Morgunblaðið - 31.08.1997, Blaðsíða 48
48 SUNNUDAGUR 31. ÁGLIST 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FOLKI FRETTUM
MYIMDBOIMD
Hættuleg
hvatvísi
Fálkinn og snjómaðurinn
(The Falcon & The Snowman)
Spcnnumynd
★ ★ ★ ‘A
Framleiðendur: Gabriel Katzka og
Hemdale. Leikstjóri: John Schles-
inger. Handritshöfundur: Steven
Zailiian eftir skáldsögu Roberts
Lindsay. Kvikmyndataka: Allen
Daviau. Tónlist: Pat Metheny og
Lyle Mays. Aðalhlutverk: Timothy
Hutton, Sean Penn, David Suchet
og Dorian Harewood. 126 mín.
Bandaríkin. Orion Pic./Háskólabíó
1997. Myndin er bönnuð bömum
innan 16 ára.
MYNDIN er byggð á sannsögu-
legum atburðum og segir frá
Christopher sem fær vinnu hjá
þjónustufyrir-
tæki CIA. Hon-
um mislíkar
hvernig leyni-
þjónustan
meðhöndlar
ýmsar upp-
lýsingar og
selur þær
því leyni-
þjónustu
Sovétríkjanna. Sér til hjálpar
fær hann gamlan félaga sem
nú er eiturlyfjasali, en hann
fer brátt að taka hlutverk
sitt mjög alvarlega.
Fálkinn og snjómaðurinn er
magnþrungin mynd, sem er frá-
bærlega vel upp byggð. Spennan
í myndinni felst ekki í hamagangi
og eltingaleik, heldur í tauga-
spennu augnabliksins. Myndin er
góð og djúp persónulýsing á
tveimur ungum mönnum, öðrum
siðblindum og hinum í uppreisn.
Handritið er mjög gott og myndin
er tæknilega vel unnin á allan
hátt, enda ekki við öðru að búast
frá herra Schlesinger, sem hefur
þó örlitið misstigið sig seinustu ár.
Leikaravalið er fullkomið, og
það er mjög gaman að sjá þá
Hutton og Penn svo unga að árum.
Þeir eru mjög ólíkir leikarar og
túlka hér jafnólíkar persónur. Það
er skiljanlegt að Penn hafi orðið
að stjörnu eftir þessa mynd. Hann
er mjög barnalegur útlits og það
verður jafnvel undarlegt á köflum
að sjá þennan hjáróma ungling
túlka þennan siðblinda aula af
þvílíkri snilld. Hutton er stendur
sig einnig mjög vel, en það reynir
minna á hann sem leik-
ara þar sem persónan
hans er mun eðlilegri og
með minni persónuleika-
bresti. Það hefði reyndar
verið skemmtilegra að fá
að sjá hann í dýpri per-
sónu, með því að gera and-
úð hans á föður sínum
meiri, og gefa það í skyn
að hann sé í raun að gera
uppreisn gegn honum sem
gömlum FBI manni, með
því að selja upplýsingar til
Sovétríkjanna. Lori Singer
er frekar léleg í því litla og
leiðinlega hlutverki sem hún
er í sem kærasta Christoph-
ers. Hún segir varla neitt og
er hlutverk hennar í myndinni
í raun óþarft. En fyrst það
er til staðar hefði þurft að
hafa það veigameira til þess
að áhorfandi finni til með
þeim skötuhjúum þegar á
reynir.
Ég mæli eindregið með
þessari taugaspennumynd sem
gott og gaman er að rifja upp
frá því í gamla daga. Hún sýnir
að Háskólabíómenn eru að gera
góða hluti með því að endurút-
gefa eldri myndir og vekja þannig
athygli á betri myndum seinni ára.
Hildur Loftsdóttir
Erum flutt í glæsilegt
húsnæðiað Dalshrauni 11.
8 vikna fitubrennslunámskeið hefjast 8. september.
0 HífdRWiWlfl
Þú mætir tvisvarí viku í hjóiatíma og
einusinni í tæki.
J
ÁTAK f Fitubrennslu
ÁTAK 3x í viku / fjölbreytt leikfimi.
Viktun
Cm mæling
Frððleiksmappa
Uppskriftabók
Átaks korthöfum er leyfilegt að nýta
sér opnatíma í leikfimi, Spinning-hjóla
og tækjasal.
Látum okkur líða vel f betra
formi og mætum í átak.
HRESS
Takmarkaðu fjöldi.
Skráning hafin í síma 565-2212
LÍKAMSRÆKT OG LJÓS
Dalshraun 11 • Viö Keflavíkurveginn • Sími 565 2212
Alls konar
konur
Swann________
D r a m a
★ ★ 'A
Framleiðandi: Shaftesbury Films &
Greenpoint Films. Leikstjóri: Anna
Benson Gyles. Handritshöfundur:
David Young eftir skáldsögu Carol
Shields. Kvikmyndataka: Gerald
Packer. Tónlist: Richard Rodney
Bennett. Aðalhlutverk: Miranda
Richardson og Brenda Fricker. 90
mín. Bandaríkin. Majestic
Films/Myndform 1997. Myndin er
öllum leyfð.
METSÖLUHÖFUNDURINN
Sarah Maloney (M.R.) er að safna
sér efni í bók um kanadíska ljóð-
skáldið Mary
Swann, sem var
drepin af manni
sínum á hrotta-
fenginn hátt.
