Morgunblaðið - 31.08.1997, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 1997 35
ÞORSTEINN
EIRÍKSSON
+ Þorsteinn Ei-
ríksson var
fæddur á Hrafntóft-
um í Djúpárhreppi,
Rangárvallasýslu
16. febrúar 1919.
Hann Iést á Vífils-
staðaspítala 25. ág-
úst síðastliðinn.
Faðir hans var Ei-
ríkur Þorsteinsson
frá Sandfelli í Ör-
æfum, fæddur 10.
júlí 1893, dáinn 2.
febrúar 1963. Móðir
hans var Ingigerður
Þorsteinsdóttir frá
Hrafntóftum, fædd 2. ágúst
1894, dáin 13. júlí 1968. Systk-
ini Þorsteins eru: Sigríður Þóra
Eiríksdóttir, fædd 26. desem-
ber 1921, maki hennar er Þórð-
ur Vigfússon,
fæddur 20. mars
1919. Jón Eiríks-
son, fæddur 25.
október 1927, dá-
inn 17. maí 1961.
Friðgeir Eiríks-
son, fæddur 5. maí
1931, maki hans
var ísabella Theód-
órsdóttir, fædd 1.
september 1933,
dáin 6. maí 1976.
Sambýliskona Frið-
geirs er Þórdís
Rafnsdóttir, fædd
30. janúar 1927.
Útför Þorsteins Eiríkssonar
fer fram frá Fossvogskirkju
mánudaginn 1. september og
hefst athöfnin klukkan 13.30.
Minn ástkæri Steini frændi verð-
ur jarðsunginn í dag og mig langar
að minnast hans í örfáum orðum.
Hann hafði áhuga á því sem ég var
að gera. Hann vildi fylgjast með
mér, þannig sýndi hann mér vænt-
umþykju. Hann var barngóður, það
lýsir honum vel að ég hitti hann
rétt áður en yngri sonur minn átti
afmæli þá vildi hann gefa honum
afmælisgjöf og lét mig fá pening
og ég keypti vísnabók. Þannig
fansnt honum peningunum vel var-
ið.
Steini frændi var alltaf hjá ömmu
á annan í jólum. Þegar ég kom til
ömmu byijaði ég á því að heilsa
Steina. Þetta var partur af jólunum
sem ég mun sakna mikið. Steini
vildi alltaf taka myndir af okkur
og sérstaklega börnunum. Alltaf
vildi hann fá hópmynd. Hann átti
hópmynd frá öllum jólum. Hann var
mjög ánægður þegar ég gaf honum
myndir af strákunum mínum.
Steini frændi, ég mun sakna þín
mikið. Ég veit að þú ert í góðum
höndum. Ég ætla að enda þetta á
sameiginlegri bæn.
Guð gefi mér æðruleysi
til að sætta mig við það
sem ég ekki fæ breytt
kjark til að breyta því
sem ég get breytt og
vit til að greina þar á milli.
Heiðar Már Guðnason.
Okkur systkinin langar til þess
að kveðja föðurbróður okkar, eða
Steina frænda eins og við kölluðum
hann alltaf. Þegar við vorum lítil
að alast upp, fyrst á Langholtsveg-
inum og síðar í Álftamýrinni, var
Steini frændi alltaf gleðigjafi í lífi
okkar. Þær eru ógleymanlegar
stundirnar þegar Steini frændi kom
í land af Jökulfellinu. Hans fyrsta
verk þegar hann kom að landi var
að koma til okkar með fullt fangið
af útlendu sælgæti sem ekki var
hægt að fá í venjulegum búðum á
Islandi.
Á jólunum voru pakkarnir frá
Steina frænda alltaf stærstir og
flottastir. í þeim voru ekkert venju-
legar gjafir, Ingigerður fékk dúkku
sem talaði og strákarnir fengu indi-
ánabúning frá toppi til táar. Þegar
við urðum eldri setti Steini bækur
í pakkana okkar því hann vissi að
börn þurfa á fróðlegu lestrarefni
að halda, enda var hann sjálfur
bókhneigður maður. Mikið hefur
hann Steini frændi átt annríkt fyrir
jólin, alltaf iðinn við kolann. Það
voru svo mörg börn sem fengu
pakka, bæði Friðgeirsbörnin og
Siggubörnin. Svo þegar við uxum
úr grasi og eignuðumst börn, bætt-
ust þau í hóp þeirra sem átti að
gleðja á jólunum. Þótt barnabörn
Friðgeirs og Siggu yrðu 26 gleymdi
Steini aldrei einu einasta og fylgd-
ist vel með hveiju og einu.
Steini frændi gerði meira fyrir
okkur börnin en færa okkur pakka
á jólum. Hann var óþreytandi við
að kenna okkur galdra og leggja
spilakapla. Hann gat meira að segja
látið fíngurinn á sér hverfa og birt-
ast á ný og tekið af okkur nefið
og falið það í lófa sínum og látið
það gægjast út á milli fingra sinna.
