326 atkvæði árið
1978, Framsóknarflokkur fékk 1.640 at-
Gísli Jónsson
kvæði (U537 árið 1978), Sjálfstæðis-
flokkur fékk 2.261 atkvæði (1.735 árið
1978), Alþýðubandalag fékk 855 at-
kvæði (943 árið 1978) og Kvennafram-
boð fékk 1.136 atkvæði. Samtökin buðu
fram árið 1978 og fengu þá 624 atkvæði
og einn mann.
Bæjarfulltrúar á Akureyri eru nú:
Freyr Ofeigsson (A), Sigurður Oli
Brynjólfsson (B), Sigurður Jóhannes-
son (B), Ulfhildur Rögnvaldsdóttir
(B), Gisli Jónsson (D), Gunnar Ragn-
ars (D), Jón G. Sólnes (D),Siguröur J.
Sigurösson (D), Helgi Guðmundsson
(D), Valgerður Bjarnadóttir (V) og
Sigfríöur Þorsteinsdóttir (V).
Alþýðuflokkur, Alþýðubandalag <
Framsóknarflokkur og fulltrúi Sam-
takanna stóðu aö meirihluta í bæjar-
stjórn Akureyrar með samtais átta
fulltrúa að baki en hafa nú saman að-
eins fimm. Kvennaframboðiö er því í
oddaaðstöðu, eins og Gísli Jónsson
sagði hér að framan. -KMU.
/ Húsavík:
ALÞYÐUFLOKKUR-
INN VANN MANN
Eina breytingin sem varð í bæjar-
stjómarkosningunum á Húsavík var
sú að Alþýðuflokkurinn vann 1 mann af
Alþýðubandalaginu. „Eg myndi segja
að við værum sigurvegarar kosning-
anna fyrir hönd Alþýðuflokksins yfir
allt landið,” sagði Gunnar Salómons-
son sem skipar efsta sætið hjá Alþýðu-
flokknum. „Það er stefna okkar sem
hefur sigrað því hún er stórhuga. En
það hefur hjálpað okkur að við höfum
verið litlir, minnstir í minnihlutanum
og höfum engan vondan málstað að
verja.”
Alþýðuflokkurinn fékk í þessum
kosningum 240 atkvæði og 2 menn
kjörna, Framsóknarflokkurinn fékk
432 atkvæði og 3 menn, Sjálfstæðis-
flokkurinn fékk 274 og 2 menn og
Alþýðubandalagiö fékk 342 atkvæði og
tvo menn en hafði 3 menn áður.
Af lista Alþýðuflokksins munu sitja í
bæjarstjórn Gunnar B. Salómonsson
húsasmiður og Herdís Guömundsdóttir
húsmóðir, af lista Framsóknarflokks-
ins eru Tryggvi Finnsson forstjóri,
Aðalsteinn Jónasson húsasmiöur og
Sigurður K. Sigurðsson deildarstjóri.
Af lista Sjálfstæðisflokksins eruKatrin
Eymundsdóttir bæjarfulltrúi og Hörð-
ur Þórhallsson bæjarfulltrúi og af lista
Alþýðubandalagsins eru Kristján Ás-
geirsson útgerðarmaður og Jóhanna
Aðalsteinsdóttir húsmóðir. -ÖEF
Dalvík:
Framsókn fékk meirihluta
„Þetta kom mér mjög mikið á óvart
eftir það sem á undan var gengiö hér í
bænum,” sagði Kristján Olafsson, efsti
maður á lista framsóknarmanna til
bæjarstjómarkosninga á Dalvík, í
samtali við DV. Þar uröu úrslit all-
óvænt, því Framsóknarflokkur fékk
hreinan meirihluta, 342 atkvæði og
f jóra menn k jöma, en hafði þrjá áður.
Úrslit urðu þau að Alþýðuflokkur
fékk 96 atkvæöi og einn mann, Jón
Baldvinsson, en hafði engan áður.