Sarah fer á
heimaslóðir
Mary og hittir
þar fyrir Rose
(B.F.) einu vin-
konu hennar,
sem nú er búin að koma á fót safni
í minningu skáldsins. Saman kom-
ast konurnar tvær að því að eitt-
hvað undarlegt er á seyði í sam-
bandi við ljóðin.
Það besta við þessa mynd er
hversu raunsönn hún er og heildar-
ljóminn sem af henni stafar. Hand-
ritið og leikstjórnin eru mjög mann-
leg og látlaus, og það er mikil feg-
urð í ýmsum smávægilegum hlut-
um og atvikum. Aðalpersónumar
tvær, sveitakonan og unga skáld-
konan á uppleið, eru alls ekki klisju-
kenndar, heldur skemmtilegar,
djúpar og lifandi persónur í túlkun
þessara tveggja stórgóðu leik-
kvenna sem hér eiga góðan sam-
leik.
Handritið er framan af ansi gott,
spenna skapast og áhorfandi vænt-
ir mikils um lok myndarinnar.
Nokkuð er um lausa enda, eins og
veikindi Rose, sem annaðhvort
hefði mátt vinna betur úr eða
sleppa. Það verður ekki annað sagt
en að söguflétta myndarinnar komi
áhorfendum á óvart, hún er ansi
sérstök og á sjálfsagt eftir að falla
fólki misvel í geð.
Hildur Loftsdóttir
m
„Fiallarefurinn“
Sterkur og rúmgóður
skólabakpoki
11
UTIVISTARBUÐIN
við Umterðarmiðstððina
MYIMDBÖND
SÍÐUSTU VIKU
Sonur forsetans
(First Kid)-k ★ ★ 'h
Leitin að lífshamingjunni
(Unhook the Stars)~k ★ ★ 'h
I deiglunni
(The Crucible)k ★ ★ 'h
Tvö andlit spegils
(The Mirror Has Two Fac-
eý)k k k
Ógnarhraði
(Runaway Car)k k
Lífið eftir Jimmy
(After Jimmy)k ★ ★
Bundnar
(Bound)k ★ ★
Ókyrrð
(Turbulence)'h
Hatrinu að bráð
(Divided by Hate)k 'h
Gullbrá og birnirnir þrír
(Goldilocks and the Three
Bears)k 'h
Þruma
(Blow Out)k k k 'h
Tortímandinn
(Terminator)k k
Smokkaleit
(Booty Call)k 'h
Leiðin á toppinn
(That Thing You Do)k k k
Feigðarengillinn
(Dark Angel)k 'h
Afdrifaríkt framhjáhald
(Her Costly Affair)k
Evita
(Evita)kk'h
Álan Parker er hér með stórmynd
á alla vegu sem mætti vera frum-
legri. Upplögð fyrir aðdáendur
tónlistar Andrew Lloyd Webber.
Huldublómið
(Flor De Mi Secreto)k k 'h
Álmodovar er ávallt áhugaverður.
Huldublómið er öðruvísi en hinar
myndirnar hans; jarðbundin per-
sónulýsing.
íslenskar stuttmyndir
★ ★ ★
Myndirnar sjö eru fjölbreyttar að
lengd, gæðum og innihaldi. Þetta
er athyglisverð sýn inn í tilrauna-
starfsemi þá sem stunduð er af
ungum og upprennandi kvik-
myndagerðarmönnum.
Dagsljós
(Daylight)k k'h
Sporhundar 2
(Bloodhounds 2)k k 'h
Fín sakamálamynd með persón-
um sem hafa húmor fyrir sjálfum
sér og öðrum.
Ærsladraugar
(The Frighteners)k k k 'h
Ævintýrmynd um drauga og aðr-
ar áhugaverðar verur. Vel gerð,
fyndin, hrollvekjandi og umfram
allt skemmtileg.
Svindlið mikla
(The Big Squeeze)k k
Eg er ekki Rappaport
(I’m not Rappaport)k k
Kvikmyndað ieikrit um tvo gamla
karla sem kunna að skemmta
sér. Leiknir af Ossie Davis og
Walter Matthau sem fara á kost-
um. Mynd fyrir eldri kynslóðina.
Vagninn
(The Van)kk
Á villigötum
(Sweet Nothing)k k
Upp í rútuna
(Get on the Bus)k k k k
Ölíkir einstaklingar ferðast með
rútu til Washington. Besta mynd
Spike Lee til þessa. Meistaralega
vel skrifuð, með heilsteyptum
persónum og frábærum leikurum.
Lausnargjaldið
(Ransom)k k k
Margslungin og vel gerð spennu-
mynd. Mel Gibson stendur sig vel
í hlutverki föðurs á barmi tauga-
áfalls sem tekur til sinna ráða
þegar sinni hans er rænt.
Veiðimennirnir
(Jagarna)k k
Lögreglumaður flytur úr stór-
borginni aftur til heimahaganna.
Vel skrifuð og vitræn mynd, góð
tilbreyting frá hinu staðnaða
framboði bandarískra spennu-
mynda.
Ógreið heimför
(No Way Home)k k
Áflótta
(Fled)k
Sú eina rétta
(She’s the One)k k