Morgunblaðið - 18.08.1996, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 18. ÁGÚST 1996 39
FÓLK í FRÉTTUM
Morgunblaðið/Sverrir
ÞRÍR aðstandenda Súper 5, Helgi Björnsson, Höskuldur Örn
Lárusson og Heiðar Örn Kristjánsson.
Upp og ofan
TÓNLIST
Gcisladiskur
SÚPER5
Súper 5, safnplata fimm sveita,
SSSólar, sem á fjögur lög, Spoon,
Botnleðju og Funkstrasse, sem eiga
þijú lög hver sveit, og Astralsextetts-
ins, sem á eitt lag, en Botnleðja flyt-
ur eitt lag með útvarpsmönnunum
kunnu Simma san og Þossa san.
Súper 5 flokkurinn gefur út, Skifan
dreifir. 51,37 min., 1.999 kr.
Á HVERJU vori þurfa hljómsveitir
að glíma við þann vanda að ná eyrum
væntanlegra ballgesta, ná að gera
góða vertíð og komast að á helstu
ballstöðunum. Eftir því sem íslenskur
ballmarkaður hefur tekið breytingum
hefur samkeppnin harðnað og marg-
ar hljómsveitir beinlínis keyrt sig í
þrot þegar aflinn hefur dregist sam-
an. Þá hlýtur að blasa við að sameina
og hagræða eða í það minnsta að
vinna saman eins og þær hljómsveit-
ir sem standa að Súper 5 flokknum
hafa gert. Reyndar eru ekki nema
tvær þeirra á hefðbundnum ball-
markaði, SSSól og Spoon, en fyrr-
nefnda sveitin hefur verið með þeim
aflahæstu á undanförnum sumrum.
Súper 5 safnplatan er gefin út sem
auglýsing, bæði til að ná eyrum ball-
gesta en einnig nýtist hún vel til að
kynna ný nöfn eða fáheyrð og í til-
feili Spoon endurreista sveit og
breytta.
Lög SSSólar á Súper 5 verða seint
talin með því besta sem sveitin hefur
sent frá sér og sum hljóma sem hálfk-
araðar prufuupptökur frekar en
fáguð popplög að hætti SSSólar.
Dæmi um það er lagið Pervert, sem
hefði varla komist inn á venjulega
breiðskífu og Púsluspil er og illa lukk-
að.
Spoon sló óforvarandis í gegn
snemmsumars fyrir tveimur árum
með Emilíönu Torrini í broddi fylk-
ingar. Tilvistarkreppa gekk af sveit-
inni dauðri en hún gekk aftur og
státar af nýrri söngkonu, Marín
Möndu Magnúsdóttur. Marín Manda
fer vel með sitt og þegar hún er studd
af traustum lagasmíðum, eins og til
að mynda í Dizzy, sem dregur
skemmtilega dám af Radiohead, er
útkoman allgóð en ekki eftirminnileg.
Spoon hefur elst ansi mikið á stuttri
ævi en þroskast lítið.
Botnleðja er líklega vinsælasta
hljómsveit landsins meðal ungmenna
og breiðskífa sveitarinnar frá því fyr-
ir síðustu jól bráðvel heppnuð og
skemmtileg. Súper 5 gefur því færi
á að heyra hvað liðsmenn hennar eru
að pæla og fyrsta lagið, Ég vil allt,
lofar góðu fyrir væntanlega breið-
skífu. Næst þar á eftir kemur gömul
lumma í óvæntum búningi og bætir
litlu við. Þriðja lagið er svo sígild
poppperla, í stuði, sem þeir Botn-
leðjumenn flytja með útvarpshetjun-
um Simma san og Þossa san og lyfta
á áður ókannað satírískt plan. Þrátt
fyrir það verða þeir félagar að sætta
sig við að þeir ná ekki að ganga
lengra í stuðinu en upprunaleg ís-
lensk útgáfa lagsins og varla nema
von.
Funkstrasse hefur starfað iengi
og fágað funk sitt í hörgul. Sveitin
hefur áður sent frá sér eftirminnileg
lög en nær sér ekki á skrið fyrr en
í öðru lagi sínu að þessu sinni, diskó-
slagaranum Ferðalagi. Fátt fer Pró-
fessornum betur en diskóferðalag,
en ef til vill er innblástur Funkst-
rasse á þrotum.
