Morgunblaðið - 31.08.1997, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 1997 21
LISTIR
ERIENPAR BÆKUR
Saga af fjölda-
morðingja
Uppljóstrarinn - The Inform-
ant. Harper Paperbacks 1997.
455 síður.
Fjöldamorðingjar eru
vinsælustu óþokkar
spennubókmennt-
anna nú um stundir
og kannski að von-
um. Þeir hafa verið
mjög áberandi í
fréttum hin síðustu
ár og ódæðisverk þeirra tíunduð,
sjónvarps- og bíómyndir rekja
blóðuga slóð þeirra og bækur
um fjöldamorðingja eru góð sölu-
vara. Frægasti fjöldamorðingi
spennusagnanna er auðvitað
Hannibal „The Cannibal“ Lecter
í sögunni Lömbin þagna eftir
Thomas Harris. Hún, ásamt fyrri
fjöldamorðingjasögu Harris,
Rauður dreki, hratt af stað
skriðu fjöldamorð-
ingjasagna sem sér
ekki fyrir endann á.
Einn af sporgöngu-
mönnum Harris er
bandaríski rithöf-
undurinn James
Grippando, enn
einn lögfræðingur-
inn sem snýr sér
að spennusagna-
skrifum. Hann
hefur sent frá sér
tvær bækur, „The
Pardon", og Upp-
ljóstrarann eða
„The Informant"
en hún segir af
leitinni að tíföld-
um morðingja og
gerist að mestu í
Miami.
Kunnuglegt
efni
Grippando
hefur greinilega
kynnt sér til hlítar starfsaðferðir
FBI þegar kemur að því að hafa
uppi á fjöldamorðingjum og búa
til af þeim sálfræðilegan prófíl.
Kemur kunnátta hans á því sviði
mjög vel fram í bókinni og er
einn af kostum hennar, hann
hefur einnig lært ýmislegt af
téðum Harris. Aðalsöguhetjan í
Uppljóstraranum er snöfur-
mannlegur kvenmaður sem þarf
sífellt að vera að svara spurning-
unni um hvers vegna í ósköpun-
um hún hefur gert það að ævi-
starfi að rannsaka og elta uppi
viðbjóðslegustu morðingja sem
finnast í Bandaríkjunum (jú,
ástæðuna er að finna í fortíð-
inni). Morðinginn er vanskapað-
ur vegna sjaldgæfs sjúkdóms og
sú vansköpun er einkar niður-
lægjandi (jú, Lecter var með sex
fingur á vinstri hendi). Lögreglu-
konan kemst jafnvel í persónu-
legft samband við morðingjann
en það er reyndar mjög í mý-
flugumy-nd eins og höfundurinn
hafi ekki vitað hvað hann ætti
við það að gera.
Victoria Santos heitir FBI-
konan og munar ekki um að
vitna í Hamlet í hversdagslegum
samtölum sínum við fólk. Hún
fer fyrir rannsókn á morðum sem
framin hafa verið víða um
Bandaríkin en allt bendir til þess
að sarni morðinginn sé að verki
því hann skilur eftir sig vöru-
merki; tungan er skorin úr fórn-
arlömbunum líklega meðan þau
eru enn með lífsmarki. Það sem
gerir málið sérstakt er að Pulitz-
erverðlaunahafi í blaðamennsku
í Miami í Flórída fær upphring-
ingar nokkru áður en nýtt morð
er framið og vill fégjafir fyrir
upplýsingar um morðingjann.
Hann veit greinilega hver hann
er og fylgist með gerðum hans
og gæti líka sem best verið morð-
inginn sjálfur að reyna að græða
á ódæðisverkum sínum. Santos
og blaðamaðurinn, Mike Posten,
taka upp samstarf og við tekur
eltingarleikur sem hefur ófyrir-
séðan en ekki beint athyglisverð-
an eða spennandi endi. Það er
eins og höfundurinn hafi lent í
nokkrum vandræðum með að
ljúka sögunni; hún fer inn á ein-
hveijar brautir sem eru í litlu
samhengi við það sem á undan
er gengið.
í kapp við tímann
Helsti kosturinn við Uppljóstr-
arann er þekking Grippandos á
starfsaðferðum FBI og hvernig
leit fer fram að fjöldamorðingja
er skilur ekkert eftir sig, virðist
myrða i fuilkomnu tilgangsleysi
og hverfur sporlaust aftur í
mannhafið eftir ódæðisverkin.
Öll minnstu smáatriði skipta
máii og hver dagur, klukkustund
og mínúta er mikilvæg því hann
mun fljótlega myrða á ný og svo
aftur og aftur ef hann ekki verð-
ur stöðvaður. Enginn tími má
fara til spillis. Grippando hefur
lag á að halda athygli lesandans
°g byggja upp spennu með þetta
í huga.
