Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1982, Blaðsíða 1
Sjálfstæðisflokkurinn sigurvegari í Reykjavík:
Með þriðja mesta fylgi í hálfa öld
—Kvennaf ramboðið náði þriðju hæstu atkvæðatölu framboðslistanna f imm
Sjálfstæöisflokkurinn varö óumdeildur sigurvegari í borgar-
stjómarkosningunum í Reykjavík á laugardaginn, fékk 52,5% at-
kvæða og 12 af 21 borgarfulitrúa. Flokkurinn fékk 47,4% 1978 og 7
fulltrúa af 15. Þá náöi Kvennaframboðiö þriöju hæstu atkvæða-
töhi framboðslistanna fimm, fékk 10,9% og tvo fulltrúa. Alþýðu-
bandalagið fékk nú 19,0% og 4 af 21, en fékk 1978 29,8% og 5 af 15
borgarfulltrúum. Framsóknarflokkurinn fékk 9,5% og 2 af 21, en
1978 9,4% og einn af 15. Loks fékk Alþýðuflokkurinn nú 8,0% og
einn af 21 en 1978 13,4% og 2 af 15.
Atkvæðahlutfall Sjálfstæðisflokksins nægði honum að sjálf-
sögðu til hreins meirihluta. Það er þriðja mesta fylgi flokksins í
Reykjavík síðan 1934, aöeins 1974 og 1962 fékk hann meira fylgi,
57,8% í hvorum kosningunum.
Hér á eftir fer samanburðarlisti yfir atkvæðatölur flokka (lista
í Reykjavík í fernum síðustu borgarstjórnarkosningum, fulltrúa-
tala fylgir atkvæðatölunum:
1982 1978 1974* 1970
Alþýðufl. 3.949-1 8,0% 6.250-2 3.034-1 4.601-1
Framsfl. 4.692-2 9,5% 4.368-1 7.641-2 7.547-3
Sjálfstfl.
Alþbl.
Kvennafr.
S.f.o.v.
25.879-12
9.355-4
5.387-2
52,5%
19,0%
10,9%
22.100-7
13.864-5
26.973-9
i 8.512-3
20.902-8
j 7.167-2
3.106-1
Þetta eru þeir flokkar (listar) sem fengið hafa kosna borgar-
fulltrúa í siðustu fsmum kosningum. Árið 1974 er fært undir Al-
þýðuflokkinn sameiginlegt framboð hans og Samtaka frjáls-
iyndra og vinstri manna.
HERB
Ptr tókstþaO, Davfðl Birglr Islaifur Gunnarsson og DaviO Oddsson féllust I faOma er IJÓst var aO SjátfstmOisfíokkurinn hafOi endurheimt meirihlutun,
í Reykjavik. (DVmynd: Einar Ólason)
Kosninga-
úrslitábls.2,4,
14,19,30,31
og42
Viðtöl við Kristján
Benediktsson, Ingi-
björgu Sólrúnu
Gísladótturog
Sigurð E. Guðmunds-
son á bls. 18
115. TBL. — 72. og 8. ÁRG. — MÁNUDAGLR 24. MAÍ1982.
ftfálsl, éháð dagblað
Sjálfstæðisflokkurinn með hreinan meirihluta í borgarstjóm á ný:
„Byrjum á aö gera
úttekt á fjármákmum”
—segir Davíð Oddson, sem tekur við sem borgarstjóri á f immf udaginn
„Það eru allmörg verk sem við
blasa. Við munum byrja á að gera út-
tekt á fjármálum borgarinnar, sem
standa mjög illa. Það er ekki til
fjármagn til að greiða umsamdar
verðbætur á laun fram að áramótum.
Siðan munum viö snúa okkur að skipu-
lagsmálunum og undirbúa brotthvarf
frá því að byggt verði við Rauöavatn.
Það eru einnig fáar byggingalóðir
tilbúnar í Reykjavík og þeim þarf að
fjölga þannig að nægilegt framboö
verði,” sagðiDavíð Oddsson, nýkjörinn
borgarstjórí í Reykjavík er hann var
spuröur hver yrðu hans fyrstu verk í
því embætti.
