Morgunblaðið - 18.08.1996, Qupperneq 26
26 SUNNUDAGUR 18. ÁGÚST 1996
MORGUNBLAÐIÐ i
SKOÐUN
UPPHAF 136. sálms Davíðs er
Þakkið Drottni, því að hann er góð-
ur og miskunn hans varir að eilífu.
I öllum 36 versum sálmsins endur-
-tekur hann: Og miskunn hans varir
að eilífu: - Davíð leggur ríkt á við
okkur að minnast miskunnar Drott-
ins.
Gilgamesh epíkin er elsta þula
frá upphafi vegar sem við þekkjum.
Hún mun hafa verið ort á þriðja
þúsund árum fyrir Krist. Söguhetja
hennar fer í undarlega ferð frá
sjálfri sér numin, í gegnum myrkan
skóg óvits í leit að upphafi sjálfrar
sín. En fyrri hluti leitarinnar, hér
í heimi þrengingarinnar miklu, er
erfiður.
„ Löngu seinna segir Söngur Ind-
lands frá skógargöngu Aijúna í
svipaðri leit fjarri ríki sínu í nokkur
ár.
Þegar hann snýr aftur heim til
sjálfs sín, kemst hann að raun um
að frændur hans hafa sölsað kon-
ungdæmið undir sig. Lengi forðast
hann átök við þá þar til Krishna,
lærimeistari hans, hvetur hann til
að berjast til sigurs yfír fjandvinun-
um, uppreisnar frændum sínum.
Við gætum látið þá tákna
skuggahlið égvitundar (ego) okkar,
svo sem fáfræði, skemmdarfýsn og
tvöfeldni.
Síðarmeir kemur Mentor til sög-
unnar; náinn vinur Ódysseifs og
*kennari sonar hans, Telemakkusar
(Telemachus). Ódysseifur nýtur
hjálpar sonar síns til að hrekja burt
til eilífðar óvini móður hans, Pene-
lópu, sem áreita hana og sitja í eign-
um þeirra og sóa þeim, á meðan
faðirinn hrekst í ferðum sínum í tíu
ár í leitinni að upphafi sjálfs sín
þar til hann er loks kominn aftur
heim til þeirra og sjálf sín: Hafandi
leitað langt yfír skammt.
Frá upphafí er sama sjálfið inni-
legast i öllum sjálfum, oft óvitað
'^sem leyndardómur Guðs. Kærleiks-
rík sjálfsvitund Guðs sonar er í öll-
um sjálfum, óvitað og meðvitað.
Og Jesús segir okkur dæmisögu
um soninn sem fær föðurarf sinn
greiddan og fer burt með hann og
sóar honum í óhófsömum iifnaði og
sveltur en enginn gefur honum.
Hann er dáinn, en lifnar aftur, týnd-
ur en fínnst á ný.
Kristur segir síðan: Nú kom hann
til sjálfs sín og segir við sig: „Nú
tek ég mig upp og fer til föður
míns og segi við hann: „Faðir, ég
hef syndgað á móti himninum og
gegn þér. Ég er ekki framar verður
TÆR ALUÐ
að heita sonur þinn.
Lát mig vera sem einn
af daglaunamönnum
þínum“.“
í sannri auðmýkt
fyrir föðurnum leggur
hann af stað heim á
leið.
En faðirinn sér til
hans á meðan hann er
enn langt í burtu og
hleypur fagnandi á
móti honum og faðmar
og kyssir hann með
föðuralúð.
Frá eilífð, um eilífð,
til eilífðar, snýr allt aft- Esra S
ur þegar tími þess er Pétursson
kominn, frá þrenging-
unni miklu hér í heimi til tæru alúð-
ar skaparans sem fyrirgefur og
fagnar okkur heim til sín, þegar við
snúum okkur frá syndum okkar til
hans með iðrun, í sannri auðmýkt
fyrir honum.
Hann sendir son sinn, ljós heims-
Guð er kærleiksljós allr-
ar vitundar frá sjónar-
hæð eilífðarinnar, segir
Esra S. Pétursson.
Réttlætt fyrir fóm
hans og náð lifum við
hjá honum að eilífu og
drottinn er laun okkar.
Hallgrímur yrkir í
síðasta versi Passíu-
sálmanna sem við
syngjum oft í kirkju:
Son Guðs ert þú með sanni
sonur Guðs, Jesús minn,
son Guðs syndugum mann
sonar arf skenktir þinn,
son Guðs einn eingetinn.
