Morgunblaðið - 18.08.1996, Qupperneq 22
22 SUNNUDAGUR 18. ÁGÚST 1996
MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYNDIR/Regnboginn, Háskólabíó, Laugarásbíó, Stjörnubíó og Borgarbíó á Akur-
eyri sýna bandaríska geimveruhryllinn Independence Day, eða ID4, sem slegið hefur öll
aðsóknarmet í Bandaríkjunum í sumar. Með aðalhlutverk í myndinni fara Bill Pullman,
Jeff Goldblum og Will Smith, en leikstjóri er Roland Emmerich sem leikstýrði Stargate
úr sjónvarpsmyndaflokknum
Chicago Hope, en meðal þeirra
kvikmynda sem hún hefur leikið í
eru Three Men and a Baby, Term-
inal Velocity og The Butcher’s Wife,
og nýjasta mynd hennar er The
Devil’s Own þar sem hún leikur á
móti Harrison Ford og Brad Pitt.
Önnur þekkt andlit í Independ-
ence Day eru Randy Qaid (Kingpin,
The Paper, Last Dance), Robert
Loggia (Big, Jagged Edge, Prizzi’s
Honor), Jame Rebhorn (Up Close
and Personal, Carlito’s Way, Scent
of a Woman) og Harvey Fierstein
(Bullets Over Broadway, White Lies,
Mrs. Doubtfire).
Bili Pullman er fæddur 17.
desember 1954 og eftir að hafa
verið í aukahlutverkum í tíu ár festi
hann sig loks í sessi sem aðalleik-
ari þegar hann lék á móti Söndru
Bullock í While You Were Sleeping
í fyrra. Pullman var feiminn og
óframfærinn unglingur og að loknu
menntaskólanámi innritaðist hann
í tækniskóla með það í huga að
verða byggingatæknifræðingur.
Straumhvörf urðu hins vegar í lífí
hans þegar hann var valinn til að
fara með hlutverk í skólaleikriti og
skipti hann í kjölfarið um skóla og
hóf leiklistarnám, en að því loknu
hóf hann kennslu við ríkisháskólann
í Montana. Því næst lá leiðin til
New York þar sem hann lék um
skeið á leiksviði, en eftir að hafa
flutt til Los Angeles leið ekki á
löngu þar til Puilman hlaut fyrsta
kvikmyndahlutverkið. Það var árið
1986 í myndinni Ruthless People,
en síðan hefur hann alls leikið í 25
kvikmyndum. Meðal þeirra eru A
League of Their Own, Singles, Sle-
epless in Seattle, The Last Seducti-
on, Wyatt Earp og Casper.
Jeff Goldblum lék í sinni fyrstu
kvikmynd árið 1974, en það var
Death Wish sem Charles Bronson
lék aðalhlutverkið í. Goldblum, sem
verður 44 ára á þessu ári, hefur
síðan leikið í um 40 kvikmyndum
og íjölda sjónvarpsmynda. Hann
var sautján ára gamall þegar hann
byijaði að leika á sviði í New York,
og eftir að hafa leikið í Death Wish
fékk hann m.a. aukahlutverk í
nokkrum mynda Roberts Altmans.
En það var ekki fyrr en í myndun-
um The Right Stuff og The Big
Chill, sem gerðar voru 1983, sem
hann vakti verulega athygli, og
fyrsta aðalhlutverkið fékk hann í
myndinni The Fly, sem gerð var
1986. Meðal mynda sem hann hef-
ur leikið í síðan eru Framed, The
Player, Deep Cover, Nine Months,
Hideaway og Powder, en sennilega
er hann þekktastur fyrir hlutverk
sitt í Jurassic Park sem gerð var
1993.
Independence Day er fimmta
myndin sem Will Smith leikur í, en
síðasta mynd hans var Bad Boys
sem gerð var 1995. Hann hóf feril
sinn sem tónlistarmaður, en árið
1986 stofnaði hann rappsveitina
D.J. Jazzy Jeff and The Fresh
Prince með félaga sínum Jeff Tow-
nes. Þeir unnu til Grammy verð-
launa árið 1988 fyrir besta rapplag-
ið það ár og sama sagan endurtók
sig árið 1991. Hæfileikar Smiths á
tónlistarsviðinu og sem alhliða
skemmtikraftur leiddu til þess að
hann fékk að láta ljós sitt skína í
eigin sjónvarpsþætti, The Fresh
Prince of Bel Air, en þátturinn hef-
ur notið talsverðra vinsælda í
Bandaríkjunum undanfarin ár.
Smith hefur farið með hlutverk í
kvikmyndunum Made in America
með þeim Whoopi Goldberg og Ted
Danson í aðalhlutverkum og Six
Degrees of Separation, en fyrir
hlutverk sitt í þeirri mynd hlaut
hann mikið lof gagnrýnenda. Næsta
mynd sem hann leikur í er Men In
Black og fer hann þar með aðalhlut-
verkið á móti Tommy Lee Jones.
RISASTÓR geimskip eyða öllum helstu stórborgum heimsins með hitageislum.
Munchen lagði hann fyrir sig fram-
leiðsluhönnun. Leiðin lá þó í að
leikstýra og lokaverkefni hans við
skólann var myndin The Noah’s
Ark Principle, sem var opnunar-
mynd kvikmyndahátíðarinnar í
Berlín 1984. Myndin hlaut geysi-
góðar viðtökur og var hún sýnd í
rúmlega 20 löndum.
