Morgunblaðið - 31.08.1997, Síða 30
xn v^‘
MiSasalan er opin daglega
frákl. 13:00-18:00
Símapantanir alla virka daga
frákl. 10:00
Greiðslukortaþjónusta.
Sími 568 8000
BORGARLEIKHUSIÐ
S'cIgtjójdn bjdrni
30 SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST
1997
MORGUNBLAÐIÐ
SKOÐUN
FÉLAGARNIR Ástríkur og Steinríkur í góðu yfirlæti hjá frumbyggjum Ameríku.
MIG langar að gera nokkrar at-
hugasemdir við ummæli forseta Is-
lands um gerð teiknimyndar um
landnám íslendinga á Vínlandi og
fæðingu Snorra Þorfinnssonar,
fyrsta hvíta mannsins, sem fæddist í
vesturheimi. Það vill svo til að við
hjá Fjölva höfum oftar en einu sinni
komið þar við sögu og væri hægðar-
leikur að nota það til að gera vand-
aða kvikmynd og þurfum við ekki á
neinni Pokahontas að halda.
1. Fyrsta og skoplegasta dæmið
er Ástríkur heppni, skemmtileg
skopstæling þar sem hinn frægi
gall-vaski kappi ásamt Steinríki brá
sér í gervi Leifs heppna og þá fljúga
Indíánar um loft í stað Rómverja en
ferðinni lýkur með mikilli veislu í
Brattahlíð. Bókin er því miður „al-
veg“ uppseld hjá okkur, en með
vænum „kvikmyndastyrk“ gæti ég
sjálfsagt fengið Dargaud til að gera
skemmtilega teiknikvikmynd og
spólumynd til dreifingar um víða
veröld.
2. Hal Foster, hinn frægi amer-
íski teiknisagnahöfundur, varði
tveimur bindum af ævintýrum Prins
Valiants í Vínlandsferð, sem byggist
á traustri undirstöðu Islendinga-
sagna en mörgu skemmtilegu
prjónað við, svo sem heimsókn að
hinum stórfenglega Niagara-fossi.
Og hvað haldiði, þar varð sjálf Aleta
drottning léttari að fyrsta bami
sínu, dreng sem skírður var Öm,
auðvitað fyrsta hvíta bamið sem
fæddist í Ameríku eins og þegar
Guðríður Þorbjamardóttir ól
Snorra. Hugsanlega væri hægt að
fá King Features til samstarfs um
teiknimynd. Bæði þessi bindi af Pr-
ins Valiant, það 12. Nýi heimurinn
og 13. Sólgyðjan bjarta, em enn fá-
anleg hjá Fjölva.
3. Árið 1979 gaf Fjölvi út vandaða
raunsæja teijmisögu um væringja
og víkinga. Ágætur teiknari, José
Bielsa, lýsti þar á 24 stómm blað-
síðum landnámi Grænlands og Vín-
lands. Teikningar hans em góð
listaverk og vikið skipulega að flest-
um þáttum Vínlandssögunnar, t.d.
fæðingu Snorra Þorfinnssonar.
Hægt væri að fá listamanninn til að
útfæra allt nánar ef vænn „kvik-
myndastyrkur" stæði til boða en
sjálfsagt þykir yfirleitt að ein kvik-
mynd njóti 500 sinnum hærri styrks
en gerð einnar bókar. Bók þessi er
nú að verða uppseld hjá okkur.
4. Þær þrjár bækur sem ég hef
nú nefnt verða að tejjast í léttari
kantinum, einkum Ástríkur heppni,
en auðvitað má ekki forsóma grínið
til að ná eymm almennings. En nú
langar mig til að víkja að öðra og al-
varlegra máli og án þess hefði ég
varla nennt því að fara að stinga
niður „tölvumúsinni“. Ég gleymi því
Ummæli forseta
--7---------------
Islands vestan
hafs nú nýverið að
tilvalið væri að
ráðast í gerð
teiknimyndar um
Snorra Þorfínns-
son á Vínlandi,
verða Þorsteini
Thorarensen til-
aldrei þegar fyrir mörgum ámm sá
ágæti mannvinur og hugsjónamað-
ur Sveinbjöm í Ofnasmiðjunni
ræddi af eldmóði við mig um
nýjasta baráttumál sitt og brenn-
andi hugsjón. Hann hafði lesið sögu
Guðmundar Kambans „Vítt sé ég
land og fagurt“ sem einmitt fjallar á
svo meistaralegan hátt um fund
Vínlands. Sveinbjöm heillaðist svo
af bókinni að hann hóf baráttu fyrir
því að gerð væri stórbrotin kvik-
mynd eftir henni. Auk hinnar list-
rænu heillunar sá Sveinbjöm kaup-
sýsluhliðina - kvikmyndin gæti
orðið sú langmesta kynning sem ís-
land fengi, einkum í Ameríku.
