Morgunblaðið - 31.08.1997, Síða 40
- 40 SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Grettir
Tommi og Jenni
Ferdinand
I 6VB55 I IEARNEP
50METHIN6, MARCIE..A
0ROKEN HEART 5TAY5
WITH YOU FOREV/ER...
Ég býst við að ég hafi lært nokk-
uð, Magga ... hjartasorg víkur
aldrei frá manni...
NEVER 6IVE VOUR HEART
TO A 0LOCKHEAP..
THAT'5 600PAPVICE(5IR..
l'LLREMEMBERTHAT,5IR..
Leggðu aldrei ást við asna.
Þetta er gott ráð, herra .
ég skal muna það, herra .
BREF
HL BLAIXSTNS
Kringlan 1103 ReyKjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
Otrúlegur
dónaskapur!
Frá Jóni Guðmar Jónssyni:
í DAGBLAÐINU mánudaginn 25.
ágúst síðastliðinn er frétt frá
Reykjavíkurmaraþoninu, á mest
áberandi stað á^ íþróttasíðu með
yfirskriftinni „Ótrúlegur dóna-
skapur“ og er merkt íþróttafrétta-
manninum ih. Þar segir að þriðji
maður í hálfmaraþoni karla hafi
troðið sér fram fyrir dönsku stúlk-
una sem sigraði í kvennaflokki og
rofið sigurlínu sem strengd hafi
verið við endamarkið henni til
heiðurs eftir að þulurinn hafði
kynnt hana sem sigurvegara í
hálfmaraþoni kvenna. í fréttinni
segir að stúlkan hafí verið rétt
fyrir framan karlinn, þegar örfáir
metrar voru eftir í markið. „Þá tók
karlinn á sprett, tróð sér fram
fyrir og rauf sigurlínuna. Þessi
framkoma er rakinn dónaskapur
og karlinum til háborinnar
skammar," segir einnig í fréttinni.
Undirritaður varð vitni að þeim
atburði sem fréttinni er ætlað að
lýsa. Þvílíkan ómaklegan dóna-
skap við íþróttamann sem kemur
fram í þessari stuttu frétt man ég
ekki eftir að hafa séð á prenti.
Um hvað
snýst málið?
Málið snýst um heiður og dreng-
skap eins af okkar fremstu íþrótta-
mönnum fyrr og síðar. Allir sem
fylgjast með íþróttum vita að
„þriðji karlinn“, sem talað er um
í fréttinni, er Sigurður P. Sig-
mundsson langhlaupari og Is-
landsmethafí í hálfu og heilu
maraþoni og margfaldur Islands-
meistari í flestum greinum lang-
hlaupa. Hér er þvi í raun um nafn-
greindan einstakling að ræða.
Hveijar eru staðreyndir máls-
ins? Þeir sem fylgst hafa með
framkvæmd maraþonhlaupa er-
lendis, hvort sem er í sjónvarpi eða
á staðnum, vita að sigurborði er
strengdur aðeins eftir hluta mark-
línunnar, þannig að aðrir keppend-
ur (karlar) geti komist yfir mark-
línuna, samtímis eða skrefínu á
undan, til hliðar við sigurborða
sem strengdur er fyrir sigurvegara
kvenna.
Hvað gerðist í Reykjavíkur-
maraþoninu þegar fyrsta konan í
hálfu maraþoni var að koma í
mark? Framkvæmdaraðilar
hlaupsins strengja þá sigurborða
þvert yfír allt endamarkið. Sigurð-
ur P. er um það bil 30 metrum á
eftir fyrstu konunni, þegar um 70
metrar eru eftir í markið. Adrena-
línið er á fullu, keppnisharkan í
fyrirrúmi og á síðasta metranum
nær hann að fara fram úr og nær
þriðja sæti í hlaupinu í heild. Hann
átti engra annarra kosta völ en
að slíta sigurborðann. Glæsilegri
endaspretti hefur undirritaður
varla orðið vitni að.
Sannur
drengskaparmaður
Undirritaður hefur fylgst með
ferli Sigurðar P. frá því að hann
hóf keppnisferil sinn fyrir áratug-
um og þekkir hann sem sannan
drengskaparmann, hvort sem er í
keppni eða utan. Sigurður P. er
það sem Englendingar myndu
kalla „sannur séntilmaður.“ En
Sigurður P. er keppnismaður. Það
sannar árangur hans í íþróttum
svo sannarlega.
Ein frægasta hlaupadrottning
til úölda ára er Merlyn Ottey.
Fáir hafa oftar sigrað í hlaupum.
En eitt vantar. Hún hefur aldrei
sigrað á Ólympiuleikum. Ég hef
verið mikill aðdáandi Ottey og
stöðugt vonað að_ hún næði að
sigra á leikunum. Á einum leikum
tók það dómara langan tíma að
úrskurða hvort hún eða önnur
væri sigurvegari og enn einu sinni
mátti hún verma annað sætið.
Hvað átti sigurvegarinn í hlaup-
inu að gera? Átti hann að stoppa
á marklínunni og leyfa Ottey að
fara fram úr þar? Þannig sigur
er það síðasta sem maður hefði
viljað sjá, þótt maður hefði engan
viljað frekar sem sigurvegara á
Ólympíuleikum en Ottey.
„Damerne
f0rst?“
Af hveiju er íþróttafréttamaður
DV, ih, að tala um ótrúlegan dóna-
skap? Átti Sigurður P. að stoppa
á marklínunni eftir að hafa tekið
sinn glæsilega endasprett og leyfa
þeirri dönsku að koma í mark á
undan? Hin góða og gilda siðvenja
„damerne forst“ á hreinlega ekki
við í þessu tilviki. Þetta er jú
keppni. Hvað með fréttir af bolta-
íþróttum eins og „leikur er aldrei
búinn fyrr en flautað hefur verið
af“, „jöfnuðu á síðustu sekúndu
leiksins og unnu síðan í framleng-
ingu“? Er það dónaskapur að sigra
þannig? Samkvæmt íþróttafrétta-
manninum ih er það svo, saman-
ber frétt hans.
Framkvæmdaraðilar Reykja-
víkurmaraþons þurfa að gera
grein fyrir og viðurkenna mistök
sín við þennan þátt framkvæmdar
hlaupsins. Slík mistök geta alltaf
gerst.
Sem íþróttaáhugamaður geri ég
þá kröfu til fréttamannsins ih að
hann biðji Sigurð P. opinberlega
afsökunar. Ef ekki vonast ég til
þess að þurfa ekki að líta augum,
fréttir merktar ih í DV í framtíð-
inni.
JÓN GUÐMAR JÓNSSON
Staðarhvammi 17, Hafnarfirði.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.