Syni Guðs syngi glaður
sérhver lifandi maður
heiður í hvert eitt sinn.
andi
ins, sem fómar sér fyrir okkur og
sigrar heiminn og frelsar hann, og
allt vald á himni og jörðu er gefíð.
Guð fyrirgefur okkur og gleymir
syndum okkar, og gefur okkur sinn
frið. Miskunn hans varir að eilífu.
Allt snýr aftur til friðsældar frelsar-
ans. Hann náðar okkur börn sín og
erfíngja Guðs ríkis og launar með
gullnu kórónu eilífs lífs, að loknum
störfum okkar í tíma - og stað-
bundna lífinu hér í þrengingunni
miklu.
Þegar ævinni lýkur sendir Krist-
ur öllum dauðafróunar líkn með
þraut dauðastundarinnar. Hann
frelsar og réttlætir alla með blóði
sínu, dýrðlegu ljósi heimsins.
Við syngjum um ljós
heimsins, hina ótæm-
uppsprettu-lind lífsgleði með
sanni. Sú friðsæla viska sem skín
frá alheimsvitund Guðs upplýsir vit-
und okkar um það að: Guð er Guð.
Hann er það sem Hann er og við
erum það sem við emm, böm Guðs,
og við víkjum frá takmarkaðri égvit-
und til víðfeðmu sjálfsvitundar Guðs.
Guð er kærleikur og elskar ailt og
miskunn hans varir að eilífu.
Vitandi vits horfum við til tæru
dýrðar Guðsríkis sem varir í óskap-
aðri sjálfsvitund Guðs.
Guð er andi og við eigum að til-
biðja hann í anda og sannleika. Og
bíða hans með næga olíu og log-
andi lömpum sjálfsvitundar okkar
og fagna honum þegar hann kemur
um miðnætti. Og viðbúin að ganga
með honum inn til brúðkaupsveislu
Sonarins.
Tær alúð Guðsföður er upphaf
alls og stjómar altilvemnni. I
straumi lífsins stýrir Guð einnig sál-
könnun með sanni og vekur sofandi
sálir til lífsins.
En auðsætt er að guðfræði og
sálkönnunarfræði sem líta má raun-
hæft frá víðsýnu sjónarhæð eilífð-
ar, hljóta að verða nokkuð að-
þrengdar þegar einblínt er á þær
með rörsýn frá jarð- og tímabundn-
um sjónarhornum bæjardyra hvers
og eins.
Hinsvegar, geta allir horft til ei-
Fimleikar
Innritun hefst á morgun
Upplýsingar í síma 557 4925 eða 557 4923
milli kl. 10.00 og 20.00
ÁhaMafimleikar
Trompfimleikar
Þolfimi
Þjálfarar með fagmenntun
Barnaflokkar: Morguntímar, dagtímar og kvöldtímar
Fimleikar - föáur íÞróff
Vetrarstarf Gerplu hefst 3. september n.k.
lífðar í einingu anda sem með sál-
könnun, eða á annan veglyndan og
bróðurlegan hátt, hjálpast að og
Guð hjálpar og endumýjar, þar sem
víðsýnið skín, í heildarsýn guðs.
Tært Ljós
Skín, guðdóms sól, á hugarheimi mínum,
sem hjúpar allt í kærleiksgeislum þínum.
Þú, Drottinn Jesús, lífsins ljósið bjarta,
ó, lýs nú mínu trúarveika hjarta.*
Guðdóms sólin, sem sálmaskáld-
konan Ólína Andrésdóttir tilbiður í
anda, er tært ljós því Guð er ljós
og myrkur er alls ekki í honum.“
Jóh. bréf, 1:5.
Ósköpuð viska Guðs ** upplýsir
sérhveija manneskju. Með ljósi
viskuvitundar Guðs sjáum við ljós.
Án hennar erum við í myrkri.
Jólaguðspjall Jóhannesar segir:
„í upphafí var Orðið, og Orðið var
hjá Guði, og Orðið var Guð. Hann
var í upphafí hjá Guði. Allir hlutir
urðu fyrir hann, án hans varð ekki
neitt, sem til er. í honum var líf,
og lífið er ljós mannanna.
