Morgunblaðið - 31.08.1997, Síða 2
2 SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 1997
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Ríkið hefur að mestu lokið samningum við starfsmenn sína
Samningar gerðir við lög-
reglumenn og siúkraliða
SAMNINGAR tókust milli samninganefndar rík-
isins og lögreglumanna og sjúkraliða í nótt. í
fyrrakvöld var undirritaður samningur við bóka-
safnsfræðinga.
Gunnar Bjömsson, formaður samninganefnd-
ar ríkisins, sagði að samningarnir væru ólíkir
en hefðu sömu kostnaðaráhrif. Bókasafnsfræð-
ingar hefðu gengist inn á tilboð um nýtt launa-
kerfi, líkt því sem samið hefði verið um við nokk-
ur önnur félög. I samningi við lögreglumenn
hefðu verið gerðar breytingar á launatöflu sem
vörðuðu röðun starfsheita. Þetta færði lögreglu-
mönnum hækkanir, en á móti hefðu prósentu-
hækkanir verði hafðar heldur lægri en almennt
gerðist í öðrum samningum. Samningurinn við
sjúkraliða væri hefðbundinn samningur, en aðal-
ágreiningsefnið hefði verið greiðslur fyrir nám-
skeið sem ríkið hefði kosið að greiða með öðrum
hætti.
Allir samningamir gilda frá 1. ágúst 1997 til
31. október árið 2000.
Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkra-
liðafélagsins, sagðist vera nokkuð sátt við þann
samning sem gerður hefði verið. Ekki væri búið
að reikna út hvað hann gæfí félagsmönnum
miklar hækkanir, en gmnnhækkanir væm svip-
aðar þeim sem aðrir hefðu samið um. Hún sagði
að meginágreiningsefni samninganna hefði verið
launaflokkahækkanir fyrir námskeið, en ákvæði
um þessar hækkanir komu inn í samningana
eftir verkfall sjúkraliða í árslok 1994.
Samninganefnd ríkisins hefði krafist þess að
greiðslur fyrir námskeið yrðu felld úr samningn-
um og langur tími hefði farið í að ræða þessa
kröfu og hvað gæti komið í staðinn. Þegar ríkið
hefði boðist til að falla frá kröfunni hefði skrið-
ur komist á samninga. Hún sagði að til viðbótar
hefði samninganefnd sjúkraliða tekist að fá inn
í samninga hækkanir sem tækju mið af reynslu
sjúkraliða.
Níu samningum ólokið
Samninganefnd ríkisins á eftir að gera níu
kjarasamninga, en samtals gerir hún 114 samn-
inga. Stærstu hóparnir sem eftir eru eru sjúkra-
húslæknar, þroskaþjálfar, flugumferðarstjórar,
starfsmenn Sinfóníunnar og sjómenn á skipum
Landhelgisgæslunnar og Hafrannsóknastofnun-
ar. Ríkið er með fáa leikskólakennara í vinnu
og flytjast þeir allir tii sveitarfélaganna á næstu
tveimur árum.
.
x ,s-
....... :.jf*
Vanar fyrirsætur
Morgunblaðið/Amaldur
ÞÆR virtust alvanar fyrirsætustörfunum, þessar kvígur sem stilltu sér svona settlega upp fyrir ljós-
myndarann, þegar hann átti leið hjá girðingu þeirra á dögunum.
SS lýsti áhuga á að
kaupa Afurðasöluna
Uppsagnir hjá SVR
Varðar
starf
þeirra
LILJA Ólafsdóttir, forstjóri SVR,
segir að ástæðan fyrir því að tveimur
vagnstjórum SVR var sagt upp störf-
um varði starf þeirra og frammistöðu
í starfi, en vill ekki greina nánar frá
því í fjölmiðlum hver ástæðan er.
Lilja sagði að stjómendur fyrir-
tækisins hefðu rætt við þessa starfs-
menn oftar en einu sinni um það sem
betur mætti fara í störfum þeirra.
Þessi viðtöl hefðu ekki skilað árangri
og það kæmi að því að stjómandi
fyrirtækisins teldi fullreynt. Þá væri
ekki um annað að ræða en að enda
ráðningarsamning. Hún sagði að það
væri tilviljun að þessi tvö mál kæmu
upp á sama tíma. Hafa þyrfti í huga
að SVR væri 240 manna vinnustaður
og þar kæmu upp margvísleg mál,
smá og stór.