Hann gekk árum saman um meðal
málsmetandi manna sem líka
hrifust af hugmyndinni. Hann leit-
aði uppi fremstu kvikmyndatöku-
menn hérlendis og jafnvel í Amer-
íku vom vissir aðilar komnir á spor-
ið. Ef ég man rétt kynntust tveir
forsetar, Kristján Eldjám og Vig-
dís, þessu máli og létu í ljósi aðdáun
sína á því. Það kemur mér því nokk-
uð á óvart að af yfirlýsingum Ólafs
Ragnars er ekki hægt að sjá að
hann hafi hugmynd um þetta. Víst
er ekki hægt að muna eftir öllu í
sviptivindum eins blaðamannafund-
ar. En þetta kann líka að vera
ómeðvitaðar leifar af bókmennta-
brennum vinstri sinna, sem Ólafur
auðvitað tilheyrði, en það er á al-
menningsvitorði að þeir bannfærðu
Guðmund Kamban fýrir að hafa leg-
ið utan í nasismanum, en það er nú
vonandi liðin tíð, því að þar veit nú
enginn hver einræðisherranna husl-
aði líkin fleiri. Fjarri mér er að núa
neinum neinu um nasir, heldur mun
ég nú með glöðu geði senda á skrif-
stofu forsetans, svo þau bíði hans
ÚR teiknimyndabókinni Víkingar og Væringjar þar sem
segpr frá landafundum íslendinga og m.a. fæðingu
Snorra f Vesturheimi.
við heimkomuna, eintök af þeim
teiknisögum sem ég hér hef nefnt
ásamt ævisögu Sveinbjam ttumál-
um sínum, ef honum hefði enst líf og
heilsa til. Kannski var það þó betra
að honum mistókst það að sinni, því
að á þeim tíma hefði verkið líklegast
verið af vanefnum gert og ekki náð
listrænum hágæðum, þar sem líka
ekkert sérstakt tilefni gafst.
En nú standa málin öðm vísi þeg-
ar stórafmæli Vínlandsdraumsins
nálgast, meira að segja athygli
Clintons vakin. Nú ætti að vera lag,
allir ættu að taka höndum saman.
Víst hefur íslensk kvikmyndagerð
og tækni risið hærra og menn
kunna betur hin listrænu tök.
En hrifnastur væri ég þó, ef for-
seti íslands leitaði persónulega til
hins mikla meistara Kevins
Costners að taka verkið að sér. Að
vísu hefur hann verið æði mistækur
og á nú víst í einhverjum erfiðleik-
um. En aldrei gleymi ég þeim anda
og krafti sem hann náði í kvikmynd-
inni Dansar við úlfa. Með því að
veita honum svolitla upplyftingu
upp á skitin fáein hundmð milljóna,
gæti hann túlkað örlög íslensku
landnemanna á Vínlandi í þvíh'kum
anda og krafti að risi upp á frægð-
arstólinn. Við gætum byrjað á því
að bjóða Kevin til Islands til að
kneyfa vínið í Vínlandi víkinganna í
Hafnarfirði og koma honum í stuð-
ið.
Iíöfundur er bókaútgefandi.
FORSÍÐA 13. bindis teikni-
myndasögunnar um Prins Vali-
ant þar sem greinilega er sótt í
frásagnir um fund Vínland.
efni til hugleiðinga
um Vínland í
teiknimyndasögum
og kvikmyndum.
MINNINGARSKJÖLDUR um Guð-
ríði Þorbjarnardóttur, fyrstu hvítu
móður Ameríku, sem Sveinbjörn
Jónsson lét gera.
TEIKNISÖGUR KVIK-
MYNDIR UM VÍNLAND