Sjálfstæðisflokkur fékk 148 atkvæöi og
einn mann, Helga Þorsteinsson, En
Alþýðubandalagið kom inn kven-
manni, Svanfríði Jónasdóttur og fékk
123 atkvæði. Báöir þessir flokkar hafa
því tapað einum fulltrúa frá siðustu
kosningum. Þeir sem í bæjarstjórn
fara af lista Framsóknarflokks, utan
Kristjáns, em Guðlaug Bjömsdóttir,
Gunnar Hjartarson og Oskar Pálma-
son.
„Eg held aö þennan sigur megi fyrst
og fremst þakka frábæru starfi fram-
bjóðenda og stuðningsmanna undan-
farinn mánuð, auk þess sem við höfö-
um mjög sterkan málefnalegan grund-
völl og lögðum fram ítarlega stefnu-
skrá fy rir kosningarnar.
Konumar tvær, sem nú setjast í
bæjarstjórn á Dalvík, em þær fyrstu
sem því starfi gegna þar.
-JB
Ólafsfjörður:
VINSTRIMEIRIHLUT-
INN HÉLT VELLI
Vinstri meirihlutinn hélt velli á
Olafsfirði en þar vom boðnir fram
tveir listar, D—listi Sjálfstæðisflokks
og H—listi, sameiginlegt framboö
vinstri flokkanna.
Sjálfstæðisflokkur vann þó allveru-
lega á, fékk 293 atkvæöi og þrjá menn
kjörna en haföi tvo áöur. H—listinn
fékk 346 atkvæöi og f jóra menn í stað
fimm áöur. Á kjörskrá á Olafsfirði
vom 720 en atkvæði greiddu 639.1 bæj-
arstjórn næsta kjörtímabil verða fyrir
D—lista: Jakob Ágústsson, rafveitu-
stjóri, Birna Friðgeirsdóttir, húsmóðir
og Oskar Sigurbjörnsson skólastjóri,
en fyrir H—lista Ármann Þórðarson,
útibússtjóri, Bjöm Þór Olafsson
íþróttakennari, Sigurður Jóhannsson,
framkvæmdastjóri og Gunnar Jó-
hannsson bóndi.
„Við reiknuðum með ákveðnu fylgis-
tapi og fimmti maðurinn stóö mjög
tæpt i síðustu kosningum. Meiri hlutinn
er áfram okkar svo þetta boðar engar
breytingar,” sagði Ármann Þórðarson
fyrsti maður á H—lista. „Við erum
auðvitaö ánægðir með árangurinn og
þakklátir fyrir traustið sem okkur er
sýnt. Það er ljóst af þessu að fleiri en
Sjálfstæðismenn hafa valiö D—listann.
Þetta fer fram úr björtustu vonum, því
þriðji maðurinn var mjög ömggur en
það var markmið okkar að ná honum
inn,” sagði efsti maður D—listans,
JakobÁgústsson. -JB
Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði Svo mælir Svarthöfði
Kjósendur taka til á háaloftinu
Nýr forustumaður á stjórnmála-
sviðinu hefur kvatt sér hljóðs með
eftirminnilegum hætti. Davíð Odds-
son, sem tekur við borgarstjóraem-
bætti í Reykjavík á næstu dögum,
leiddi Sjálfstæðisflokkinn til sigurs i
borgarstjóraarkosningunum í fyrra-
dag, og mun af þeim sökum taka sæti
í forustuliði flokksins, þar sem hann
mun hasla sér völl til frambúðar eins
og fyrri borgarstjórar Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík. Það eru
auðvitað alltaf mikil tíðindi þegar
ungur stjóramálamaður vinnur til
slíkrar stöðu, en fleiri tíðindi er auð-
vitað að hafa úr niðurstöðum sveitar-
stjóraarkosninganna, sem marka
nokkur þáttaskil í stjórnmálum
landsins. Lokið er hinni linnulausu
og hörðu aðför Alþýöubandalagsins,
sem um tíma virtist vera búið að
leggja undir sig bæði Framsókn og
Alþýðuflokk hér í Reykjavík. Fram-
sókn slapp ein með nokkurn veginn
heilu skinni úr þeirri viðureign, en
Alþýðuflokkurinn tapaði bæði hér í
Reykjavík og á landsmælikvarða.