Persónusköpunin er fremur
stöðluð og ófrumleg og skipta
persónur sögunnar lesandann
ákaflega litlu máli. Höfundurinn
reynir að svara spurningunni um
hvernig íjöldamorðingi verður til
og leitar í æsku hans en finnur
kannski ekki neina fullnægjandi
skýringu á því. Þótt Grippando
reyni að halda uppi góðum hraða
í frásögninni, eins og spennu-
bókahöfunda er siður, virkar sag-
an stundum of löng, líklega vegna
þess að Grippando er mjög upp-
tekinn af því einnig að ijjalla um
þátt blaðamannsins í sögunni,
stöðu hans gagnvart uppljóstrar-
anum, hvernig siðareglur blaða-
mannsins meina 'honum að gefa
nokkuð upp um heimildir sínar,
samskipti hans við útgefanda sinn
og þess háttar atriði. Fer talsvert
púður í þá hliðarsögu alla.
Fyrir þá sem hafa gaman af
fjöldamorðingjatryllum er Upp-
ljóstrarinn brokkgeng en sæmi-
leg lesning og styttir eflaust bið-
ina þeim sem bíða eftir næstu
bók Thomas Harris.
Arnaldur Indriðason
AUGLSÝING
IMÝJUSTU FRÉTTIR
HEIMSKLÚBBSINS
HNATTREISAN MIKLA, 1. NÓV.
markar tímamót í ferðasögunni og vekur heimsathygli, 5 vikur af sífellt nýjum ævintýrum í öllum
þremur heimsálfum á suðurhveli jarðar að viðbættri draumaeyjunni Tahiti. Mikil eftirvænting
ríkir, ekki aðeins í hugum farþeganna heldur hjá Islendingum búsettum í Suður-Afriku, Ástralíu,
Nýja Sjálandi og Chile, og íslendingafélög í Perth og Sydney undirbúa móttökuhóf. Erlendar
fréttastofnanir og íjölmiðlar munu fjalla um stærstu hópferð á nýrri leið kringum hnöttinn í máli
og myndum og taka viðtöl á leiðinni. Undirbúningur er á lokastigi, margþættur og flókinn en til
alls vandað að hætti Heimsklúbbsins, en kostnaði stillt í hóf með góðum, milliliðalausum
samningum um alla þætti ferðalagsins og árangur eftir því, ótrúlega ódýr ferð miðað við lengd og
gæði. Ferðin seldist strax upp og hefur verið sneisafull síðan, en nú eru 3 sæti laus vegna
veikindaforfalla, ef pantað er strax. Fararstjórar verða þrír, Ingólfúr Guðbrandsson, forstjóri, og
honum til aðstoðar góðkunnir starfsmenn hans í fararstjórn árum saman, hjónin Sigurdór
Sigurdórsson, blaðamaður og kona hans Sigrún Gissurardóttir.
TÖFRAR 1001 NÆTUR í AUSTURLÖNDUM, 4. OKT.
Góð feðarlög eru uppspretta ævintýra, sem þú mundir annars aldrei kynnast. Fullyrða má, að
Islendingum hafi aldrei áður staðið til boða slík ævintýraferð á vit 1001 nætur, sem
Heimsklúbburinn efnir til 4. okt. og stendur í 3 vikur. Fjölbreytni hennar er einstök, íjögur lönd
og jafnmargir menningarheimar, undurfogur náttúra og gróður, heimsborgir með fegurstu
nútímabyggingar sem til eru, t.d. Petrona turnana í Kuala Lumpur, hæstu byggingar heims, glæsi-
varning á góðu verði, bestu hótel heimsins með fullkominni aðstöðu til að fegra og bæta lífið. Flug
með Flugleiðum og Malaysian, einu besta flugfélagi heimsins. Dvalarstaðir: Kuala Lumpur, hin
fagurlýsta garðaborg með glæsilegan arkitektúr, Saigon í hinu fagra, framandi og heillandi VIET-
NAM, nú gróið sára styijaldarinnar, afar forvitnilegt í augum Vesturlandabúans, „Höll gylltu hest-
anna“ í Malasíu, glæsilegasta hótel heimsins í dag og það eitt, ferðarinnar virði, Riviera Bay, eitt
af frægum hótelum Singapore Mandarin hringsins við Malaccaströnd, Grand Plaza Hotel, nýtt Spa
hótel í framúrstefnuborginni Singapore, og í lokin sólardvöl við Persaflóann í hinni frábæru
fríverslunarborg Dubai, þar sem búið er á A1 Bustan, nýjasta og fúllkomnasta hóteli í Mið-
Austurlöndum. Þátttakenndur 40, var fullskipuð, en nú 2 forfallasæti laus.
Fararstjóri Ingólfur Guðbrandsson.