Sjálfstæðismenn hafa farið fram á
sérstakan aukafund í borgarstjóm nk.
fimmtudag til að ganga frá stjómar-
skiptum og þá verður kosinn borgar-
stjóri, forseti borgarstjórnar og
varaforsetar og í borgarráð. Þeir hafa
nú hreinan meirihluta í borgarstjóm,
12fulltrúaaf21.
Er ekki frágengið að Albert
Guömundsson verði forseti borgar-
stjórnar?
„Það er ekkert frágengið í þeim
efnum. Við sjálfstæöismenn munum
koma saman og ræða þessi mál í okkar
hópi. Viö komum saman í fyrsta sinn í
dag og munum ákveða þetta á fundi á
miðvikudag. En það er ekki óeðlilegt
að mönnum detti í hug að Albert verði
forseti borgarstjórnar því að hann var
fyrsti varaforseti í síðustu borgar-
stjórn S jálfstæðisflokksins.”
En hverju vill Davíð helzt þakka
þennan sigur.
„Ég þakka þennan sigur fyrst og
fremst sterkri stöðu Sjálfstæðisflokks-
ins í borgarstjórn. Vinstri flokkarnir
vom okkur einnig mjög hjálplegir.
Störf þeirra og stefna gaf fyllilega til
kynna að skipta þyrfti um meirihluta í
borginni.
Þá var kosningabarátta Alþýðu-
flokks og Framsóknarflokks ákaflega
sérstök. Taumlausar árásir forystu-
manna Alþýðuflokksins á Sjálfstæðis-
flokkinn, með orðavali sem ekki hefur
tíðkazt í íslenzkum stjórnmálum í tvo
til þrjá áratugi, átti mikinn þátt í
hversu illa fór fyrir flokknum.
Slagorð Framsóknarflokksins virt-
ust vera sótt á einhverja auglýsinga-
stofu og voru ekki í neinu samræmi við
fyrri stefnu flokksins. Alþýðubanda-
lagið sat uppi með „samningana í
gildi” og allan sinn auma feril í þeim
efnum.
-OEF
Alvegsátturvið
þessi úrslit
— segir Egill Skúli
Ingibergsson
Egill Skúli Ingibergsson er enn
borgarstjóri í Reykjavík en situr þó
varla mikið lengur úr þessu miöaö viö
úrslit kosninganna um helgina. Hann
var ráðinn til starfans af vinstri meiri-
hlutanum og er fyrsti ópólitíski borgar-
stjórinn sem hér hefur starfaö. Hvað
finnst honum um úrslitin?
„Eg held að ég sé alveg sáttur við
þau. Það benti allt til þess að svona
mundi fara. Minn ráðningartími er nú
á enda, en ég losna þó ekki fyrr en
haldinn hefur verið fyrsti fundur í
nýrri borgarstjórn. Það bendir allt til
þess að það verði á fimmtudag svo þá
get ég kvatt stólinn.”
Hvernig þótti þér sú umfjöllun sem
þú og þitt embætti fenguð fyrir
kosningarnar?
„Mér fannst þetta nú hálfgerður
klaufaskapur í stjórnmálamönnunum
að leggja slíkt ofurkapp á mikilvægi
minna starfa í staö þess aö ræða önnur
og mikilvægari málefni.”
Sérðu eftir borgarstjórastólnum?
„Þetta hefur verið skemmtilegt og
viðburðaríkt tímabil. Borgarstjóra-
starf er þess eðlis að þar koma aldrei
dauðir punktar, sífellt er verið að fást
við eitthvað nýtt og alltaf nóg að gera.
Eg sé ekki eftir embættinu sem slíku,
frekar þeim fjölbreytileika sem starfiö
býðuruppá”.
Hvað tekur svo viö?
„Það er nú alveg óljóst ennþá. Sem
verkfræðingur hef ég alla tíð unniö að
störfum sem tengjast virkjunar-
málum, en það er ómögulegt að segja
hvaðframundaner.” .jg