Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1982, Side 2
2
DAGBLAÐIÐ & VISIR. MANUDAGUR 24. MAI1982.
Akranes:
FRAMSÓKN OG
SJÁLFSTÆÐIS-
FLOKKUR BÆTTU
VIÐ SIG MÖNNUM
— Meirihlutinn með áfengisútsölu
„Þetta er bezta útkoma sem við
höfum fengið síðan 1942,” sagði Valdi-
mar Indriöason, efsti maöur á lista
Sjálfstæöisflokksins á Akranesi, en D-
listinn fékk nú 1110 atkvæöi og fjóra
menn kjörna en hafði þrjá. ,,Ég kann
enga eina skýringu á þessu og þori
engu að spá um breytingar á meiri-
hlutasamstarfi, það mál þarf aö kanna
mjög ítarlega,” bætti hann við.
I bæjarstjórninni hafa Alþýðuflokk-
ur, Sjálfstæöisflokkur og Alþýðu-
bandalag myndaö meirihluta síðasta
kjörtímabil og Framsóknarflokkur því
verið einn í andstöðu. B-listinn kom
mjög sterkur út úr kosningunum núna,
fékk 857 atkvæði og þrjá menn kjörna,
en hafði tvo áður. Jón Sveinsson, efsti
maöur B-listans:
„Við erum auðvitað ákaflega ánægö.
Þessi sigur á sér margar skýringar.
Við höfum haldiö uppi haröri gagnrýni
á fráfarandi meirihluta og virðast
fleiri hafa viljaö breytingar. Þá hefur
það einnig skipt miklu að á lista okkar
var gerð mikil breyting núna. Þeir þrír
sem fara inn hafa ekki setið í bæjar-
stjórn áður og eru þar aö auki allt
Vitretex sandmátningin er hæfiiega gróf utanhússmálning.
Ekki grófari en þaö að regn nær að skola
ryk og önnur óhreinindi af veggjum.
Og Vitretex sandmálning er óhemju sterk utanhússmálning
og endingargóð, það sanna bæði veðrunarþolstilraunir
og margra ára reynsla
NÝ LITAKORT Á ÖLLUM SÖLUSTÖÐUM
S/ippfé/agið íReykjavíkhf
Máiningarverksmiöjan
Dugguvogi
Simi33433
HÆMEGA GROF
Meirihlutí kjósenda á Akranesi er þvi meömmitur aö áfenglaútsala veröi opnuö / bænum. Fylgjandi voru
1.430en á mótí voru 1.240.
unngt fólk. B-listinn var eini listinn
sem bauð upp á einhverjar breyting-
ar.”
A Akranesi voru 3302 á kjörskrá,
atkvæði greiddu 2762. Atkvæðin skipt-
ust þannig. A-listi 397 B-listi 857, D-listi
1110 og G-listi 402. Bæjarstjórn Akra-
ness verður þannig skipuð: Guðmund-
ur Vésteinsson (A), Jón Sveinsson
(B), Ingibjörg Pálmadóttir (B), Stein-
unn Sigurðardóttir (B), Valdimar Ind-
riðason (D), Guðjón Guðmundsson
(D), Hörður Pálsson (D), Ragnheiður
Olafsdóttir (D), Engilbert Guðmunds-
son (G).
Nú það var einnig gengiö til
atkvæðagreiðslu um hvort opna ætti
áfengisútsölu í bænum. Fylgjendur
þess reyndust vera 1430, en á móti voru
1240. Allt útlit er því fyrir að styttra
verði fyrir Akurnesinga að nálgast
dropann í framtíðinni, en verið hefur.
-JB
Hafnarfjörður:
Alþýðubandalag missti mann
til Sjálf stæðisf lokks
„Þetta stóð svo tæpt síðast með
annan mann af okkar lista, að við viss-
um að baráttan yrði hörð. En ég hefði
þó frekar átt von á því að Alþýðu-
flokkurinn tæki þetta fylgi frá okkur,”
sagði Rannveig Traustadóttir sem
skipaði efsta sæti G-listans í Hafnar-
firði, en Alþýðubandalagið missti í
kosningunum um helgina einn fulltrúa
yfir til Sjálfstæðisflokks.
Fulltrúatala annarra flokka stendur
óbreytt en atkvæði skiptust sem hér
segir: A-listi 1336 og tveir fulltrúar, B-
listi 621 og einn fulltrúi, D-listi 2391 og
fimm fulltrúar, G-iisti 796 og einn
fulltrúi og H-listi félags óháðra borg-
ara 1239 og tveir fulltrúar.
„Mér finnst þó athyglisvert þegar
þessar tölur eru skoöaðar að hægri
sveiflan sem orðið hefur um allt land,
er minni hér í Hafnarfiröi en annars
staöar, svo ég held viö getum tiltölu-
lega vel við unað,” sagði Rannveig
ennfremur.
Bæjarstjóm Hafnarfjarðar mun
samanstanda af eftirtöldum
fulltrúum: Guðmundur Arni
Stefánsson (A), Hörður Zophaniasson
(A), Markús Á. Einarsson (B), Arni
Grétar Finnsson (D), Sólveig Agústs-
dóttir (D), Einar Þ. Mathiesen (D),
Ellert Borgar Þorvaldsson (D)
Haraldur Sigurðsson (D), Rannveig
Traustadóttir (G) Vilhjálmur G.