Emmerich stofnaði eigið kvik-
myndafyrirtæki, Centropolis Film
Productions, sem framleiddi næstu
myndir hans. Sú fyrsta var Making
Contact, sem fjallar um dreng sem
nær sambandi við látinn föður sinn
í gegnum leikföng, en myndin sýndi
glögglega það vald sem Emmerich
hefur yfír tæknibrellum, og næst
gerði hann gamanmyndina Ghost
Chase sem fjallar um tvo bíófíkla
sem reyna fyrir sér í Hollywood.
Emmerich vann næst sem framleið-
andi myndarinnar Eye of the Storm
með Dennis Hopper í aðalhlutverki,
en næsta myndin sem hann leik-
stýrði var Moon 44 (1989) og var
Dean Devlin einn af leikurunum í
henni. Myndin gerist árið 2018 og
fjallar um baráttu tveggja risafyrir-
tækja um námaréttindi í geimnum.
Eftir að hafa leikið í Moon 44
varð Dean Devlin sem nú er 33 ára
hluthafí í Centropolis Film Producti-
ons og ásamt Emmerich hefur hann
framleitt og skrifað handrit mynd-
anna Universal Soldier, Stargate
og Independence Day. Devlin byij-
aði feril sinn sem sviðsleikari en lék
þvínæst í ýmsum sjónvarpsþáttum,
m.a. L.A. Law. Eftir að hann kynnt-
ist Emmerich við gerð Moon 44 kom
í Ijós að þeir félagar höfðu áhuga
á sömu myndunum og hæfíleikar
Devlins sem handritshöfundar heill-
uðu Emmerieh sem bauð honum
samstarf. Devlin lagði því leiklistina
á hilluna og snéri sér alfarið að því
að skrifa handrit og framleiða
myndir í samvinnu við Emmerich.
Þijár helstu aðalpersónurar í
Independence Day eru leiknar af
þeim Bill Pullman, Jeff Goldblum
og Will Smith, en auk þeirra fer
fjöldi þekktra leikara með stór hlut-
verk í myndinni. Þeirra á meðal eru
Mary McDonnel sem tvisvar hefur
verið tilnefnd til óskarsverðlauna,
en hún hlaut tilnefningu sem besta
leikkona í aðalhlutverki fyrir hlut-
verk sitt í Passion Fish og besta
leikkona í aukahlutverki fyrir Danc-
es With Wolves. Meðal annarra
mynda sem hún hefur leikið í eru
Sneakers og Grand Canyon. Judd
Hirsch þekkja sennilega flestir úr
sjónvarpsþáttunum Dear John, en
meðal kvikmynda sem hann hefur
leikið í eru Ordinary People, sem
hann hlaut tilnefningu til óskars
verðlauna fyrir, Teachers og Runn-
ing On Empty, sem Sidney Lumet
leikstýrði. Margaret Colin er þekkt
ÞANN 2. júlí ótilgreint ár í
nánustu framtíð er spurn-
ingunni um það hvort jarð-
arbúar séu einu lífverurnar í al-
heiminum svarað í eitt skipti fyrir
öll, en þá koma skyndilega risastór
geimskip frá öðru sólkerfi inn í
gufuhvolf jarðar og taka sér stöðu
yfir öllum helstu borgum heimsins.
Þau varpa risastórum skuggum
yfir borgirnar og eyða síðan gjör-
samlega kjarna þeirra með hita-
geislum sem ekkert fær staðist.
Daginn eftir bræðir forseti Banda-
ríkjanna (Bill Pullman) saman
áætlun um gagnárás í samvinnu
við tölvusnilling (Jeff Goldblum)
og orrustuflugmann (Will Smith).
Á þjóðhátíðardag Bandaríkjanna,
4. júlí, hefst svo æðisgengið lo-
kauppgjör milli jarðarbúa og geim-
veranna illskeyttu sem ekkert virð-
ist í fyrstu geta fengið grandað,
og viðureigninni lýkur með því að
mannfólkið fagnar deginum sem
frelsisdegi allra jarðarbúa.
Þannig er í stuttu máli sögu-
þráðurinn í kvikmyndinni Inde-
pendence Day, eða ID4, sem slegið
hefur öll aðsóknarmet í Bandaríkj-
unum í sumar og skilað hátt í 300
milljónum dollara í tekjur frá því
myndin var frumsýnd 3. júlí síðast-
liðinn, en þrátt fyrir stórfenglegar
tæknibrellur og dýran umbúnað
kostaði myndin aðeins rúmlega 70
milljónir dollara í framleiðslu.
Höfundar og framleiðendur
Independence Day eru þeir Roland
Emmerich og Dean Devlin, en
Emmerich er jafnframt leikstjóri
myndarinnar. Hann leikstýrði einn-
ig Stargate sem óvænt varð ein
af aðsóknarmestu myndum ársins
1994, og árið 1992 leikstýrði hann
Universal Soldier með Jean-Claude
Van Damme í aðalhlutverki. Hinn
fertugi Emmerich er fæddur og
uppalinn í Þýskalandi og þar hóf
hann feril sinn sem kvikmynda-
gerðarmaður. Sem unglingur lagði
hann stund á málaralist og högg-
myndagerð og í kvikmyndaskóla í
Orrustuflugmaðurinn (Will
Smith) og töivusnilingurinn
(Jeff Goldblum) sameina
krafta sína gegn geimverun-
um.
Árásúr
geimnum
FORSETI Bandaríkjanna (Bill Pullman) fylgist hjálparvana
með geimskipinu yfir Washington.
ROLAND Em-
merich og Dean
Devlin eru höf-
undar og fram-
leiðendur Inde-
pendence Day.