Morgunblaðið - 18.08.1996, Qupperneq 29
MINNIIMGAR
SUNNUDAGUR 18. ÁGÚST 1996 29
L
MORGUNBLAÐIÐ
\ -------------
! ANNA
ÞÓRÐARDÓTTIR
i
l
I
i
I
i
+ Anna Þórðar-
dóttir var fædd
á Þorkelshóli í
Víðidal, V-Hún. 17.
mars 1909. Hún lést
12. júlí siðastliðinn.
Anna var dóttir
Guðrúnar Bene-
diktsdóttur, f. 25.
júlí 1878, d. 24. júní
1938, og Þórðar
Guðmundssonar, f.
7. ágúst 1871, d. 27.
júlí 1938, bónda á
Þorkelshóli. Systk-
ini hennar voru tví-
burarnir Ingibjörg
María og Guðmundur. Þau
fæddust 25. ágúst 1915. Guð-
mundur lést 31. janúar 1974,
en Ingibjörg María
25. mars 1977.
Anna giftist
1930, Jóni Thord-
arsyni, f. 1. apríl
1893, d. 15. ágúst
1967, forstjóra _ í
Sjóklæðagerð ís-
lands. Þeim varð
ekki barna auðið
en ættleiddu
dreng, Þórð R.
Jónsson, f. 3.9.
1940. Hann er
kvæntur Kristínu
Þorsteinsdóttur og
eiga þau þrjú börn
og tvö barnabörn.
Útför Önnu fór fram í kyrr-
þey að hennar ósk 26. júlí.
I
I
I
Móðursystir mín, Anna Þórðar-
dóttir eða Anna í Hlíð eins og hún
var kölluð í fjölskyldunni, lést í hárri
elli eftir iangvarandi veikindi og var
hvíldin henni kærkomin. Þegar ég
sest niður og skrifa nokkrar línur á
blað til minningar um Önnu frænku,
sem var mér afar kær kemur margt
upp í hugann. Við bjuggum undir
sama þaki fyrstu ár ævi minnar,
fyrst í Garði í Skerjafirði og síðan
í Barmahlíð 23. Má segja að heim-
ili þeirra Önnu og Jóns hafi verið
mitt annað heimili í æsku og til
Önnu var ávallt gott að leita. Anna
var með saumastofu heima og þar
saumaði hún af miklum krafti fyrir
ýmsa aðila. Hún saumaði m.a. fyrir
L.H. Muller í Austurstræti sem var
einhver virtasta verslun Reykjavíkur
í þá daga. Það eru mörg börnin sem
hafa skartað matrósafötum frá
frænku, bæði drengir og stúlkur.
Sem drengur var ég í sendiferðum
fyrir frænku með föt til og frá L.H.
Muller.
í mörg ár fórum við saman að
Laugarvatni. Það voru mér ánægju-
legar stundir. Einnig fórum við sam-
an í margar berjaferðir. Síðan má
ekki gleyma jólunum, þá var alltaf
farið í ijúpur og annað góðgæti til
Önnu og Jóns. Anna í Hlíð var stór
kona og glæsileg á velli. Hún hafði
einnig stórt hjarta. Þau voru mörg
bömin sem lítið höfðu sem hún
gladdi með fatagjöfum fyrir jól.
Einnig las hún í mörg ár í hverri
viku fyrir blinda. Það fannst henni
gefandi og hafði gaman af. Það er
margt fleira sem ég gæti tínt til en
það væri ekki að skapi frænku að
flíka því sem hún gerði fyrir aðra.
Mér er mjög kær minningin um
góða frænku og hið nána samband
hennar og móður minnar. Ég er
þess fullviss að vel hefur verið tekið
á móti henni á nýju tilverustigi. Með
þökk fyrir allt og allt.
Ragnar Austmar.
Far þú i friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Ég þekkti Önnu Þórðardóttur og
fjölskyldu hennar á Þorkelshóli frá
bamæsku. Þar var gott að vera,
stórt og glaðvært heimili, gesta-
gangur og músik. Ég dvaldi þar
löngum og leit á þetta fólk, sem
mína aðra fjölskyldu, enda mæður
okkar Önnu uppeldissystur og Þórð-
ur faðir hennar frændi minn í föður-
ætt. Bróðir minn fæddist þarna og
höfðum við mikil samskipti við þetta
ágæta fólk alla tíð. Anna fór í
Kvennaskólann á Blönduósi og kom
þaðan svo mikil dama, glæsileg að
okkur Dídí systur hennar þótti það
ótrúlegt. Þá vorum við svo mikil
böm, 8 ámm yngri. Svo fór hún
suður og 1930 giftist hún Jóni
Thórdarsyni forstjóra í Sjóklæða-
gerðinni, sem ég ætíð síðan kallaði
elsku Jón. Hann var ljúfur maður,
mjög lífsglaður og gestrisinn. Eftir
að ég fór til Bretlands, átti hann
það til að senda mér 5 punda ávísun
við og við, þar sem hann vissi að
fjárhagur minn var þröngur og ég
í námi. Það var alltaf einhver ævin-
týraljómi yfir þeim hjónum, þau fóru
í veiðiferðir út í óbyggðir, áður en
það fór að tíðkast hér og þekktu
marga listamenn, sem gerði sam-
vistir við þau öðruvísi en gerist og
gengur.