Ástæðan til að Framsókn kom til-
tölulega vel út úr kosningunum er
fyrst og fremst sú, að enn er litið á
flokkinn sem milliflokk, sem leitar
samvinnu við aðra flokka eftir því
sem aðstæður leyfa. Sú jafnvægislist
getur verið erfið, og hefur verið það
um sinn, einkum vegna þess að völd
sin hefur Framsókn þráfaldlega sótt
í skjól Alþýðubandalagsins á liðnum
árum, bæði í rikisstjóra og borgar-
stjóra Reykjavíkur. Þessi samvinnu-
náttúra hefur gengið svo langt, að
Framsókn bauð fram sameiginlega
með Alþýðubandalaginu í Mosfells-
sveit, svo dæmi sé nefnt. Fyrir milli-
flokk að ganga svo skarplega í bland
við andstæðan flokk býður hættum
heim. Andstæðingar Framsóknar
nefna flokkinn gjaraan vinstri flokk
um þessar mundir, og þeim fjölgar
stöðugt í f orustuliði flokksins, allt frá
hugmyndasmiðum til ráðherra, sem
kenna flokkinn við vinstri, og vilja
með þeim hætti engan greinarmun
gera á honum og Alþýðuflokki og
Alþýðubandalagi.
Ekki verður með neinu móti séð
hvar Framsókn ætlar að hasla sér
völl á vinstri væng stjór.imála, svo
þéttsetinn er bekkurinn þar. Þangað
færi hann aðeins til að deyja. Sem
milliflokkur er hann hins vegar
nauösynlegur, og sem milliflokkur
var hann kosinn að þessu sinni.
Sú stóra sveifla fró vinstri, sem
kosningaúrslitin sýna kemur auðvit-
að Sjálfstæðisflokknum fyrst og
fremst til góða. Hún nær einnig til
Framsóknar að hluta, þar sem
flokksmenn hafa ekki verið uppfullir
með smitið úr Alþýðubandalaginu.
Dæmi um þetta er árangur Fram-
sóknar á Suðuraesjum, þar sem
stefna Olafs Jóhannessonar hefur
ráðið i Helguvíkurmáli og sigur
stjóraarandstöðu, þar sem mál ál-
versins hefur áhrif. Skýringin á sigri
Sjálfstæðisflokksins almennt er auð-
vitað sú staðfesta, sem hann hefur
sýnt í viöhorfum til vestrænnar sam-
vinnu, og á rætur að rekja til öfga-
lausrar og þjóðlegar skynsemi-
stefnu.
Kjósendur hafa visað frá sér hug-
myndum Alþýðubandalagsins, sem
hafa verið allsráðandi um sinn, um
stóraukin rikisafskipti og dýra sam-
neyslu, sem komin er langt út fyrir
skynsamleg mörk, og kemur fram í
aukinni skattheimtu á flestum svið-
um. Engu að síður eru nú tímar
mannúðarstefnu og er það vel. Henni
verður hms vegar að vera hagað
þannig á hverjum tíma, að þjóðfélag-
ið geti risið undir henni. Henni er
ekki ætlað að skapa stöðugan ótta
hjá þeim, sem fyrst og fremst þurfa
að borga fyrir hana. Það er auðvitað
ljóst aö Sjálfstæðisflokkurinn hefur
fyrir löngu samþykkt og tekiö í sátt
helstu undirstöðugreinar svonefndr-
ar samhjálpar. En hann lifir ekki
sínú pólitíska lífi fyrst og fremst til
að framleiða lög og reglugerðir um
samhjálp.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur aftur
tekið við stjórn Reykjavíkur. A-
flokkarair liggja í sárum og Fram-
sókn er að hluta laus frá vinstri villu.
Þannig hafa kjósendur tekið til í hús-
inu um sinn, og geta nú horft eilítið
bjartari augum tU framtíðar en áð-
ur. Svarthöfði