TÖFRAR THAILANDS, 15. JAN. ‘98
Áhugi á að kynnast því besta í Thailandi og víðar í Austurlöndum eykst stöðugt, og margir sér-
hópar, vinnuhópar, félög, klúbbar og skólar hafa snúið sér til Heimsklúbbsins.
Þessi 2-3 vikna ferð getur hentað hinum mörgu, sem hyggja á Thailandsferð eftir áramót, enda
valdir vinsælustu staðirnir: Bangkok, Chiang Mai og hinn vinsæli baðstaður Phuket. Farið er á
besta tíma ársins, þegar loft er þurrt og bjart en ekki of heitt, en kuldinn kreppir að fólki á
norðurslóðum. Fararstjóri, vönduð hótel, spennandi kynnisferðir, lágt verð. Margir eru þegar
skráðir í ferðina, dragið ekki að staðfesta pöntun.
KARÍBAHAFIÐ —
SIGLINGAR OG FEGURSTU STRENDUR HEIMSINS
Karíbahafið er mesti segull á ferðamenn frá norrænum löndum að vetralagi. Sumarparadís um
hávetur heillar og veitir gleði og heilsubót. Viðskipti Heimsklúbbsins standa traustum fótum á
fegurstu eynni, DÓMINÍKANA, þar sem valdir gististaðir eru samningstryggðir á ótrúlega
hagstæðu verði. Heimsklúbburinn er einnig brautryðjandi í að kynna siglingar stærsta
skipafélagsins, CARNIVAL, með sín frægu skemmtiskip eins og fljótandi hallir um fagurblátt
hafið. Frábær kostur er vikusigling + vikudvöl á völdu hóteli á Dóminíkana, t.d. 5* Renaissance,
Capella Beach. Um það sögðu farþegar í hópferð í vor: „Þessi ferð var mesta ævintýraferð á okkar
ævi. Við höfiim aldrei haft það jafngott, og kostaði ótrúlega lítið hjá Heimsklúbbnum.“
NÝTT 5* HÓTEL — RIU MERENGE í PUERTO PLATA
Samningur Heimsklúbbsins við nýtt, glæsilegt fimm stjörnu hótel í hinum vinsæla baðstrandarbæ,
Puerto Plata, tekur gildi í september. Hótelið býður allt innifalið, allar máltiðir, alla drykki, áfenga
sem óáfenga, meira að segja úr minibarnum, íjölbreytt íþrótta- afþreyingar- og skemmtidagskrá
alla daga, og kynnisferðir um eyjuna standa til boða. Hótelið stendur alveg á ströndinni rétt utan
við borgina, umhverfið rólegt og hrífandi fagurt, þar pálmar og hávaxin lauftré vaxa niður að
flæðarmáli. Hótelið er svo eftirsótt, að pantanir þurfa að berast með góðum fyrirvara. Sérstakt
kynningarverð gildir í okt.-nóv. Fjögur önnur hótel standa til boða á Dóminíkana og siglingar
vikulega frá höfuðborginni Santo Domingo á spennandi siglingaleið, INSPIRATION, Carnival.
Einstaklingspantanir alltaf i gangi, næsta hópferð með siglingu 14. nóv. — UPPSELT.
SIGLINGAR í ÁRSBYRJUN ‘98 — frá MIAMI 7. FEB. Sértilboð.
PÁSKASIGLING ‘98 —4. apríl, vika + strönd.
PÁSKAFERÐ — DOMINIKANA — 5.-15. apríl.
PÁSKAFERÐ —AUSTURLÖND 1.-14. apríl
LISTATÖFRAR ÍTALÍU 1997
Þessari einstöku menningarferð er nýlokið með þátttöku 40 manns, sem ljúka miklu lofsorði á
ferðina. í ferðalok komst einn m.a. svo að orði: „Þessi ferð var engri lík, svo full var hún af ánægju
og sannri lífsnautn. Hún fór framúr öllum væntingum, og hver dagur verður ógleymanlegur. Við
erum sannfærð um að slíka ferð er ekki hægt að gera betur úr garði, og forréttindi að fá að njóta
hennar og lifandi lýsinga fararstjórans.“
FERÐIN VERÐUR ENDURTEKIN í ÁGÚST ‘98
FARSEÐLAR Á LANGLEIÐUM UM
ALLAN HEIM
Sístækkandi hópur valdra viðskiptavina snýr sér til
Heimsklúbbsins vegna ferðalaga á Ijarlægar slóðir, t.d. til
Austurlanda, Ástralíu og Nýja Sjálands.
Verið velkomin að njóta sérþekkingar okkar og sambanda.
Það kostar ekki meira, en sparar oft fyrirhöfn og stórfé.
FEROASKRIFSTOFAN
Austurstræti 17,4. hæð 101 Reykjavík,
sími 56 20 400, fax 562 6564