Lilja sagði að ástæðan fyrir því
að starfsmönnunum hefði verið gert
að hætta samdægurs og vinna ekki
út uppsagnarfrestinn væri sú að það
væri sitt mat að hvorki starfsmanni
eða fyrirtækinu væri gerður greiði
með þvi að láta hann vinna út tím-
ann. Þess væri vart að vænta að
hann bætti sig í starfí eftir uppsögn
og því væri betra að gefa honum
færi á að leita sér að nýju starfi í
þessa þijá mánuði. Starfsmennimir
fengju hins vegar laun út uppsagnar-
frestinn í samræmi við samninga.
Lilja sagði að rætt hefði verið við
trúnaðarmenn vagnstjóra í tengslum
við þessi mál. Hjá SVR störfuðu mjög
ábyrgir trúnaðarmenn sem sæju til
þess að ekki væri brotið á starfsmönn-
um, enda hefði það ekki verið gert í
þessu tilviki. Hún sagði það sitt mat,
að ekki ríkti ólga meðal starfsmanna
vegna þessara uppsagna.
----»♦-♦----
Veggjakrot
á Háteigs-
kirkju
HÁTEIGSKIRKJA var vanvirt með
veggjakroti í fyrrinótt. Grétar Jóns-
son kirkjuvörður sagði að krotað
hefði verið á veggi við anddyri, á
norðurhlið kirkjunnar og safnaðar-
heimili.
Hann sagðist ekki skilja hvaða
tilgangi öðmm þetta ætti að þjóna
en að skemma. Þetta er í annað
sinn á nokkmm árum sem kirkjan
er vanvirt með þessum hætti.
VIÐRÆÐUR hafa farið fram milli
Sláturfélags Suðurlands og Afurða-
sölunnar hf. í Borgarnesi um kaup
SS á Afurðasölunni. Samningar skil-
uðu ekki árangri og hefur viðræðum
verið hætt. Samkeppni í sauðfjár-
slátrun hefur aukist talsvert að und-
anförnu og bjóða sláturleyfíshafar
bændum yfírborgun á verð og stað-
greiðslu afurðanna.
Vemlegt tap hefur verið á Afurða-
sölunni í Borgamesi undanfarin ár,
en hún er í eigu Kaupfélags Borgfirð-
inga, bænda á félagssvæði þess og
Borgarbyggðar. Þórir Páll Guðjóns-
son, kaupfélagsstjóri og stjómarfor-
maður fyrirtækisins, sagði að rekstur
kjötvinnslunnar hefði ekki gengið
nægilega vel, en unnið væri að þvi
að bæta reksturinn.
SS bauðst til að hætta
slátrun við Laxá
Þórir Páll sagði að áhugi væri á
því að ná fram meiri hagræðingu í
sauðfjárslátmn á Vesturlandi og
m.a. þess vegna hefðu verið teknar
upp viðræður við SS. Menn hefðu
ekki fundið sameiginlegan takt í við-
ræðunum ef svo mætti að orði kom-
ast og þess vegna hefði þeim verið
slitið. Hann sagði ekki útilokað að
menn ræddu frekar saman síðar.
Steinþór Skúlason, forstjóri SS,
sagði að í viðræðum SS og Afurða-
sölunnar hefði verið rætt um að SS
keypti Afurðasöluna, en menn hefðu
ekki náð saman um verð. Hann sagði
að samningarnir hefðu gert ráð fyr-
ir að samhliða kaupum á Afurðasöl-
unni hætti SS rekstri sláturhússins
við Laxá í Leirársveit.
Steinþór sagði að slátmn í slátur-
húsinu við Laxá hefði aukist á síð-
ustu ámm og myndi aukast enn á
þessu hausti. Allmargir bændur, sem
skiptu áður við Afurðasöluna, hefðu
snúið sér til SS með sláturfé sitt.
Nokkuð hefði verið um það í ágúst
að bændur af Vesturlandi hefðu
slátrað hjá sláturhúsi SS á Selfossi,
en slátmn við Laxá er ekki hafín.
Þrír keppa um slátrun á
Vesturlandi
Samkeppni milli sláturleyfishafa
hefur aukist vemlega á allra síðustu
ámm. Hún birtist m.a. í því að bænd-
um em boðnar yfirborganir á gmnd-
vallarverð og staðgreiðsla fyrir sum-
arslátrun. í sumar áttu bændur kost
á yfir 16% álagi á verð, auk þess
sem Markaðsráð sauðfjárafurða
greiddi álag í þeim tilgangi að auka
sumarslátrun.