Lokalag disksins er síðan með
Astralsextettnum. Þar kemur Helgi
Björnsson söngvari SSSólar einnig
við sögu sem söngvari og fer ekki
vel með, en smekklegur blástur bæt-
ir úr skák.
Árni Matthíasson
...litlir dagar
...lítil verð
6 vihna • 3 mán. námeMð
í liósmynda- oú tíshuförðun
Kennarar við
skólann hafa
allt að 10 ára
starfsreynslu
við förðun og
hafa verið og
eru með þeim
virtustu í förð-
unargeiranum
í dag.
Nemendur skólans
sópuðu til sín um
90% verðiauna í
íslandsmeistar-
keppni hár og
fegurðar í mars '96.
M if—Æ Rut
Útskrifast úr
málaradeild M.H.Í. '94
Hefur unnið við förður
bæði hér heima og
erlendis, margfaldur
íslandsmeistari.
Hö{jna
hefur unnið fyrir
öll helstu tímarit
landsins, tisku-
sýningar, tónlistar-
myndbönd o.fl.
KviMnundalörðun
- fanfasiuförðun.
Nánari uppl. veittar í versluninni Face, Kringlunni, milli kl. 10- 12. s. 588-7677 eða 551-1288.
CELESTINE
HANDRITIÐ
METSÖLUBÓK SEM BREYTIR LÍFI ÞÍNU!
Nokkrar staðreyndir um Celestine handritið:
• Celestine handritið var í fyrsta sæti yFir
amerískar metsölubækur um allan heim árið
1995.
• Utgáfurétturinn á Celestine handritinu hefur
verið seldur til 32 landa.
• í mars 1996 var búið að prenta 5.38 milljón
eintök af bókinni um allan heim.
• I mars 1996 hafði bókin verið á New York
Times listanum yfir söluhæstu bækur í 107 vikur
og virðist ekkert lát vera á sölunni.
Tíunda innsýnin kom út í Bandaríkjunum
25. apríl sl. og var fyrsta prentun ein milljón
eintök og er þegar komin á metsölulista og
vekur verðskuldaða athygli.
Tíunda innsýnin kemur út í íslenskri
þýðingu Onnu Maríu Hilmarsdóttur um
miðjan október. Hún er beint framhald af
Celestine handritinu en er samt sjálfstæð bók.
Fæst í öllum helstu bókabúðum
LEIÐARLJ#S ehf.
Fyrirlestrar - Ráðgjöf - Námskeið - Útgáfa
Sími 435 6800 • Fax'435 6801 • Brekkubæ • Hellnum • 355 Snæfellsbæ.
25% afsláttur í eina viku af brjóstahöldum
í stærðunum 32 A-B-C-D-DD
Verð frá kr. 890
^Bjóðum skólastúlkur sérstaklega velkomnar^
...fínlegar
...nettar
...grannar
...smáar
Óðinsgötu 2, sími 551 3577
„Okkar markmið er að hjálpaþér að náþínu!”
Herdís
Finnbogadóttir,
lítfræðingur:
„Lestur Celestine
handritsins gaf mér
heildarmynd yfir lífið
og ég fékk skilning á
því sem ég hef lengi
verið að skoða.“
Sveinbjörg
Eyvindsdóttir,
svæfingahjúkrunar-
fræðingur:
„Þessi bók lýsir
leiðinni í Ijósið á
hugvitsamlegan og
spennandi máta.“
Ketill
Sigurjónsson,
orgelsmiður:
„Celestine er bók
sem opnar manni
margar nýjar dyr í
völundarhúsi lífsins.
Hún vísar leiðina inn í
nýja öld.“
Ólafur Guðlaugsson,
grafískur hönnuður:
„Eftir lestur Celestine
handritsins horfi ég á
samskiptaleiki fólks frá
allt öðru sjónarhorni en
ég gerði áður og sé
fólk raða sér í hlutverk í
leikriti lífsins."
Þorgrimur
Þráinsson,
rithöfundur:
„Bókin er gullmoli
sem gefur andlegan
auð og vekur okkurtil
umhugsunar um
tilgang og fegurð
llfsins."
Ummæli lesenda