Hann miðlaði okkur af fróðleik
sínum því hann vissi að hið andlega
fóður mátti ekki skorta. Oft veltum
við vöngum yfir öllu því sem Steini
vissi og sum okkar trúðu því að
hann væri sá eini sem allt vissi.
Seinna, þegar við vorum orðin full-
orðin, gerðum við okkur grein fyrir
að Steini frændi var mjög víðlesinn
andans maður.
Steini frændi mundi alltaf eftir
okkur þegar hann sigldi um heims-
ins höf. Þá kom kveðja í óskalaga-
þætti sjómanna til „ijómafólksins"
heima á Fróni. Á sama hátt og
Steini gleymdi okkur ekki þegar
hann sigldi til fjarlægra landa,
gleymum við honum ekki, hann
átti svo stóran sess í lífi okkar.
Nú kveðjum við systkinin Steina
frænda með söknuði og þakklæti
fyrir allt og allt.
Friðgeirsbörn.
Mig langar til að kveðja frænda
minn og nafna með örfáum orðum.
Þegar ég var lítill kallaði ég þig
alltaf stóra Steina. Svo þegar ég
stækkaði bentir þú mér á að ég
ætti að kalla þig Steina frænda eins
og mamma gerði alltaf því ég væri
ekki lítill lengur.
Steini frændi, þú mundir alltaf
eftir að hringja til mín á afmælinu
mínu. Þá sagðir þú oft að þér fynd-
ist ísafjörður svo langt í burtu.
Þess vegna hringdir þú svo oft vest-
ur til þess að fylgjast með okkur
systkinunum Svanlaugu og ísabellu
Osk, Guðna frænda og mömmu og
pabba.
Það verður undarlegt að koma
næst til Reykjavíkur og hitta ekki
Steina frænda.
Ég þakka þér fyrir allar
skemmtilegu stundirnar sem við
áttum saman, nafni minn. Ég geymi
minningu um góðan frænda.
Þorsteinn frændi.
og spenningurinn yfir því hvaða
varning hann kæmi með handa
okkur „ijómadrottningunum“ eins
og hann kallaði okkur systumar.
Minningar um útlenskt sælgæti
sem var svo ljúffengt og sjaldgæft
á sjötta áratugnum.
Minningar um ameríska hatta
með blómaskrauti og slöri sem
hefðu sómt sér vel í sápuóperum
sem hann færði mömmu. Henni
þótti nóg um allt skrautið og breytti
þeim eins og ekkert væri í stílhreina
og nýtísku hatta.
Minningar frá jólum og vissuna
um að fá harða pakka frá Steina
frænda þar sem í leyndist bók og
auðvitað var það alltaf óskabókin.
Minningar um galdrakarlinn sem
lét fingurinn hverfa og margra ára
heilabrot um hvernig það væri
hægt. Seinna þegar við systurnar
eignuðumst okkar börn vöknuðu
minningarnar á ný og allt varð eins,
þumallinn látinn hverfa og óskabók-
in í jólapökkum barnanna.
Við systur ólumst upp í stórfjöl-
skylduhúsi, þar var oft glatt á hjalla
og mikill gestagangur, sérstaklega
í kringum hana ömmu, sem hafði
tíma fyrir alla og laðaði fólk að sér
með glaðværð sinni og góðsemi.
Steini frændi bjó hjá ömmu og afa,
hann var alltaf kallaður Steini
frændi þótt hann væri þá eini Stein-
inn í fjölskyldunni. Steini frændi fór
ungur á sjóinn þó hugur og geta
hafi eflaust staðið til mennta. Hann
var elstur systkina og það var at-
vinnuleysi því þótti gott að komast
á sjóinn. Steini frændi kvæntist
ekki en hann hefði orðið góður fjöl-
skyldumaður eins barngóður og
hann var, þess í stað umvafði hann
börn systkina sinna og fylgdist vel
með hvernig þeim vegnaði í lífínu.
Síðar þegar Steini frændi hættir
í siglingum og hefur störf í landi
hjá Landsímanum, þar sem hann
starfaði í tæp tuttugu ár hófst ró-
legri kafli í lífi hans. Honum gafst
þá meiri tími til að sinna hugðarefn-
um sínum sem var lestur góðra
bóka og mikill áhugi á leikhúsi, þar
var hann fastagestur árum saman.
Hann var vel lesinn og fylgdist af
miklum áhuga með þjóðfélagsmál-
um og fylgdi málstað hinna vinn-
andi stétta alla tíð. Hann hafði
yndi af ferðalögum enda búinn að
fá „bakteríuna“ á siglingum sínum
um heimsins höf. Hann fór margar
ferðir til suðlægari landa bæði einn
og ásamt foreldrum okkar og voru
það ógleymanlegar ferðir fyrir þau
öll.