Samkeppnin á Vesturlandi birtist
í því að þrír sláturleyfíshafar sækj-
ast eftir því að slátra fyrir bændur,
þ.e. Afurðasalan í Borgarnesi, SS
og svokallað Norðvesturbandalag
hf., en það er nýtt fyrirtæki sem
tekur til starfa um mánaðamótin.
Eigendur Norðvesturbandalagsins
eru Kaupfélag V-Húnvetninga á
Hvammstanga, Kaupfélag Hrútfirð-
inga á Borðeyri, Kaupfélag Stein-
grímsfjarðar á Hólmavík, Afurða-
stöðin í Búðardal, búnaðarsambönd,
Byggðastofnun, Kjötumboðið, Sam-
vinnusjóðurinn, Skinnaiðnaður,
VÍS og fleiri. Norðvesturbandalagið
ætlar að slátra á Hvammstanga,
Hólmavík og í Búðardal, en slátmn
á Borðeyri verður hætt. Norðvestur-
bandalagið ætlar sér aukinn hlut í
slátmn og hefur m.a. sent bændum
á félagssvæði Kaupfélags Borgfirð-
inga bréf þar sem þeim er boðið að
slátra hjá fyrirtækinu. Aðalsam-
keppnisaðili Norðvesturbandalags-
ins er þó Ferskar afurðir á Hvamms-
tanga, sem er í samstarfí við Hag-
kaup um sölu sauðfjárafurða.
Rafmagnaðir *
áldraumar
►Mikil alvara virðist vera í könn-
unarviðræðum íslenskra stjóm-
valda og Hydro Aluminium um
byggingu og sameiginlegan rekst-
ur álbræðslu ogtilheyrandi virkj-
unar. /10
Ný ísöld á norður-
hveli í nánd?
►Komið hefur fram kenning um
að breytingar á vatnsbúskap Mið-
jarðarhafs geti innan næstu
tveggja alda ýtt undir nýtt ísaldar-
skeið á norðurhveli. /16
Hvergi skjól
►Hvað verður um einstaklinginn
og einkalíf hans í hinu tölvuvædda
eftirlitsþjóðfélagi? Getur hann
skriðið í skjól fyrir Stóra bróður?
/24
Gull í grelpar
Breiðafjarðar
►í Viðskiptum/Atvinnulífí á
sunnudegi er rætt við Bjarna Ósk-
ar Halldórsson hjá Þörungaverk-
smiðjunni í Reykhólum. /26
B
► 1-20
Sumar í Sólheimum
►Sólheimar í Grímsnesi er elsti
staður sinnar tegundar í veröldinni
þar sem fatlaðir og ófatlaðir lifa
og starfa í sjálfstæðu samfélagi.
/1,16-17
í fótspor Eiríks rauða
►Æ fleiri íslendingar eru að upp-
lifa íslendingasögurnar með nýjum
hætti eins og segir frá í þessu
dagbókarbroti frá Grænlandi. /4
Kúba og íslenska
byltingin
►Áhugi ungs fólks á marxisma
virðist vera að aukast eftir ára-
langa lægð. /24
c
FERÐALOG
► 1-4
Skakki turninn í Písa
►Eitt af undrum veraldar, heldur
áfram að síga. /2
Laugarganga
►Léttur göngutúr til og frá Laug-
ardalslaugunum. /4
BÍLAR_____________
► 1-4
Benz 220 árgerð 1952
orðlnn sem nýr
► Mercedes Benz 220 árgerð
1952 má fínna í Siglufirði. /2
Reynsluakstur
►Um torleiði á Land Cruiser. /4
Eatvinna/
RAÐ/SMA
1-16
Hugbúnaðarstefna
ríkisstofnana
►RUT boðar til ráðstefnu á Hótel
Loftleiðum 4. september. /1
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/8/bak Brids 42
Leiðari 28 Stjömuspá 42
Helgispjall 28 Skák 42
Reykjavíkurbréf 28 Fólk í fréttum 46
Skoðun 30 B(ó/dans 50
Minningar 34 Otv./sjðnv. 44,55
Myndasögur 40 Dagbók/veður 55
Bréf til blaðsins 40 Dægurtónl. 8b
Hugvekja 42 Gárur 28b
ídag 42 Mannlífsstr. 28b
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-4-8-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1&6
>
)
I
\
\
L