Morgunblaðið - 18.08.1996, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 18. ÁGÚST 1996 35
BREF TIL BLAÐSINS
Sveiattan
hvað eða hver?
Frá Magnúsi H. Skarphéðinssyni:
EINN af geðugri fulltrúum lækna-
stéttarinnar, Stefán J. Hreiðarsson
fyrrverandi Akureyringur, er eins
og margir aðrir góðhjartaðir Is-
lendingar bæði áttalaus og ráðlaus
yfir Halló-Akureyri-hópfylliríinu
aftur núna um síðustu verslunar-
mannahelgi. Fannst honum meira
en nóg um fyrir ári er hann og
fjölskylda hans gistu í faðmi fylli-
raftanna og nauðgaranna á tjald-
svæðinu á Akureyri þegar fram-
kvæmdastjóri „Ská!-Akureyri“-
hátíðarinnar hvatti einnig þá allar
fyllibyttur landsins að fjölmenna
norður. Og er barnalæknirinn bara
alveg orðlaus yfir þessu. Það eina
sem ég get verið honum sammála
í Moggagrein hans á laugardaginn
var (10. ágúst) var að réttnefni
hátíðarinnar væri miklu frekar
Sveiattan-Akureyri en Halló-
Akureyri. Og má færa allsterk vís-
indaleg rök fyrir þeirri nafngift.
En sveiattan hvað er hver? Það
er öllum ekki eins ljóst eins og
lesa rná í fyrrnefndri grein.
Orsakir
En er ekki hér eins og víðast
hvar annars staðar verið að hengja
bakara fyrir smið þegar skuldinni
er skellt á landasalana eða dópsölu-
liðið, eða bara á lögregluna eða
afgreiðslufólkið sem selur börnum
okkar sígarettur og önnur vímuefni
langt undir aldri? Það held ég og
reyndar margt annað hugsandi fólk
um þessi mál einnig. Og mikið
væri nú árangursríkara að umræð-
an um þessi vandamál snerist þó
ekki væri nema örsjaldan um orsak-
ir allra þessara stórvandamála þjóð-
félags okkar, en ekki alltaf afleið-
ingarnar. Það dettur nánast engum
Maður er
orðinn
feimnis-
mál
Birni S. Stefánssyni:
ÝMSIR forðast orðið maður í ræðu
og riti. í Útvarpinu var sagt um
daginn: „Það er mjög margt sem
gerist í líkamanum, þegar einstakl-
ingurinn hlær“, þ.e.a.s. þegar mað-
ur hlær. Þjóðinni var lesinn lestur-
inn, mjög maklega, einnig í Útvarp-
inu, um umferðarsiði og sagt: „Með
ökuskírteini skuldbindur maður
sig... “ í Sjónvarpsviðtali var sagt:
„Eg er friðarins“ svo kom hik og
síðan „aðili“. Og enn sagði þar:
„Manneskjan (átt við sig) er ekki
ófriðsöm." Á tilgerðarlausu máli:
„Ég er friðarins maður og ekki
ófriðsöm.“
Þegar haldreipi þeirra, sem fæl-
ast orðið maður, er orðið mann-
eskja, er á það að líta, að þar er
maður stofn orðsins. Haldreipin eru
hlægileg og ekki sérlega rökvís.
Manneskja táknar stundum konu,
stundum mann án kyngreiningar.
Aðili og einstaklingur leiða af sér
karlkyns fornafn, ekki er það gott
í þessari mannfælni. Minna má á
orðið mannveru. Oft færi það betur
en manneskja.
Maður er sam sagt orðinn feimn-
ismál. Verður mannkynið það líka?
Mörg íþróttakona sást á Olympíu-
leikunum, vel að manni komin, og
þar var maður manns gaman. Megi
svo áfram verða.
BJÖRN S. STEFÁNSSON,
Kleppsvegi 40, Reykjavík.
heilvita manni í hug að gera heiðar-
lega tilraun til þss.
En auðvitað á Stefán og hans
stétt sem og annað vísindahyggjul-
ið veraldarinnar öðrum fremur
heiðurinn af þessum harmleik sam-
tímans. Það var vísindastóðið með
læknalið heimsins öðrum fremur í
broddi fylkingar sem rændi Vestur-
landabúa heimsmyndinni sinni og
skildi blásaklausan almenning eftir
úti á berangri tilgangsleysis og al-
gers rótleysis - eins og sjá mátti
meðal annars afleiðingarnar af á
tjaldsvæðunum norðan heiða fyrr-
nefnda helgi. Það var þetta vísinda-
hyski sem rændi ekki bara Guði frá
fólkinu heldur meira og minna allri
trú sem og bæði persónulegri og
vísindalegri reynslu og vitneskju
um líf eftir dauðann og þar með
öllum megintilgangi lífsins eins og
mannkynið hafði skilið fábrotna
stöðu sína í tilverunni fram að því.