Það var alla tíð náið og gott sam-
band milli foreldra okkar og Steina
frænda. Við vitum að þau eiga eft-
ir að sakna félagsskapar hans og
leikhúsferðanna sem þau fóru í
saman. í veikindum Steina á seinni
árum hafa foreldrar okkar annast
hann af alúð og umhyggju og ekki
má gleyma þeirri góðu umönnun
sem hann naut á Vífilsstaðaspítala
en þar átti hann öruggt athvarf
síðustu árin. Að leiðarlokum viljum
við þakka Steina frænda fyrir góðar
minningar og kveðjum hann með
söknuði.
Jóhanna, Inga og Þorbjörg
Þórðardætur.
Þegar nákominn frændi fellur frá
fer ekki hjá því að ýmsar bernsku-
minningar komi upp í hugann sem
tengjast honum. Minningar um
Steina frænda, þegar hann vann á
Sambandsskipunum í millilanda-
siglingum og kom heim úr ferðum
sínum til fjarlægra ævintýralanda
Crfisdrykkjur
1Ö
Veilingohð/lð
GRPi-inn
Sími 555-4477
LE6STEINAR
Marmari ♦ Granít ♦ Blágrýti ♦ Gabbró
íslensk framleiðsia
Sendum
myndalista
MOSAIK
Hamarshöfði 4 - Reykjavik
sími: 587 1960 -fax: 587 1986
t
Ástkær móðir okkar, tendgamóðir, amma og langamma,
SIGURFINNA (MINNA) EIRÍKSDÓTTIR
frá Dvergasteini,
Vestmannaeyjum,
Naustahlein 19,
Garðabæ,
verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju mánudaginn 1. september kl. 13.30.
Guðmundur Þorleifsson, Berta Kjartansdóttir,
Sigurbjörg Þorleifsdóttir, Ólafur Gíslason,
Eiríkur Þorleifsson, Þóra Erlendsdóttir,
Herbert Þorleifsson, Hrefna Guðmundsdóttir,
Jónas Pétur Þorleifsson, Gina Cuizon,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Hugheilar þakkir sendum við öllum þeim, sem
sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og
útför elskulegs mannsins míns og stjúpföður
okkar,
RÖGNVALDAR JÓNS PÉTURSSONAR
frá Ófeigsfirði,
Gerðhömrum 19,
Reykjavík.
Margrét Sigrún Bjarnadóttir,
dætur og barnabörn.
t
Ástkær sonur okkar,
HLYNUR JÓHANN HJALTASON,
Aasmund Vinjesgate 3,
Hamar, Noregi,
andaðist mánudaginn 25. ágúst síðastliðinn.
Fyrir hönd systkina og annarra vandamanna,
Anna Rögnvaldsdóttir, Hamar Noregi.
Hjalti Rögnvaldsson, Osló Noregi.
v
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR BJÖRGVIN
GUÐMUNDSSON
málarameistari,
Engihjalla 9,
Kópavogi,
sem lést laugardaginn 23. ágúst sl., verður
jarðsunginn frá Kópavogskirkju þriðjudaginn
2. september kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vildu minnast
hans, er bent á líknarfélög.
Ásta Guðmundsdóttir, Samúel Guðmundsson,
Ingvar Ágúst Guðmundsson, Kristín Andersen,
Margrét Sigríður Guðmundsdóttir, Ágúst Guðjónsson,
Þóra Bjarney Guðmundsdóttir,
Ingvar Kristinn Guðmundsson, Ragnhildur Ragnarsdóttir,
Hulda Guðmundsdóttir, Sigfús Sigurþórsson,
Björg Guðmundsdóttir, Kristján Hauksson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ÓLÖF GUÐJÓNSDÓTTIR,
Tjörn,
Akranesi,
síðast til heimilis
á dvalarheimilinu Höfða,
sem lést mánudaginn 25. ágúst, verður
jarðsungin frá Akraneskirkju þriðjudaginn 2. september kl. 14.00.
Böðvar Guðmundsson,
Guðmundur Guðmundsson,
Halla Guðmundsdóttir,
Una Guðmundsdóttir,
Kristín Guðmundsdóttir,
Kristinn Guðmundsson,
Guðjón Guðmundsson,
Dóra Guðmundsdóttir,
Hrefna Aðalsteinsdóttir,
Gunnþórunn Aðalsteinsdóttir,
Baldur Ólafsson,
Svanur Geirdal,
Magnús Þ. Pétursson,
Kirstín Benediktsdóttir,
Margrét Guðmundsdóttir,
Ólafur G. Ólafsson,
barnabörn og barnabarnabörn.