Svo dó Jón okkur öllum til
ómældrar sorgar, en Anna hélt
áfram að vinna og halda heimili sitt
í Hiíðunum, sem var indæll staður,
alltaf sólskin að mér fannst, þá er
ég heimsótti hana annað hvert ár,
en þá var ég heima á íslandi í sum-
arfríi. Hún hafði sérstaka ánægju
af að segja mér af syni þeirra, Þórði,
og konu hans, Kristínu, og börnum
þeirra þremur, sem voru eftirlæti
hennar og Jóns sáluga. Ennfremur
hélt hún mikið uppá systurbörn sín
og þeirra börn og fylgdist með þeim
af áhuga.
Anna var glæsileg kona í útliti
og hafði góðan smekk bæði í klæðn-
aði og umhverfi sínu, mikil húsmóð-
ir og hannyrðakona. Þær systur
fóru mikið í leikhús meðan Dídí lifði
og alltaf áttu þau hjónin mikið af
góðum plötum með frægum söngv-
urum og annarri tónlist. Það er
mikil gæfa oss gefín, að hafa þekkt,
umgengist og muna slíkt fólk.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem.)
María M. Magnúsdóttir.
t
i
8
|
I
i
5
Fersk blóm og
skreytingar
við öll tækifæri
Opið til kl.10 öll kvöld
Persónuleg þjónusta
Fáfiafeni 11, st'mi 568 9120
2
i
8
|
8
|
8
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík • Sími 553 1099
Opið öll kvöld
til kl. 22 - einnig um helgar.
Sl<xeylingai- fyrír öll lilefni.
t
Hjartkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og elskulegur afi okkar,
BJARNI BIRGIR HERMUNDARSON
framkvæmdastjóri,
Sævangi 30,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju
þriðjudaginn 20. ágúst kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent
á heimahlynningu Krabbameinsfélags-
ins eða Krabbameinsfélagið.
Ester Hurle,
Björg Ó. Bjarnadóttir, Ragnar Óskarsson,
Bjarni Birgir Fáfnisson,
Þormar ElíRagnarsson,
Hafsteinn Veigar Ragnarsson.
---------------
t
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug
vegna veikinda, andláts og útfarar
STEINARS EIRÍKS
SIGURÐSSONAR.
Sigríður Gunnarsdóttir,
Sigurður Dagnýsson, Helga Sveinsdóttir,
Rakel Ragnarsdóttir, Kristján Geir Jóhannesson,
Gunnar Steinarsson, Magnea Þ. Einarsdóttir,
Katrín Ingibjörg Steinarsdóttir, S. Rúnar Grétarsson,
Sigurveig Steinarsdóttir, Gísli Eyland Sveinsson,
Þurfður Steinarsdóttir, Hörður Einarsson,
Ólafía Steinarsdóttir
og barnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
MAGNÚS ÞORBJÖRNSSON,
Kleppsvegi 62,
sem lést á heimili sínu 12. ágúst, verð-
ur jarðsunginn frá Fossvogskirkju mið-
vikudaginn 21. ágúst kl. 13.30.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent
á Krabbameinsfélagið.
Halldóra Aðalsteinsdóttir,
Magnús Magnússon, Kristín H. Valdimarsdóttir,
Vilborg Magnúsdóttir, Árni J. Hannesson
og barnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
JÓN BJÖRNSSON
skipstjóri,
Bakkavör 5,
Seltjarnarnesi,
andaðist 13. ágúst sl.
Útförin ferfram frá Dómkirkjunni þriðju-
daginn 20. ágúst kl. 13.30.
Jenný Guðlaugsdóttir,
Björn Jónsson, Erna Nielsen,
Kristín Jónsdóttir,
Guðlaugur Jónsson, Sigríður Þorsteinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum hlýhug og vinsemd vegna andláts og jarðarfarar systur
minnar og mágkonu,
BRYNHILDAR STEINÞÓRSDÓTTUR
(Stellu).
Birgir Steinþórsson, Kristín Ingimundardóttir.
t
Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og
vináttu vegna andláts okkar elskulegu
frænku,
ÞÓRUNNAR ÁSGEIRSDÓTTUR
frá Hvítanesi.
Einnig viljum við þakka starfsfólki á
hjúkrunarheimilinu Eir fyrir frábæra
umönnun, sem hún naut þar síðustu
árin.
Systkinabörnin.
t
Innilegustu þakkir til allra, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát
HAUKSHELGASONAR
ritstjóra,
Lundarbrekku 6,
Kópavogi.
Nanci Arnold Helgason,
Marfa Kristoffersen, Steen Kristoffersen,
Mikael, Daniel og Robert,
Bertha Richter, Þórhallur Gunnlaugsson,
Karen og Ástþór,
Dagný Michelle Jónsdóttir, Kristján Guðmundsson.
t
Hjartans þakkir til allra, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför elskulegs eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
ÁRNA GUÐMUNDSSONAR,
Skriðustekk 1,
Reykjavík.
Laufey Ólafsdóttir,
Ólafur Rúnar Árnason, Ása Ásgrímsdóttir,
Guðmundur Árnason, Guðrún Samúelsdóttir,
Sigurður Árnason, Guðbjörg Skjaldardóttir,
Þráinn Árnason, Unnur Vilhjálmsdóttir,
Már Árnason, Valdfs Snorradóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.