Hér á eftir er að nokkru stuðst
við Jerúsalem Biblíu þýðinguna: ***
Ljósið skin í myrkrinu; ljós, sem
myrkur getur ekki yfírbugað.
I Guði eru allir hlutir, án hans
varð ekki neitt sem til er. í Guði
er líf og allt sem lifír er heilagt í
lífí hins lifandi Guðs. Sjálft lífíð er
Ijós vitundar manna, ljósið sem skín
í náttmyrkri sálarinnar og myrkrið
getur aldrei yfírbugað. Og hið full-
komna ljós Guðs orðs er tær alúð.
Allt er eitt því Guð er einn, Faðir
sonur og Heilagur andi. Og Drott-
inn segir; Ég er:
Hann er hið óskapaða ljós og líf
sem er í, með og yfir öllu sem hann
skapar, endurskapar á ný og ann-
ast ætíð með sanni. Honum fellur
aldrei verk úr hendi og Guð vill að
allir verði hólpnir. Hann sendir son
sinn til að hjálpa og frelsa allar
sálir sem sundur eru dreifðar til að
sameina þær í heilagri einingu svo
þær geti hjálpast betur að, hér og
nú.
Hann hjálpar okkur til þess með
einingu Sonarins og lífsgleði Eilífs
Anda, Paraclete, sem þýðir Hjálp-
ari. Drottinn svarar hjálpsömum
manneskjum með því að veita þeim
gleði í hjarta.
Guð er vegurinn sannleikurinn
og lífið og dýrðlegt líf Krists er ljós
heimsins, sem upplýsir alla vitund
og hliðar-vitund (para-conscious
awareness) sköpunarverks hans,
með erkiengli nærveru sinnar.
Guð er kærleiksljós allrar vit-
undar frá sjónarhæð eilífðar. Hin
„nóttlausa voraldar veröld þar sem
víðsýnið skín“, eins og Stephan
G. Stephansson Klettaljallaskáld
orti.
Biblían, Orð Guðs, Logos, minnir
okkur á að „Sá sem hrósar sér,
hrósi sér í Kristi. Við erum eignar-
lýður guðs í kirkju Krists - Kirkja,
Kýrios á grísku, merkir það sem
Drottinn eða Herrann á.
Við erum kristin, og kennum
okkur við Jesús Krist.
Faðir okkar þriggja systkina og
fyrsti lærimeistari um raunveru-
leika Andans, Pétur Sigurðsson
kennimaður segir: „Það sem maður-
inn á er ekki hjálpræði hans heldur
það sem á manninn“. **** Pabbi
okkar sem er nú á himnum hjá
Guði og móður okkar og andvana
fæddum bróður - blessuð veri
minning ykkar og þökk fyrir allt og
allt.
Þig sem hið góða gefur allt
ó Guð af hjarta bið ég nú.
Við ótta þinn mig ætíð halt,
og elsku þína og sanna trú.
Sönn trú, elska og ótti veri góð
samviska okkar og veiti okkur að-
hald með alúð og festu, og hjálpi
okkur, nú, til að vera fullorðnar
almennilegar manneskjur, og geta
náð vaxtartakmarki Krists-fylling-
ar með hjálp Guðs, nú þegar. Síð-
asta Ijóðlína sálmsins: Ég lifi’ og
ég veit, hve löng er mín bið, er:
Ég á þegar eilífa lífíð.
* Sálmabók íslensku kirkjunnar Reykjavík
1975. Útgefandi: Kirkjuráð.
** Kirkjan játar. Dr. Einar Sigurbjömsson.
Aþanasíusaijátningin. Áttunda vers: Faðir-
inn er óskapaður, sonurinn er óskapaður,
heilagur andi er óskapaður. Bókaútgáfan
Salt hf„ 60, 1980.
*** The Jerusalem Bible. Doubleday and
Company Inc. Garden City, New York,
United States of America, 1966.
**** Vel mælt. Tiivitnanir til íhugunar og
dægradvalar. Sigurbjöm Einarsson biskup.
95 Setberg. Þriðja prentun í september
1994.
Höfundur er sálkönnuður.
Opnum Þrióiudaá
með nýjar hausfvörur,
m.a. dragtir o.fl. frá
peysur frá Gran Sasso
TISKUVERSLUN
Kringlunni 8-12
sími: 553 3300
fKttQmtMábib
-kjarni málsins!