Svo kemur þetta vísindalið fram
úr fylgsnum sínum núna á elleftu
stundu og skilur bara ekki neitt í
neinu eftir allt andlega og þjóðfé-
lagslega niðurrifið sitt. Bara alls
ekki neitt. Ef forgangsraða ætti
sökudólgnum hveijir raunverulega
eiga heiðurinn af þessu stóra hlið-
ar- eða afturspori mannkynsins nú
á 20. öldinni, þá er það vísindastóð-
ið - með alla sína misöflugu áróð-
urs- og niðurrifsmenn á flest ef
ekki öll gömlu gildi sem gáfu lífi
fólks inntak og skilning, sem setja
ætti efst og langefst á þann ófagra
lista.
Bolabrögð
Obilgjörnust voru þessi níðings-
verk þegar vísindaliðinu tókst nán- .
ast með bolabrögðum að drepa
spíritismann eins og hann var og
hét. Hvað sem hver annars segir
um hann og allar alvöru sálarrann-
sóknirnar, þær einu vönduðu og í
reynd virkilega færu leiðirnar til
að rannsaka á vísindalegan hátt
trúarlega reynslu manna í heimi
hér. En vísindastóði heimsins
þóknast ekki einu sinni í dag -
ekki einu sinni á hinni elleftu
stundu mannkynsins (vegna eigin
misgjörða í málinu) að líta með
minnstu iðrun á hin afdrifaríku
mistök sín. Ekki hið allra minnsta.
En á það verður að fara að benda
skýrar þegar vísindastóðið eða aðr-
ir niðurrifsmenn reyna að hengja
bakara fyrir smið, eða landasalana
fyrir vísindaliðið. Því mjög svo
óverðskulduð virðing vísindastóðs-
ins og einsleitar skoðanir þess
þurfa rækilegrar endurskoðunar
við eigi vímuefnaharmleikurinn og
andlausa vísindatómhyggjan ekki
eftir að aukast hér stig af stigi
um langan tíma, með ófyrirséðum
afleiðingum. Afleiðingum sem fáa
gæti órað fyrir í dag. „Skál-Akur-
eyri“-hópfylliríið verður trúlega
bara barnaleikur á við það. Sveiatt-
an.
MAGNÚS H. SKARPHÉÐINSSON,
skólastjóri Sálarrannsóknarskólans.
Afmæli Reykjavíkurborgar
Dagskrá sunnudaginn 18. ágúst 1996
• 11.00 Reykjavíkurmaraþon hefst í Lækjargötu.
• 11.00 Messa í Dómkirkjunni. Séra María Ágústsdóttir predikar og þjónar fyrir altari.
s
Arbæjarsafn
• 11.00 Þjóðleiðarganga frá Austurvelli upp í Árbæ, leiðsögumaður Einar Egilsson.
- Safnið opið, ókeypis aðgangur fyrir 16 ára og yngri og ellilífeyrisþega.
- Opnun Lækjargötu 4 sem verið er að endurgera á Árbæjarsafni.
• 16.00 Gönguferð með leiðsögumanni um safnið.
• 14.00 Messa í Viðeyjarkirkju. Séra María Ágústsdóttir predikar og þjónar fyrir altari.
Fjölskyldugarðurinn
• 15.00 Skari Skrípó.
15.30 Haraldur Reynisson trúbator og Björgvin Gíslason.
16.00 Ævintýrið um Hans Klaufa.
16.20 Haraldur Reynisson trúbator og Björgvin Gíslason.
• 16.00 Opnun strandstígs og göngubrúar í gegnum svæði Skogræktarfélags Reykjavíkur
í Fossvogi í tilefni 50 ára afmælis Skógræktarfélagsins.
• 16.00 Tónleikar á Ingólfstorgi. Bama og unglingakóramir Yip's children choir frá
Hong Kong og barnakór Grensáskirkju flytja lög frá öllum heimsálfum.
Stjórnendur: Yip Wai Hong og Margrét J. Pálmadóttir.
Píanóleikari: Yip Choi Ching Yee.
• 15.00 - 18.00 Borgarskákmót í Ráðhúsinu. Hraðskákmót þar sem margir af okkar bestu skákmönnum
tefla. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri leikur fyrsta leikinn. Okeypis aðgangur.
• 17.00
Veiting fegrunarviðurkenninga í Borgarstjómarsal Ráðhússins, m.a. fyrir fegurstu götu
Reykjavíkur. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
18.00 - 23.00 Útideildin heldur upp á 20 ára afmæli sitt með tónleikum í porti Hafnarhússins,
þar sem fjöldi hljómsveita spilar m.a. "Texas Jesús" og "Vildensky".
• 20.30
Litla svið Borgarleikhússins. "Dansleikhús með ekka" sýnir dansleikhúsverkið
"Og hún þurrkaði sér í framan eða Leó, ó Leó". Að sýningunni standa fjórar ungar
konur sem stunda leik- og dansnám víðsvegar um Evrópu.
Góða skemmtun!
Rey kj avík
210 ára