Skúlason (H) og Andrea Þóröardóttir
(H). Síðastliðin fjögur ár hafa
Sjálfstæðisflokkur og óháðir myndað
meirihluta i bæjarstjóm með sex full-
trúa af ellefu.
Á kjörskrá í Hafnarfirði voru 7680,
en atk væði greiddu 6383.
-JB
Keflavík:
Meirihlutinn jók fylgi sitt
I Keflavík hafa Sjálfstæðisflokkur og
Framsóknarflokkur myndað saman
meirihluta síöastliöin 12 ár. Báðir
þessir flokkar juku fylgi sitt í kosning-
unum um helgina, Sjálfstæöisflokkur-
inn þó mun meira. Bætti hann við sig
einum manni á kostnað Alþýðuflokks-
ins.
„Þetta fór langt fram úr björtustu
vonum manna svo við erum vægast
sagt mjög ánægðir hér,” sagði Tómas
Tómasson, sparisjóðsstjóri efsti
maöur D-listans. Hér virðist talsvert
af iausu fylgi sem aldrei er hægt að
reikna út fyrirfram, en fólk hefur með
þessu lýst ánægju með framkvæmdir
og störf bæjarstjórnarinnar síðasta
kjörtímabil. Persónulega finnst mér
ekkert því til fyrirstöðu að sami meiri-
hlutisitjiáfram.”
„Eg er auðvitaö óánægður með að
missa þriðja manninn, en það má
kannski segja að það fylgi sem við
fengum 1978 hafi veriö óeðlilega mikið.
AUa vega staðfestir þetta aö það er
meö öllu óraunhæft að miöa raunveru-
legt fylgi flokkanna við úrsUt kosninga
hverju sinni,” sagði Olafur Bjömsson
útgerðarmaður og efsti maöur á Usta
Alþýðuflokks.
I Keflavík greiddi 3431 atkvæði, en á
kjörskrá voru 4143. Atkvæði skiptust
þannig: A-listi 918, B-Usti 805, D-listi
1345 og G-Usti 363. Næstu bæjarstjóm
skipa eftirtaldir: Ölafur Björnsson
(A), Guöfinnur Sigurvinsson (A),
Hilmar Pétursson (B), Guöjón
Stefánsson (B), TómasTómasson (D),
Kristinn Guðmundsson (D), Helgi
Hólm (D), Hjörtur Zakaríasson (D) og
Jóhann Geir dal Gíslason (G).
-JB
Spennandi kosning á Sauðárkróki:
Kratar töpuðu manm
„Meirihlutinn sem var hefur misst
styrk sinn. Sem stærsti flokkurinn
teljum við framsóknarmenn ekki óeðli-
legt að við leiðum næsta meirihluta,”
sagði Magnús Sigurjónsson, efsti
maður á lista Framsóknarflokksins á
Sauðárkróki.
Nokkrar breytingar urðu á hlut-
föUum í bæjarstjórn Sauðárkróks sem
valda því að mynda þarf nýjan meiri-
hluta. Sjálfstæöisflokkur, Alþýðu-
flokkur og fulltrúi Samtaka frjáls-
lyndra og vinstri manna mynduðu
meirihlutann á síðasta kjörtímabih en
í kosningunum nú tapaði Alþýðu-
flokkurinn fuUtrúa sínum. FuUtrúi
Samtakanna er hins vegar inni í bæjar-
stjóm sem fulltrúi K-Ustans.
Framsóknarflokkurinn vann nú einn
mann. Sjálfstæðisflokkur og Alþýðu-
bandalag héldu sínu.
Fulltrúi Alþýöuflokksins féU á
örfáum atkvæðum og K-listann
vantaöi einnig aðeins örfá atkvæði í
að ná sínum öðrum manni. Fjórði
maður Framsóknar var rétt fyrir ofan
þá tvo. Það var því mjög naumt á
Króknum.
Framsóknarflokkur fékk annars 406
atkvæði og fjóra menn, Sjálfstæðis-
flokkur 369 atkvæði og þrjá menn, K-
Usti 200 atkvæði og einn mann, Alþýöu-
bandalag 153 atkvæði og einn mann og
Alþýðuflokkur 100 atkvæði og engan
mann.
Bæjarstjóm skipa nú: Magnús
Sigurjónsson (B), Sighvatur Torfason
(B), Bjöm Magnús Björgvinsson (B),
Pétur Pétursson (B), Þorbjöm
Arnason (D), Aöalheiður Arnórsdóttir
(D), Jón Ásbergsson (D), Stefán
Guðmundsson (G) og Hörður
Ingimarsson (K).
Hvammstangi:
Framsókn fékk flest atkvæði
Listakosning var á Hvammstanga í
fyrsta siirn í tuttugu ár. Þrír Ustar vom
boðnir fram en enginn náði hreinum
meirUiluta. B-Usti Framsóknarflokks
fékk 136 atkvæði og tvo menn kjörna.
G-listi Alþýðubandalags fékk 81
atkvæði og einn fulltrúa og L-listi
frjálslyndra fékk 108 atkvæði og tvo
menn.
Hreppsnefnd Hvammstangahrepps
verður því þannig skipuð: Brynjólfur
Sveinbergsson (B), Gunnar V. Sigurðs-
son (B), Matthías HaUdórsson (G),
Kristján Björnsson (L) og Karl Sigur-
geirsson(L). -KMU.